Morgunblaðið - 27.04.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.04.2006, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT PRASKOVÍJA Nezhívova heldur á andlitsmynd af syni sínum, Viktor, sem lést eftir að hafa tekið þátt í hreinsunaraðgerðum í kjölfar Tsjernobyl- slyssins. Er hún fyrir framan minnismerki um fórnarlömb slyssins í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu. Fjölsóttar minningarathafnir vegna þessa versta kjarnorkuslyss sögunar fóru fram í gær. Viktor Jústsjenko, forseti landsins, fór fyrir hundruðum fyrrverandi og núverandi starfs- manna kjarnorkuversins að kjarnakljúfi númer fjögur, sem sprakk að morgni hins örlagaríka dags, 26. apríl 1986. Sagði forsetinn, eftir einnar mínútu þögn, að íbúar landsins stæðu í ævarandi þakkarskuld við þá sem hefðu reynt að stöðva útgeislun frá kjarnorkuverinu strax eftir slysið. Minnast Tsjernobyl-slyssins AP Stokkhólmi. AP. | Sænska fyrirtækið NCC hefur boðað byltingu í íbúða- byggingum. Hjá því munu fjórir menn geta komið upp fjögurra hæða blokk á einum mánuði. Galdurinn er sá að raða húsunum saman eins og púsluspili úr tilbúnum einingum. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, var viðstaddur vígslu fyrstu einingaverksmiðju fyrirtæk- isins en stefnt er að því að stytta byggingartímann um helming að minnsta kosti með því að framleiða 90% bygginganna, veggi, loft, gólf, pípulagnir, loftræstikerfi og eldhús, í sérstökum einingum, sem síðan eru fluttar á byggingarstað. „Ný framtíð“ Alf Göransson, forstjóri NCC, sagði við verksmiðjuvígsluna, að með henni myndi framleiðnin stór- aukast og alls konar milliliðakostn- aður sparast. Samkeppnisgetan yrði því góð, sagði Göransson, og Pers- son sagði, að hér væri um að ræða „nýja framtíð og boðbera betri tíma“. Einingaverksmiðjan, sem vígð var á þriðjudag, er í Hallstahammar, um 100 km austur af Stokkhólmi, og er áætlað að framleiða þar 200 íbúðir á þessu ári. Liggja þegar fyrir pant- anir á 600 íbúðum á næsta ári. Boða bylt- ingu í íbúða- byggingum Kaíró. AFP. | Tvær sjálfsvígsárásir voru gerðar á Sínaí-skaga, nálægt Gaza-svæðinu, í gær og þær beind- ust að egypskum lögreglumönnum og erlendum friðargæsluliðum. Sprengingarnar urðu nálægt bækistöð fjölþjóðlegs friðargæslu- liðs sem stofnað var í tengslum við friðarsamning Ísraels og Egypta- lands árið 1979. Löndin tvö og Bandaríkin fjármagna friðargæsl- una. Tilræðismennirnir sprengdu sig í loft upp en engir aðrir biðu bana eða særðust. Að minnsta kosti átján manns féllu í þremur sprengjuárásum í ferðamannabænum Dahab á mánu- daginn var. Lögreglan yfirheyrði í gær um 30 manns sem eru í haldi hennar, grunaðir um aðild að árás- unum. Egypska dagblaðið Al-Ahram sagði að tilræðismennirnir hefðu lát- ið lífið í árásunum. Þeir hefðu falið sprengjurnar í leðurtöskum. Tvær sjálfs- vígsárásir í Egyptalandi London. AP, AFP. | Hart var sótt að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á þingi í gær vegna hneykslismála. Koma þau á slæmum tíma fyrir hann og Verkamannaflokkinn þar sem mikil- vægar sveitarstjórnarkosningar verða í næstu viku. Erfiðasta málið varðar Charles Clarke innan- ríkisráðherra, en komið hefur í ljós, að meira en 1.000 erlendum afbrotamönnum, þar á meðal mönnum, sem dæmdir voru fyrir morð og nauðganir, var sleppt að lokinni afplánun án þess að vera sendir til síns heima. Gagnrýndi David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, Blair og stjórnina harðlega fyrir þetta og sagði, að Clarke hefði reynt að villa um fyrir almenningi í málinu og ætti að segja af sér. Bresku blöðin harðorð Blair brást hart til varnar fyrir Clarke og sagði, að vissulega hefði komið í ljós alvarleg brotalöm í kerfinu en nú væri búið að kippa því í liðinn. Bresku blöðin voru hins vegar ekkert að skera utan af því í fyrirsögnum um málið. Af þeim má nefna „Fábjánar“, „Skömm“ og „Glæp- samleg vanræksla“. Hitt málið er sú játning Johns Prescotts að- stoðarforsætisráðherra, að hann hafi átt í ástar- sambandi við ritara sinn, Tracey Temple, sem er 24 árum yngri en hann. Sagði hann, að því hefði lokið fyrir allnokkru. Af öðrum málum, sem íþyngja