Morgunblaðið - 27.04.2006, Síða 6

Morgunblaðið - 27.04.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EF einhver á meira en 25% eign- arhlut í 365 miðlunum verður við- komandi að minnka eignarhlut sinn. Þetta segir Páll Hreinsson, lagapró- fessor og formaður nefndar sem samdi frumvarp um fjölmiðla sem kynnt var í vikunni. Þetta leiði af frumvarpinu en það var unnið í sam- ræmi við þá pólitísku sátt sem náðist á síðasta ári í fjölmiðlanefndinni. Það sé hins vegar hægt að færa eignarhluti á milli fyrirtækja og dreifa þannig eignarhaldinu að það standist ákvæði frumvarpsins. Þegar fjölmiðlaskýrslan var sam- in fyrir einu ári var gerð úttekt á fjölmiðlamarkaðinum og eignarhaldi á fyrirtækjum sem eiga fjölmiðla. Páll sagði að eignarhald á fjölmiðl- um hefði breyst síðan, en ný úttekt á stöðinni hefði ekki verið gerð áður en nýtt frumvarp var lagt fram nú. Hann sagði að hafa yrði í huga að frumvarpið gerði ráð fyrir tveggja ára aðlögunartíma eftir að það verð- ur að lögum. Í kafla frumvarpsins um eignar- hald er fjallað um skylda aðila og vísað í ákvæði samkeppnislaga, en þar er fjallað um tvö þekkt hugtök í samkeppnisrétti, annars vegar fyr- irtækjasamstöðu og hins vegar yf- irráð. Aðrir teljast ekki skyldir að- ilar. Fræðilega hægt að færa til eignarhald Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, sagði í Fréttablaðinu í gær, að það gæti skipt máli hvort rekstur fjöl- miðla væri allur á einni kennitölu eða hvort fyrirtækið væri uppbyggt með mörgum kennitölum. Páll sagði þetta ekki rétt hjá Ara að öllu leyti. „Samkvæmt frumvarpinu má ein fyrirtækjasamsteypa ekki eiga meira en 25% í fjölmiðli. Það er talið saman hvað þeir sem eiga í fyrir- tækjasamsteypunni eiga mikið. Sameiginlegt eignarhald ólíkra aðila sem þó tilheyra fyrirtækjasam- steypu má ekki fara yfir 25%. Þegar um fyrirtækjasamstæðu er að ræða er hins vegar fræðilega mögulegt að færa eignarhluti á milli fyrirtækja sé um það samkomulag og dreifa þannig eignarhaldinu að það standist eignarhaldsákvæði frumvarpsins. Tökum sem dæmi út- varpsstöðina A hf. sem er 100% í eigu hlutafélagsins B. Samkvæmt ákvæðum fjölmiðlafrumvarpsins mætti hlutafélagið B ekki eiga meira en 25% í A hf. verði frumvarpið að lögum. Ef C,D,E og F eiga hver 25% hlut í hlutafélaginu B er í raun hægt með ákveðnum úrræðum, ef sam- komulag er um það, að flytja eign B í hlutafélaginu A hf. beint yfir til C, D, E og F, sem eru óskyldir aðilar, þannig að hver þeirra eigi 25% hlut nú beint í A hf. í staðinn fyrir að eiga í B. hf. Eignarhaldið hefur ekkert breyst en fyrirsvar eignarhlutanna er nú ekki lengur í höndum eins að- ila, þ.e. B hf. gagnvart útvarpsstöð- inni A hf., heldur fleiri hluthafa sem eiga hver um sig ekki meira en 25% eignarhlut og eru óskyldir. Einnig má hugsa sér aðra lausn hér í dæm- inu, en það er að sameina útvarps- stöðina A hf. og B hf., ef um það er samkomulag, en í hinu sameinaða fyrirtæki væri eignarhaldið þá í samræmi við eignarhaldsreglur frumvarpsins í höndum fjögurra óskyldra aðila sem hver um sig ætti ekki meira en 25%. Þetta er hægt og við lögfræðingar höfum oft bent á að þessar eign- arhaldsreglur séu ekki heilagar og kannski ofmetnar að því leyti að það er hægt að dreifa þessu með svip- uðum áhrifum.