Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 29
ið magn transfitusýra sem geri þá viðkvæmari fyrir hjartasjúkdómum. Lesa innihaldslýsingar Í Kanada og Bandaríkjunum gilda reglur um merkingu matvæla og er framleiðendum skylt að tilgreina hve mikið af transfitusýrum er í þeim en hins vegar er hámark ekki bundið í reglur, frekar en t.d. á Íslandi eða í Svíþjóð. Þar er þess heldur ekki kraf- ist að tilgreint sé magn transfitusýra á umbúðum. Neytendur geta þó lesið innihaldslýsingar til að komast að því hvort viðkomandi matvara innihaldi transfitusýrur. Þegar „að hluta til hert olía“ eða „hálfhert olía“ er í mat- vælunum innihalda þau trans- fitusýrur. Á ensku útleggst þetta „Partially hydrogenated oil“ og á dönsku „delvist hærdet fedt/olie“, að því er fram kemur í grein um trans- fitusýrur á vef Umhverfisstofnunar. Í frétt Svenska Dagbladet er því haldið fram að 100 þúsund Svíar séu í áhættuhópi vegna þess að neysla þeirra á transfitusýrum sé svo mikil. Mjög líklegt sé að dánarorsök þeirra verði kransæðasjúkdómar. 3.000 Íslendingar í áhættuhópi? Skv. sama hlutfalli af fólksfjölda ættu yfir 3.000 Íslendingar að vera í þessum áhættuhópi. Í öllu Evrópu- sambandinu eru 4,7 milljónir manna í þessum áhættuhópi, skv. frétt SvD. Mest notkun transfitusýra í Evr- ópu er í Ungverjalandi, Tékklandi, Póllandi og Búlgaríu þar sem einnig er mest um hjarta- og æðasjúkdóma í Evrópu, að því er fram kemur í SvD. Í grein á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að neysla á trans- fitusýrum sé mjög mismunandi á milli landa. Minnst sé neyslan í lönd- unum við Miðjarðarhaf en mun meiri á norðlægum slóðum. Í frétt SvD kemur fram að í New England Journ- al of Medicine hafi bandaríski vís- indamaðurinn Walter Willett við Harvardháskóla haldið því fram að með því að stöðva iðnaðarframleiðslu á transfitusýrum væri hægt að koma í veg fyrir 228 þúsund hjartaáföll á ári í Bandaríkjunum. Morgunblaðið/Ásdís steingerdur@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 29 DAGLEGT LÍF Í APRÍL KYNHVÖTIN getur minnkað tíma- bundið hjá þeim sem hafa ofnæmi fyrir frjókornum, að því er banda- rísk rannsókn gefur til kynna. Í Göteborgs-Posten er greint frá því að ef fólk tekur ekki lyf vegna of- næmisins geti það einnig haft þau áhrif að það á erfitt með að fá full- nægingu. Eftir að þátttakendur í rannsókninni byrjuðu að taka eina ofnæmistöflu á dag breyttist kyn- hvötin til hins betra auk þess sem of- næmiseinkennin minnkuðu. Frjó- kornaofæmi hefur orðið algengara í heiminum á síðustu áratugum og í Svíþjóð er t.d. talið að 20-25% fólks hafi ofnæmi fyrir frjókornum. Í GP kemur fram að auk nef- rennslis og augnkláða geti frjó- kornaofnæmiseinkenni lýst sér í erf- iðleikum við að einbeita sér og koma hlutum í verk. Ofnæmissjúklingar geta einnig orðið pirraðir og sjálfs- traustið minnkað. Átta af hverjum tíu töldu einnig að ofnæmið truflaði nætursvefn á einhvern hátt. Hefur frjó- kornaof- næmi áhrif á kynhvötina?  RANNSÓKN BÖRN eiga að snúa baki í aksturs- stefnu í þar til gerðum bílstólum til allt að fjögurra ára aldurs eða eins lengi og hægt er. Þetta er inntak til- mæla til foreldra í Svíþjóð sem sett eru fram sameiginlega af sænsku vegagerðinni, barnabílstólaframleið- endum, tryggingafélögum o.fl. og gerð í þeim tilgangi að auka öryggi í umferðinni, að því er m.a. kemur fram í Svenska Dagbladet. Á árunum 1997–2002 urðu mörg alvarleg bílslys í Svíþjóð og rann- sókn var gerð á nokkrum þeirra. Níu af nítján börnum sem létu lífið eða slösuðust alvarlega í þeim hefðu sloppið ómeidd ef þau hefðu snúið baki í akstursstefnu, að því er fram kemur í niðurstöðunum. Hættan á að slasast alvarlega eða deyja í um- ferðarslysi er fimm sinnum meiri ef barn horfir í akstursstefnu en ef það snýr baki í akstursstefnu. Þrátt fyrir þetta hefur þeim börnum sem snúa baki í akstursstefnu fækkað að und- anförnu. Ástæðan er talin ótti við að öryggispúði blási út við hugsanlegan árekstur og valdi barninu meiri skaða en ella. Slíkur ótti er hins veg- ar ástæðulaus ef öryggispúði er af- tengdur þar sem barnabílstól er komið fyrir, hvort sem er í fram- eða aftursæti. Ný lög um börn í umferðinni Í sumar taka einnig gildi ný lög um börn í umferðinni í Svíþjóð. Um er að ræða herta löggjöf um notkun bílstóla eða -púða og í henni felst m.a. að börn allt að 135 cm á hæð eigi að nota öryggisbúnað í bílum. Við lagabreytinguna 1. júlí hverfa aldursmörk sem áður giltu, þ.e. að öll börn upp til sex ára aldurs eigi að nota barnabílstól eða bílpúða. Í stað- inn er það hæð barnsins sem gildir. Öll börn upp að 135 cm hæð eiga þá að nota púða eða stól. Meðalhæð sex ára barna er um 118 cm og lögin hafa því m.a. þá þýðingu að eldri börn þurfa að nota öryggisbúnað. 135 cm er meðalhæð níu og hálfs árs barna. Börn allt að níu ára á púða í bíl  ÖRYGGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.