Morgunblaðið - 27.04.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 27
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
MARK Pointel er smokkakonungur
Frakklands. Hann heldur úti vefsíð-
unni leroidelacapote.com sem selur
smokka af öllum stærðum og gerð-
um ásamt nauðsynlegum auka-
hlutum þar sem hver og einn ætti
að finna eitthvað við sitt hæfi. Mark
sinnir starfi sínu af fullri alvöru
enda finnst honum löngu tímabært
að tala opinskátt um smokkinn: „Ég
hafði lengi velt því fyrir mér hvern-
ig hægt væri að gera smokka að-
gengilegri og notkun þeirra eðli-
legri. Vandamálið er að fólk tengir
smokka óhjákvæmilega við eyðni-
umræðuna og finnst óþægilegt að
tala um hann. Það verður svo til
þess að ungt fólk þorir ekki að
kaupa hann úti í apóteki eða að
notkun smokksins verður ekki eins
eðlileg og hún ætti að vera. Ég opn-
aði því vefverslun sem miðar að því
að bjóða upp á úrval smokka, þar
sem hverjum og einum gefst kostur
á að skoða hvað er í boði og taka
upplýsta ákvörðun. Varan er svo
send heim, hvar sem er í heiminum
og í París er sérstök heimsending-
arþjónusta“ segir Mark.
Smokkar með súkkulaðibragði
Í þessu fær blaðamaður að skoða
smokkalager verslunarinnar. Innan
um hinar fjölmörgu tegundir eru
smokkar sem titra, sumir sem
hitna, aðrir sem hægja á sáðláti
karlmannsins svo hann endist leng-
ur og hægt er að fá smokka með
súkkulaðibragði eða með framleng-
ingum. Mark telur að með góðu úr-
vali geti pör tekið ákvörðun um þá
tegund smokka sem þau vilji nota
saman.
„Markmiðið er að fá fólk til þess
að hugsa um smokkinn sem hluta af
kynlífinu en ekki óþekktan hlut sem
flækist fyrir og gerir kynlífið vand-
ræðalegt,“ segir hann. Innan um
alla þessa karlsmokka er einnig að
finna hinn margumtalaða kven-
smokk, sem er töluvert stærri í um-
mál en karlsmokkurinn og er víst til
ýmsa hluta nytsamlegur.
„ Kvensmokkurinn getur nýst vel
þeim karlmönnum sem eru með lítil
kynfæri. Það er til dæmis alltof al-
gengt að karlmenn kaupi ekki rétta
stærð af smokkum. Það eru ekki
margir sem þora að segja upphátt
við myndarlegu afgreiðslustúlkuna í
apótekinu að þeir vilji fá minnstu
stærðina af smokkum (en smokkar í
Frakklandi fást einungis yfir af-
greiðsluborðið í apótekum eða í
sjálfsölum). Oft eru ekki einu sinni
til minnstu eða stærstu gerðirnar
en til þess að
smokkurinn
gagnist almenni-
lega þarf stærð-
in að vera rétt.
Kvensmokk-
urinn er því til-
valinn fyrir þá
sem geta ekki
notað hefð-
bundna stærð og
gefur karlmann-
inum ákveðna
frelsistilfinningu
og getur þannig aukið sjálfstraustið
töluvert.“
12% kaupenda eru konur
Mark lætur sig þannig ekki ein-
ungis varða um líkamlega heilsu
viðskiptavina sinna heldur reynir
hann líka að hlúa að andlegu hlið-
inni. Á síðunni er hægt að senda
spurningar til hinnar kynþokkafullu
Miss Pandora, sem mætti segja að
sé ástargúrú
Frakklands.
Miss Pandora
svarar öllum
óþægilegu
spurningunum
og það á met-
tíma. Vefurinn
hefur fengið góð-
ar móttökur en
hann var opn-
aður 1.júlí 2005.
„Fyrsta mark-
aðsrannsóknin
mín bendir til þess að konur kaupi
langtum minna smokka en karlar.
Aðeins um 12% kaupenda á síðunni
eru konur og meðalaldurinn er 33
ára, bæði hjá körlum og konum. Ég
held að það sé nauðsynlegt að reyna
að höfða betur til ungs fólks svo það
fari að lifa ábyrgu kynlífi. Vefurinn
gæti þannig gagnast þeim sem vilja
komast hjá því að versla hjá apótek-
aranum,“ segir Mark að lokum.
Vefverslun sem selur
einungis smokka
KYNLÍF
Eftir Söru M. Kolka
sara@mbl.is
Mark Pointel er smokkakonungur Frakklands og heldur úti vefsíðunni
leroidelacapote.com sem selur smokka af öllum stærðum og gerðum.
Varist að geyma smokka í
buxna- eða skyrtuvasa. Lík-
amshitinn getur skemmt la-
texið sem gatast þá auðveld-
lega og smokkurinn getur því
orðið gagnslaus.
Smokkur getur slitnað af ýms-
um ástæðum. Hann þarf að
vera af réttri stærð og konan
þarf að vera tilbúin. Einnig er
hægt að nota sleipiefni.
Sumir hafa ofnæmi fyrir latexi
en til eru nokkrar tegundir
sem eru latexfríar.
Mælt er með því að æfa sig í að
nota smokk áður en að kynlíf-
inu kemur og það getur komið
í veg fyrir vandræðalegar
stundir. Mestu skiptir að vera
rólegur og taka sig ekki of al-
varlega.
Ef smokkurinn stöðvast á
miðri leið niður getnaðarlim-
inn getur verið að smokkurinn
sé of stór. Prófið minni gerðir.
Gott ráð er að setja nokkra
smokka milli dýnu og rúm-
stokks með nokkura sentí-
metra millibili. Þannig er hægt
að finna einn hvernig sem
landið liggur án þess að stöðva
leikinn.
Rétt notkun
skiptir öllu máli