Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 36

Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN B jörn Bjarnason dóms- málaráðherra fjallar á heimasíðu sinni sl. sunnudag um banda- ríska fjölmiðla, en af skrifum hans má hálfpartinn draga þá ályktun að hann telji að sá vandi sem nú steðjar að bandarískum fjöl- miðlum sé kominn til af því að blaðamennirnir sem á þeim starfa séu hlutdrægir. „Fjölmiðlarnir hafa einfaldlega gefið of mikinn högg- stað á sér,“ segir hann semsé í pistli sínum og rifjar svo upp í framhald- inu niðurstöður kannana sem sýna að af þeim blaðamönnum í Banda- ríkjunum, sem gefi upp stjórnmála- skoðun sína, lýsi 76% sjálfum sér sem liberal eða vinstrisinnuðum. Tónninn í þessum hluta pistils Björns er mjög keimlíkur þeim sem gjarnan birtist í skrifum Ólafs Teits Guðnasonar sem heldur úti fjöl- miðlarýni í Viðskiptablaðinu, en Ólafur Teitur hefur m.a. skrifað um „Manhattan-skekkjuna“, sem hann kallar svo (11. nóvember 2005). En rauði þráðurinn í þeim skrifum er sá að stæk vinstri slagsíða sé á (bandarískum) fjölmiðlum. Málflutningur Ólafs Teits er að vísu gallaður sökum þess að hann gerir engan greinarmun á málefna- legum fjölmiðlamönnum og hinum, sem ómálefnalegir eru, það eina sem virðist skipta máli er hvort þeir séu til vinstri eða til hægri. Þetta leiðir Ólaf Teit út í þær ógöngur að bera saman Bill O’Reilly, en hann stýrir þjóðmálaþætti á Fox- fréttasjónvarpsstöðinni, og George Stephanopoulos, sem stýrir viku- legum umræðuþætti um þjóðmál á ABC-sjónvarpsstöðinni. O’Reilly er sannarlega hægri- sinnaður, Stephanopoulos var á móti einn af aðalráðgjöfum Bills Clintons í forsetatíð hans. En hvaða máli skipta þessir merkimiðar sam- anborið við hinn faglega mæli- kvarða, sem er einfaldlega sá að Stephanopoulos er sanngjarn í sinni þáttastjórnun á meðan O’Reilly leggur sig fram um að vera ofstæk- isfullur? Nema hvað. Það er alls ekki þessi meinta vinstri slagsíða sem hefur orsakað þann vanda sem nú steðjar að útgáfu dagblaða í Bandaríkj- unum og raunar mun víðar. Hann er nefnilega rakinn til þess að ungt fólk sæki sér nú í æ ríkari mæli upplýsingar og fréttaefni á netið. Fyrir vikið hefur sala dagblaða víð- ast hvar dregist mjög saman og hið sama á við um auglýsingatekjur þeirra. Í nýrri skýrslu Nieman- stofnunarinnar við Harvard- háskóla (Nieman Reports, Vol. 60, No. 1, vor 2006) er fjallað sér- staklega um óvissa framtíð dag- blaðanna. Þar ritar Tim nokkur Porter grein þar sem ekkert er ver- ið að skafa utan af því: „Dagblöð þurfa að endurskapa sig eða deyja. Það er svo einfalt.“ (e. Reinvent or die. It’s that simple). Porter heldur áfram: „Og dauð- daginn mun verða seinlegur og sársaukafullur, hægfara en örugg þróun í átt að lakari gæðum og minni áhrifum, á tímum er harðari útgjaldastefna verður til þess að starfsfólki er fækkað og almenn- ingur velur nýrri, áhrifameiri leiðir til að nálgast upplýsingar.“ Porter segir framtíð dagblaðanna svarta, lagi þau sig ekki að breytt- um heimi. En ef þau séu tilbúin til að leggjast í naflaskoðun séu tæki- færi fyrir hendi. Aðrir sem skrifa í Nieman Re- ports eru sama sinnis; Scott D. Anthony og Clark G. Gilbert benda t.a.m. á að þó að lestur dagblaða minnki aukist samt „neysla“ upplýs- inga. Flest blöð séu nú búin að net- væðast, það sé áreiðanlega lykillinn að bjartri framtíð sýni útgáfufyr- irtækin framsýni í því hvernig þau nýta þann miðil. Amanda Bennett, ritstjóri á Philadelphia Inquirer, skrifar sér- lega áhugaverða grein en þar rekur hún þær raunir sem hún hefur þurft að ganga í gegnum