Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Suðurlandsbraut 22
Glerárgötu 24-26
Sími 540 1500
Fax 540 1505
www.lysing.is
Er þak á
þinni starfsemi?
Allir flurfa flak yfir höfu›i› -
líka flitt fyrirtæki!
"Hefur flú kynnt flér kosti eignaleigu vi›
fjármögnun atvinnuhúsnæ›is?
Me› sérsni›inni rá›gjöf í bland vi›
persónulega fljónustu, höfum vi› hjá
L‡singu hjálpa› fyrirtækjum af öllum
stær›um og ger›um a› koma flaki yfir
sína starfsemi."
Sigurbjörg Leifsdóttir
Rá›gjafi, fyrirtækjasvi›
TVEIR hundar hittust við Ægisíðu
þar sem þeir voru að spóka sig með
eigendum sínum.
Eins og hunda er siður vildu þeir
gera hlé á göngunni til að kynnast
aðeins betur, og hafa eflaust hist
oft áður á þessum slóðum eða í það
minnsta skipst á skilaboðum á
runnunum og ljósastaurunum sem
standa meðfram stígnum.
Eitthvað hefur þeirri smáu þó
ekki litist nógu vel á þann stóra, ef
marka má eyrnasvipinn og augna-
ráðið sem hún sendir honum. Ætli
hún kannist ekki við kauða og hafi
kannski minnst stöku Vatnsenda-
Rósu:
Man ég okkar fyrri fund
forn þó ástin réni;
nú er eins og hundur hund
hitti á tófugreni.Morgunblaðið/Sverrir
Man ég
okkar
fyrri fund
FARÞEGUM hjá Strætó bs. fækk-
aði um 1,4% milli ára fyrstu sex
mánuðina í ár ef miðað er við sama
tímabil í fyrra.
Farþegafjöldi það sem af er
árinu er tæpar 3,9 milljónir en var
rúmar 3,9 milljónir á sama tíma í
fyrra. Alls munar rúmlega 50 þús-
und farþegum en áætlanir fyrir-
tækisins hafa gert ráð fyrir því að
farþegum fjölgi og átti nýtt leið-
arkerfi sem tekið var upp í fyrra að
vera hluti af því. Fyrirtækið setti
sér það markmið í fyrra að auka
hlutdeild strætós í ferðum á höf-
uðborgarsvæðinu úr 4% í 6% á
fimm árum.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
í gær hefur stjórn Strætós bs.
kynnt aðgerðir til að lækka rekstr-
arkostnað hjá fyrirtækinu um 360
milljónir. Í því felst að stofnbraut 5
verður lögð niður sem og ferðir á
tíu mínútna fresti á stofnleiðum.
Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætós bs., segir að þrátt
fyrir þessar aðgerðir haldi fyrir-
tækið við markmið sín um að auka
hlut almenningssamgangna. Ljóst
sé að það muni taka langan tíma og
að flestir kjósi einkabílinn frekar í
dag.
Heildarkostnaður við rekstur
Strætós bs. nemur um 2,3 millj-
örðum á ári en tekjur vegna far-
gjalda eru um 800 milljónir króna.
Framlag sveitarfélaganna sem
eiga byggðasamlagið Strætó er því
um 1.500 milljónir króna.
Eigið fé fyrirtækisins var nei-
kvætt um 18 milljónir um síðustu
áramót vegna tapreksturs á síðasta
ári. Stofnfé fyrirtækisins var 100
milljónir árið 2001 og fór hæst í 180
milljónir 2004.
Segir ákvörðunina skammsýna
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn,
segir að Sjálfstæðisflokkurinn sýni
skammsýni og furðulegt metnaðar-
leysi í málefnum almenningssam-
gangna með þessari breytingu.
Með því að leggja niður 10 mín-
útna leiðir segir hann að vegið sé
gegn þeirri meginhugsun í nýja
leiðarkerfinu að hægt sé að ganga
að því sem vísu að vagn komi innan
tíðar á öllum helstu leiðum Stræ-
tós.
Farþegum hjá Strætó bs.
fækkaði um 1,4% milli ára
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
! """!
# #
! #!
!$%%$
!#"
" #
&! $
"#
#!&
# &"
& &&
&&#"
!&$%$
!!# %%
""%
"!"
&## $
&!
!!$
%""&
'(
()
*
%# &%%
ÞRÍR menn voru látnir gista
fangageymslur lögreglunnar í
Reykjavík vegna líkamsárás-
armáls í bænum í fyrrinótt og
þurfti fórnarlambið að fara á
slysadeild, hugsanlega handleggs-
brotið. Talsverður erill var hjá
lögreglu vegna ölvunar í bænum
og voru átta ökumenn teknir fyr-
ir ölvun við akstur.
