Morgunblaðið - 16.07.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 43
DAGBÓK
Mávaplágan á Tjörninni
MÁVAPLÁGAN á Tjörninni er nán-
ast yfirþyrmandi. Þrátt fyrir stór
orð um að gera eitthvað í málunum
hefur þeim lítið fækkað.
Þessi plága er fyrst og fremst því
að kenna að þeir eru hændir að með
brauðgjöfum. Margir virðast hafa
gaman af að sjá þá berjast um
brauðið. Að skjóta nokkra fugla er
tilgangslaust, sennilega væri eina
ráðið að hindra að hann gæti ungað
út. Að steypa undan honum er til-
gangslaust, þeir verpa bara aftur.
Gott ráð væri að fara um stærstu
varpstaðina, stuttu eftir varp, stinga
með nál gat á eggin og hræra upp í
þeim en þá verða eggin ónýt og hann
verpir ekki aftur. Afleiðing þess
hvað mávunum fjölgar er sú að engir
andarungar komast upp.
Nýlega gekk ég í kringum tjarn-
irnar og sá á syðri tjörninni eina önd
með einn unga, eina æðarkollu með
tvo unga. Á stóru tjörninni var eng-
an unga að sjá.
Að lokum er hér stutt saga. Um
helgina var ég á gangi niðri í miðbæ.
Þar sá ég ungan pilt á Arnarhóli.
Rak hann á undan sér önd með þrjá
unga. Þessi piltur sýndi mikla þol-
inmæði við að koma þeim í gegnum
umferðina. En á Tjörnina kom hann
þeim heilu og höldnu. Eftir u.þ.b.
tvær, þrjár mínútur kom svartbakur
og tók einn ungann og gleypti hann
lifandi. Hinir tveir hafa trúlega farið
sömu leið.
Eftir fáein ár hverfa því endurnar
á Tjörninni þar sem viðkoman er
engin. Menn get svo skemmt sér við
að fara niður á Tjörn og gefa máv-
unum.
Borgari.
Enn um mávana
ÉG bý í Fossvoginum og þar hefur
verið mikið um smáfugla í gegnum
árin. Nú bregður svo við að engir
smáfuglar sjást lengur. Tel ég að
það sé vegna mávaplágunnar sem
gengur um höfuðborgarsvæðið.
Þegar grasið á blettinum er slegið
fyllist allt af mávum sem rífa í sig
ormana og önnur skordýr. Er það
líklega vegna þess að þeir hafa ekki
nægilegt æti, eru líklega búnir með
alla ungana á svæðinu. Hef ég heyrt
svipaða sögu úr nágrenninu, engir
smáfuglar en allt fullt af mávum.
Er ekki kominn tími til að borg-
aryfirvöld geri eitthvað í málinu og
fækki mávum á höfuðborgarsvæðinu
umtalsvert? Sýnist manni að á
Tjörninni sé öndunum að fækka,
a.m.k. sjást engir ungar þar lengur,
bara mávar.
Eldri borgari.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Sílamávarnir renna hungruðum augum í
átt að andarungunum á Tjörninni.
SÁÁ heldur sína árlegu fjölskylduhátíðhelgina 28. til 30. júlí. Ari Matthíasson erframkvæmdastjóri félags- og út-breiðslusviðs samtakanna:
„SÁA hefur í rösklega 20 ár haldið fjöl-
skylduhátíð að sumri. Allir eru velkomnir til hátíð-
innar, en hún er þó sérstaklega ætluð okkar fé-
lagsmönnum og aðstandendum þeirra,“ segir Ari.