síðan hún tók við ritstjórninni fyrir tveimur og hálfu ári. Hefur orðið að fækka blaða- mönnum blaðsins um 21% á þeim tíma, en sama þróun er að eiga sér stað um öll Bandaríkin. Bennett segir að þetta hafi hins vegar neytt þau á Philadelphia In- quirer til að velta fyrir sér sjálfu eðli og inntaki blaðamennskunnar, hvaða erindi þetta tiltekna blað telji sig eiga við lesendur, hvað skipti les- endur þess máli o.s.frv. Helstu nið- urstöður þessarar naflaskoðunar voru þær, að menn vildu fyrst og síðast áfram vera metnaðargjarnir í sínum störfum. Ljóst væri hins veg- ar að blaðið gæti ekki lengur sinnt „skrásetningu“ alls þess sem fram færi í nánasta umhverfi blaðsins; sinna öllum skólanefndarfundum eða segja frá öllum glæpum sem framdir væru í Fíladelfíu og ná- grenni. Blaðið þyrfti samt að efla tengsl við umhverfi sitt, m.a. með því að taka netið í sínar þarfir; í stað fastra kvikmyndagagnrýnenda hefði verið farið af stað með til- raunaverkefni á netinu þar sem reynt væri að efna til gagnvirkra samræðna við lesendurna um kvik- myndir. Sameiginleg niðurstaða margra þeirra, sem rita greinar í Nieman Reports, er sú að dagblöð verði að láta sig mestu varða það samfélag sem þau eiga rætur í og eru sprottin úr. Gæði lókal frétta muni skilja milli feigs og ófeigs í blaðaheim- inum, a.m.k. hjá öllum blöðum sem ekki séu af sama kalíberi og New York Times eða Wall Street Journal eða USA Today. Sumt af því sem hér hefur verið endursagt úr Nieman Reports má heimfæra upp á blaðamarkaðinn ís- lenska og telst áhugavert í því ljósi. Að vísu hefur þróunin hér verið svo- lítið óvenjuleg; á sama tíma og áskriftarblöð hafa átt undir högg að sækja (þau eru fá eftir, aðeins Morgunblaðið og DV; síðan eru auð- vitað enn til héraðsfréttablöð) hafa orðið til öflug fríblöð. Spyrja má hvort sú þróun geti talist liður í þeirri „endursköpun“ sem Porter kallar eftir í grein sinni í Nieman Reports. Vandi dagblaðanna Sameiginleg niðurstaða […] er sú að dagblöð verði að láta sig mestu varða það samfélag sem þau eiga rætur í og eru sprottin úr. Gæði lókal frétta muni skilja milli feigs og ófeigs […] BLOGG: davidlogi.blogg.mbl.is VIÐHORF Davíð Logi Sigurðsson david@mbl.is Í VETUR urðu nokkur skrif um leikskólamál í dagblöðunum í tengslum við kjarabaráttu leiðbein- enda. Það er ástæða til að halda skrifum um leikskólamálin á lofti og tengja þau skrif frekar börnunum, en ekki endilega krónum og aurum, þjónustuhugtökum og hagræðingu. Svo virðist sem börn þyrftu að eiga sér bar- áttuaðila sem væru gagnrýnir á ríkjandi hugmyndir samfélags- ins. Sú er sem sagt ástæðan fyrir þessum skrifum mínum að ég tel að við þurfum að velta uppeldi barna fyrir okkur, ekki síst hópuppeldi, ásamt tímanum og rýminu sem við höfum/verjum til uppeldis barnanna. Á síðu Leikskóla Reykjavíkur má nú lesa frétt um fjölgun leikskólarýma í borginni á síðustu tólf árum. Í öðrum sveit- arfélögum er þróunin hin sama. Það kemur einnig fram að helsta breyt- ingin, sem orðið hefur í dagvist- unarmálum í Reykjavík, felist í stórauknu hlutfalli barna í heils- dagsvistun. „Árið 1994 var hlutfall barna í heilsdagsvistun 31% (dval- artími 7–9 klukkustundir) en nú eru 92% allra leikskólabarna í borginni heilsdagsvistuð.