Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 57
DAGBÓK
Ídag kl. 16 verður málstofa í húsi verk-fræðideildar HÍ að Hjarðarhaga 2–6 ístofu 158. Björn Karlsson, bruna-málastjóri og dósent, heldur fyrirlestur
sem hann nefnir: Brunaverkfræði og áhættu-
greining.
„Það er þannig að þróun í byggingariðnaði
hefur verið ákaflega hröð, við erum farin að
byggja flóknar byggingar og stórar, opnar og
undir einu þaki, hins vegar gera brunavarn-
arákvæði byggingareglugerða ráð fyrir öruggari
og meira hólfuðum byggingum,“ segir Björn
Karlsson brunamálastjóri.
„Þess vegna verða verkfræðingar að leysa það
þegar arkitektar koma með hugmyndir að mjög
óvenjulegum byggingum, þeir verða þá að sjá til
þess að öryggið sé samt ásættanlegt.“
Er þetta vandamál hér á Íslandi?
„Já, að sjálfsögðu. Í gamla daga skiptum við
húsum niður í ákveðin brunahólf til þess að
passa að eldurinn bærist ekki út um allt, en
núna erum við farin að byggja óskaplega stór og
opin rými þar sem er líka opið á milli hæða.
Þetta skapar miklu meiri eldhættu en áður var
þegar lokað var alls staðar á milli.
Samtímis hefur orðið ákaflega mikil þróun í
þekkingu á brunaferlinu og verkfræðingar geta
notað tölvulíkön til að herma eftir bæði eldinum
og útbreiðslu hans og rýmingu fólks ef eldur
brýst út.
Miklar framfarir hafa orðið í öllum bruna-
varnarkerfum og slíkri tækni. En það verður að
nota tæknina rétt til að tryggja ásættanlegt ör-
yggi í stórum og flóknum byggingum. Þess
vegna hafa ýmsir háskólar tekið upp kennslu í
brunaverkfræði sem gengur út á tryggja bruna-
varnir.
Við kennum einstaka námskeið í þessu hér við
Háskóla Íslands.
Segja má að þjóðfélagið sé orðið mun við-
kvæmara fyrir skaða en áður hefur verið. Öll
þróun í iðnaði hefur leitt til meiri samþjöppunar,
ógegnsæis, flókinnar tölvustýringar og mun
meiri hraða í öllum ferlum samtímis sem flutn-
ingar hættulegra efna hafa færst af sjó yfir á
land. Stjórnvöld setja og stöðugt meiri kröfur í
lögum og reglugerðum um eignavernd og öryggi
þegnanna og umhverfisins með því að krefjast
þess að atvinnulífið framkvæmi áhættumat og
áhættugreiningar sem varðar bæði ytra um-
hverfi og innri starfsemi fyrirtækja. Það hefur
aftur leitt til þess að verkfræðigreinin Risk
Engineering, eða áhættuverkfræði hefur orðið
til við ýmsa verkfræðiháskóla.“
Dr. Björn Karlsson, sem lengi starfaði við há-
skóla í Svíþjóð, mun gefa stutta lýsingu á báðum
þessum verkfræðigreinum í fyrirlestri sínum.
Fundi stýrir Ragnar Sigbjörnsson prófessor.
Eftir fyrirlesturinn verða fyrirspurnir og um-
ræður.
Fræðslumál | Málstofa verkfræðideildar Háskóla Íslands
Brunaverkfræði og áhættugreining
Björn Karlsson er
byggingarfræðingur að
mennt með doktors-
gráðu í brunavörnum
bygginga. Hann er
brunamálastjóri og á
sæti í stjórn alþjóðlega
brunavísindafélagsins
og formaður mennta-
málanefndar þess.
Hann hefur skrifað
fjölda vísindagreina, á
sæti í ritstjórn þriggja tímarita um brunamál
og er aðalhöfundur kennslubókarinnar;
Enclousure Fire Dynamics. Hann er vara-
formaður Verkfræðingafélags Íslands og for-
maður Lagnafélags Íslands.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hvenær fæ ég blaðið?
ÁGÆTI Velvakandi!
Ég er búinn að vera áskrifandi að
Mbl. í mörg ár og hef haldið tryggð
við blaðið. Fyrir rúmum þremur ár-
um flutti ég út á land, nánar tiltekið
til Reykhóla.
Því miður hefur þjónusta blaðsins
reynst slæm. Sem dæmi þá er 24.
apríl í dag og ég hef ekki enn fengið
páskablað Mbl. sem kom vænt-
anlega út 16. apríl!
Ekki er við umboðsmann Mbl. að
sakast, sem hringir daglega og
skammast án nokkurs árangurs.
