Morgunblaðið - 16.07.2006, Side 36

Morgunblaðið - 16.07.2006, Side 36
36 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Lífið sjálft ritar kröftug-ustu prédikunina. Áþað hef ég iðulega veriðminntur undanfarnarvikur. Nánast daglega. Og alltaf verð ég samt jafn undr- andi, þegar ég sé hana til orðna. Hún blasir við, en maður er sleg- inn einhverri blindu þar til eftir á. Þetta er ekki ósvipað og henti lærisveina tvo, á göngu frá Jerú- salem til Emmaus, eftir upprisu meistara þeirra og herra á páska- dagsmorgun. Frá því segir í 24. kafla Lúkasarguðspjalls: Þeir ræddu sín á milli um allt þetta, sem gjörst hafði. Þá bar svo við, er þeir voru að tala saman og ræða þetta, að Jesús sjálfur nálgaðist þá og slóst í för með þeim. En augu þeirra voru svo haldin, að þeir þekktu hann ekki. Það er spjallað alla leiðina, og síðan kemur þetta: Þeir nálguðust nú þorpið, sem þeir ætl- uðu til, en hann lét sem hann vildi halda lengra. Þeir lögðu þá fast að hon- um og sögðu: „Vertu hjá oss, því að kvölda tekur og degi hallar.“ Og hann fór inn til að vera hjá þeim. Og svo bar við, er hann sat til borðs með þeim, að hann tók brauðið, þakkaði Guði, braut það og fékk þeim. Þá opnuðust augu þeirra, og þeir þekktu hann… Upplifun mín við lóuþræls- hreiðrið, sem ég gat um fyrir hálfum mánuði, er af þessum toga. Litlu síðar fréttist það, að nýjar rannsóknir í Vestmanna- eyjum sýndu að lundinn beitti öðrum ráðum við útungun en talið hafði verið, þ.e.a.s. lægi ekki á eggi sínu, heldur faðmaði það að sér. Merkilegt. Svo eru vísindin að belgja sig, þykjast kunna skil á öllu milli himins og jarðar, en all- an tímann brosti nefstór svartfugl að þeim í byrgi sínu. Í þúsundir ára. Skyldu aðrir holubúar íslenska fuglaríkisins nota sömu aðferð? Svölurnar okkar tvær, og skrof- an? Dagsljósið nær sjaldnast inn í varpbyrgi þeirra. Í Grímsey sá ég, að álkan hafði nýklakinn unga sinn undir væng. Hreiðrið var í dimmum skorningi í urð. Minnir þetta ekki á eitthvað, sem við þekkjum annarsstaðar frá? Myrkur og kuldi, en vernd og hlýja engu að síður? Fjallar ekki 23. Davíðssálmur um einmitt þetta? Og fjölmargir aðrir textar ritningarinnar? Það held ég nú. Æðarunginn var ekki síðri opinberun. Fundum okkar bar saman mánudaginn 10. júlí síðast- liðinn. Ég var að koma ofan af Sauðárkróki og ákvað allt í einu að skreppa ofan í Haganesvík í Fljótum og aka þá leiðina heim. Í beygjunni, þar sem malarvegur- inn tekur við, stóð hann einn og yfirgefinn, agnarsmár, og tísti ámátlega. Máfar voru á sveimi þar rétt hjá, svo að ég ákvað að reyna að koma honum í öruggt skjól. Um annað var ekki að ræða. Kunningi minn einn var með æðarvarp í Siglufirði og gæti vafalaust bjargað málum. Þegar ég keyri inn í bæinn næ ég símasambandi við hann og ber upp erindið. Hann tekur mér vel, er með nokkra unga, en frekar stálpaða. Og reynslan sýni, að ekki fari vel á að blanda saman aldurshópum; þeir stærri eigi til að leggja hina minni í einelti. Hitt væri betra, ef ég gæti fundið kollu með unga á svipuðu reki, og laumað honum þar með. Um leið og hann segir þetta er mér litið til hliðar, og sé þar ein- mitt kollu á sundi nærri landi með hópinn sinn. Ég nem staðar og geng varlega niður að flæðarmál- inu, til að styggja hana ekki, og fleygi svo krílinu í áttina til henn- ar. Sá litli tekur óðara stefnuna út, kallandi æstur