Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 11
FRÉTTIR
Bragðsemendist lengur
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS.
Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
www.nicorette.is
Nýkynslóð:
Mýkraundirtönn!
PrófaðuNicorette
Freshmint
Jantine frá Cartier verður í Linsunni í dag
og kynnir ný gleraugu og sólgleraugu
frá Cartier.
KYNNUM
VOR- OG SUMAR
2006
DAGANA
21.-30. APRÍL
STÆRÐIR 40-52
Hverfisgötu 6
101 Reykjavík
sími 562 2862
30% AFSLÁTTUR AF
SLOPPUM - MEDIFLOW HEILSUKODDANUM
KODDUM - SÆNGUM - SÆNGURVERASETTUM.
HELGAR
TILBOÐ!
PALAZZO RÚM 140*200
Sími: 534 5200
Bæjarlind 4, Kópavogi
www.draumarum.is
�
��
�
��
�
�
��
�
� ��
�
�
�
�
verð áður kr. 74.700
verðu nú kr. 56.000
ALOE VERA DÚNSÆNGUR Á KYNNIGARVERÐI
verð áður kr. 19.900 verðu nú kr. 13.900
vor
Fjarðargata 13-15 Hafnarfirði
565 7100XEIN
N
AN
0
6
04
0
03
ÍSLANDSPÓSTUR mun á næstu
þremur árum byggja tíu ný pósthús
á landsbyggðinni, auk þess sem
ráðist verður í gagngerar end-
urbætur á fjórum eldri pósthúsum.
Skv. upplýsingum Íslandspósts er
þetta liður í stefnumarkandi
ákvörðun Íslandspósts um að
byggja upp starfsemi og þjónustu á
landsbyggðinni.
Staðirnir þar sem stendur til að
byggja ný pósthús eru Akranes,
Borgarnes, Stykkishólmur, Sauð-
árkrókur, Húsavík, Reyðarfjörður,
Höfn, Hvolsvöllur, Selfoss og Vest-
mannaeyjar auk þess sem end-
urbætur verða gerðar á pósthús-
unum á Patreksfirði, Blönduósi,
Egilsstöðum og í Reykjanesbæ.
Efla kjarnasvæði
Að sögn Ingimundar Sigurpáls-
sonar, forstjóra Íslandspósts, hefur
ekki verið farið í neina uppbygg-
ingu á pósthúsum á landsbyggðinni
áður. Nú séu pósthús í húsnæði sem
voru yfirtekin af Póst- og síma-
málastofnun á sínum tíma en þau
séu óhentug fyrir starfsemi Íslands-
pósts í dag. Þessi 14 pósthús á
landsbyggðinni séu hluti af 17
kjarnasvæðum sem fyrirtækið hafi
skilgreint og umhverfis hvern
kjarna séu nokkrar póstafgreiðslur
sem eru staðsettar innan annarra
þjónustufyrirtækja s.s. verslana og
banka. Hann sagði megin hug-
myndina á bakvið þessa uppbygg-
ingu vera að efla þessi kjarnasvæði
og vænti hann þess að út frá þeim
væri hægt að veita öflugri þjónustu
við nágrannasveitir í kringum þau.
Svona munu nýju pósthús Íslandspósts líta út.
Íslandspóstur byggir
tíu pósthús á landsbyggðinni
LIONSHREYFINGIN á Íslandi
gengst fyrir fræðslufundi fyrir al-
menning um offituvandamálið í dag.
Bendir hreyfingin á að offituvanda-
málið eykst óðfluga og í kjölfarið
fylgja margvíslegir sjúkdómar svo
sem sykursýki, slitgigt, hjarta og
æðasjúkdómar. Þetta sé flókið
vandamál og margir sem þurfi að
koma að meðferðinni.
Fyrirlesarar á fræðslufundinum
verða þrír: Ludvig Guðmundsson
endurhæfingarlæknir á Reykjalundi
fjallar um heilsufarslegar afleiðingar
offitu.
Anna Sigríður Ólafsdóttir næring-
arfræðingur hjá Lýðheilsustöð
fjallar um næringu og Guðlaugur
Birgisson sjúkraþjálfari á Reykja-
lundi mun fjalla um hreyfingu og
virkni. Á eftir fyrirlestrunum verða
umræður og fyrirspurnir.
„Hér er einstakt tækifæri til að
afla sér meiri fróðleiks um offitu og
meðferð við henni og áhugafólk
hvatt til að fjölmenna en aðgangur er
að vanda ókeypis,“ segir í fréttatil-
kynningu. Fundurinn verður haldinn
í Norræna húsinu fimmtudaginn 27.
apríl nk. kl. 17.00 -18.30.
Ræða um offituvandann
á fræðslufundi