Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 19
ERLENT
Washington. AFP. | Tony Snow,
fréttaskýrandi og stjórnandi við-
talsþátta í útvarpi og sjónvarpi,
verður næsti talsmaður George
W. Bush, forseta Bandaríkjanna.
Snow tekur við af Scott
McClellan sem tilkynnti í vikunni
sem leið að hann hygðist láta af
störfum.
Tony Snow hefur einnig starfað
sem blaðamaður og dálkahöfund-
ur og var um tíma ræðuhöfundur í
Hvíta húsinu árið 1991 í forsetatíð
George H.W. Bush, föður núver-
andi forseta.
Snow stjórnaði viðtalsþætti Fox
News-sjónvarpsins á sunnudögum
á árunum 1996 til 2003, tók þá við-
töl við hátt setta embættismenn í
stjórn Bush forseta og erlenda
leiðtoga á borð við Benjamin Net-
anyahu, fyrrverandi forsætisráð-
herra Ísraels, og Pervez Musharr-
af, forseta Pakistans.
Stundum ósammála Bush
Síðustu árin hefur Snow stjórn-
að viðtalsþætti í Fox-útvarpinu
þar sem hann hefur óspart látið í
ljósi íhaldssamar skoðanir sínar
og rætt við embættismenn á borð
við Dick Cheney varaforseta.
Bush sagði þegar hann kynnti
nýjan talsmann sinn á blaða-
mannafundi í Hvíta húsinu í gær
að Snow hefði stundum verið
ósammála forsetanum, talið að
hann hefði ekki verið nógu íhalds-
samur í sumum málum. „Ég
spurði hann um þessi ummæli og
hann svaraði: þú hefðir átt að
heyra hvað ég sagði um hinn
manninn,“ sagði Bush.
Auk McClellan hefur Karl
Rove, helsti stjórnmálaráðgjafi
Bush, látið af störfum sem aðstoð-
arskrifstofustjóri Hvíta hússins og
áður sagði Andy Card af sér sem
skrifstofustjóri. Markmiðið með
uppstokkuninni er að bæta ímynd
Bush sem nýtur nú minni stuðn-
ings meðal landsmanna en nokkru
sinni fyrr.
Tony Snow
verður tals-
maður Bush
Reuters
George W. Bush kynnir nýjan
talsmann sinn, Tony Snow (t.h.).
GERT er ráð fyrir því að jarð-
arbúum fjölgi úr 6,5 milljörðum í
9,1 milljarð fyrir árið 2050, sam-
kvæmt nýjustu mannfjöldaspá Sam-
einuðu þjóðanna.
Mannfjölgunin verður langmest í
þróunarlöndunum. Því er spáð að
íbúafjöldi 50 fátækustu landa heims
tvöfaldist að meðaltali og þrefaldist
í löndum á borð við Afganistan,
Tsjad og Austur-Tímor.
„Þetta eru þau lönd sem geta
ekki séð til þess að allir íbúarnir
hafi nógu gott húsnæði og fái næga
næringu,“ sagði Haina Zlotnik, yf-
irmaður Mannfjöldadeildar Sam-
einuðu þjóðanna.
Íbúafjöldinn í þróuðu iðnríkj-
unum verður nánast óbreyttur, eða
um 1,2 milljarðar. Gert er ráð fyrir
því að Indland taki við af Kína sem
fjölmennasta land heims fyrir árið
2030, eða um það bil fimm árum
fyrr en áður var talið.
!"#$
!"#$ %%
&'(
% &
)(
%'&
*+,-&
%&
*.'/0
&
12'34'5
6*'(
%'&
'/61)
6*'(
7 '(89&
%' &
()*+,!"-./
)%:
;
;:
% ;<=
)(
>
0
*.'/0
>
0' 1
'/61)
6*'( 7
'(89&
>
01 1
12'34'5
6*'(
>
2
1 10
*+,-&
>
2
0' 0
&'(
>
*3 456 78 9:;3< 3
5=
3&
78
73>*3 83
?7 5=
4 3;
2@3 5= 39 @ 3 5 7
% &&'()* + *%*&,%
Mannfjölgunin mest í
fátækum löndum
Colombo. AFP. | Yfirvöld á Sri Lanka
hótuðu í gær að halda áfram árásum
á liðsmenn tamílsku Tígranna, eftir
að a.m.k. 15 óbreyttir borgarar féllu
og tugir særðust í átökum stjórnar-
innar og uppreisnarmanna í gær.
Þrír féllu í sprengjuárás tamíla-
tígranna, en fulltrúar uppreisnar-
manna sögðu að 12 hefðu fallið í loft-
árás hersins á svæði þeirra.
„Ef tamíla-tígrarnir halda áfram
árásum verður brugðist við með
skipulögðum hefndaraðgerðum,“
sagði Keheliya Rambukwella, ráð-
herra í stjórninni, í gær. „Þessu
verður haldið áfram svo lengi sem
tamíla-tígrarnir halda uppi árásum á
öryggissveitir landsins.“
Komu átökin í kjölfarið á sjálfs-
morðsárás á öryggissvæði við höfuð-
stöðvar hersins í fyrradag, þegar 10
féllu og á þriðja tug særðist.
Vopnahléi haldið áfram
Stjórnvöld tilkynntu engu að síður
að þau vildu halda áfram vopna-
hléinu sem staðið hefur yfir frá árinu
2002. „Samningurinn um vopnahléið
stendur áfram,“ sagði Anura Yapa,
ráðherra fjölmiðlamála, í gær.
Landsmenn voru engu að síður
óttaslegnir í gær og hermir frétta-
vefur breska ríkisútvarpsins, BBC,
að 40.000 manns hefðu flúið heimili
sín í norðausturhluta Sri Lanka, af
ótta við loftárásir hersins á upp-
reisnarmenn.
Ofbeldisverkum í landinu hefur
stöðugt fjölgað á síðustu þremur vik-
um og hafa um 100 fallið í átökunum,
þar af 70 hermenn.
Minnst 15
féllu á Sri
Lanka