sínum veika rómi. Æðarkollan, sem hafði fjar- lægst mig dálítið, snýr þá við og kemur til móts við hinn framandi gest, og á næstu augnablikum er hann meðtekinn í fjölskylduna. Og sem ég fylgdist með þessu ævintýri hugfanginn, tók ég skyndilega eftir því, að hinn að- komni var nokkuð dekkri en hin- ir. En það virtist ekki skipta neinu máli. Hann skyldi fá að vera með. Orð Páls í 2. kafla Rómverja- bréfsins, um að Guð fari ekki í manngreinarálit, komu þá upp í hugann, sem og dæmisagan um glataða soninn. Og fleira. Slíkir hlutir eru þó enn að rugla fólk, ekki síst hinn „æðsta“ kynstofn, sem óbeðinn hefur tek- ið að sér það verk að flokka um- hverfið eftir sínu höfði. Því til sönnunar ætla ég að tilfæra hér að lokum orð innfædds Afríku- búa, út rafpósti sem mér barst fyrir skemmstu. En þar sagði hann: Kæri Mzungu, kæri hvíti maður. Þegar ég fæðist, er ég svartur. Þegar ég vex úr grasi, er ég svartur. Þegar ég baða mig í sólinni, er ég svartur. Þegar mér er kalt, er ég svartur. Þegar ég er hræddur, er ég svartur. Þegar mér er flökurt, er ég svartur. Og þegar ég er dáinn, er ég ennþá svartur. En þegar þú fæðist, ertu bleikur. Þeg- ar þú elst upp, ertu hvítur. Þegar þú liggur í sólbaði, verðurðu rauður. Þeg- ar þér er kalt, verðurðu blár. Þegar þú ert hræddur, verðurðu gulur. Þegar þér er óglatt, verðurðu grænn. Og þeg- ar þú deyrð verðurðu grár. Og nú þætti mér vænt um að fá að vita, hvers vegna þú kallar mig litaðan. Góð spurning. Æðarunginn Morgunblaðið/Sigurður Ægisson sigurdur.aegisson@kirkjan.is „Lítið til fugla himinsins,“ sagði Jesús við áheyrendur sína, í Fjallræðunni, í 6. kafla Matteusarguðspjalls. Sigurður Ægisson tekur undir þau orð hans, og bendir í þessum pistli á hina oft á tíðum máttugu og um leið hreinu boðun sköpunarverksins. ✝ Guðrún ÓlafíaHallgrímsdóttir fæddist á Svartagili í Norðurárdal 10. ágúst 1919. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Fellsenda 19. mars síðastliðinn. Guðrún fluttist með fjölskyldunni að Há- reksstöðum í Norð- urárdal 10 ára að aldri. Foreldrar hennar voru Hallgrímur Sigurðsson, f. 26. janúar 1885, d. 16. mars 1971, og Elín Kristín Ólafsdóttir, f. 1. sept. 1879, d. 30. mars 1970, bændur á Há- reksstöðum. Bróðir Guðrúnar var Sig- urður Kristinn, f. á Hreðavatni í Norð- urárdal 11. júní 1909, d. í Reykjavík 20. nóvember 2002, kvæntur Þuríði Jón- asíu Sigurjónsdótt- ur, f. 17. september 1913, d. 8. júlí 2005. Dætur þeirra eru Ninna og Elsa. Guðrún var jarð- sungin frá Kvennabrekkukirkju í Dölum 28. mars. Hún Gunna Hallgríms hefur nú kvatt þennan heim. Áreiðanlega er sál hennar frelsinu fegin því þunga fjötra bar hún hér í þessu jarðlífi. Hún fæddist á Háreksstöðum í Norðurárdal og kom fljótt í ljós að þessi litla stúlka var ein af smælingj- unum, sem aldrei ná fullum þroska. En áreiðanlega hefur hún samt lært að allir höfðu sín verk að vinna og urðu að leggja sitt af mörkum. Hún var ákaflega iðin og alltaf að taka til hendinni við eitt eða annað, stinga skrautmunum ofan í skúffur eða inn í skáp, færa til myndir og bækur og þurrka af, alltaf „að taka til“. Uppáhaldsárstíð hennar var sumarið, þegar búið var að slá í kringum heimilið, því þá gat hún ver- ið úti og rakað tímunum saman. Þeg- ar það verkefni þraut, þá tók hún bara stóran strákúst og sópaði hlaðið af gömlum og góðum sið. Oft mátti sjá