“ Af þessu má skilja að börnin eru vistuð í leik- skólarýmum. Fyrir þann sem ekki veit er slíkt rými a.m.k. 3 m2 nettó fyrir hvert barn, en 6,5 m2 brúttó. Nú er þó oftast, vegna hagræðingar og eftirspurnar, miðað við lág- markstöluna þ.e. þrjá fermetra fyr- ir hvert barn. Þegar heilsdagsvist- uðum börnum hefur fjölgað svo sem raun er skiptir þetta stærri hópa máli. Það þarf að stækka uppeld- isrými hvers barns þó ekki væri nema um 0,75 m2. Þá myndu 20 börn vera saman á svæði þar sem nú eru 25. Börnin myndu ekki lifa eins þröngt, draga mætti úr stýr- andi inngripum kennaranna, ásamt ýmsu skipulagi, en fjölga jafnframt styðjandi inngripum. Árekstrum milli barnanna myndi fækka: per- sónufrelsi, sjálfræði og sjálfsvirðing myndi aukast; Virðing fyrir öðrum byrjar með því að fólk beri virðingu fyrir sjálfu sér og tengsl eru auð- veldari í minna félagslega flóknu umhverfi. Þetta allt myndi skila sér í hraustari börnum, að öllum líkum bæði líkamlega og félagslega. Það væri ávöxtun til framtíðar, vel- gengni, gróði, hagvöxtur, upp- sveifla … En áfram um leik- skólarýmin. Í skil- greiningu um þau virð- ist vanta að hverju rými þurfi að fylgja ákveðið magn af kenn- aratíma. Leik- skólarými stendur ekki, ólíkt t.d. póst- kassa, eitt og sér og þótt auðvelt sé að drífa upp hús eftir hús vant- ar kennara til starfa. Það vantar kenn- aramenntað fólk og í náinni framtíð er einnig næg vinna fyrir hæfa leiðbeinendur, en það er óviðunandi að næstum hver sem er geti fengið vinnu í leikskóla. Það þarf einnig að verða stöðugleiki, mannabreytingar hafa verið viðvar- andi vandamál í leikskólum og eru skólastarfi hindrun. Ennfremur þarf að auka tíma til skipulagsvinnu í leikskólunum, m.a. til þess að kennarar geti leiðbeint aðstoð- arfólki sínu, en tími til skipulags- og undirbúningsvinnu þarf að vera hugsaður fyrir börnin í skólanum svo að þau njóti ígrundaðrar og skipulagðrar vinnu kennara og leið- beinenda. Eins og þessum málum er háttað í dag má í leikskólunum ráða í afleysingu vegna undirbún- ingsvinnu leikskólakennaranna en ekki fyrir leiðbeinendur, sem þó er að mestu leyti gert að vinna sömu störf og kennari þegar slíkur fæst ekki til starfans og það er í um 70% tilfella á landsvísu. Þarna er mikil hagræðing á ferðinni því leiðbein- endur fá lægri laun en leikskóla- kennarar og ekki þarf heldur að ráða í afleysingu vegna undirbún- ingstíma þeirra. Þótt hægt væri að einangra kennlsu í leikskólunum og láta eingöngu leikskólakennarana sjá um kennsluna væri það vart æskilegt þar sem uppeldi og nám tengist svo sterkum böndum og börnin eru alltaf að læra. T.d. lær- ist lífsleikni að öllum líkum best með ástundun í góðum samskiptum og málið lærist m.a. í samtali. Þessi staðreynd um undirbúningstímana virðist augljóst misrétti gagnvart börnunum því þau sem hafa fleiri en einn og kannski fleiri en tvo leikskólakennara á deildinni sinni fá ekki eingöngu betur menntað fólk, sem kennir þeim og lærir með þeim, því þeirra kennarar fá líka betri tíma til undirbúnings. Þó að hæfir leiðbeinendur með gott innsæi geti sannarlega unnið ágætt starf gilda aðrar reglur um hópupp- eldi og umönnun annarra manna barna en þegar fólk elur upp sín eigin börn. Það er nú einnig nokkuð viðurkennt að til skólakennslu þarf kennara með góða menntun. Þegar leiðbeinendur eru ráðnir til kennslustarfa virðist það sjálfsagt mál fyrir þá og fyrir nemendur þeirra að þeir fái tíma, ásamt öðr- um tækifærum, til að afla sér þeirr- ar færni sem þeir mögulega geta til starfsins. Leikskólarými er meira en stein- steypa, húsgögn og leikefni, þar þarf einnig bæði vöðva, visku, vilja og þekkingu. Nú nálgast kosningar og þá er freistandi fyrir stjórn- málamenn að gefa loforð um meira og bjóða t.d. leikskólapláss fyrir yngri börn en nú er og lægri gjöld eru orðin að veruleika. Þó að það sé brýnt að búa vel að ungum börnum og fjölskyldum þeirra þyrfti að skil- greina leikskólapláss betur áður en áfram er haldið. Það þarf að leita allra leiða til úrbóta fyrir þá sem þegar vistast í leikskólum nær allan sinn vökutíma. Um leikskólarými Fanný Heimisdóttir fjallar um leikskóla ’Leikskólarými er meiraen steinsteypa, húsgögn og leikefni, þar þarf einn- ig bæði vöðva, visku, vilja og þekkingu.