Nú mætti halda að Reykhólar
væru afskekktur staður og í órafjar-
lægð frá Reykjavík, en svo er ekki.
Reykhólar eru í 230 km fjarlægð frá
Reykjavík og það tekur innan við
þrjá tíma að keyra þangað.
Hvenær fæ ég páskablað Morg-
unblaðsins? Eru margir áskrifendur
Mbl. sem ekki hafa enn fengið blað-
ið átta dögum eftir útgáfudag? Kom
kannski ekkert páskablað út?
Hvað á þetta eiginlega að þýða?
Ég borga sama áskriftargjald og
lesendur Mbl. á höfuðborgarsvæð-
inu sem fá það inn um lúguna á
hverjum morgni. Ég er ekki að fara
fram á það, en er þetta ekki of langt
gengið?
Með kveðju,
Einar Örn Thorlacius,
sveitarstjóri og
áskrifandi Mbl.
Svar Morgunblaðsins
MORGUNBLAÐIÐ hefur ávallt
lagt sig mjög fram við að koma blöð-
um til áskrifenda þess og sem betur
fer er það sjaldan sem þeir sjá
ástæðu til að kvarta yfir dreifingu á
því.
Á því eru undantekningar og í
Velvakanda í dag kvartar Einar Örn
Thorlacius sem býr á Reykhólum
yfir heimtum blaðsins og hefur fyrir
því fullgildar ástæður.
Okkur er vel kunnugt um vanda-
málin undanfarið við dreifingu
blaðsins á Reykhólum. Ástæða þess
er sú að nýlega breyttist dreifing-
arleiðin þangað og eins og stundum
vill verða eru byrjunarörðugleikar á
nýju fyrirkomulagi. Auk þess er
dreifingarleiðin ekki eins alla daga
vikunnar og hefur það orðið til að
fjölga mistökum við dreifinguna.
Páskablaðið, sem Einar aldrei fékk,
er nú á leið til hans í pósti og við
biðjum hann afsökunar á þessum
misbresti, sem og aðra íbúa á Reyk-
hólum sem hann hefur bitnað á.
Við munum sem fyrr kappkosta
að koma blaðinu til allra áskrifenda
með öruggum hætti hvar sem þeir
búa á landinu.
Finnur Orri Thorlacius,
sölustjóri
áskriftardeildar.
Kisa í óskilum við Melaskóla
LÍTIL gul og hvít kisa, kviður og
bringa hvít og gul á baki, er á þvæl-
ingi við Melaskóla. Upplýsingar gef-
ur Steinunn í síma 893 9416.
80 ÁRA afmæli. Einar Ingimund-arson, Brekkubraut 13, Kefla-
vík, verður 80 ára sunnudaginn 30.
apríl nk. Hann og eiginkona hans,
Árnína H. Sigmundsdóttir, taka á móti
vinum og vandamönnum í Selinu, Vall-
arbraut 4, Njarðvík, á afmælisdaginn
kl. 15.
Brúðkaup | Gefin voru saman 12. janúar sl. í Safnkirkjunni
á Árbæjarsafni af sr. Sigrúnu Óskarsdóttur þau Ingrid Petr-
ine Gule og Helge Brandal. Þau eru búsett í Noregi
Ljósmyndaver Hörpu Hrundar
Hlutavelta | Þær Birta María Elvars-
dóttir og Ólöf Þorsteinsdóttir héldu
tombólu og söfnuðu kr. 1.700 til styrkt-
ar RÍ fyrir börn í Afríku.
Hlutavelta
dagbók@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
80 ÁRA afmæli. Á morgun, 28.apríl, verður áttræð Hansína
G.E. Vilhjálmsdóttir, til heimilis að
Hraunbæ 126, Reykjavík. Af því tilefni
mun hún taka á móti gestum í safn-
aðarheimili Árbæjarkirkju, föstudag-
inn 28. apríl, frá kl. 16. Vinir og vanda-
menn hjartanlega velkomnir til þess að
gleðjst með henni á þessum merku
tímamótum.
Brúðkaup | Gefin voru saman 3. desember sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur þau Karen Ósk
Úlfarsdóttir og Sigurgeir Björn Geirsson.
Ljósmyndaver Hörpu Hrundar
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. g3 e6 7. Bg2 Be7 8.
