Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 42
Kalvin & Hobbes
AÐEINS
NEÐAR...
SVONA... FÍNT
TAKK FYRIR AÐ
HJÁLPA MÉR AÐ SETJA
UPP RÓLUNA
HVAR FANNSTU EIGINLEGA
SVONA FÍNT DEKK?
KALVIN!! ÉG ÞARF
AÐ KOMAST Í
VINNUNA!!
Kalvin & Hobbes
MAMMA! MÁ ÉG KEYRA
BÍLINN Á LEIÐINNI HEIM?
AUÐVITAÐ EKKI
KALVIN
MÁ ÉG STÝRA? ÉG LOFA AÐ
KEYRA EKKI Á NEITT
NEI KALVIN
EN MÁ ÉG VERA Á
BENSÍNGJÖFINNI OG ÞÚ
STÝRIR?
NEI KALVIN
ÞÚ LEYFIR MÉR
ALDREI NEITT!
Kalvin & Hobbes
HÉRNA SJÁUM VIÐ
ÖRT VAXANDI BORG MEÐ
NÝJUM BYGGINGUM OG
STERKUM EFNAHAG
ÞAÐ ER MIKIÐ UM AÐ VERA
Í ÞESSARI LIFANDI BORG.
HÉRNA KEMUR BÓNDI SEM
ÆTLAR AÐ SELJA AFURÐIR Á
MARKAÐNUM
EN ÞVÍ MIÐUR HEFUR VERIÐ
TEKIN ÁKVÖRÐUN UM ÞAÐ AÐ
BYGGJA VIRKJUN FYRIR OFAN
ÞESSA VAXANDI BORG
Hrólfur hræðilegi
Kalvin & Hobbes
HOBBES ER ORÐINN DÁLÍTIÐ
SKÍTUGUR. FINNST ÞÉR
EKKI?
ÞIÐ ÆTTUÐ BÁÐIR
AÐ FARA Í BAÐ
ÉG ER
AÐ
KOMA
KALVIN, ÞÚ
FERÐ Í BAÐKERIÐ
UPPI
HEPP-
INN!
NEMA ÞEGAR ÉG
ER SKOLAÐUR
MEÐ KÖLDU
Kalvin & Hobbes
VIÐ SKULUM SJÁ HVAÐ
SKÓLASTJÓRINN HEFUR AÐ
SEGJA UM SKORT Á ATHYGLI
VIÐ
HÖFUM NÁÐ
STÖKKBREYTTA
GEIMFARANUM
GEIMVERURNAR VILJA
VAFALAUST FORMÚLUNA
FYRIR KJARNAKNÚNA
OSTASKERANN
ÁÐUR EN FARIÐ
VAR AÐ PYNTA
HANN ÞÁ
EYDDI HANN
FORMÚLUNNI
AF HVERJU ER
HANN AÐ BORÐA
MJÓLKURMIÐANA
Kalvin & Hobbes
TRÚIR ÞÚ Á
ÖRLÖG?
MEINARÐU AÐ ALLT SÉ
FYRIRFRAM ÁKVEÐIÐ?
AÐ EKKERT SEM VIÐ
GERUM SKIPTI MÁLI
SKELFI-
LEGT!
Dagbók
Í dag er sunnudagur 16. júlí, 197. dagur ársins 2006
Víkverji tekur eftirþví að ýmsar
verzlanir og fyrirtæki
taka það fram í aug-
lýsingum sínum og
upplýsingabæklingum
að þau veiti tveggja
ára ábyrgð á hlutum,
sem þar eru keyptir.
Kannski hugsa ein-
hverjir neytendur sem
svo, að það sé sérstök
manngæzka að bjóða
tveggja ára ábyrgð;
einu sinni var bara árs
ábyrgð á því, sem
keypt var. Stað-
reyndin er hins vegar
sú, að tveggja ára ábyrgð er lög-
bundin, eins og kemur skýrt fram í
lögum um neytendakaup frá 2003. Í
sumum tilvikum getur ábyrgðin
raunar verið allt að 5 ár ef viðkom-
andi hlut er „ætlaður verulega lengri
endingartími en almennt gerist um
söluhluti“. Það er merkilegt ef ein-
hver ætlar að slá sig til riddara út á
það eitt að fara að lögum.
x x x
Eru upplýsingakerfi í fyrirtækjumekki meðal annars hugsuð til
þess að einn maður geti ekki hætt
eða farið í frí með alls konar upplýs-
ingar, sem þarf til að geta þjónustað
viðskiptavininn? Þetta
hugsaði Víkverji þegar
hann skipti við Hús-
gagnahöllina á dög-
unum. Þar gat að líta á
útstillingarsvæði for-
láta sólbaðsbekk og
tekið var fram á skilti
hjá bekknum að hann
fengist í tveimur lit-
um. Víkverji hugðist
festa kaup á tveimur
bekkjum og bar sig
upp við afgreiðslu-
mann. Sá sagði honum
að þetta væri síðasti
bekkurinn, birgðirnar
væru búnar (og þar
með annar liturinn) og bekkirnir
kæmu ekki aftur. Kollegi hans var
ekki sammála honum; sagði að bekk-
urinn kæmi vafalaust aftur og skrif-
aði niður nafn og símanúmer Vík-
verja og litinn, sem hann vildi, til að
geta látið hann vita þegar varan yrði
til á ný. Þegar Víkverji vildi fá úr því
skorið hvor afgreiðslumaðurinn
hefði rétt fyrir sér, gat hvorugur
flett upp í tölvunni til að sannreyna
annaðhvort að bekkurinn yrði aftur
til sölu eða hið gagnstæða. Og þegar
Víkverji spurði hver vissi þetta fyrir
víst, var svarið að það væri inn-
kaupastjórinn. Hann væri bara í
þriggja vikna fríi.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leiklist | Sjálfstæðu leikhúsin í samvinnu við Draumasmiðjuna ætla að sýna
leikritið This Side Up frá Singapore sem er hluti af alþjóðlegri Döff-
leiklistarhátíð á Akureyri sem heitir „Draumar 2006“. Sýnt verður í kvöld,
sunnudaginn 16. júlí, kl. 20:30 í Tjarnarbíói. Miðaverð er 2000 kr. Leikari
sýningarinnar heitir Ramesh Meyyappan og var hann tilnefndur sem besti
leikari á leiklistarverðlaunahátíðinni Life! árið 2006.
This Side Up í Tjarnarbíói
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja að ég er í föður mínum og
þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.)