Morgunblaðið - 27.04.2006, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 55
HESTAR
S
keifudagur var haldinn
hátíðlegur á Mið-Foss-
um í Andakílshreppi
síðastliðinn laugardag,
22. apríl. Nemendur í
hrossarækt kynntu þar árangur
vetrarstarfsins í frumtamninga- og
reiðmennskunámi við Landbúnað-
arháskóla Íslands á Hvanneyri.
Þeir hafa unnið með tvö hross í
vetur, annars vegar frumtamn-
ingatrippi og hins vegar taminn
hest, og höfðu í vikunni á undan
þreytt próf í frumtamningum og
reiðmennsku þar sem keppt er um
Morgunblaðsskeifuna og hefur
Morgunblaðið gefið verðlaunagrip-
inn allt frá 1957. Þorsteinn Logi
Einarsson frá Egilsstaðakoti í Vill-
ingaholtshreppi í Árnessýslu hlaut
skeifuna í ár fyrir besta árangur á
prófunum og var hann vel að verð-
laununum kominn. Hann hlaut
einnig að launum folatoll undir
stóðhestinn Oríon frá Litla-Bergi
og að auki 15.000 kr. inneign í
Knapanum í Borgarnesi.
Aðstaðan verði
á heimsmælikvarða
Nemendur voru alls 12 talsins í
verklegri hrossarækt í ár og hafa
þeir nú annað ár í röð notið góðrar
kennsluaðstöðu sem verið er að
byggja upp á Mið-Fossum í ná-
grenni Hvanneyrar. Samningur
hefur verið gerður til lengri tíma
um þennan aðgang nemenda og
starfsfólks LBHÍ og er áætlað að
reisa vel búna reiðhöll í haust auk
frekari hesthúsbygginga. Í Skeifu-
blaði 2006 sem gefið var út í tilefni
dagsins segir Ágúst Sigurðsson
rektor að þessar framkvæmdir
muni valda byltingu í allri aðstöðu
til kennslu og almennrar hesta-
mennsku og sannarlega verði að-
staðan á heimsmælikvarða.
Hvanneyrarfólk lítur bersýnilega
björtum augum til framtíðar og
stefnir á enn frekari eflingu hesta-
mennsku í skólanum.
Maríus Snær Halldórsson
fékk Gunnarsbikarinn
Nemendur hófu sýninguna á
laugardaginn með því að kynna
ýmsar tamningaaðferðir og sýndu
frumtamningatrippin. Hálfhryss-
ingslegt veðrið gerði það að verk-
um að svolítill kuldi var trippunum
í fyrstu en nemendur sýndu fag-
mennsku og leystu verkefnin vel af
hendi. Þvínæst var komið að
tömdu hrossunum og kepptu nem-
endur á þeim um Gunnarsbikarinn
sem Bændasamtök Íslands gefa til
minningar um Gunnar Bjarnason,
fyrrverandi hrossaræktarráðunaut
og kennara á Hvanneyri, en hann
stofnaði reiðskóla á sínum tíma á
Hvanneyri sem hefur verið kall-
aður fyrsti reiðskóli á Íslandi.
Maríus Snær Halldórsson frá
Bjarnastöðum í Öxarfirði tefldi
fram stórglæsilegri hryssu, Tíbrá
frá Bjarnastöðum undan Kormáki
frá Flugumýri og Tinnu frá
Bjarnastöðum, og vann Gunnars-
bikarinn. Maríus fékk einnig
ásetuverðlaun Félags tamninga-
manna en þau er veitt þeim sem
þykir skara fram úr fyrir ásetu,
bæði vegna þess að hún þyki falleg
og sé notuð til að stjórna hest-
inum. Eiðfaxabikarinn er auk þess
afhentur þennan dag þeim sem
hefur staðið sig best hvað hirðingu
hestsins varðar og féll hann í
skaut Bryndísar Evu Óskarsdóttur
frá Selfossi. Úrslit í Skeifukeppni,
keppninni um Gunnarsbikarinn,
urðu þessi:
1. Maríus Snær Halldórsson
2. Þorsteinn Logi Einarsson
3. Hrafnhildur Baldursdóttir
4. Unnur Þorvaldsdóttir
5. Bryndís Eva Óskarsdóttir
Umsjónarmaður kennslu í
hrossarækt í vetur var Þorvaldur
Kristjánsson og aðalkennarar voru
Reynir Aðalsteinsson tamn-
ingameistari og Oddrún Ýr Sig-
urðardóttir reiðkennari, Gunnar
Reynisson kom einnig að kennsl-
unni.
Bryddað var upp á skemmtileg-
um nýjungum á milli atriða, tveir
fyrrverandi skeifuhafar, Atli
Helgason og Sigríður Ólafsdóttir,
sýndu hest fyrir léttikerru og
borgfirski stóðhesturinn Aðall frá
Nýjabæ var kynntur og tekinn til
kostanna svo um munaði.