0–0 Dc7 9. Be3 0–0 10. g4 Rc6 11. g5
Rd7 12. f4 He8 13. Dh5 g6 14. Dh3 Bf8
15. a4 Bg7 16. Had1 Rxd4 17. Hxd4
Rb6 18. e5 d5 19. Bf2 Bd7 20. f5 gxf5
21. Hh4 Rc8 22. Hxh7 Re7 23. Bd4
Dc4 24. Hf4 Rg6
Staðan kom upp á Evrópumeist-
aramóti einstaklinga sem lauk fyrir
skömmu í strandbænum Kusadasi í
Tyrklandi. Franski stórmeistarinn
Laurent Fressinet (2.633) hafði hvítt
gegn króatískum kollega sínum Ognj-
en Cvitan (2.527). 25. Hxg7+! Kxg7
26. Dh6+ Kg8 27. Rxd5!-flétta hvíts
gengur út á að opna a1-h8-skálínuna
fyrir biskupinn en þá er voðinn vís fyr-
ir svarta kónginn. Svartur afræður að
gefa drottningu sína en eigi að síður
tókst hvítum með krókaleiðum að
koma biskupnum sínum á skálínuna.
27. Dxd5 28. Bxd5 Rxf4 29. g6! Rxg6
30. h4! Had8 31. h5 Rf8 32. Bf2! Bc6
33. Bh4 Hxd5 34. Bf6 Hd1+ 35. Kf2
og svartur gafst upp enda er hann
óverjandi mát. Stórkostleg flétta hjá
Frakkanum unga.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Sálfræði.
Norður
♠K7
♥Á76
♦D1062
♣D863
Suður
♠G4
♥KG9852
♦Á
♣K1074
Suður spilar fjögur hjörtu án afskipta
AV af sögnum. Út kemur hjálplegur
spaði - smátt úr borði og það kostar ás-
inn. Austur spilar spaða til baka í öðrum
slag.
Hvernig er best að haga framhaldinu?
Pólverjinn Cezary Balicki sat í suð-
ursætinu í undanúrslitum Vanderbilt-
keppninnar í Dallas. Balicki tók á hjarta-
ás (báðir með), spilaði aftur hjarta og
svínaði gosanum þegar austur fylgdi lit.
Þessi íferð er heldur á móti líkunum mið-
að við hjartalitinn einan og sér. En
Balicki hafði heildarmyndina í huga. Ef
svíningin misheppnast mun vestur finna
sig knúinn til að hreyfa við öðrum láglitn-
um og út frá blindum séð er líklega að
hann velji laufið. En jafnvel þótt vestur
hitti á að spila tígli, er innkoma í borði á
tromp til að spila laufi á tíuna síðar.
Norður
♠K7
♥Á76
♦D1062
♣D863
Vestur Austur
♠D10653 ♠Á982
♥4 ♥D103
♦G9743 ♦K85
♣G2 ♣Á95
Suður
♠G4
♥KG9852
♦Á
♣K1074
Í reynd heppnaðist svíningin og
Balicki fékk yfirslag með því að leggja
niður laufkóng.
Á hinu borðinu fór sagnhafi tvo niður í
sama samningi eftir útspil í tígli.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Í DAG kl. 18 heldur Marie Kristine
Lökke píanóleikari útskrift-
artónleika sína frá tónlistardeild
Listaháskóla Íslands. Tónleikarnir
fara fram í Tónleikasalnum að
Sölvhólsgötu 13 og á efnisskrá eru
verk eftir marga af gömlu meist-
urunum.
„Ég vil spila með fólki og því
valdi ég þessa efnisskrá, ég spila
Sjostakovítsj fyrir tvö píanó með
Laufeyju Haraldsdóttur og svo er
ég með tvær fiðlur, lágfiðlu og selló
með mér í píanó-
kvintett eftir
Schumann, ég
spila síðan verk
eftir Beethoven
og Debussy ein,“
segir Marie.
„Það er nokkuð
óvenjulegt að ég
skuli spila helm-
inginn af út-
skriftartón-
leikum mínum með öðrum en þetta
er það sem ég vil gera í framtíðinni,
ég er ekki mikið fyrir að spila ein-
leik.“
Marie hefur verið að spila á píanó
síðan hún var sjö ára og hefur m.a.
unnið fyrstu verðlaun í Hæfi-
leikakeppni ungra klassískra tón-
listarnema á Norður-Jótlandi árið
2002.
Marie hefur mastersnám í píanó-
leik við tónlistarskóla í Árósum í
Danmörku næsta haust, en hún er
fædd og uppalin þar. „Ég kom fyrst
til Íslands sem skiptinemi við
Listaháskólann en kunni svo virki-
lega vel við skólann að ég ákvað að
klára námið hér.“
Útskriftartónleikar LHÍ | Marie Kristine Lökke
Marie Kristine
Lökke
Vill spila með fólki