Morgunblaðið - 07.06.2006, Page 20
Þ
ó við Íslendingar getum státað af
heilsulindum á borð við Bláa lónið
og Heilsustofnun Náttúrulækn-
ingafélagsins í Hveragerði eigum
við ennþá fjölmarga ónýtta mögu-
leika á markaðssetningu á heilsutengdri ferða-
þjónustu. Og þó að rannsóknir bendi til að sól
og hiti séu mikilvægustu þættirnir samfara
uppbyggingu heilsulinda búa Íslendingar við
sérstöðu, sem laðað getur að. Hún felst m.a. í
heita jarðvarmavatninu okkar, jöklunum, nátt-
úrufegurðinni og norðurljósunum. Þetta má allt
virkja við uppbyggingu heilsulinda," segir
Stella Sigfúsdóttir, sem nýlega var skipuð í nýtt
embætti alþjóðafulltrúa bandaríska Spa-
sambandsins, DSA. Um eitt þúsund heilsulindir
víða um heim auk birgja eiga aðild að þessu
elsta starfandi spa-sambandi heims sem þó er
ekki nema fimmtán ára gamalt
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem skipaður
er sérstakur talsmaður innan heilsulind-
arsambandsins en hún hefur setið í stjórn DSA
undanfarin sex ár . Þá hefur hún að beiðni
Hannelore R. Leavy, stofnanda samtakanna,
tekið að sér að ritstýra bókinni „Day Spa Bus-
iness Bible“ sem mun innihalda greinar helstu
sérfræðinga á sviði heilsulinda og heilsutengdr-
ar ferðaþjónustu.
Þurfti sjálf að leita hjálpar
„Það má rekja ástríðu mína á heilsulindum
allt aftur til ársins 1982 þegar ég sjálf þurfti að
leita hjálpar heilsulindar á Kanaríeyjum vegna
psoriasis-sjúkdóms míns. Ég gerðist síðar far-
arstjóri á vegum Tryggingastofnunar ríkisins
með húð- og gigtarsjúklinga til Kanaríeyja, en
þar áður hafði ég starfað sem lífeindafræðingur
á rannsóknastofum sem ég þoldi illa, sjúkdóms-
ins vegna. Ég dreif mig í viðskiptafræðinám við
HÍ og ákvað að gera kandídatsritgerð um ár-
angur af böðun í Bláa lóninu. Ég mætti mikilli
mótstöðu og enginn skildi í þá daga
hvað vakti fyrir mér með því að gera
rannsókn á einhverjum „drullupolli“
við Grindavík, en sem betur fer naut
ég aðstoðar framsýns prófessors, dr.
Brynjólfs Sigurðssonar. Rannsókn
þessi var sú fyrsta sem gerð var á
áhrifamætti Bláa lónsins og náði hún
til 400 íslenskra sjúklinga.“
Heilsulind við jökuljaðar
Að loknu viðskiptafræðinámi frá
HÍ á markaðssviði hélt Stella til
framhaldsnáms í Bandaríkjunum
þar sem hún fór í tvöfalt meist-
aranám, annars vegar í alþjóðaviðskiptum og
hins vegar í hótel- og ferðaþjónustu með rekst-
ur heilsulinda sem sérsvið. Stella hefur meira
og minna verið búsett í Bandaríkj-
unum frá árinu 1995, en á heimili
beggja vegna hafsins þannig að auð-
velt er að fara á milli.
Hún vinnur um þessar mundir að
forrannsókn á fýsileika þess að
stofna heilsulind við Vatnajökul sem
hún persónulega er ekki í vafa um að
yrði mikið aðdráttarafl verði hug-
myndin að veruleika. Hún fékk til
verkefnisins frumkvöðlastuðning frá
Impru og stefnir að því að kynna nið-
urstöður sínar fyrir heimamönnum
og forsvarsmönnum atvinnulífsins
næsta haust. „Allt frá því að ég kom
fyrst til Hafnar í Hornafirði í ársbyrjun 2005
hef ég verið að reyna að sannfæra menn um
ágæti hugmyndarinnar. Viðhorfin eru smátt og
smátt að mjakast í rétta átt svo ég held að það
sé tímaspursmál hvenær heilsulind rísi við jök-
uljaðarinn sunnan jökuls. Nokkrir staðir koma
til greina, allt frá Höfn að Hala þar sem Þór-
bergssetur er að rísa. Það er verið að bora fyrir
heitu vatni á svæðinu sem er mjög mikilvægt
samfara slíkri uppbyggingu þar sem orðið
„spa“ þýðir í reynd heilnæmt vatn eða heilsu-
lind. Heita jarðvarmavatnið okkar er því bráð-
nauðsynlegt í allri markaðssetningu íslenskra
heilsulinda. Ákveðnir grunnþættir þurfa að
vera fyrir hendi til að starfsemi geti kallast
heilsulind, eins og helstu nudd- og vatns-
meðferðir og námskeið um heilbrigðan lífsstíl,
og víst er að nánasta umhverfi svæðisins spillir
ekki fyrir. Þarna er t.d. hægt að fara í snjó-
sleðaferðir, hreindýraskoðun, selaskoðun og
strandgöngur. Á svæðinu eru líka mjög spenn-
andi tímar um þessar mundir því eftir að
stækkaður Skaftafellsþjóðgarður verður orðinn
að Vatnajökulsþjóðgarði eigum við orðið
stærsta jökulinn í stærsta þjóðgarði í Evrópu.“
Sýrumeðferðir og lýtaaðgerðir
Að sögn Stellu geta allir þeir sem reka
heilsulindir sótt um aðild að DSA. „Spa-
iðnaðurinn hefur á undanförnum árum vaxið
mjög hratt og nýir aðilar bæst í hópinn, m.a.