„Á hátíðinni bjóðum við upp á fjölskyldu-
skemmtun þar sem fólk gerir sér glaðan dag án
áfengis. Hátíðin verður að þessu sinni haldin á
Hlöðum í Hvalfirði og munu þar koma fram marg-
ir af vinsælustu skemmtikröftum landsins, sem
margir hafa lagt SÁÁ ötullega lið í gegnum árin,“
segir Ari. „Má þar nefna konung rokksins á Ís-
landi: Bubba Morthens, KK, Papa og hljómsveit-
ina Spútnik.“
Yngstu gestunum er boðið upp á heilmikla
skemmtun á hátíðinni: „Gunnar og Felix munu
leika á als oddi eins og þeirra er siður, sýnd verða
atriði úr Ávaxtakörfunni og Tolli verður með lista-
smiðju fyrir börnin. Unglingarnir fá líka eitthvað
fyrir sinn snúð: Erpur Eyvindarson og félagar
hans og Þórir trúbadúr munu halda uppi stuðinu,“
segir Ari.
„Þetta er tvímælalaust með flottari hátíðum
sem haldnar eru þetta sumar, þar sem allir eiga
að geta skemmt sér án áfengis og vímuefna. Við
leggjum áherslu á heilbrigða skemmtun fyrir alla
fjölskylduna og verður aðgangur að hátíðinni
ókeypis fyrir yngri en 12 ára,“ segir Ari.
„Þetta er tækifæri fyrir þá sem nýlega hafa lok-
ið meðferð að skemmta sér en oft reynist fólki erf-
itt og jafnvel ómögulegt að stunda hefðbundið
skemmtanalíf eftir meðferð. Vill það stundum
gerast að fólk einangrast félagslega af þeim sök-
um, og er hátíðin kjörið tækifæri fyrir þá sem
staddir eru í þeim sporum, að eiga góða stund í
heilbrigðum félagsskap.“
SÁÁ – Samtök áhugafólks um áfengis- og vímu-
efnavandann voru stofnuð fyirr 29 árum. Sam-
tökin starfrækja víðtækt meðferðarstarf við
drykkjusýki:
„Frá stofnun hafa tæpega 20.000 manns notið
aðstoðar SÁÁ. Um 9,6% núlifandi íslenskra karl-
manna eldri en 15 ára hafa komið í meðferð hjá
SÁÁ á Vog, og 7,25% allra núlifandi Íslendinga, 15
ára og eldri,“ segir Ari.
„Meðferð SÁÁ er á heimsmælikvarða og vinna
þar færustu læknar og sérfræðingar sem eru eft-
irsóttir sem fyrirlesarar um áfengismeðferð er-
lendis. Á sjúkrahúsinu Vogi eru að jafnaði 60 sjúk-
lingar hverju sinni og framhaldsmeðferðarstöðvar
eru starfræktar að Staðarfelli í Dölum og Vík á
Kjalarnesi. Þá er starfrækt göngudeild og æ meiri
áhersla er lögð á að sinna jafnframt aðstand-
endum áfengis- og vímuefnasjúklinga en í október
munu samtökin opna fjölskyldu- og fornvarnahús
í Efstaleiti.“
Nánari upplýsingar um SÁÁ eru á www.SAA.is
Hátíð | Örugg og áfengislaus skemmtidagskrá á Hlöðum í Hvalfirði 28. til 30. júlí
Fjölskylduhátíð SÁA
Ari Matthíasson
fæddist í Reykjavík
1964. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1984, lauk námi í leik-
list frá LHÍ 1991 og
meistaranámi í stjórn-
un og viðskiptum frá
Háskólanum í Reykja-
vík 2003. Ari hefur
tekið þátt í fjölda upp-
færslna í leikhúsum bæði hérlendis og erlend-
is, leikið í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.
Hann starfaði frá 2003 til 2006 við markaðs-
ráðgjöf. Ari er kvæntur Gígju Tryggvadóttur
tannfræðingi og eiga þau þrjú börn.
