Morgunblaðið - 18.04.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2006 11
MINNSTAÐUR
SKÁK
Djúpivogur | Út er komið kort
af fuglaskoðunarsvæði við
Djúpavog, auk fuglagreining-
arleiks, sem ekki mun eiga sér
hliðstæðu á Íslandi.
Þessi nýstárlega hugmynd er alger-
lega heimatilbúin og unnin af starfshóp
sem settur var á laggirnar til að vinna
með hugmyndir í tengslum við hið fjöl-
skrúðuga fuglalíf er þrífst í nágrenni
Djúpavogs.
Fuglaskoðunarsvæðið er eitt helsta
og vinsælasta útivistarsvæði Djúpa-
vogsbúa. Þar eru m.a. mörg falleg vötn
iðandi af fuglalífi frá seinni hluta apríl
til október og rétt utan þeirra sér-
staklega skemmtilegt og fjöl-
skylduvænt svæði sem er sendin
strandlengja, þar sem inn á milli eru
margar grasi grónar og fallegar eyjar.
Markmið hins nýja fuglagreining-
arleiks er að sögn Andrésar Skúlason-
ar, fuglaáhugamanns með meiru, fyrst
og fremst að reyna að vekja áhuga al-
mennings á fuglum og fuglaskoðun á
einfaldan og skemmtilegan hátt og um
leið að vekja áhuga fólks á því stórkost-
lega fuglaskoðunarsvæði sem er í ná-
grenni Djúpavogs.
„Leikurinn er þannig uppbyggður að
þátttakandinn fær penna með merki
birds.is og vandað fuglagreiningarkort
gegn mjög vægu þátttökugjaldi og rek-
ur sig síðan eftir kortinu um fuglaskoð-
unarsvæðin og merkir við þá fugla sem
hann telur sig hafa séð,“ segir Andrés.
„Á kortinu eru myndir af öllum helstu
og athyglisverðustu fuglategundum á
svæðinu og setja menn kross við þann
fugl sem menn
hafa séð.
Að lokinni
fuglaskoðun á svo
fuglaskoðarinn
þess kost að skrifa nafn
sitt á sérstakt nafnspjald á
kortinu sem er rifið af og
skilað inn og lendir hann
þar með í happdrætt-
ispotti sem dregið verður
úr í fyrsta skipti hinn 1.
desember 2006 og fær þá
heppinn fuglaskoðari veg-
legan vinning.“
Andrés segir ýmislegt
fleira á dagskrá starfs-
hópsins, m.a. merkjavöru-
framleiðslu með merki
birds.is sem hefur verið
hannað fyrir verkefnið.
Ferðamálanefnd Djúpa-
vogs og starfshópurinn,
sem hefur vinnuheitið bir-
ds.is, bindur að sögn
Andrésar miklar vonir við
að þetta verkefni geti vak-
ið almenna hrifningu enda
sé fuglaskoðun fyrir alla aldurshópa.
„Við viljum benda hinum ýmsu
menntastofnunum á að hér er tvímæla-
laust skemmtilegur kostur á ferðinni
til að uppfræða nemendur beint í æð
um fugla og náttúru landsins á
skemmtilegan og fræðandi hátt.“
Verkefnið hefur notið stuðnings Út-
flutningsráðs og stendur nú með full-
tingi ráðins yfir viðamikið átak við að
markaðssetja Djúpavog og nágrenni
fyrir ferðamenn og fuglaáhugafólk.
Fyrsta verkefni starfshópsins var að
koma upp vefsíðunni www.birds.is en
þar er hægt að finna ýmsan fróðleik,
fréttir og myndir af fuglum sem halda
sig á svæðinu svo og myndum úr um-
hverfinu. Á vefsíðunni er auk þess að
finna alla helstu þjónustu á svæðinu,
þannig að ferðamaðurinn á að geta
gert sér góða grein fyrir hvað bíður
hans þegar hann heimsækir Djúpavog.
Fuglaskoðarar lokkaðir
til Djúpavogs
Gátlisti fuglaskoðarans Ferðalangurinn gengur um skoð-
unarsvæðið og merkir við séðar tegundir.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Glæsifygli Brandendur við Djúpavog.