læknar og hjúkrunarfólk, sem vinna við húðs-
lípun, fylliefnainnspýtingar, sýrumeðferðir
lýtaaðgerðir og skurðaðgerðir. Þetta hefur
valdið deilum því
alls ekki allir eru ásáttir um að lækn-
isfræðilegar meðferðir af þessum toga eigi
heima undir formerkjum heilsugeirans. Á hinn
bóginn benda aðrir á að sambandið verði að
þróast í takt við tíðarandann. Markaðurinn kalli
í auknum mæli á læknisfræðilegar lýtaaðgerð-
ir.“
Morgunblaðið/RAX
Íslendingar eiga marga ónýtta möguleika í heilsulindariðnaðinum, að mati Stellu.
Stella Sigfúsdóttir.
Stella Sigfúsdóttir segir Íslendinga eiga ónýtt tækifæri þegar
heilsulindir eru annarsvegar og bendir á aðdráttarafl íslensku jökl-
anna, jarðvarmann, náttúrufegurðina og norðurljósin en hún vinnur
nú að forrannsókn á fýsileika þess að stofna heilsulind í ríki Vatna-
jökuls. Jóhanna Ingvarsdóttir komst líka að því að Stella er að rit-
stýra viðamikilli uppflettibók fyrir þá sem reka heilsulindir víðs-
vegar um heim.
Þórir Gunnarsson tekur ámóti blaðamanni með brosá vör og biður hann í öllumbænum að kalla sig Dóa því
Þórir sé bara sparinafn. Inni á heim-
ili Dóa má sjá listaverk um alla veggi
og augljóst er að þar býr maður með
auga fyrir fögrum hlutum. Talið
berst strax að myndinni sem hann
sendi Carol van Voorst, sendiherra
Bandaríkjanna á Íslandi. „Ég
hringdi í sendiráðið og spurði hvort
ég mætti senda myndina og það var
meira en sjálfsagt,“ segir Dói. Það
var enginn sérstakur aðdragandi að
myndinni af sendiherranum. „Ég var
að skoða blað þar sem var mynd af
henni og þá bara fór þetta svona.
Mér fannst ég þurfa að senda mynd-
ina og sýna henni smávinsemd, hún
kom hingað alveg ný og fólk verður
að finna fyrir smáhlýju frá öðrum.“
Ásamt myndinni sendi Dói fallegt
kort þar sem hann bauð hana vel-
komna til landsins og bað Guð að
blessa hana og varðveita. Stuttu síð-
ar fékk hann bréf frá sendiráðinu inn
um lúguna þar sem Ms. Carol van
Voorst þakkaði honum persónulega
fyrir þessa skemmtilegu sendingu.
Dói vill sem minnst gera úr teikni-
hæfileikum sínum en segir einn son
sinn mjög hæfileikaríkan enda sé
hann myndlistarskólagenginn og
virkilega góður listamaður ef dæma
má af verkunum eftir hann sem
hanga á heimili föðurins. „Annars hef
ég alltaf teiknað svolítið, það er eitt-
hvað sem rekur mig til þess. Í kring-
um 1960 tók ég námskeið í myndlist
til að læra aðeins og er að rissa enn í
dag,“ segir Dói og það má sjá í eld-
húsinu þar sem hann hefur raðað upp
nokkrum myndum.
Í símaskránni titlar Dói sig ketil-
og plötusmið en árið 1947 fór hann út
til Svíþjóðar til að læra suðu. Hann
vann síðan sem suðumaður í fimmtíu
ár hjá Kaupfélagi Árnesinga. „Ég er
enn að og var að enda við að smíða
úti í skúr um 150 stykki af suðulöm-
um fyrir verslun hér í bæ. Ég má nú
þakka fyrir hvað ég er ennþá spræk-
ur, 85 ára gamall, en ég þarf aðeins
að reka mig af stað til að smíða
núna,“ segir Dói og nær í eina suðu-
löm til að sýna blaðamanni og er þar
augljóslega snilldarsmíð á ferð.
Dói er ekkjumaður, hann og kona
hans Ólöf Jónsdóttir eignuðust fimm
syni saman en fyrir átti hann einn
son. „Ég fer lítið út nú orðið, rölti
samt stundum um götur Selfoss og
sýsla úti í bílskúr,“ segir Dói að lok-
um og leiðir blaðamann í skoð-
unarferð um heimilið til að sýna hon-
um öll listaverkin sem hanga þar
eftir hann sjálfan, afkomendur og
vini.
ÁHUGAMÁL | Þórir Gunnarsson teiknaði andlitsmynd af bandaríska sendiherranum á Íslandi
Teiknar og sýð-
ur á níræðisaldri
Þórir Gunnarsson er 85 ára herramaður sem býr á
Selfossi. Nýlega teiknaði hann andlitsmynd af sendi-
herra Bandaríkjanna á Íslandi og gaf honum. Ingv-
eldur Geirsdóttir heimsótti þennan liðtæka teiknara.
Morgunblaðið/Ingveldur
Þórir Gunnarsson stendur við málverk eftir sjálfan sig af Þingvöllum.
ingveldur@mbl.is
júní
Daglegtlíf
join@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Heilsulind við Vatnajökul ?
HEILSA | Stella Sigfúsdóttir er alþjóðafulltrúi bandaríska heilsulindarsambandsins