“ Páll sagðist fyrstur manna viður- kenna að ákvæði um þessa hluti væru flókin. Niðurstaða hinnar póli- tísku fjölmiðlanefndar hefði verið að setja nokkuð ítarleg lög um fjölmiðla og frumvarpið sem nú hefði litið dagsins ljós væri því nokkuð flókið. Páll Hreinsson, lagaprófessor og einn höfunda frumvarps um fjölmiðla Hægt að færa eignarhaldið til svo það standist ákvæðin               ! "       ! #  $     Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÚTBLÁSTUR álvers Alcoa Fjarða- áls hf. í Reyðarfirði verður innan allra viðmiðunarmarka og staðla sem miðað er við, að því er segir í frummatsskýrslu á umhverfisáhrif- um álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyð- arfirði, sem kynnt var í gær en Skipulagsstofnun mun auglýsa skýrsluna í dag. Notast verður við þurrhreinsun Þeir þættir sem mat á umhverfis- áhrifum nær til er útblástur og loft- dreifing og áhrif þess á gróður og líf- ríki, frárennsli og dreifing efna í sjó, vistfræðileg áhættugreining, efnis- taka og haugsetning, umferð og há- vaði, fornleifar og samfélags- og efnahagsleg áhrif. Í matinu segir að útblásturinn verði innan viðmiðunarmarka hvort sem notast verði við þurrhreinsun, en þá er menguðum reyk blandað sama við hreint súrál og súlfat slepp- ur í loftið, eða vothreinsun, þar sem súlfatið er leyst upp í sjónum. Tómas Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarða- áls, sagði við kynninguna á skýrsl- unni að ítarlegur samanburður hafi verið gerður á áhrifum þess að nota eingöngu þurrhreinsun eða þurr- hreinsun að viðbættri vothreinsun en í skýrslunni leggur Alcoa Fjarða- ál til að eingöngu verði notast við þurrhreinsun en samanburðurinn sýnir að sé einungis notast við þurr- hreinsun sé styrkur efna í andrúms- lofti flestum tilvikum lægri fyrir ut- an skammtímagildi brennisteins- díoxíðs (SO2). Auk þess að reikna út loftdreif- ingu lét Alcoa Fjarðaál bandaríska fyrirtækið Exponent gera fyrir sig svokallaða vistfræðilega áhættu- greiningu, en í henni er lagt mat á áhrif vegna útblásturs á heilsu manna, dýralíf og viðkvæman gróð- ur, en þetta munu vera nýmæli hér á landi. Að sögn Tómasar sýna niðurstöð- ur þeirrar greiningar að áhrif út- blástursins á heilsu fólks er hverf- andi, hvort sem notast er við þurrhreinsun eða vothreinsun. Vist- fræðileg áhætta fyrir fugla og spen- dýr er einnig hverfandi en hætta er á lítilsháttar breytingum á gróðri í næsta nágrenni við álverið, sem myndi ná yfir eilítið stærra svæði ef notast yrði við vothreinsun. Segja áhrif útblásturs innan viðmiðunarmarka ÚTGEFANDI Fréttablaðsins, 365, hefur fært Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni að gjöf innbundið dagblaðasafn í 2 þúsund bókum með öllum tölublöðum af Vísi, Dag- blaðinu, DV, Þjóðviljanum, Tím- anum og Morgunblaðinu frá síðustu öld. Gjöfin er afhent í tilefni 5 ára af- mælis Fréttablaðsins. Dag- blaðasafnið var áður í eigu Sveins R. Eyjólfssonar útgefanda og komst það í eigu 365 í framhaldi af kaupum á DV. 365 mun að auki veita fé á næstu fjórum árum til rekst- urs og úrvinnslu safnsins sem verður aðgengilegt öllum ókeypis jafnt á Landsbókasafninu og á vefnum. Landsbókasafn Ís- lands – Háskólabókasafn legg- ur nú áherslu á að færa í stafrænt form öll dagblöð frá 20. öld og telst framlag 365 mikilvægt til þess að það geti orðið að veruleika að mati dr. Sigrúnar Klöru Hannesdóttur landsbókavarðar. Ávinningurinn af yfirfærslu prentaðs efnis á stafrænt form er að sögn Sigrúnar Klöru tví- þættur. „Annars vegar skiptir mestu máli að íslenskt efni sé aðgengilegt langt út fyrir veggi allra safna. Hægt er að skoða hvað sem er heima í stofu án kostnaðar. Hins vegar er ávinningurinn sá að við spörum og varðveitum gamla prentaða efnið,“ segir Sigrún Klara. Landsbókasafn Íslands – Há- skólabókasafn hefur að undanförnu verið að þróa nýja tækni til þess að koma