Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 19
spyrnu. Þá kom í ljós að einungis
fjórða hver kona í Þýskalandi sýndi
boltanum áhuga.
Könnun sem var gerð í lok heims-
meistarakeppninnar leiddi aftur á
móti í ljós að nú hafa 70 prósent
þýskra kvenna áhuga fyrir fótbolta!
Og það sem meira er: þessi áhugi
virðist ekki bundinn við ákveðna
þjóðfélagshópa, þvert á móti: jafn-
ólíkar konur og fyrirsætan Claudia
Schiffer og kvenréttindafrömuður-
inn Alice Schwarzer lýstu því yfir að
þær væru gagnteknar af hrifningu á
vasklegri framgöngu „sinna manna“
í heimsmeistarakeppninni.
Þetta hefur ýmsum spökum
mönnum þótt sæta miklum tíðind-
um. Einmitt þegar umræðan um
hlutverkaskiptingu kynjanna, barn-
leysi Þjóðverja og sjálfstæði þýskra
kvenna er í nýju hámarki, heillast
konurnar af leik sem í raun ein-
kennist af mjög karllægum dyggð-
um á borð við liðsanda, drengskap
og hæfni til að taka ósigrum sínum
með æðruleysi.
Sálarlífið og samskiptin
Þegar á allt er litið má segja að
heimsmeistarakeppnin hafi ekki að-
eins náð að þjappa þýsku þjóðinni
saman, heldur virðist hún líka hafa
fært kynin tvö nær hvort öðru. Það
verður að teljast býsna drjúgur ár-
angur af einu knattspyrnumóti!
Hvað sem líður áhrifum þessara
fjögurra vikna sem heimsmeistara-
mótið stóð á sálarlíf og samskipti
þýskra karla og kvenna, þá virðast
draumar manna um að keppnin og
velgengni þýska landsliðsins yrði
innspýting fyrir efnahagslífið í land-
inu, ekki hafa ræst. Að vísu má ekki
vanmeta þá staðreynd að þær fjórar
vikur sem keppnin stóð sköpuðust
liðlega 50.000 tímabundin störf í
landinu. Þá má líka telja víst að þeir
sem voru svo glúrnir að fara út í
framleiðslu og sölu á þýskum fánum
og öðrum þjóðlegum táknum hafa
tvímælalaust náð að maka krókinn
hressilega, enda seldist alls kyns
glingur í þýsku fánalitunum eins og
heitar lummur allt frá Eystrasalti til
Alpanna.
Þegar horft er á varanleg áhrif
þess andrúmslofts sem skapaðist í
Þýskalandi vikurnar sem heims-
meistarakeppnin stóð yfir hlýtur sú
spurning að vakna, hvort tímabund-
ið vinfengi ólíkra þjóða í þessari „al-
heimsveislu“ eigi eftir að bæta sam-
búð þeirra þjóða og þjóðarbrota
sem lifa saman í Þýskalandi sjálfu.
Þó að það muni tæpast koma í
ljós fyrr en tímanum vindur fram þá
er eftirtektarvert að um leið og
heimsmeistaramótinu í knattspyrnu
lauk, boðaði ríkisstjórnin til ráð-
stefnu um aðlögunarvandamál út-
lendinga í Þýskalandi. Þar var eink-
um fjallað um þann vanda sem
fylgir því þegar útlendingar öðlast
þýskan ríkisborgararétt.
Nú stendur sem sagt til að setja
strangari skilyrði fyrir því en áður
að fólk af erlendu bergi brotið geti
orðið „Þjóðverjar“. Meðal þess sem
stjórnvöld vilja gera er að skylda
alla þá sem sækjast eftir þýsku
vegabréfi til að sækja þýskunám-
skeið eða sýna með öðrum hætti
fram á fullnægjandi leikni í málinu.
Þetta hefur vakið nokkrar deilur,
enda eru menn ekki á eitt sáttir um
það að kunnátta í þýskri málfræði
eigi að vera höfuðmálið þegar kem-
ur að því að veita erlendu fólki
þýskan ríkisborgararétt.
Hrífandi eggjunarorð
Hvað sem þeirri umræðu líður er
skondin tilviljun að hún skuli ein-
mitt fara í fullan gang rétt í þann
mund sem sameiginlegum gleðskap
þýskra og erlendra fótboltaunnenda
er að ljúka á torgum og strætum í
öllum stærstu borgum landsins.