hana úti við þessa iðju sína, stundum dúðaða í rysjóttum veðrum, þegar aðrir héldu sig innandyra. Hún átti bróður, sem heimsótti hana stundum meðan hans naut við, en Fellsendi var hennar heimili í ára- tugi og heimilis- og starfsfólk þar löngu orðið hennar fjölskylda. Henni fannst gaman að fara í bíl- túr og skreppa á bæi og hún var allt- af með í öllum ferðalögum, sem heimilisfólk á Fellsenda fór í. En nú er hún farin í síðustu ferðina. Þess vegna viljum við senda þessa hinstu kveðju, fyrir okkar hönd og heim- ilismanna, með þökk fyrir samfylgd- ina. Starfsfólk Dvalarheimilisins Fellsenda. GUÐRÚN ÓLAFÍA HALLGRÍMSDÓTTIR ✝ Sveinn Baldvins-son fæddist á Hálsi í Öxnadal 26. júní 1914. Hann lést á Kristnesspítala 26. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðbjörg Helga Sveinsdóttir, f. á Neðri-Rauðalæk 9. september 1884, d. 21. október 1924, og Baldvin Sigurðs- son, f. á Myrká 5. ágúst 1872, d. 29. júlí 1942. Þau bjuggu á ýmsum bæjum í Öxnadal, en lengst á Hálsi. Síðast bjuggu þau á Höfða við Akureyri. Þau eignuðust tíu börn. Þau eru: 1) Guðbjörg Soffía, f. 3. maí 1909, d. 4. ágúst sama ár, 2) Þórey, f. 2. desember 1910, d. 31. júlí 1924, 3) Ingólfur, bóndi og verkamaður á Naustum, f. 21. jan- úar 1912, d. 12. október 2000, 4) Sig- urður, f. 30. mars 1913, d. 1. desember 1915, 6) Sigurður, f. 26. september 1915, d. 23. júlí 1995, 7) Sveinbjörg Guðný Sigurbjörg, hús- freyja á Akureyri, f. 6. desember 1916, 8) Þórdís Jónína, hús- freyja á Akranesi, f. 8. ágúst 1919, d. 26. nóvember 2004, 9) Þórhallur, f. 20. mars 1920, d. 13. apríl sama ár, 10) Þór- laug Guðbjörg, húsfreyja á Akur- eyri, f. 3. nóvember 1922. Sveinn var jarðsunginn frá Ak- ureyrarkirkju 6. júlí. Sveinn Baldvinsson föðurbróðir minn fæddist að Hálsi í Öxnadal 26. júní 1914 og lést á Kristnesspítala saddur lífdaga, og eins og Nausta- bræðrum sæmdi hafði hann reglu- semina í hávegum og lést á 92 ára af- mælisdaginn sinn. Svenni frændi á Naustum stundaði búskap á Naustum við Akureyri alla sína starfsævi, hann bjó fyrst í fé- lagsbúi með systkinunum Halldóri Guðmundssyni og Helgu ömmu Guð- mundsdóttur ásamt Ingólfi Baldvins- syni bróður sínum. Á Naustum var blandað bú og sá Ingi frændi að mestu um kýrnar en í því fjósi voru um langt skeið ein- hverjar bestu kýr landsins, og var slegist um kálfa frá Naustum, sem fóru víða um land. Reglusemi, þrifn- aður og virðing fyrir dýrunum gerði Naust að fyrirmyndarbúi hér í Eyja- firði. Það gat verið vissara að fara úr skónum þegar gengið var inn tröðina í fjósinu hjá Naustabræðrum. Ég held að eggin frá hænunum hans Svenna hafi verið hreinustu egg sem til voru, meira að segja hænurnar skildu að þrifnaður og reglusemi væru dyggð sem halda skyldi í heiðri. Ærnar á Naustum voru ekki mjög margar, en gáfu vel af sér, því þegar faðir minn og Svenni voru búnir að rækta þær um árabil þá voru þær flestar þrílembdar og hrútar frá Naustum eftirsóttir. Ein fyrsta bernskuminning mín er þegar við Svenni fórum með mjólkina á hestasleða með Skjónu fyrir niður í samlagið í gilinu, við fórum síðan í há- degismat til mömmu og því næst inn í Höfner að versla inn fyrir ömmu hjá Þórlaugu frænku minni. Eftir það ók- um við heim í Naust á hestasleðanum eins og rússneskir aðalsmenn. Mannkærleikur, heiðarleiki og stéttvísi voru Naustasystkinunum í blóð borin og aldregi