Skeifutölt, opið töltmót Grana á
Hvanneyri og Faxa í Borgarfirði,
var haldið í tengslum við daginn
og þar bar Heiða Dís Fjeldsted
sigur úr býtum á Þrumu frá
Skáney, feiknafallegri hryssu sem
á vel heima á keppnisvellinum,
sérstaklega með auknu rými.
Heiða Dís var efst inn í úrslit og
skeifuhafinn Þorsteinn Logi var
fimmti inn en vann sig upp í annað
sæti.
Úrslit í Skeifutölti
1. Heiða Dís Fjeldsted
á Þrumu frá Skáney.
2. Þorsteinn Logi Einarsson
á Veigari frá Egilsstaðakoti.
3. Hrafnhildur Guðmundsdóttir
á Mósart frá Leysingjastöðum.
4. Björg María Þórarinsdóttir
á Mjölni frá Hesti.
5. Gunnar Halldórsson
á Kiljan frá Þverholtum.
Efstu menn í úrslitum Skeifu-
keppni og Skeifutölts hlutu fola-
tolla í verðlaun, t.a.m. fékk Heiða
Dís toll undir Ófeig frá Þorláks-
stöðum fyrir efsta sæti í Skeifu-
tölti.
Að lokum er rétt að minna á
Skeifukeppnina á Hólum í Hjalta-
dal, lokakeppni nemenda á hesta-
fræðibraut í Hólaskóla. Hún verð-
ur haldin á laugardaginn, 29. apríl,
þar sem aðalverðlaunin eru Morg-
unblaðsskeifan.
Skeifudagur haldinn hátíðlegur á Mið-Fossum við Hvanneyri síðastliðinn laugardag
Þorsteinn Logi
Einarsson hlaut
Morgunblaðsskeifuna
Skeifuhafinn í ár á Hvanneyri, Þorsteinn Logi Einarsson, í töltsveiflu á Veigari frá Egilsstaðakoti.
Ljósmyndir/Kolbrún Þórólfsdóttir
Maríus Snær Halldórsson sýndi snilldartilþrif á hryssunni sinni, Tíbrá frá
Bjarnastöðum, og hlaut Gunnarsbikarinn.
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
Hestamenn hafa stundum
þurft að bíta á jaxlinn í norðan-
báli í vetur þrátt fyrir snjóleysið
víða um land og þeir ættu eins og
aðrir landsmenn að vera farnir
að skilja þankaganginn hjá
veðurguðunum. Samt sem áður
er það undarlegt hvað við veður-
spekúlantar verðum alltaf jafn-
hissa á éljagangi, hissa á skini og
skúrum á hálftíma, hissa á að öll
él birti upp um síðir, logninu á
undan storminum.
Morgunblaðið leitaði vorsins í
hesthúsahverfi Gusts í Kópavogi
í vikunni og tókst að festa það á
filmu. Auðvitað er vorið komið –
þeir sem mættu á Hrafnsmessu í
Ölfushöllinni síðasta vetrardag
geta borið vitni um það – og við
getum farið að hlakka til bjartra
sumardaga. Það er einn slíkur
úti þessa mínútuna …
VOR óskast! Ekki í pörtum, ekki
í (snjó)flygsum – heilt vor, skil-
yrðislaust. Maður þykist hafa
fundið vorið; það fannst í kortér í
Víðidalnum í fyrradag undir
söng lóunnar en týndist aftur. Í
stuttum útreiðartúr í Rauðhól-
ana fær maður öll veður, allt frá
sumarblíðu til beljandi élja. En
maður lætur alltaf platast og tek-
ur fram léttjakkann í stað úlp-
unnar, býður fröken kvefi í heim-
sókn og sýgur upp í nef eins og
öll hin vorin.
Er það nema von að mann
langi stundum til að skilja ullar-
peysuna eftir heima? Það er jú
áttundi dagur sumars og daga-
talið segir að bjartsýni Íslending-
urinn eigi að búast við sumri,
þess í stað þurfum við að fara
fram á eitt stykki vor. Hvers kon-
ar skipulag er þetta eiginlega?
Vorfundur
Morgunblaðið/Ómar
Hulda Gústafsdóttir reiðkennari var stödd í Gusti í Kópavogi að kenna
fámennum hópi kvenna. „Þær eru að bæta við þekkingu sína og læra
alls kyns æfingar til að mýkja menn og hesta,“ sagði Hulda. Kennslan
hefur farið fram úti enda að sögn Huldu alvöru íslensk hraustmenni á
ferð. Frá vinstri: Matthildur Kristjánsdóttir, Hulda, Kristín Njálsdóttir,
Ágústa Halldórsdóttir og Berglind Guðmundsdóttir.