Þrír inni
vegna árásar
LÖGREGLUNNI á Selfossi barst út-
kall vegna manns sem lent hafði í ós-
um Ölfusárinnar í gærmorgun. Fóru
björgunarsveitir á Eyrarbakka og
Þorlákshöfn á vettvang en þegar
lögreglan kom á staðinn var þar um
að ræða fólk sem hafði verið á sæ-
þotum og hafði önnur sæþotan orðið
vélarvana. Hafði sá sem var á vél-
arvana sæþotunni þá verið ferjaður í
land og að sögn lögreglu á Selfossi
fór betur en á horfðist en talið var að
maðurinn hefði verið í mikilli hættu.
Hann var orðinn nokkuð blautur og
kaldur en að öðru leyti í góðu
ástandi og fór hann heim til sín.
Varð vélarvana
á sæþotu við
Ölfusárósa
Ljósmynd/Guðmundur Karl
BILUN kom upp í hjólabúnaði vélar
Iceland Express eftir flugtak frá
Keflavík til Friedrichshafen í
morgun. Samkvæmt upplýsingum
félagsins fóru hjólin upp með eðli-
legum hætti en lok búnaðarins féll
ekki að og því var ákveðið að lenda
vélinni að nýju og gera við bún-
aðinn.
Að reynsluflugi loknu gengu far-
þegar um borð á ný og hélt vélin
síðan áleiðis til Friedrichshafen.
Vél Iceland
Express snúið við
vegna bilunar
UMHVERFISRÁÐ Reykjavíkur
hefur samþykkt að hefja skuli und-
irbúning að gerð mislægra gatna-
móta á mótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar. Tillaga þess
efnis var samþykkt á fundi ráðsins
með öllum atkvæðum meirihlutans
sl. miðvikudag. Fulltrúar Samfylk-
ingar og Vinstri grænna óskuðu eft-
ir því að málinu yrði frestað. Í bókun
þeirra á fundinum kemur fram að
ekki hafi verið tekin afstaða til til-
lögu Samfylkingar í borgarráði um
samráðshóp um hugsanlegar breyt-
ingar á þessum gatnamótum sem
stuðlað geta m.a. að betra umferð-
arflæði. Segir að málið sé illa und-
irbúið og stefnumótandi umræða
hafi ekki farið fram innan umhverf-
isráðs. „Formaður ákveður að und-
irbúa málið stórkallalega og með
gassagangi þrátt fyrir opinbera yf-
irlýsingu um annað,“ segir í bókun
S-, og V-lista.
Fulltrúar meirihlutans bókuðu að
á síðasta fundi umhverfisráðs hefði
verið gerð grein fyrir stefnu flokk-
anna um að kraftur yrði settur í
undirbúning byggingar mislægu
gatnamótanna. Á þeim fundi hafi
farið fram ítarleg kynning á hug-
myndum sem skoðaðar hafi verið við
útfærslu gatnamótanna og ljóst að
allt aðrar tillögur sé um að ræða en
kynntar voru á fyrstu stigum máls-
ins. Málsmeðferðin sé því að öllu
leyti eðlileg, segir í bókun D- og B-
lista.
Í bókun fulltrúa F-lista vegna
málsins segir að við alla hönnun
verði leitast við að mannvirki verði
sem mest neðanjarðar og haft verið
víðtækt samráð við íbúa og aðra
hagsmunaaðila strax frá byrjun.
Gagnrýni ekki á rökum reist
„Andstaðan við mislæg gatnamót
á mótum Miklubrautar og Hring-
brautar er einkennileg, ég get ekki
ímyndað mér að fólki þyki þetta
mannvirki sem er þarna núna slík
náttúruperla að það megi ekki
hreyfa við því. Ég er búinn að ræða
við vegamálastjóra og umferðar-
tæknifræðinga borgarinnar og það
er einróma álit manna að þarna
verði að koma mislæg lausn. Við ætl-
um einfaldlega að taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið árið 2004 þeg-
ar það var komin tillaga að mats-
áætlun sem gerði ráð fyrir því að
bæði Miklabrautin og Kringlumýr-
arbrautin færu í stokk undir þessi
gatnamót og efst yrði einfaldlega
grasi lagt hringtorg fyrir þá sem
ætla að beygja af annarri götunni yf-
ir á hina. Svona lausn myndi fækka
slysum um 80–90% og anna allri um-
ferð miklu betur. Gatnamótin kosta
ekki mikið þegar horft er til þess
tjóns sem verður á líkama og eign-
um.í árekstrum á gatnamótunum.“
Mislæg gatnamót
undirbúin