‘ Fanný Heimisdóttir Höfundur er leikskólastjóri. OFT er talað um að fjölmiðlar séu þriðja valdið í hinum lýðræðislegu samfélögum. Með það vald, eins og með annað vald, er vandmeðfarið. Við ræðum oft um rekstrarform fyr- irtækja og nú síðast er mikið rætt um rekstarform ríkisútvarpsins. Ég er þeirrar skoðunar að rekstrar- formið skipti ekki höfuðmáli, heldur hitt, hvernig stjórn- endur fara með vald sitt. Ég minnist þess að þegar nýr þjóðleik- hússtjóri tók við þjóð- leikhússtjórn árið 1991 sagði hann upp fjölda fastráðinna starfs- manna sem unnið höfðu mjög lengi hjá stofnuninni og ein- hverjir þeirra áttu eftir mjög stuttan tíma til þess að komast á lífeyri sakir aldurs og langs starfs við stofnunina. Ég velti einnig oft fyrir mér valdi fréttamanna, flestir fara mjög vel með það, þó auðvitað séu und- antekningar á því. Auðvitað er mis- munandi hvað menn telja fréttnæmt og hvað ekki. Að sjálfsögðu deila menn um það eins og annað í sam- félaginu. Mér þótti sérkennileg frétt sem kom í ríkissjónvarpinu á dögunum þar sem að því var látið liggja að Framsóknarflokkurinn væri að bjóða fram undir fölsku flaggi hér í Reykjavík með því að auglýsa undir merkjum x B. Staðreyndin er sú að þessir bókstafir hafa verið notaðir í kosningum allt frá árinu 1930 eða í 76 ár. Flokkurinn er elsti starfandi stjórnmálaflokkur landsins sem aldrei hefur þurft að skipta um nafn eða kennitölu í þau níutíu ár sem hann hefur starfað. Í fréttinni var kallaður til ágætur og þekktur aug- lýsingamaður og blaðamaður á gamla Þjóðviljanum sáluga. Auglýs- ingamaðurinn staðfesti aðspurður, að þessi fullyrðing væri ekki úr vegi. Ég minnist þess ekki að starfsmenn auglýsingastofa hafi verið fengnir til þess að gefa álit sitt í frétta- tíma um svipað efni. Samkeppni er milli auglýsingastofa og þeim tekst misvel í auglýsingatækni þann- ig að afbrýðisemi getur gætt milli auglýs- ingastofa og þeirra manna sem þar vinna. Síðar í fréttinni voru vegfarendur, væntanlega valdir af handahófi, spurðir um það fyrir hvað x B stæði, sumir voru alveg vissir fyrir hvað x B stóð, aðrir vissu það ekki. Ég er jafn viss um að þessir sömu vegfar- endur hefðu ekki hugmynd um fyrir hvað x F, x S eða x U stæði. Hvað eru menn að gefa í skyn með svona fréttaflutningi? Er þetta hlut- leysi fréttastofu ríkissjónvarpsins eða eru þetta eineltistilraunir og hálfsannleiksfréttamennska? Er þetta e.t.v. ódýr auglýsing fyrir frambjóðendur Framsóknarflokks- ins í Reykjavík? Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig fréttastofa ríkissjónvarpsins fjallar um aðrar auglýsingar sem eiga eftir að birtast fyrir komandi sveitarstjórnarkosn- ingar, innihald kosningaáforma o.s.frv. Ég geri meiri kröfur til RÚV en annarra fjölmiðla þar sem það er í eigu allra landsmanna en ekki einka- fyrirtæki. Þess vegna verða frétta- menn að gæta réttlætis og sanngirni þegar fjallað er um mál af þessum toga. Fréttir, rekstrarform og vald Ísólfur Gylfi Pálmason fjallar um fréttaflutning RÚV ’Ég geri meiri kröfur tilRÚV en annarra fjöl- miðla þar sem það er í eigu allra landsmanna en ekki einkafyrirtæki.‘ Ísólfur Gylfi Pálmason Höfundur er varaþingmaður og sveitarstjóri í Hrunamannahreppi. mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.