90 ÁRA afmæli. Arnþór Guð-mundsson frá Krosshúsum í
Flatey á Skjálfanda verður níræður
þriðjudaginn 18. júlí nk. Í tilefni af-
mælisins býður hann vinum og ætt-
ingjum til afmælisveislu á hjúkr-
unarheimilinu Hlíð við Þórunnarstræti
á Akureyri kl. 15 sunnudaginn 16. júlí.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
TIL LEIGU VERSLUNAR- OG
ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI
Húsnæðið er 107 fm á jarðhæð í Faxafeni 9.
Nánari upplýsingar veitir
Kjartan Blöndal í símum 588 1569 og 694 1569.
Tímaspursmál.
Norður
♠K93
♥Á74
♦ÁG865
♣Á9
Suður
♠Á108652
♥G5
♦K43
♣G5
Suður spilar fjóra spaða.
Vestur kemur út með laufkóng, sem
er tekinn með ás og ÁK í trompi spilað.
Þá kemur á daginn að vestur hefur byrj-
að með DGx (austur kallar í hjarta).
Hvernig á að halda áfram?
Tígullinn er næstur á dagskrá.
Fyrsta hugsunin er að taka á kónginn
og svína gosanum, en í því felst þó dulin
hætta:
Norður
♠K93
♥Á74
♦ÁG865
♣Á9
Vestur Austur
♠DG4 ♠7
♥10962 ♥KD83
♦72 ♦D109
♣KD104 ♣87632
Suður
♠Á108652
♥G5
♦K43
♣G5
Svíningin misheppnast og vörnin tek-
ur laufslaginn sinn og spilar hjarta.
Sagnhafi drepur og reynir að henda
hjarta niður í tígul, en vestur verður
ekki höndum seinni að trompa og spila
hjarta – einn niður.
Þetta er spurning um tíma. Í sjálfu
sér í lagi að gefa slag á tígul – aðal-
atriðið er að fría niðurkast fyrir hjartað
í tæka tíð. Leiðin til þess að taka fyrst á
ásinn, svo kónginn og spila loks að gos-
anum. Þá er samningurinn öruggur
nema þegar austur á D10xx (en við þá
legu verður aldrei ráðið).
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3 Rd7 8.
h5 Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 e6 11.
Bf4 Bb4+ 12. c3 Be7 13. Re4 Rgf6 14.
Rxf6+ Rxf6 15. Re5 Da5 16. Dg3 Hg8
17. Dh3 Da6 18. Df3 Hd8 19. b4 Rd7 20.
Rd3 Dc4 21. Kd2 Dd5 22. Ke2 Rf6 23.
Dxd5 cxd5 24. f3 Bd6 25. a4 Ke7 26.
Bd2 b6 27. g4 a5 28. Hhb1 Hd7 29.
bxa5 bxa5 30. Hb5 Ha8 31. Rc1 Hda7
32. Hab1 Re8 33. Rd3 Kd7 34. Be3 Kc8
35. H1b3 Hb8 36. Hxb8+ Bxb8 37. Re5
Bxe5 38. dxe5 Hb7 39. Hxb7 Kxb7 40.
Bc5 f6 41. f4 Kc6 42. Bf8 fxe5 43. fxe5
Kd7 44. Kd3 Kc7 45. Ke3 Kc6 46. Kf4
Kd7 47. g5 Kd8
Staðan kom upp á öflugu atskákmóti
sem fram fór í Leon á Spáni í byrjun
júní síðastliðinn. Heimsmeistarinn í
skák, Veselin Topalov (2804), mætti
spænska stórmeistaranum Francisco
Ponz Vallejo (2666) í undanúrslitum
mótsins. Topalov hafði hvítt og knúði
nú fram sigur í fyrstu skák einvígisins
með því að leika 48. Bxg7! biskupinn er
friðhelgur þar sem eftir 48... Rxg7 49.
gxh6 Rxh5+ 50. Kg5 rennur h-frípeð
hvíts upp í borð. Svartur hélt barátt-
unni áfram með því að leika 48...hxg5+
en lagði niður vopnin eftir 49. Kxg5
Rxg7 50. h6 Ke7 51. h7.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Sólheimaferð
20. júlí kl. 12.30. Kaffiveitingar í
Grænu könnuni, leiðsögn um stað-
inn. Upplýsingar í síma 535 2760.
