Morgunblaðið - 27.04.2006, Side 15
Frá álveri til umhverfis
Styrkur
Niðurstaða Rannsóknir
Kynningarfundir vegna mats á
umhverfisáhrifum álvers í Reyðarfirði
Bakgrunnsrannsóknir og vöktunaráætlun
Við hönnun álvers Alcoa Fjarðaáls er notuð nýjasta
tækni til að draga úr mengun og vernda andrúms-
loft, vatn og jarðveg. Til að meta árangurinn er verið
að framkvæma bakgrunnsrannsóknir á umhverfinu
og andrúmslofti áður en starfsemi hefst svo fá megi
samanburð. Sjálfvirkum vöktunarstöðvum fyrir veður
og loftgæði hefur verið komið upp þar sem loft-
dreifingarlíkön sýna að líklegast sé að styrkur meng-
unarefna verði mestur. Þessar rannsóknir halda
áfram eftir að framleiðsla hefst í álverinu.
Á fundunum fara sérfræðingar yfir niðurstöður matsins og svara spurningum.
Frummatsskýrsluna er hægt að nálgast á alcoa.is
Loftdreifingarlíkön
Samkvæmt loftdreifingarspá Earth Tech
mun álver Alcoa Fjarðaáls alls staðar upp-
fylla öll umhverfismörk fyrir styrk SO2 með
þurrhreinsun eingöngu. Hærri gildi mælast
þegar vothreinsibúnaður er notaður til
viðbótar þurrhreinsibúnaði og það stafar af
kælingu útblástursins í vothreinsivirkj-
unum. Styrkur svifryks og B(a)P er alls
staðar vel undir viðmiðunarmörkum.
Styrkur svifryks er þó heldur meiri þegar
vothreinsun er notuð með þurrhreinsun.
Loftkennd flúoríð
Tvenns konar viðmiðunartímabil eru notuð
fyrir flúoríð, vaxtartími gróðurs og meðal-
styrkur yfir sólarhring. Reiknaður meðal-
styrkur á vaxtartíma gróðurs er neðan
viðmiðunarmarka alls staðar utan þynn-
ingarsvæðisins og fer aðeins yfir þau
nálægt álverinu og vel innan þynningar-
svæðisins. Leyfilegt er að fara yfir þessi
mörk innan þynningarsvæðisins. Svæðið
þar sem farið er yfir viðmiðunarmörkin er
þó talsvert stærra þegar notuð er vot-
hreinsun en í kosti með þurrhreinsun
eingöngu (sjá samanburð á myndunum
að ofan).
Loftdreifingarmyndir frá Earth Tech. Myndirnar sýna
meðalstyrk loftkennds flúoríðs (HF) yfir vaxtartíma
gróðurs. Viðmiðunarmörk eru 0,3 µg/m³ (rauðar línur).
Þynningarsvæði umhverfis álverið er í ljósum lit.
Vistfræðileg áhættugreining
Bandaríska fyrirtækið Exponent var fengið til
að til að meta áhættu vegna útblásturs og
frárennslis fyrir heilsu manna og fyrir
vistkerfi. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkri
aðferðafræði er beitt við mat á umhverfis-
áhrifum hér á landi. Áhættugreiningin sýnir
að áhætta fyrir heilsu fólks verður vel undir
heilsuverndarmörkum, en lítið eitt hærri ef
vothreinsun er beitt, nema með tilliti til
skammtímagilda á SO2. Áhættugreining fyrir
vistkerfi sýndi að einhverjar breytingar gætu
átt sér stað á plöntusamfélögum innan
þynningarsvæðisins. Stofnar grasbíta eins og
rjúpu, sauðfjár og hreindýra munu líklega
ekki verða fyrir áhrifum. Áhætta fyrir vist-
kerfi er lítillega hærri þegar vothreinsun er
notuð en þegar eingöngu er beitt þurr-
hreinsun. Í ljósi þessara rannsókna er mælt
með þeim kosti að eingöngu verði beitt
þurrhreinsun til að hreinsa útblástur frá
álverinu.
Reyðarfjörður
Laugardagur 29. apríl Kl. 13:00 – 19:00 Safnaðarheimilið
Boðið verður upp á skoðunarferðir um framkvæmdasvæðið kl. 13:00 og kl. 16:00.
Egilsstaðir
Sunnudagur 30. apríl Kl. 16:00 – 18:00 Hótel Hérað
Reykjavík
Þriðjudagur 2. maí Kl. 17:00 – 19:00 Hótel Nordica
Akureyri
Miðvikudagur 3. maí Kl. 20:00 – 22:00 Ketilhúsið í Listagilinu
Húsavík
Fimmtudagur 4. maí Kl. 20:00 – 22:00 Hótel Húsavík
Þurrhreinsun eingöngu
Þurrhreinsun með vothreinsun
Vöktunarstöð í Reyðarfirði
www.alcoa.is