Morgunblaðið - 27.04.2006, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 27.04.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 49 MINNINGAR ✝ Stefanía Ingi-björg Snævarr fæddist í Reykjavík 2. júlí 1945. Hún lést á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja 20. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Árni Þorvald- ur Snævarr, f. 27. 4. 1909, d. 15. 8. 1979, og Laufey Bjarna- dóttir Snævarr, f. 15.10. 1917, d. 29.3. 1992. Systkini Stef- aníu eru: Lilly Svava Snævarr, f. 21.2. 1940, d. 18.11. 1995, Sesselja Snævarr, f. 14.11. 1947, og Sigrún Snævarr, f. 14.9. 1951. Hinn 25. janúar 1969 giftist Stefanía Guðmundi Lárusi Guð- mundssyni frá Vestmannaeyjum, f. 1. 9. 1942. Börn þeirra: 1) Árni Snævarr Guðmundsson, f. 31.7. 1967. 2) Sesselja Guðmundsdóttir, f. 24.6. 1972, maki Orri Haraldsson, f. 9.7. 1966. Sonur Guðmundar Lárus- ar er Magnús Guð- mundsson, f. 13.11. 1963, maki Sigríður Rúnarsdóttir. Barnabörn Stefaníu og Guðmundar Lár- usar eru fimm. Stefanía ólst upp í Reykjavík. Hún lauk námi frá Hús- mæðraskólanum á Varmalandi í Borg- arfirði 1964. Hún var húsmóðir og vann að auki ýmis störf. Hún bjó um tíma í Vestmannaeyjum en lengst af var hún búsett í Reykja- vík. Síðustu árin dvaldi hún á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ. Útför Stefaníu verður gerð frá Seljakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Að morgni sumardagsins fyrsta var sólskin og logn og allt svo ferskt og fallegt. Þennan morgun sofnaði systir okkar Stefanía svefninum langa og varpaði það skugga á feg- urð dagsins. Við systur vorum sam- mála um að það væri líklega þrátt fyrir allt fallegt að fá að sofna inn í birtuna og sumarið fyrst þannig þurfti að fara. Stella var næstelst okkar systr- anna fjögurra. Pabbi fór gjarnan með þetta kvæði Páls Ólafssonar þegar stelpurnar hans bar á góma: Fátt er gott að frétta. Fréttin er aðeins þetta: Drottinn gaf okkur dóttur, drengir fást ekki lengur. Ekki svo að skilja að hann væri ekki sáttur við þetta hlutskipti, heldur þvert á móti. Æskuheimilið var í Galtafelli við Laufásveg. Foreldrarnir bjuggu með stelpuskarann á neðri hæðinni og afi og amma á efri. Í raun var þetta eins og eitt heimili, eins konar fjölskylduhús þar sem samskipti kynslóðanna voru alla tíð mikil og náin. Stella átti því margar góðar minningar frá æskuárunum í Galta- felli. Í þessu minningabroti verður ekki rakin ævi systur okkar í smáat- riðum, en þar skiptust á skin og skúrir. Við viljum þó reyna að minn- ast sólskinsstundanna og sem betur fer voru þær margar. Það sem fyrst og fremst einkenndi Stellu var hennar góða skaplyndi, jafnaðargeð og bjartsýni og víst er, að það hefur reynst henni mikil hjálp í gegnum tíðina. Stella var nokkur sumur hjá frænda sínum Stefáni Snævarr og Jónu á Völlum í Svarfaðardal og þar bjuggu einnig afi Valdimar og amma hennar og nafna, Stefanía. Foreldrar okkar fengu reglulega bréf að norðan sem öll byrjuðu eins: Elsku pabbi og mamma, mér líður vel og veðrið er gott. Þótt eflaust hafi líka stundum dregið fyrir sólu fyrir norðan sýnir þetta jákvæða af- stöðu Stellu til hlutanna „hvernig sem viðraði“. Langskólanám lá ekki fyrir Stellu. Eftir unglingapróf fór hún síðar í Húsmæðraskólann á Varmalandi. Námið reyndist henni gott veganesti og einnig þeir tryggu og góðu vinir sem hún eignaðist þar. Hún giftist Guðmundi Lárusi Guðmundssyni árið 1969. Lárus er Vestmannaeyingur í húð og hár og þar stofnuðu þau sitt fyrsta heimili. Árin í Vestmannaeyjum voru góð og einnig þau sem á eftir fylgdu. Í Eyj- um voru þau líka umkringd fjöl- skyldu og vinum. