Morgunblaðið - 16.07.2006, Síða 15
alsiða er hjá stærri þjóðum. „Ég
held að þetta sé ekki vandamál
hérna, að minnsta kosti ekki enn
sem komið er,“ svarar hann. „En
lögreglan fylgist auðvitað grannt
með þróun samfélagsins og mun
bregðast við, ef og þegar ástæða er
til. Valnefnd Lögregluskólans hef-
ur tekist afskaplega vel að velja
úrvalsfólk inn í skólann og ég er
bjartsýnn á að við höldum áfram
að fá afbragðs lögreglumenn til
starfa.“
Innri samanburður nauðsyn
Stefán fær nú tæpa 6 mánuði til
að koma embætti lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á fót. „Ég
miða auðvitað við að allt gangi
snurðulaust frá fyrsta degi, frá
næstu áramótum. En hins vegar er
raunhæft að við þurfum einhvern
tíma til að sníða af vankanta. Sá
tími verður hins vegar að vera
skammur, því lögreglan verður að
sinna hlutverki sínu af festu og ör-
yggi.“
Samkvæmt lögum um nýskipan
lögreglumála eiga starfsmenn nú-
verandi lögregluumdæma forgang
til starfa hjá nýjum lögregluemb-
ættum. „Ég held að ganga megi út
frá að flestir starfandi lögreglu-
menn haldi störfum sínum áfram.
Svo sjáum við til hvað verður þeg-
ar fram í sækir og við eigum eftir
að ákveða hvernig menn skipta
með sér verkum innan þessa nýja,
stóra umdæmis.“
Kostir við sameiningu lögreglu-
embættanna á höfuðborgarsvæðinu
hafa verið taldir, en sér Stefán ein-
hverja galla?
Hann segir að vissulega hafi ver-
ið bent á að stærð lögregluembætt-
isins á höfuðborgarsvæðinu gæti á
vissan hátt orðið því fjötur um fót.
„Þar vísa menn til þess, að þetta
umdæmi verður svo miklu stærra
en önnur lögregluumdæmi á land-
inu, að erfitt verður að ná sam-
anburði milli embættanna. Slíkur
samanburður er öllum hollur, svo
hægt sé að meta hvernig lögreglan
stendur sig. Við gerum okkur fylli-
lega grein fyrir þessari hættu og
ætlum að mæta henni með því að
fá innri samanburð, þ.e. saman-
burð á milli einstakra svæða innan
lögregluumdæmisins.
Annar vandi við sameiningu er
tilfærsla starfsmanna, sem óhjá-
kvæmilega mun fylgja breytingun-
um að einhverju marki. Ég hef
hins vegar ekki þungar áhyggjur
af þessu, enda höfum við ágæta
reynslu af slíku, t.d. við stofnun
embættis Ríkislögreglustjóra á sín-
um tíma. Ég vil líka ítreka að eng-
inn starfsmaður á að glata neinum
réttindum við þessar breytingar.
Lögreglumenn hafa verið ákaflega
jákvæðir hingað til, enda eru þess-
ar breytingar sprottnar af faglegri
umræðu í þeirra hópi, eins og ég
nefndi áður.“
Nýr lögreglustjóri höfuðborgar-
svæðisins hefur vart séð þetta
starf fyrir þegar hann fékk sum-
arstarf hjá dómsmálaráðuneytinu
árið 1994, þá laganemi við Háskóla
Íslands. Hann hafði þá mestan
áhuga á fjölskyldurétti og lokarit-
gerð hans fjallaði um friðhelgi
einkalífs og fjölskyldulífs. Síðustu
ár hafa störf hans hins vegar fyrst
og fremst snúist um lögreglumál,
eða frá því að hann var skipaður
skrifstofustjóri löggæslu- og dóms-
málaskrifstofu ráðuneytisins árið
2002.
Fjölskyldulíf er snar þáttur í lífi
hans, þótt hann fáist ekki daglega
við fjölskyldurétt. Hann er kvænt-
ur Helgu Snæbjörnsdóttur kenn-
ara og saman eiga þau synina Þor-
stein, sem er 7 vikna, og Snæbjörn,
7 ára. Stefán á þar að auki synina
Birki Helga, 14 ára, og Hlyn Dav-
íð, 17 ára. Sjöan virðist fylgja nýja
lögreglustjóranum, bæði þegar lit-
ið er til aldurs sonanna og þess að
hann var skipaður í embætti 7/7.
Og þann sama dag voru liðin rétt
17 ár frá því að hann sat áhyggju-
fullur yfir elsta syninum á sjúkra-
húsi í London, þar sem gera þurfti
hjartaaðgerð á honum, þá aðeins
sjö vikna. Núna er sonurinn hins
vegar hinn brattasti.
Áhugamál Stefáns, fyrir utan
vinnuna, eru einna helst íþróttir.
Hann starfaði í nokkur ár sem
blaðamaður á Morgunblaðinu og
lengst af á íþróttadeildinni. „Ég
fylgist með íþróttum og fer stund-
um í fótbolta með félögunum, þar á
meðal lögreglumönnum. Annars
hef ég gaman af golfi og myndi lík-
lega stunda það meira, ef ég hefði
meiri tíma og hjónabandið væri
verra!“
Það er líklega ekki vert að óska
þess að Stefán Eiríksson stundi
golfið af meira kappi en hann gerir
nú. Næstu mánuði er alla vega
ljóst að hann mun hafa nóg að gera
við að skipuleggja umdæmi lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
meira öryggi
rsv@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 15
104731
www.flugger.is
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Egilsholt 1
Hugsaðu um tréverkið