Morgunblaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Farðu yfir það sem þú hefur reynt að koma á framfæri, til þess að tryggja að enginn hafi misst af neinu. Túlkanir á orðum þínum eru mjög mismunandi, sem bæði reynist skemmtilegt og gremjulegt, allt eftir því hvað tímanum líður. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hlutverk þitt sem klappstýru ræður úr- slitum um velgengni ástvinar. Hvað þinn árangur varðar veltur hann alfarið á því hversu vel þú fylgir viðfangsefnum þínum eftir í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Breska poppstjarnan Natasha Bedd- ingfield minnir okkur á að það sem á eft- ir kemur er enn óskrifað blað. Þau orð gætu hafa verið skrifuð fyrir tvíburann því svo virðist sem örlög hans séu í höndum æðri máttarvalda í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Spurðu sjálfan þig hver búi til vænting- arnar sem þú þarft að uppfylla frá degi til dags; langa verkefnalistann, hinar stjarnfræðilegu kröfur. Svo, það er þú! Prófaðu að hrista þær af þér í dag. Þér lætur best að gera sem minnst í bili. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Kannski er ljónið ekki jafn mikið við stjórnvölinn og það telur sig vera. Lífið er eins og listin og betra að leiða en stýra. Þannig færðu líka meiri aðstoð frá hinum óséðu öflum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Lukka (Felicity) er meira en sérstakt kvenmannsnafn, það er yndislegt lífs- viðhorf. Himintunglin hvetja meyjuna til þess að tileinka sér hamingjuna. Kannski færðu meira að segja að upp- lifa gleði biðukollunnar, þar sem hún feykist í vindinum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin þarf á innleggi annarra að halda í kvöld, til þess að vita hvernig hún á horfa á sjálfa sig. Það er miklu mikil- vægara að blanda geði en maður heldur. Heimurinn er spegill sálar þinnar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Milli þín og samstarfsmanns eru ósögð orð sem best er að verði látin kyrr liggja. Þagmælska er ekkert mál fyrir þig, en kannski þarftu að biðja hina manneskjuna um að gæta leyndar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þín útgáfa af tiltekinni sögu er sú allra brjálaðasta. Hún er líka sú skemmtileg- asta og það sem skrýtnara er, sú sann- asta. Vertu því jafn mikill og þér sýnist þegar þú segir hana. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitinni berst aðstoð úr öðrum víddum, hvort sem hún trúir á þær eða ekki. Líklega ekki. Það skiptir hjálp- armenn þína engu máli. Þeir eru hollir þér hvort eð er. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn er forvitinn um gangverk tiltekins reksturs, en ekki á opineygan og saklausan máta. Undir niðri býr til- gangur. Hann vill læra allt sem hann getur til þess að geta sett saman sína eigin velgengniformúlu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hlutirnir sem virðast mikilvægir eru það ekki og hið sama gildir um það sem virðist töfrandi, áhugavert og brýnt. Töfrarnir búa í framtaki sem er bæði látlaust og einfalt. Stjörnuspá Holiday Mathis Þessa dagana er mikið um forvitnilega afstöðu í him- ingeimnum. Það er engu líkara en að kliður fari um plánetuhóp- inn, eins og meðal þorpsbúa sem bíða eft- ir konungi sínum. Hennar hátign, sólin, fer í merki nautsins á morgun og byrjar strax að útdeila verkefnum til allra sem eru í augsýn. Orka nautsins er ákveðin og fastheldin, svo jaðrar við þrjósku. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 fyllir þverúð, 8 ferma, 9 sjávarrót, 10 streð, 11 sakleysi, 13 fugls, 15 sverðs, 18 þvo, 21 frístund, 22 gorti, 23 styrkir, 24 spaugilegt. Lóðrétt | 2 ástæða, 3 falla, 4 bera á, 5 starfið, 6 kássa, 7 frjáls, 12 þegar, 14 stormur, 15 ástand, 16 duglegur, 17 verk, 18 hvell, 19 griðlaus, 20 hina. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 bræla, 4 kúgar, 7 nýtni, 8 tígur, 9 nei, 11 asni, 13 bana, 14 lindi, 15 þjál, 17 körg, 20 urg, 22 skart, 23 rægir, 24 rúnar, 25 forði. Lóðrétt: 1 benja, 2 ættin, 3 alin, 4 kuti, 5 gegna, 6 rýrna, 10 Einar, 12 ill, 13 bik, 15 þusar, 16 áraun, 18 öfgar, 19 gervi, 20 utar, 21 gröf.  Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Tónlist Langholtskirkja | Skagfirska söngsveitin í Reykjavík heldur vortónleika í Langholts- kirkju sumardaginn fyrsta, 20. apríl, og laugardaginn 22. apríl, báða dagana kl. 17. Stjórnandi: Björgvin Þ. Valdimarsson. Ein- söngvarar: Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Baldvin Júlíusson bassi. Að- gangseyrir 1.800 kr. Myndlist Anima gallerí | Helga Egilsdóttir, huginn. Sýningin stendur til 23. apríl. Gallerí Anima er opið 12–17 fim., fös. og lau. Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson – Íslandsmyndir. Til 5. maí. Eden, Hveragerði | Ingunn Jensdóttir með myndlistarsýningu til 23. apríl. Energia | Kristín Tryggvadóttir – Rauður þráður. Myndirnar á sýningunni eru ellefu talsins og eru þær raunverulegar myndir úr mannlífinu, málaðar með blandaðri tækni – akrýl á striga. Til 19. maí. Gallerí Galíleó | Ljósenglar. Myndlist- arkonan Svala Sóleyg sýnir olíumálverk sem eru að uppistöðu englamyndir og verk með trúarlegu ívafi í tilefni páskanna. Til 26. apríl. Gallerí Humar eða frægð! | Við krefjumst fortíðar! sýning á vegum Leikminjasafns Íslands um götuleikhópinn Svart og syk- urlaust. Ljósmyndir, leikmunir, kvikmynda- sýningar. Opið kl. 12–17 laugardaga, 12–19 föstudaga og 12–18 aðra virka daga. Gallerí Húnoghún | Þorvaldur Óttar Guð- laugsson með sýningu sína á fjöllum úr áli til 5. maí. Gallerí Sævars Karls | Pétur Halldórsson til 19. apríl. Abstrakt, meta–náttúra, veðruð skilaboð, plokkaðir fletir, mjötviður mær undir. Gallerí Úlfur | Torfi Harðarson er með sýn- ingu á hestamálverkum til 7. maí. Opið alla daga frá kl. 14–18. Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Sig- urðardóttur, myndbönd frá tískusýningum, ljósmyndir o.fl. Sýninguna og Sjónþingið má einnig skoða á www.siminn.is/steinunn. Sýningin stendur til 30. apríl. Opið mán. og þrið. kl. 11–17, mið. 11–21, fim. og fös. 11–17 og kl. 13–16 um helgar. Gerðuberg | Margræðir heimar – Alþýðu- listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir málverk í Boganum. Til 30. apríl. Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Þetta er hluti af myndaröð sem enn er í vinnslu. Myndirnar eru unnar á striga og pappír á óhefðbundinn hátt. Unnið er með spagettí og „graffiti“ úða. Sýningin stend- ur til 6. okt. Ketilhúsið Listagili | Soffía Sæmunds- dóttir myndlistarmaður með einkasýningu og sýnir málverk á tré, striga og pappír unnin á undanförnum árum. Opið alla daga nema mán. frá 13–17 til 30. apríl. Listasafn ASÍ | Í Ásmundarsal er Anna Jó- elsdóttir með innsetningu stórra, lítilla, ör- smárra, ferhyrndra, sporöskjulaga og þrí- víðra verka. Ásta Ólafsdóttir sýnir í Gryfju og Arinstofu ljósmyndir, myndbandsverk o.fl. frá ferðalagi sínu um Afríkuríkið Malí. Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick – Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfar- ar. Safnið er opið alla daga nema mánu- daga 12–15. Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal – Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar- inbjarnar – Máttur litarins og spegill tím- ans. Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og Safn- búð – opið eins og safnið. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tær- leikar – Samsýning listamannanna Elinu Brotherus, Rúrí og Þórs Vigfússonar. Opið kl. 11–17 þrið.–sun. Til 23. apríl. Safnbúð og kaffistofa. Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin Náttúrurafl er samsýning 11 listamanna þar sem viðfangsefnið er náttúra Íslands. Mál- verk, skúlptúrar, vefnaður og grafíkmyndir. Verkin eru í eigu Listasafns Íslands. Opið kl. 13–17.30. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn- ing á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, stein, brons, og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 30. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Á sýn- ingunni má sjá ýmis verk Erró frá barns- aldri þar til hann hélt sína fyrstu einkasýn- ingu á Íslandi í Listamannaskálanum árið 1957. Öll verkin á sýningunni eru úr Erró- safni Listasafns Reykjavíkur og gefa áhugaverða mynd af hæfileikaríkum og vinnusömum ungum manni. Til 23. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | AF- sprengi HUgsunar – Sprengiverk Guðjóns Bjarnasonar. Guðjón er kunnur fyrir öflug verk sín þar sem hann sprengir sundur stálrör og stillir brotunum saman á nýjan leik. Á sýningunni getur að líta nýja nálgun Guðjóns við viðfangsefni sitt sem hann vinnur í ólíka miðla. Til 23. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningin stendur til 3. desem- ber. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja & Emiliu Kabakov sem eru fremstu kons- eptlistamenn heimsins í dag. Á sýningunni vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti sýningarinnar fer einnig fram í porti Hafn- arhússins. Sýningin stendur til 5. júní. Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvalds- dóttir með málverkasýninguna Vinir og vandamenn. Sýningin stendur til og með 1. maí. Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11– 18. Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning Kjartans Guðjónssonar er opin alla daga kl. 10–17, nema föstudaga og stendur til 7. maí. Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar árlegu vinnustofa á vegum Listaháskóla Íslands og Dieter Roth Akademíunnar stendur nú yfir í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli. Þátttakendur sýningarinnar eru útskrift- arnemendur frá myndlistardeild LHÍ ásamt erlendum listnemum. Til 29. apríl. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for- réttinda að nema myndlist erlendis á síð- ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda- mótum. En engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol- lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru af- rakstur af ferðum hans um Ísland. Söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl- unarsýning, minjagripir og fallegar göngu-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.