Morgunblaðið - 16.07.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 35
AUÐLESIÐ EFNI
Á þriðjudaginn fórust um
180 manns og 700
særðust í sprengju-árásum í
Mumbai, áður Bombay, í
Indlandi þegar átta
sprengjur sprungu á
háanna-tíma í
farþega-lestum borgarinnar.
Það er talið nær öruggt
að um hryðjuverka-árásir
hafi verið að ræða og leggja
yfirvöld í Indlandi allt kapp á
að handsama
árásar-mennina og njóta
stuðnings leiðtoga annarra
landa, líka Pakistans en
köldu hefur andað á milli
þjóðanna tveggja um
nokkurt skeið.
Sprengingarnar sem ollu
mikilli skelfingu settu allar
samgöngur úr skorðum í
borginni en þegar var
ákveðið að stöðva allar
lestar-ferðir sem eru
mikilvægur samgöngu-máti í
Indlandi. Árásin hafði einnig
víðtækari áhrif þar sem
öryggis-gæsla var til dæmis
efld í New York.
Sjónar-vottar segja að
sprengjurnar átta hafi
sprungið með 20 mínútna
millibili á sjö stöðum á
háanna-tíma í borginni sem
hýsir um 18 milljónir manna
og að sögn yfirvalda var
árásin augljóslega gerð með
það að markmiði að valda
sem mestum skaða.
Flestir gruna öfga-sinnaða
múslima um að hafa staðið
að sprengingunum en þeir
berjast gegn yfirráðum
Indverja í indverska hluta
Kasmír. 13 ár eru síðan um
250 manns létust og 800
særðust í samskonar
sprengju-árásum víða um
borgina.
Þrír Íslendingar voru á
svæðinu og eru þeir allir
heilir á húfi að sögn
utanríkis-ráðuneytisins.
Um 180 manns
fórust og 700
særðust í sprengju-
árásum í Mumbai
Reuters
Vettvangur hryðjuverkanna rannsakaður en um 180 manns
létust í sprengingunum.
Eins og margir hafa orðið
varir við sveima mávager yfir
höfuð-borginni og er fyrirferð
þessara gengja orðin þvílík
að sérstakra ráðstafana
hefur verið krafist af
borginni. Til þessa hafa
borgarar þó ekki orðið
beinlínis fyrir barðinu á
máva-gengjunum en í vikunni
lenti Geir Ómarsson, íbúi í
Krumma-hólum, í því að
mávar stálu steikum beint af
útigrillinu hans eftir að hafa
setið um kræsingarnar á
ljósa-staurum og svölum í
nágrenninu. „Við félagarnir
vorum að grilla hér úti á
svölum og ég hafði skellt
fjórum læris-sneiðum á
grillið. Ég brá mér innfyrir til
að búa til sósuna og skildi
grillið eftir opið. Skyndilega
verð ég þess áskynja að
mávarnir fljúga óvenju
nálægt glugganum þannig að
ég hleyp út á svalir og sé þá
að tvær læris-sneiðar eru
horfnar af grillinu,“ segir
Geir. Aðspurður segir Geir að
hann og félagi hans, Davíð
Páll Helgason, hafi ekki
getað annað en skellt upp
úr. Mávarnir höfðu greinilega
fylgst með grillinu um tíma
og sagðist Geir ætla að
gæta þess að að hafa grillið
lokað næst þegar hann þyrfti
að bregða sér frá. Engum
sögum fer af því hvort
mávunum varð meint af
návíginu við grillið.
Mávar stela steikum
Morgunblaðið/Ásdís
Mávagengi hafa gerst ansi aðgangshörð í borginni að und-
anförnu.
Zinedine Zidane baðst í
vikunni afsökunar á
atvikinu í úrslita-leiknum á
móti Ítölum á sunnudaginn
þegar Ítalir hrepptu
heimsmeistara-bikarinn í
fótbolta en þar skallaði
hann Marco Materazzi
varnar-mann í brjóstið. „Mig
langar að biðja öll börnin,
sem fylgdust með leiknum
á sunnudaginn, að fyrirgefa
mér. Vonandi geta þau
það,“ sagði Zidane en hann
segist hafa viljað
kjaftshögg frekar en að
heyra þau orð sem viðhöfð
voru um móður hans og
systur og ollu bræðinni
sem varð til þess að hann
var rekinn út af.
Zidane
baðst
afsökunar
Reuters
Landsliðsfyrirliði Frakka, Zi-
nedine Zidane, biðst afsök-
unar í beinni útsendingu
þann 12. júlí.
Á SUNNUDAGINN unnu Ítalir
Frakka í drama-tískum
úrslita-leik eftir fram-lengingu
og vítaspyrnu-keppni en
undir lok leiksins var
Zinedine Zidane rekinn út af,
í síðasta leik ferils hans,
eftir að hafa skallað
varnar-leikmann Ítala í
brjóstið.
Frakkar höfðu yfirhöndina
framan af í leiknum en eftir
venjulegan leiktíma og
fram-lengingu var gert út um
leikinn í vítaspyrnu-keppni en
þar innsiglaði magnaður
markvörður Ítala, Gianluigi
Buffon, sigurinn með
frábærri mark-vörslu.
Gríðarleg fagnaðar-læti
brutust út á Ítalíu við
sigurinn og sömuleiðis þegar
bikarinn var færður heim til
landsins en þetta er í fjórða
skiptið sem Ítalir vinna
heimsmeistara-titilinn.
Talið er að sigur Ítala hafi
haft áhrif á ákvörðun
refsingar til handa nokkrum
meistara-liðum Ítala en þau
hafa sætt rannsókn á að
hafa haft samráð um að
hagræða úrslitum leikja.
Keppnin heppnaðist
sérlega vel en Þjóðverjar
lögðu mikla áherslu á að
ekkert færi úrskeiðis. Þema
keppninnar var að eignast
vini og það virðist
Þjóðverjum svo sannarlega
hafa tekist því 30 milljarðar
manna fylgdust með
keppninni og kunna
Þjóðverjum miklar þakkir fyrir
að hafa staðið svona vel að
málum.
Ítalía vinnur heims - meistara-
titilinn í fót - bolta í fjórða sinn
Reuters
Landsliðsfyrirliði Ítalíu Fabio Cannavaro lyftir heimsbikarn-
um við heimkomu liðsins til Ítalíu.
Verðbólgu-hraðinn hefur orðið
til þess að höfuð-stóll vegna
10 milljóna króna láns hefur
hækkað um 540 þúsund
krónur frá áramótum. Geir H.
Haarde segir að vísbendingar
séu um að verð-bólgan sé á
niðurleið og telur hann góðar
líkur á að hún gangi
tiltölulega hratt niður á
næstu mánuðum því gengi
krónunnar hafi stöðvast og
ríkisstjórnin hafi þegar gripið
til aðgerða til að sporna við
verðbólgunni.
Geir segir að ástandið nú
minni á verðbólgu-skotið árið
2001 en þá var verðbólga
ársins 9,4% en um 1,5% árið
á eftir. Verðbólga síðustu þrjá
mánuði mælist hinsvegar
13% og síðustu tólf mánuði
er verðbólgan 8,4%.
10 milljóna
lán hækkað
um 540 þús-
und á árinu