hallað á neinn þótt eitthvað bæri út af. Það var okk- ur frændsystkinunum þeirra bræðra ómetanlegt að eiga þá að, svo barn- góðir voru þeir og hjartahlýir að það var eins og að eiga aukaforeldra að eiga þá að. Ég minnist þeirra Naustabræðra á Austin Gipsy-jeppanum, þeir bræður sitja fram í með sixspensarana og pabbi með pípuna, við Kjartan aftur í með haustlamb á milli okkar, það voru góðir tímar. Eftir að þeir bræður hættu búskap fluttu þeir inn í bæinn í öldrunaríbúð en Svenni hélt eftir einu túni og hest- húsum og fór daglega í hesthúsin á sínum bíl. Eftir að hann hætti að keyra bíl hefur Kjartan frændi séð um að fara með hann til hestanna daglega. Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég þakka Kjartani frænda mínum og Dísu konu hans og sonum þeirra, Friðriki og Sveini Inga, ómetanlegan stuðning þeirra við Svenna og einnig Bryndísi og Róberti og fjölskyldum þeirra. Ég þakka Sveini Baldvinssyni fyrir ævilangan kærleik og vináttu og til- raunir hans til að gera mig að betri manni. Baldvin Halldór Sigurðsson. SVEINN BALDVINSSON Haustið 1966 mætt- ist hópur ungmenna í Myndlista- og handíða- skóla Íslands til að hefja þar nám. Mitt í þessum hópi var ráðsett kona með víðari sjóndeildarhring og reynslu en við hin. Þessi kona var Þórunn. Það er ekki að orðlengja það en brátt hændumst við öll að henni, hennar léttu lund og spaugsemi. Hún opnaði heimili sitt fyrir okkur og ekki brá honum Inga hennar við það þó ÞÓRUNN GUÐMUNDA EIRÍKSDÓTTIR ✝ Þórunn Guð-munda Eiríks- dóttir fæddist á Ísa- firði 27. maí 1923. Hún lést á Hjúkrun- arheimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi 3. júlí síðastliðinn og var jarðsungin frá Graf- arvogskirkju 10. júlí. stofan þeirra væri full af unglingum þegar hann kom heim enda voru þau bæði með ein- dæmum gestrisin hjón- in. Það var henni Þór- unni ekki síst að þakka hvað við urðum sam- rýndur hópur og vin- áttan endist enn í dag og yljar okkur um hjartað. Margt var brallað sem ekki féll endilega undir námið en væri trúlega flokkað undir gjörningalist í dag. Þórunn var „prímus mótor“ í þessu öllu. Henni datt fyrst í hug að fara í safnaskoðun erlendis, þegar við út- skrifuðumst úr skólanum og skipu- lagði fjáröflun svo það mætti takast. Fyrir okkur hin var þetta aðeins fjar- lægur draumur. En Þórunn kunni ráð við öllu og Ingi hennar studdi okkur með ráðum og dáð. Og út til London komumst við, það var ógleymanlegt. Síðan hefur þótt sjálfsagt að listnem- ar endi sitt lokaár með útskriftarferð líkt og aðrir skólar. Þá var komið að starfinu sem Þórunn hafði menntað sig til, myndlistarkennslunni sem hún stundaði við grunnskóla og hjá náms- flokkum við fræðslu fullorðinna. Eig- in listsköpun lagði hún einnig stund á um langt skeið. Í öllu þessu var Þórunn frábærlega hugmyndarík og lifandi og smitaði frá sér bjartsýni og eldmóði. Eftir Þórunni liggur talsvert af myndverkum. Gaman væri að safna þeim saman og sýna í heild, þó ým- islegt hafi áður sést á einkasýningum hennar. Það er svo margs að minnast er elskuleg skólasystir kveður hópinn og við öll verðum aftur ung og viðkvæm og full þakklætis fyrir liðnar stundir. Innilegar samúðarkveðjur til fjöl- skyldu Þórunnar. Gréta Kortsdóttir, Katrín Gísladóttir, Hjördís Ólafsdóttir, Fjóla Rögnvaldsdóttir og Örn Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.