Blair, má nefna lán ýmissa auðkýfinga til Verkamannaflokksins og ásakanir um, að sumir hafi fengið lávarðstign að launum. Er það mál nú til rannsóknar. Í síðustu viku mældist stuðningur við Verka- mannaflokkinn 32 prósent, sá minnsti í 19 ár, og fari flokkurinn illa út úr kosningunum í næstu viku, má búast við, að Blair láti af embætti fyrr en ella. Blair í vanda vegna framhjáhalds Prescotts CONDOLEEZZA Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra komu í gær í óvænta heimsókn til Bagdad, höfuðborgar Íraks, til að þrýsta á ráðamenn um að hraða myndun þjóðstjórnar. Heimsóknin kemur í kjölfarið á útnefningu bandalags sjíta á Jawad al-Maliki í embætti forsætisráð- herra, en vonir eru bundnar við að hún muni greiða fyrir stjórnar- myndun. „Nú þegar við förum inn í þetta nýja tímabil hlökkum við mjög til að færa ábyrgðina í hendur Írökum,“ sagði Rice í gær. Á sama tíma ræddi Rumsfeld við George Casey, yfirmann herafla bandamanna í Írak, sem sagði að enn væri gert ráð fyrir, að fyr- irhuguð áætlun um brottför banda- rískra hermanna frá Írak myndi standast. Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að ráðherrarnir komu til lands- ins birtist myndband á netinu, þar sem leiðtogi al-Qaeda í Írak, Abu Musab al-Zarqawi, hvatti liðsmenn sína til að halda áfram árásum gegn Bandaríkjaher. „Bandaríkjamenn verða flæmdir úr Tveggja fljóta landinu [Írak], sigraðir og niður- lægðir,“ sagði Zarqawi í myndband- inu, sem batt enda á vangaveltur um að hann væri látinn. Kærður fyrir pyntingar Steven Jordan, undirofursti í Bandaríkjaher, varð í gær hæstsetti meðlimur hersins til að sæta ákæru vegna pyntinga á íröskum föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad. Jordan gegndi um hríð stöðu yf- irmanns yfirheyrslumiðstöðvar fangelsins, en búist er við að ákær- urnar verði lagðar fram á morgun. Í gær birtu svo bandarísk mann- réttindasamtök skýrslu sem bendir til að yfir 600 manns í Banda- ríkjaher hafi komið nærri pynting- um á föngum í Írak, Afganistan og fangabúðunum í Guantanamo, Kúbu, frá upphafi stríðsins gegn hryðjuverkum. Segjast skýrsluhöf- undar vonsviknir yfir því að ekki skuli hafa verið hætt að pynta fanga, líkt og lofað var þegar Abu Ghraib-hneykslið komst í hámæli. Þá fullyrti Claudio Fava, þing- maður Evrópusambandsins (ESB), í gær að flugvélar bandarísku leyni- þjónustunnar, CIA, hefðu flogið 1.000 sinnum um evrópska lofthelgi frá árinu 2001 án þess að leitað hefði verið upplýsinga um ferðirnar. Fer Fava fyrir sérstakri nefnd ESB sem ætlað er að rannsaka ásakanir um meint fangaflug CIA. Mikið mannfall í Írak Minnst 10 féllu í árásum í Írak í gær, á sama tíma og Bandaríkjaher tilkynnti að 12 meintir hryðjuverka- menn hefðu verið felldir í árás hers- ins í bænum Yusifiyah, suðvestur af Bagdad. Í fyrradag féllu svo 15 í árásum uppreisnarmanna víðsvegar um Írak, daginn eftir að á þriðja tug féll og á annað hundrað særðist í sjö sprengjuárásum í Bagdad. Á þriðjudag tilkynnti Abdel Aziz Mohammed, hershöfðingi í íraska varnarmálaráðuneytinu, að í síðustu viku hefðu 123 fallið og 153 særst í 469 árásum uppreisnarmanna. Þrýst á leiðtoga Íraka Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is AP Condoleezza Rice í Írak í gær. Zarqawi hvetur til árása í myndbandi FYRSTA farrými, almenningur og stæði. Ekki er óhugsandi, að flug- farþegum verði brátt boðið upp á þessa þrjá kosti en framleiðendur Airbus-vélanna hafa að undanförnu verið að viðra þessa hugmynd við áætlunarflugfélög í Asíu. Hugmyndin um stæðin er sú, að fólk standi með bakið við fóðraða fjöl og noti að sjálfsögðu belti eins og aðrir. Þannig væri hægt að stór- auka farþegafjöldann í hverri ferð og gæti það komið sér vel á fremur stuttum flugleiðum í fjölmenninu í Asíu að því er fram kom á fréttavef The New York Times. Þótt ekkert flugfélag sé enn farið að bjóða upp á stæði, hafa þau grip- ið til margra ráða í slagnum við himinhátt eldsneytisverð. Meðal annars hafa þau skipt út sætunum í almenningnum og tekið inn ný, sem eru hálfu léttari og miklu þynnri. Boðið upp á stæði í flug- vélum? ♦♦♦ ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.