Dalbraut 18 - 20 | Brids mánu-
daga kl. 14. Félagsvist þriðjudaga
kl. 14. Bónus miðvikudaga kl. 14.
Hádegisverður og síðdegiskaffi.
Heitt á könnunni og dagblöðin
liggja frammi.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skrifstofa FEB verður lokuð frá 17.
júlí til 8. ágúst. Skjaldbreiður –
Hlöðufell 16. ágúst. Ekið er til Þing-
valla, um Uxahryggjaveg, Kjalveg
skammt frá Gullfossi. Flateyj-
ardalur – Fjörður 19. ágúst, 4 dag-
ar: Ekið norður um Sprengisand,
ekið til baka um hringveginn. Uppl.
og skráning frá 8. ágúst í síma
588 2111.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
FEBG og FAG standa fyrir Akureyr-
arferð dagana 8.-10. ágúst. Gisting,
morgunmatur og kvöldverður á
Hótel Eddu, Akureyri. Verð ein-
ungis 15.000. Miðasala í Garða-
bergi 17. og 18. júlí kl. 9-14. Tak-
markaður miðafjöldi.
Félagsstarf Gerðubergs | Vegna
sumarleyfa starfsfólks fellur starf-
semi og þjónusta niður til þriðjud.
15.ágúst. Sund og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug, sími 557 5547, eru
á mánud. kl. 10.30 og miðvikud. kl.
9.30. wwwgerduberg.is.
Hafnarfjörður | Í sumar verður
púttað á Vallavelli á Ásvöllum á
laugardögum frá 10-11.30 og á
fimmtudögum frá kl. 14-16. Mætum
vel og njótum hverrar stundar.
Hraunbær 105 | Ferð norður í
Húnavatnssýslu 26. júlí nk., stopp-
að í Borgarnesi, þaðan ekið til
Hvammstanga, hádegismatur í
Þinghúsbar. Haldið út Vatnsnes,
Hvítserk, Borgarvirki, stoppað í
Þingeyrarkirkju. Leiðsögumaður:
Hólmfríður Gísladóttir. Skráning á
skrifstofu eða í síma 587 2888.
Farið frá Hraunbæ kl. 9. Verð kr.
5.300.
Kirkjustarf
Háteigskirkja | Félagsvist mánu-
daga kl. 13. Stund í kirkjunni mið-
vikudaga kl. 11. Brids kl. 13. For-
eldramorgnar fimmtudagsmorgna
kl. 10-12. Púttvöllur. Verið velkomin.
Fréttir á SMS
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Á sunnudagstónleikum í Lista-
safni Sigurjóns verða leikin
kammerverk eftir hið vinsæla
tékkneska tónskáld Bohuslav
Martinu sem samin voru í Banda-
ríkjunum á árunum 1942-1947, en
þangað hafði Martinu flúið undan
nasistum í seinni heimsstyrjöld-
inni.
Flytjendur koma koma víða að.
Freyr Sigurjónsson er fyrsti
flautuleikari Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í Bilbaó á Spáni og þaðan
koma einnig Iwona Andrzejczak
lágfiðluleikari og Jerzy And-
rzejczak sellóleikari, en þau eru
frá Póllandi og bæði leiðarar síns
hljóðfæris í Sinfóníuhljómsveitinni
í Bilbaó. Með þeim leikur hinn
þekkti píanóleikari Anna Áslaug
Ragnarsdóttir sem kemur frá
Þýskalandi og Hlíf Sigurjóns-
dóttir fiðluleikari.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30. Aðgangseyrir er 1500 kr.
Tónleikar í Lista-
safni Sigurjóns