Morgunblaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Við verðum að fara að beita skjátunni á hauginn, stiginn nær ekki hærra. Rúmar fimm vikureru til sveitar-stjórnarkosninga en þær fara fram 27. maí nk. Kosið verður til bæjar- og sveitarstjórna í 79 sveit- arfélögum. Framboðslist- ar eru víða tilbúnir, en frestur til að skila fram- boðum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi rennur út hinn 6. maí. Tal- ið er að kosningabaráttan hefjist af fullum krafti í stærstu sveitarfélögunum strax eftir páska. Kosningarétt á hver ís- lenskur ríkisborgari sem náð hef- ur 18 ára aldri þegar kosning fer fram. Utankjörfundaratkvæða- greiðsla vegna kosninganna hófst mánudaginn 3. apríl sl. Hún fer fram hjá öllum sýslumannsemb- ættum landsins. Auk þessa fer ut- ankjörfundarkosning fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og á aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg. Býst við að hátt í 10 þúsund muni kjósa utan kjörfundar Tæplega sextíu manns hafa þeg- ar kosið utan kjörfundar hjá sýslu- manninum í Reykjavík, að sögn Þóris Hallgrímssonar, deildar- stjóra hjá embættinu. Hann segir að flestir þeirra sem kjósi utan- kjörfundar sjái fram á að vera ekki heima á kjördag. Þórir segir ennfremur aðspurð- ur að venjulega fari utankjörfund- aratkvæðagreiðslan hægt af stað. Hann gerir ráð fyrir því að hátt í tíu þúsund manns muni kjósa utan kjörfundar hjá embættinu í Reykjavík. Bjóða fram í eigin nafni eða í samfloti með öðrum Stærstu stjórnmálaflokkar landsins bjóða fram víða um land; ýmist sér eða í samfloti með öðr- um. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram í langflestum sveitarfélögum landsins, segir Óskar V. Friðriks- son, starfsmaður Sjálfstæðis- flokksins. Á örfáum stöðum býður flokkurinn fram í samstarfi við aðra flokka, segir Óskar, en á lang- flestum stöðum undir eigin merkj- um, merki D-listans. Hann segir aðspurður að flokkurinn hafi eng- ar reglur um kynjakvóta á fram- boðslistum. Samfylkingin býður fram sér eða með óháðum í um það bil fimmtán sveitarfélögum, segir Skúli Helgason, framkvæmda- stjóri flokksins. Listabókstafur Samfylkingarinnar er S. Þá býður flokkurinn fram í samstarfi við aðra flokka í nokkrum sveitar- félögum. Að sögn Skúla er það á valdi stjórnar flokksins í hverju og einu sveitarfélagi hvort hún setur sér sérstakar reglur um kynja- kvóta framboðsins. Hann tekur þó fram að hlutur kvenna hafi ávallt verið sterkur á listum Samfylking- arinnar. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð stefnir að því að bjóða fram í flestum sveitarfélögum landsins, segir Dagur Snær Sævarsson, starfsmaður flokksins. Flokkurinn býður ýmist fram undir eigin merkjum, þ.e. merki V- listans, eða í samfloti með öðrum. Dagur segir að flokkurinn stefni að því að hafa fléttulista sem víð- ast, þ.e. lista þar sem konur og karlar skipa sæti framboðslistans á víxl. Framsóknarflokkurinn hyggst bjóða fram undir eigin merkjum, merki B-listans, í um það bil 25 sveitarfélögum, segir Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri flokksins. Hann segir að flokkurinn bjóði fram á fleiri stöðum, en þá í sam- floti með öðrum. Sigurður segir aðspurður að í lögum flokksins sé kveðið á um að hlutfall hvors kyns verði ekki undir 40% á framboðs- lista. Frjálslyndi flokkurinn býður fram sér eða sameiginlega í að minnsta kosti fimm sveitarfélög- um, segir Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri flokksins. Listabókstafur flokksins er F. Hún segir aðspurð að flokkurinn leitist við að hafa hlutfall kynjanna á framboðslistum flokksins sem jafnast. Mikil fækkun sveitarfélaga með færri en 500 íbúa Sveitarfélögum landsins hefur fækkað um 26 á þessu kjörtímabili. Þau voru 105 við upphaf kjörtíma- bilsins, en í kjölfar sameiningar nokkurra þeirra eru þau nú orðin 79. „Þessi mikla fækkun sveitarfé- laga hefur eðlilega haft umtalsverð áhrif á sveitarfélagaskipan í land- inu,“ segir á vef félagsmálaráðu- neytisins, www.kosningar.is. „Sveitarfélögum með færri en 500 íbúa hefur fækkað umtalsvert á þessu kjörtímabili. Árið 2002 voru sveitarfélög með færri en 500 íbúa 55 af 105 sveitarfélögum í landinu, eða rúm 52%. Í dag eru sveitarfélög með færri en 500 íbúa 30, eða um 38%.