AUSTURLAND
ÞAÐ var vel til fundið hjá Tafl-
félaginu Helli að halda alþjóðlegt
mót um páskana í samstarfi við KB-
banka þar sem nokkrir af öflugustu
félagsmönnunum fengu tækifæri til
að ná áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli. Þegar tveim umferðum var
ólokið af níu hafði Sigurður Daði Sig-
fússon (2.309) forystuna á mótinu
með 5 vinninga en í sjöundu umferð
urðu þau óvæntu úrslit að stiga-
lægsti keppandinn og sá yngsti, hinn
12 ára Hjörvar Steinn Grétarsson
(2.087), lagði stigahæsta keppand-
ann, skoska alþjóðlega meistarann
John Shaw (2.439) að velli.
Hjörvar hélt áfram að gera efstu
mönnum mótsins skráveifu þar eð
Sigurður Daði heimilaði hinum unga
andstæðingi sínum að láta sömu
stöðuna koma upp þrisvar eftir 60
leiki en að mati tölvuheila var staðan
þá unnin á Sigurð. Þetta þýddi að
fyrir níundu og lokaumferðina voru
Sigurður Daði, John Shaw (2.439) og
Merijn van Delft (2.372) jafnir og
efstir með 5½ vinning. Shaw og Hol-
lendingurinn van Delft gerðu jafn-
tefli við sína andstæðinga í síðustu
umferðinni á meðan Sigurður Daði
atti kappi við enska alþjóðlega
meistarann Graeme Buckley (2.398).
Eftir langa og stranga viðureign stóð
Íslendingurinn uppi sem sigurvegari
og tryggði sér efsta sætið á mótinu
og áfanga að alþjóðlegum meistara-
titli. Lokastaða mótsins varð annars
þessi.
1. Sigurður Daði Sigfússon (2.309)
6½ vinning af 9 mögulegum.
2.–3. John Shaw (2.439) og Merijn
van Delft (2.372)
4.–5. Sigurbjörn Björnsson (2.335)
og Björn Þorfinnsson (2.311) 5½ v.
6. Ingvar Þór Jóhannesson (2.269)
5 v.
7. Graeme Buckley (2.398) 4½ v.
8.–9. Hjörvar Steinn Grétarsson
(2.087) og Bragi Halldórsson (2.211)
2½ v.
10. Omar Salama (2.214) 1 v.
Björn Þorfinnsson hóf mótið af
miklum krafti en gengi hans dalaði í
seinni hluta þess á meðan Sigur-
björn var ófarsæll í fyrstu skákum
sínum en setti svo í fluggírinn. Ingv-
ar tefldi traust en gerði of mörg stutt
jafntefli. Hjörvar Steinn náði sér
heldur betur á strik í 7. og 8. umferð
eftir fremur dapurt gengi á meðan
Bragi átti sína spretti. Egyptinn
Omar Salama, sem er búsettur hér á
landi, náði sér engan veginn á strik í
mótinu. Nánari upplýsingar um mót-
ið er að finna á heimasíðu Hellis,
www.hellir.com.
EM einstaklinga í
Tyrklandi er lokið
Króatíski stórmeistarinn Zdenko
Kozul (2.606) kom flestum á óvart
með sigri sínum á Evrópumeistara-
móti einstaklinga í skák sem lauk ný-
verið í strandbænum Kusadasi í
Tyrklandi. Hinn fertugi reynslubolti
hefur ekki áður unnið jafn sterkt
mót og þetta en alls fékk hann 8½
vinning af ellefu mögulegum en
næstur kom ofurstórmeistarinn Vas-
sily Ivansjúk með 8 vinninga.
Gengi íslenska stórmeistarans
Hannesar Hlífars Stefánssonar stóð
ekki fyllilega undir væntingum en
hann fékk 6 vinninga, gerði átta jafn-
tefli, vann tvær skákir og tapaði
einni. Hann hafnaði í 35.–64. sæti af
138 keppendum og tapaði sjö stigum.
Alþjóðlegi meistarinn Héðinn Stein-
grímsson (2.447) vann tvær skákir í
röð í 8. og 9. umferð og var þá kom-
inn með helming vinninga en illu
heilli töpuðust síðustu skákirnar og
fékk hann 4½ vinning og lenti í 99.–
118. sæti og tapaði einu stigi. Nánari
upplýsingar um keppnina er að finna
á heimasíðu tyrknesku mótshaldar-
anna, http://www.tsf.org.tr/.
Íslenskur sigur
á KB-móti Hellis!
Sigurður Daði, t.v., lagði Buckley að velli, vann mótið og náði AM-áfanga.
SKÁK
Hellisheimilið í Mjóddinni
ALÞJÓÐLEGT MÓT 12.–17. apríl 2006
Helgi Áss Grétarsson
daggi@internet.is