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1971. Síðustu tíu árin fór að halla undan fæti vegna heilsubrests beggja. Loks höguðu örlögin því svo að leiðir þeirra skildi. Stella vann ýmis störf, m.a. á Landspítalanum og við heimilis- hjálp. Hún var hvers manns hugljúfi þar sem hún starfaði. Hún gladdist innilega þegar tilefni var til og tókst þá að fá aðra með sér. Hún átti það til að vera stríðin og uppátækin ým- isleg. Minnisstæð eru þau skipti þegar henni tókst að láta okkur hlaupa apríl og hafði gaman af. Fyrir nokkrum árum greindist Stella með sjúkdóm sem hún að lok- um laut í lægra haldið fyrir. Þrátt fyrir það var stutt í brosið og sjald- an heyrðist hún kvarta. Við þökkum Stellu samfylgdina, brosið og brell- urnar gegnum árin. Hún fór á þess- um fallega morgni á vit sumars og sólar. Sesselja og Sigrún. „Stefanía Ingibjörg Snævar heiti ég, kölluð Stella.“ Þetta voru mín fyrstu kynni af þessari einstöku konu. Við kynntumst í Húsmæðra- skólanum á Varmalandi fyrir 43 ár- um. Við urðum herbergisfélagar en það var upphaf fallegrar vináttu sem aldrei bar skugga á. Stella mín, eins og ég kallaði hana alltaf, var mér mjög kær. Hún bar svo mikla hlýju í garð allra, stórra sem smárra. Það má með sanni segja að hún Stella hafi aldrei hallmælt nokkrum manni. Frásagnarhæfileikar hennar voru með eindæmum skemmtilegir. Það var auðheyrt að hún kom frá miklu menningarheimili. Fáguð og falleg framkoma bar þess öll merki að hún hefði verið alin upp umvafin ást og hlýju. Eiginmaður Stellu er Guðmundur Lárus Guðmundsson frá Vest- mannaeyjum. Hann reyndist Stellu einstaklega góður eiginmaður sem og faðir tveggja barna þeirra, Árna og Sesselju Snævarr. Á meðan heilsa Lárusar leyfði eru mér minnisstæðar ferðir þeirra hjóna í sumarbústað þeirra fyrir austan fjall. Gagnkvæm virðing þeirra bar af. Í stórfjölskyldu minni var Stella sem ein af okkur. Hún hafði alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja og sérstaklega kom þeim vel saman, Hamely heitnum og Stellu. Minnisstæðar eru mér stórveisl- urnar á Flyðrugrandanum hjá Hamely Kojic sem lést fyrr á þessu ári. Í þessum veislum var mikið hlegið og Stella hafði mjög gaman af að kynnast þessari ólíku menningu þar sem gleðin var höfð í fyrirrúmi. Með söknuði kveð ég þig, elsku vinkona. Að hafa kynnst manneskju sem var svona heil gerir mig að rík- ari manneskju. Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúizt við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Ben.) Elsku Lárus minn, Árni, Sesselja og systur. Guð gefi ykkur styrk í ykkar sorg. Dóra Geraldine Einarsdóttir (Bíbí). Mig langar í nokkrum orðum að minnast æskuvinkonu minnar, Stellu. Við ólumst báðar upp á Lauf- ásveginum, hún í Galtafelli, húsi afa síns, Bjarna Jónssonar, oft kenndur við Nýja bíó. Ég bjó í húsi skáhallt á móti, stundum nefnt Aðilshús í þá daga. Stella var jákvæð og glaðlynd og brosmild. Það var gaman að koma í Galta- fell og í sumarbústaðinn við Þing- vallavatn. Stella var einstök og uppátækjasöm. Einn vetur þegar Bragagötunni hafði verið lokað frá Laufásvegi að Sóleyjargötu eins og oft var gert í þá daga svo börnin gætu rennt sér á skíðasleðum og magasleðum þá kom Stella með for- láta silfurbakka til að renna sér á. Ég spurði hvort hún mætti þetta og hún sagði það vera í lagi. Þarna fór ég salibunu á silfurbakka sem var fyrsta snjóþotan sem ég prófaði, og sú síðasta. Enda vildi ég aðeins það besta. Afi kom einu sinni að tali við móð- ur mína og sagði: „Ekki veit ég úr hverju þessi stelpa er gerð. Hún sit- ur tímunum saman úti í kuldanum í polli og er rennandi blaut en verður aldrei meint af.“ Eins og gengur þá rofnaði sam- bandið við Stellu. Ég hitti hana mörgum árum síðar. Þá var hún að koma við á Laufásveginum og var með barnavagn. Hún sýndi mér stolt barnið í vagninum, það var Árni, skírður í höfuðið á afa sínum. Það sem helst stendur upp úr í minningunni er jákvæðni hennar, glaðlyndi, brosið hennar og hún tal- aði aldrei illa um neinn. Stella mín, ég kveð þig með þakk- læti fyrir æskuárin. Hvíl í friði. Börnum og öðrum ættingjum votta ég innilega samúð. Inga Aðils. Í dag kveðjum við kæra mágkonu og frænku, Stellu, sem lést að- faranótt sumardagsins fyrsta. Það er ýmislegt sem kemur upp í hug- ann þegar komið er að kveðjustund. Sú mynd sem okkur er efst í huga, er Stella frænka, brosandi út að eyrum og kát á mannamótum, áður en heilsan fór að gefa sig.