“ Ekki hefur verið gengið endan- lega frá kjörskrá fyrir komandi kosningar. Nærri 205 þúsund voru á kjörskrá í kosningunum 2002. Kjörsókn var rúmlega 83%. Fréttaskýring | Sveitarstjórnarkosningar eftir rúmar fimm vikur Um sextíu hafa þegar kosið Kosið verður til bæjar- og sveitarstjórna í 79 sveitarfélögum laugardaginn 27. maí Kosning er hafin utan kjörfundar. Sveitarfélögum hefur fækkað um tuttugu og sex  Kosið verður til bæjar- og sveitarstjórna í 79 sveitar- félögum í vor. Við upphaf kjör- tímabilsins voru 105 sveitarfélög í landinu en í kjölfar samein- ingar nokkurra þeirra verða þau 79. Á kosningavef félagsmála- ráðuneytisins segir að það þýði m.a. að kosið verði til nýrrar sveitarstjórnar í níu sameinuðum sveitarfélögum í vor. Meðal- íbúafjöldi í sveitarfélagi er nú 3.796 manns en var 2.745 íbúar að meðaltali árið 2002. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Í FANGELSINU á Litla-Hrauni er starfandi skóli sem hefur á að skipa tveimur skólastofum auk tölvuvers. Skólinn flutti í núver- andi húsnæði fyrir 15 árum og hefur nemendafjöldinn verið að aukast á undanförnum árum og eru nú 35 nemendur innritaðir. Þetta kemur fram í nýjasta tölu- blaði Hraunbúans sem gefið er út af föngum á Litla-Hrauni. Í sam- tali við Hraunbúann segir Ingi S. Ingvason kennslustjóri að aðeins 19 nemendur af 35 muni þreyta próf í lok þessarar námsannar. Í boði er kennsla í íslensku, ensku, dönsku, stærðfræði, íþróttum, lífsleikni, grunnteikn- ingu og iðnteikningu. „Einnig nýta nemendur fjarnámsmögu- leika frá móðurskólanum FSU og einnig frá VÍ, IR og jafnvel frá HR,“ segir Ingi í samtali við Hraunbúann. Frá skólanum hefur um tugur manna útskrifast með stúdents- próf og hálfur tugur með versl- unarpróf. Þrír hafa þá útskrifast með próf í húsasmíði, tveir sem löggiltir suðumenn, einn með vélavarðarréttindi, einn sem raf- virki og einn sem vélvirki auk á þriðja tug nemenda með skip- stjórnarréttindi á allt að 30 rúm- lesta bát. Ingi segir ennfremur að brott- fall nemenda úr skólanum hafi verið nokkurt og eru ástæður þess margvíslegar, t.d. lyfjamis- notkun, en brottfallið hefur þó minnkað undanfarin ár. Sumir nemenda hafa þá náð betri árangri í námi í fangelsinu en í skólakerfinu og segir Ingi það helgast af því að ekki sé alltaf verið að líta á dagatal varðandi fyrirlögn lokaprófa í áföngum. Margoft hafi gerst að nemendur ljúki fleirum en einum áfanga í viðkomandi grein á önn. „Ég held að metið, 48 einingar á önn, hafi ekki enn verið slegið utan múra, a.m.k. ekki í FSU,“ segir Ingi. Ritstjórar Hraunbúans eru Rúnar Ben Maitsland og Sigur- björn S.G. 35 fangar stunda nám í skóla Litla-Hrauns KOLBRÚN Ólafsdóttir lögfræð- ingur verður aðstoðarmaður Sivjar Friðleifsdóttur í heilbrigðisráðu- neytinu, en Siv tók sem kunnugt er við embættinu í marsbyrjun af Jóni Kristjánssyni. Kolbrún, sem tekur við starfinu 1. maí nk., hefur starfað sem fulltrúi hjá lögreglustjóranum í Reykjavík frá árinu 2002 en þar á undan starfaði hún sem fulltrúi hjá sýslumanninum á Eskifirði. Hún er fædd árið 1971 og útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1999. Kolbrún hefur verið varafor- maður Félags ungra framsókn- armanna í Reykjavík suður frá árinu 2003, ritstjóri Sambands ungra framsóknarmanna 2003– 2005, formaður Varðbergs 2004– 2005 og setið í framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna frá 2003 og verið varaformaður frá 2005. Sæunn Stefánsdóttir viðskipta- fræðingur hefur gegnt embætti að- stoðarmanns heilbrigðisráðherra en hún færir sig um set og verður aðstoðarmaður Jóns Kristjánssonar í félagsmálaráðuneytinu. Nýr aðstoðar- maður heilbrigð- isráðherra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.