Morgunblaðið - 18.04.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2006 41
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
Með hinum eina sanna Harrison
Ford. Mögnuð spennumynd frá
byrjun til enda.
Ekkert er hættulegra en maður sem er um það bil að missa allt
FIREWALL kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 9:10 - 10:30 B.i. 16
FIREWALL VIP kl. 8 - 10:30
ÍSÖLD 2 m/Ísl. tali kl. 3 - 5 - 7
WOLF CREEK kl. 10:30
V FOR VENDETTA kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára
V FOR VENDETTA VIP kl. 5:30
BASIC INSTINCT 2 kl. 8 B.i. 16.ára
EIGHT BELOW kl. 5:30 - 8 - 10:30
LASSIE kl. 3 - 5
BAMBI 2 m/Ísl. tali kl. 3:50
FIREWALL kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16.ára.
WOLF CREEK kl. 8 - 10:15
BASIC INSTINCT 2 kl. 5:45 - 8 B.i. 16.ára.
EIGHT BELOW kl. 5:45
V FOR VENDETTA kl. 10:15 B.i. 16.ára.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0035-1384
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
HÚSIÐ á sléttunni og Harmoniku-
félag Vestfjarða slógu í gegn á
Rokkhátíð alþýðunnar – Aldrei
fór ég suður, sem var haldin í
þriðja sinn á Ísafirði nú um
páskana. „Þeir byrjuðu á harm-
onikunótunum en síðan kom langt
lag eftir Deep Purple með því-
líkum sólóleik að þakið ætlaði að
rifna af húsinu þegar laginu
lauk,“ segir Halldór Sveinbjörns-
son, ljósmyndari á Bæjarins besta
á Ísafirði, en hann var einn af
fjölmörgum sem nutu rokkhátíð-
arinnar í Edinborgarhúsinu.
„Prumpison var næstbesta núm-
erið, en tónlistarmennirnir Rass
(Ragnar Kjartansson) og Mugison
(Örn Elías) stofnuðu bandið fyrir
hátíðina og voru svona glimrandi
góðir. Ísfirðingurinn sjálfur Helgi
Björnsson kom líka inn í þetta
með þeim og tók ýmsa slagara.
Það var rosaleg stemning þegar
Prumpison lék og ég hélt að það
væri ekki hægt að toppa þá en
Harmonikufélagið og Húsið á
sléttunni gerðu það.“
Rokkhátíð alþýðunnar byrjaði
um klukkan þrjú á laugardeg-
inum og stóð til klukkan tvö um
nóttina. Ásamt ofangreindum tón-
listarmönnum komu rúmlega tutt-
ugu aðrir fram, meðal þeirra voru
Jet Black Joe, Jan Mayen, Sign,
Hermigervill, Benni Hemm
Hemm, Hairdoctor og hin ógleym-
anlega KAN.
Mjög margt fólk mætti á Ísa-
fjörð um páskahelgina og eru
bæjarbúar sannfærðir um að aldr-
ei hafi jafnmikið af fólki verið á
rokkhátíðinni. „Ég myndi halda
að þetta hafi verið í síðasta skipti
sem hátíðin er haldin í Edinborg-
arhúsinu því það er orðið of lítið
fyrir hana. Það komust líklega
allir að þetta árið en þrengslin
voru mjög mikil. Hingað kom
rosalega margt fólk af öllum
stærðum og gerðum og ég veit að
það var metflutningur með flug-
félaginu, fyrir utan alla sem komu
á bílum,“ segir Halldór og bætir
við að allt hafi verið troðfullt í
bænum og biðraðir inn á alla
skemmtistaði en auk Rokkhátíðar
alþýðunnar var líka skíðavika á
Ísafirði í páskavikunni.
Tónlist | Aldrei fór ég suður dró gríðarlegan fólksfjölda til Ísafjarðar um páskana
Óvænt númer sló
í gegn á Rokk-
hátíð alþýðunnar
Ungir og rokkaðir. Frá vinstri; Ólafur Halldór Ólafsson,
Björn Halldórsson, Jón Hartmann og Hreinn Elíasson.
Liðsmenn Prumpison ásamt Helga Björnssyni sungu sig sveitta.
Herbert Guðmundsson og hljómsveitin KAN mættu á
Ísafjörð og höfðu ekki gleymt gömlum töktum.
Harmonikufélag Vestfjarða sló svo sannarlega í gegn hjá hátíðargestum.
Metfjöldi fólks mætti á rokkhátíðina og barði þar augum hina ýmsu tónlistarmenn og hljómsveitir.
Eftir Ingveldi Geirdóttur
ingveldur@mbl.is
Hjördís, Guðrún Ása og Helga
Kristín skelltu sér á Rokkhátíð al-
þýðunnar – Aldrei fór ég suður.