Sálfræðingar og aðrir sem láta
sig málið varða hafa hvatt landa
sína til þess að reyna eftir megni að
halda í þá stemmningu sem skap-
aðist í tengslum við heimsmeistara-
mótið.
Í því sambandi hefur fólk verið
hvatt til að halda áfram að hampa
fánanum sínum og syngja þýska
þjóðsönginn í garðveislum. Síðast
en ekki síst hafa menn verið hvattir
til að halda áfram að sýna erlendum
gestum sem verða á vegi þeirra í
Þýskalandi áhuga og vinsemd.
Það er erfitt að segja fyrir um,
hvort eggjunarorð af þessu tagi eigi
eftir að hrífa. Tíminn einn mun leiða
í ljós hvort það sérstæða andrúms-
loft sem skapaðist í Þýskalandi vik-
urnar sem heimsmeistarakeppnin
stóð yfir, á eftir að hafa umtalsverð
og varanleg áhrif á þýskt þjóðlíf.
Reuters
Stemmningin þær fjóru vikur sem heimsmeistaramótið í knattspyrnu stóð yfir
var mikil og flykktust Þjóðverjar í hópum um götur og torg, veifuðu þýska þjóð-
fánanum og sungu þýska þjóðsönginn af mikilli innlifun.
Reuters
Eftir heimsmeistarakeppninna kom í ljós að 70% þýskra kvenna hafði áhuga á
fótbolta og áhuginn virðist ekki bundinn við ákveðna þjóðfélagshópa,
una miklu
Höfundur fæst við ritstörf og al-
mannatengsl í Þýskalandi.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 19
væri eitthvað jarðbundnara?
„Tónlist okkar í Stilluppsteypu kem-
ur úr tveim hugmyndaheimum, þar
sem verið er að setja saman hljóð. En
þetta sem ég geri einn er miklu per-
sónulegra.“
Til dæmis sé tónlistin, sem hann
geri einn, meira hluti af persónulegri
heild og hluti af meðfylgjandi gjörn-
ingum, a.m.k. „The Important Little
Man Show“.
Hugsaður sem hluti af innsetningu
Sigtryggur rekur svo upphaf „litla
mannsins“ til geisladisksins Ship frá
árinu 2000, en segir hann þó upp-
haflega hafa verið hugsaðan sem
hluta af innsetningu, en hafi svo orðið
leið hans til að komast í rólegri heim.
Heim í fullkominni andstöðu við líf
hans á þeim tímapunkti. Verk þetta
settur hann svo í samhengi við líf sitt
og „það sem er lokapunktur á diskn-
um er upphafið að hinum persónulega
Litla mikilvæga manni,“ segir Sig-
tryggur.
Í einu myndbandsverkinu og í gjörn-
ingum litla mannsins virðist þú á ystu
nöf; hristist og skelfur uns eitthvað
virðist láta undan, en samt ekki.
Segðu aðeins frá því.
„Verkið átti að vera sýnishorn af því
sem er að gerast inni í mér, ekki mynd-
bandsverk eða gjörningur til þess að
hneyksla. Ég veit þó ekki hvort ég
myndi sýna myndbandsverkið eitt og
sér, veit ekki hvort það gæti staðið
þannig. Fólk þarf að geta farið í gegn-
um myndirnar og allt það til að ná smá
sögu. Verkið eitt og sér myndi kannski
bara sýna einhvern að flippa út. Eitt-
hvað sem oft hefur sést áður.“
En hvað um Stilluppsteypu og verk-
efnið Evil Madness sem ég hef mikið
heyrt af?
„Það kemur út geisladiskur í júlí,
það er að segja annar samvinnugeis-
ladiskur Stilluppsteypu og sænska
hljóðlistamannsins B.J. Nilsen.“
Drykkjuvísur og
hryllingsmyndafílingur
Diskur þessi mun svo bera nafnið
Drykkjuvísur óhljóðanna og er beint
framhald af disknum Víkinga brenni-
vín, sem einnig var gerður í samvinnu
við B.J. Nilsen. Fyrir skömmu tóku svo
Sigtryggur og B.J. Nielsen upp efni á
geisladisk, ásamt Hildi Guðnadóttur,
sem mun nefnast Second Childhood.