Það var einstakt lundarfar sem henni var gefið. Þó mótvindar væru á stund- um sterkir, var alltaf stutt í brosið og ótrúlega auðvelt var að gleðja hana. Aldrei gladdist hún þó meira en þegar hún gat glatt aðra. Með þessum sálmi, sem ortur er á fæðingarári Stellu og er eftir afa hennar Valdimar V. Snævarr, vilj- um við kveðja hana og þakka sam- fylgd. Þú, Kristur, ástvin alls, sem lifir, ert enn á meðal vor. Þú ræður mestum mætti yfir og máir dauðans spor. Þú sendir kraft af hæstu hæðum, svo himinvissan kveikir líf í æðum, og dregur heilagt fortjald frá. Oss fegurð himins birtist þá. Þú vígir oss sem votta þína að veruleika þeim: að vinir aldrei vinum týna, þótt víki til þín heim. Þú lætur efnisþokur þynnast, svo það sé hægra elskendum að finnast, og jafnvel heljarhúmið svart þín heilög ástúð gjörir bjart. Þín elska nær til allra manna, þótt efinn haldi þeim, og lætur huldar leiðir kanna að ljóssins dýrðarheim. Vér skulum þínir vottar vera og vitnisburð um stórmerki þín bera, því þú ert eilíf ást og náð og öllum sálum hjálparráð. Það er ekki vafi í okkar huga að elsta systir hennar, Lillý Svava, sem aldrei gat sleppt af henni hendinni, mun taka vel á móti henni ásamt ömmu Bíbí, afa Árna og öllum hinum sem farnir eru á und- an. Hvíl í Guðs friði. Sverrir Ingólfsson, Unnur, Brynja og Svava Sverrisdætur. STEFANÍA INGI- BJÖRG SNÆVARR Nú falla tár. Þér fagnið þá er finnast vinir himnum á og samvist hefst í sælubyggð þá sorg mun gleymd og dauðans hryggð. Svo krjúpið hljóð við kisturnar og kveðjið þá er blunda þar og flytjið kvöldbæn hægt og hljótt. Af hjarta segið: Góða nótt. (Valdimar V. Snævarr.) Guð geymi þig, elsku Stella. Sunna Dóra, Kristín Þóra, Árni Baldur og fjölskyldur. HINSTA KVEÐJA Eiginkona mín, móðir og amma, ELÍSABET MARÍA KVARAN, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 28. apríl kl. 15.00. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Elísabet Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Þorvaldur Garðar Kvaran. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ HALLDÓRSSON, Akurbraut 11, Innri Njarðvík, sem lést á páskadag, 16. apríl, verður jarðsunginn frá Innri Njarðvíkurkirkju laugardaginn 29. apríl kl. 13.00. Sigurður G. Sigurðsson, Guðríður Helgadóttir, Elsa H. Rasmussen, Kristian Rasmussen, Bergdís M. Sigurðardóttir, Smári Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, KRISTJÁN JÓNSSON, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 28. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið Hlíð. Ragna Kristjánsdóttir, Halldóra Kristjánsdóttir, Sigurður I. Gíslason, Eyþór Kristjánsson, Ingibjörg Thorp, Valgerður Kristjánsdóttir, Kristján Birgisson, Þórný Kristjánsdóttir, Benedikt Benediktsson, barnabörn, langafabörn og systkini hins látna. Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskaðs unnusta míns, föður okkar, fósturföður, sonar, bróður og mágs, LÚÐVÍKS ALFREÐS HALLDÓRSSONAR, Birkimel 9, Varmahlíð, Skagafirði. Sérstakar þakkir til Suðurverks hf. fyrir góða aðstoð og stuðning. Linda Björg Finnbogadóttir, Gunnhildur Erla Lúðvíksdóttir, Hulda Siggerður Lúðvíksdóttir, Aníta Rún Lúðvíksdóttir, Björgvin Páll Gústafsson, Berglind Sif Viðarsdóttir, Helga Lind Magnúsdóttir, Birna Guðmundsdóttir, Kjartan Björnsson, Halldór Karel Jakobsson, Steinunn Björg Björnsdóttir, Sigurlína Halldórsdóttir, Gunnar S. Valtýsson, Ragnhildur Halldórsdóttir, Valdimar Bjarnason, Rósa Borg Halldórsdóttir, Þorgrímur Jónsson, Sigríður Margrét Halldórsdóttir og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR PÁLSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til allra á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, fyrir góða umönnun og vináttu. Aðstandendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.