íslenskum, prentuðum menn- ingararfi í stafrænt form og hefur safnið í framtíðarstefnu sinni skil- greint sig sem þekkingarveitu. Mik- ilvægur þáttur í þeirri stefnu er að gera íslenskt efni aðgengilegt á vefnum. „Það nútímalegasta sem við erum að gera er að safna öllum ís- lenska vefnum og vefsafnið er nú orðið gífurlegt að vöxtum,“ segir Sigrún Klara Samstarfssamningur 365 og Landsbókasafns Íslands – háskóla- bókasafns felur í sér að gjöf 365 á innbundna dagblaðasafninu nýtist safninu á margvíslegan hátt, til varðveislu, notkunar og einnig til að færa á stafrænt form. Þá er ónefnt fjárframlag til stafrænnar mynd- unar Vísis, Dagblaðsins, DV og Fréttablaðsins auk frekara samstarf um afhendingu 365 á þeim blöðum sem félagið gefur út í pdf-formi. 365 gefur Landsbókasafninu dagblaðasafn í tvö þúsund bókum Morgunblaðið/Ásdís Frá afhendingu dagblaðasafnsins í gær. F.v.: Þorsteinn Hallgrímsson aðstoðarlands- bókavörður, Sigrún Klara Hannesdóttir lands- bókavörður, Ari Edwald, forstjóri 365, og Þor- steinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins. EKKI er misræmi í þyngd tveggja dóma yfir mönnum sem beittu lög- reglumenn í starfi ofbeldi, eins og lögreglumenn hafa haldið fram, að mati Sigríðar J. Friðjónsdóttur, sak- sóknara. Hún segir að bornir séu saman annars vegar dómur yfir manni sem hafi ítrekað framið of- beldisbrot og rauf skilorð, og hins vegar dómur yfir manni sem ekki hafði framið ofbeldisglæp áður. Framkvæmdastjóri Landssam- bands lögreglumanna sagði í gær að munurinn á tveimur málum sem dæmt hefur verið í nýlega sé sláandi, og aðgerða sé þörf. Er þar annars vegar um að ræða mál þar sem mað- ur þreif í öxl sýslumanns og brá fyrir hann fæti, og fékk sex mánaða óskil- orðsbundinn fangelsisdóm. Hins vegar er um að ræða dóm sem féll á þriðjudag, þar sem maður var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir að aka á lög- reglumann og kýla hann í magann. Sigríður segir málin vart sam- bærileg. Í tilvikinu þar sem brugðið var fæti fyrir sýslumann hafi verið um að ræða mann sem hafði ítrekað gerst sekur um ofbeldisbrot, sem hafi brotið gegn skilorði með þessu broti, sem hafi verið þriðja ofbeld- isbrot hans á rúmum þremur árum. Hafi við ákvörðun refsingar verið tekið tillit til þess, og fyrri dómur sem var skilorðsbundinn tekinn upp og dæmdur með. Þar var um að ræða fjóra mánuði, og því megi draga þá ályktun að refsingin vegna árásar- innar á sýslumanninn hafi verið tveir mánuðir. Dómur hefði mátt vera þyngri Í tilviki mannsins sem ók á lög- reglumann og kýldi hann hafi mað- urinn ekki áður gerst sekur um of- beldisbrot, og ekki brotið gegn skilorði eins og í hinu tilvikinu. Hann hafi verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, og dómari sérstaklega vitn- að til atriða sem koma eigi til þyng- ingar refsingar í dómsorði. Dómur- inn hafi þó verið skilorðsbundinn með hliðsjón af sakaferli. Í síðara tilvikinu segir Sigríður að dómurinn sé e.t.v. ekki jafn þungur og ákæruvaldið hefði viljað sjá, en dómarinn hafi gert grein fyrir sjón- armiðum varðandi ákvörðun refsing- ar sem ákæruvaldið taki fyllilega undir. Ekki hefur verið tekin ákvörð- un um hvort honum verði áfrýjað. Sigríður segir ofbeldisbrot gegn lögreglumönnum í starfi vera af ýmsum toga, allt frá því að slegið sé til þeirra án þess að þeir hljóti áverka. Sem betur fer hafi þó brotin í fæstum tilvikum alvarlegar afleið- ingar fyrir lögreglumenn, þó það komi auðvitað fyrir. Ólíkur saka- ferill gerir málin ósam- bærileg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.