Hvað Evil Madness varðar segir Sig-
tryggur hugmyndina frá sér komna; að
hann hafi langað til þess að gera óð til
gamalla b-hryllingsmynda og sci-fi
mynda, enda mikið undir áhrifum kvik-
mynda og kvikmyndatónlistar. Hug-
myndin sé að búa til eins konar hryll-
ingsmyndafíling; fanga stemmninguna
í þessum myndum „eða að gera hið
hljóðræna sjónrænt, eins skrýtið og
það hljómar“.
Hverjir standa svo einnig að verk-
efninu?
„Stilluppsteypa, B.J. Nilsen, Dj Mu-
sician, Jóhann Jóhannsson úr Appa-
rat orgelkvartett, Curver og Jóhann
Eiríksson.“
Svona til að loka hringnum, hvað
getur þú sagt almennt um Sonambi-
ente og komu þína að hátíðinni?
„Prófessorinn minn frá Fachhochsc-
hule Hannover, Ulrich Eller, sem er
einn virtasti hljóðlistamaðurinn í
Þýskalandi var fenginn til þess að velja
fyrir Laboratorium-hlutann og valdi
tuttugu af nemendum sínum. Hvað
heildarþema hátíðarinnar varðar er í
raun ekki hægt að segja neitt, nema
þá í mjög löngu máli. Við verðum að
láta yfirskriftina, hljóð og sjón duga.
Það er auðvitað talsvert vítt og segir í
raun ekki margt.“
Þess má svo geta að Sigtryggur
opnaði 24. júní sýninguna „The Curse
of Sigtryggur Berg Sigmarsson“ í Gall-
erí Dvergi Grundarstíg 21. Sú sýning
var eins konar minni útgáfa af sýningu
hans í Berlín. Lauk henni 8. júlí, en að
auki var hann með verk, innblásið af
heimsmeistarakeppninni í fótbolta, í
Hannover 2. júlí.
Úr myndbandsverkinu Kill Time, sem Sigtryggur Berg gerði í samvinnu við
þýskan kvikmyndagerðarmann.
TENGLAR
..............................................
http://www.sonambiente.net.
http://www.helenscarsdale.com/siggi
http://www.hula-offline.de/
h5stream3.html (hér má sjá Kill Time)
olafurgudsteinn@gmail.com
Höfundur er bókmenntafræðingur
að mennt og búsettur í Berlín.
Eigum eftir tvo Dodge Durango Limited
‘06 á frábæru verði
Nýtið ykkur þetta tækifæri að eignast
rúmgóðan og traustan 8 manna jeppa
fyrir sumarið.
Eigum til afhendingar strax 2006
OVERLAND
Jeep Grand Cherokee Overland,
breytt útlit innan sem utan.
Eigum til afhendingar strax Hummer H3
Eigum á lager nokkra bíla og mikið af
aukahlutum fyrir H3 og H2 , H3 Luxury
sem er ný og glæsileg útfærsla af
Hummer. Þetta er alvöru jeppi á 33”
dekkjum með 100% driflæsingu og öllum
þægindum lúxusjeppa.
Eigum til afhendingar strax nýja
Lincoln LT pallbíla með eða án húss
Útvegum Ford F150, F250 og F350 sem
og aðrar tegundir pallbíla.
Eigum til afhendingar strax nýja 2006
Ford Explorer Limited V8
Breytt útlit innan sem utan. Útvegum
allar gerðir Ford bifreiða.
Eigum til afhendingar strax nýja Ford
F350 King Ranch og F150 King Ranch
pallbíla með eða án húss. Útvegum Ford
F150, F250 og F350 sem og aðrar
tegundir pallbíla.
Bjóðum ávallt hagstæðustu
verðin.
Útvegum alla bíla frá USA.
Nýja og notaða.
Veldu öryggi, bjóðum alla
nýja bíla með allt að 5 ára
ábyrgð.
Komið í nýjan
sýningarsal hjá
okkur á
Funahöfða 1.
Uppl. í s. 534-4433
eða 897-9227.
Sjá nánar á
www.is-band.is