Morgunblaðið - 16.07.2006, Qupperneq 46
46 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
PJETUR Stefánsson var á sinni
tíð áberandi í tónlistarlífinu, átti
vinsæl lög og sendi frá sér plöt-
ur. Síðustu ár hefur þó lítið
heyrst frá honum af músík undir
eigin nafni enda hefur hann haft
í nógu að snúast, unnið að þrem-
ur plötum með Megasi og haldið
listsýningar hér á landi og er-
lendis, enda hefur hann starfað
að myndlist og tónlist jöfnum
höndum. Um daginn kom síðan út
platan Hamingjuvélin með hljóm-
sveit hans, PS & Co.
Pjetur segist hafa farið bratt af
stað í tónlistinni á sínum tíma og
megi kannski segja að hann hafi
lokið sem nam lífsverki í tónlist-
inni þegar hann var 33 ára, kom-
inn með um fimmtíu lög á skrá
hjá STEFi. Hann hélt þó áfram,
bætti við og segir að lögin séu
núna sextíu til sjötíu sem hann
hefur sent frá sér á plötum. „Það
er ekki hægt að stoppa, þetta er
bara tímans þungi niður,“ segir
hann.
Málamiðlanir abstrakt-
málverksins
Lögin á Hamingjuvélinni eru
samin á löngum tíma og Pjetur
segist líka hafa tekið sér góðan
tíma til að vinna hana meðfram
öðrum verkefnum eins og vinnu
hjá Sjónvarpinu, félagsstörfum
fyrir myndlistamenn og sýningum
á myndlist hér heima og erlendis.
„Það má segja að ég hafi tekið
málamiðlanir abstraktmálverks-
ins inn í lífið og reynt að semja
við hlutföll og stærðir eftir því
sem lífið hefur boðið uppá.“
Plötuna vann Pjetur með göml-
um félögum í tónlist, Tryggva
Hübner, Sigfúsi Óttarssyni, Har-
aldi Þorsteinssyni og Jónunum
bassa og píanó Ólafssonum svo
nokkrir séu nefndir, og segir að
sú vinna hafi gengið vel. „Þegar
lag og texti koma saman skeður
það eitt að það er komin ákveðin
tilfinning og rammi. Yfirleitt veit
ég nokkurn veginn hvernig lag á
að vera og á plötunni eru þannig
lög sem kannski tekin eru einu
sinni eða tvisvar og jafnvel lög
sem tekin voru aðeins einu sinni.
Grunnarnir eru því frjálslega
unnir, en síðan vann ég meira
með upptökurnar.“
Frjálsar hendur
Pjetur sér um margt sem við-
kemur plötunni, semur lögin,
spilar þau með félögum sínum,
stýrir upptökum, hannar umslag
og gefur út. „Markmiðið var að
gera plötu sem uppfyllir alþjóð-
legar kröfur, en gera það á ís-
lensku vegna þess að mér þykir
vænt um land og þjóð og vil ekki
bera á borð hvað sem er fyrir
vini og vandamenn. Ég hef aldrei
iðkað það að standa í einhverju
gleðipoppi og ég hef ekki heldur
iðkað það að láta frá mér mærð-
arlega söngva.
Ég hef sagt það áður og segi
það enn að ég þarf ekki að meika
það nema einu sinni, ég er ekki á
eftir neinu meiki, gef sjálfan mig
út og er því ekki að hlaupa eftir
einu eða neinu, hef frjálsar hend-
ur til að gera það sem ég vil á
þeim tíma sem ég tel þurfa, það
er ekkert að bögga mig. Þetta er
eingöngu gert mér til skemmt-
unar.“
Treginn er aðeins dýpri
Textarnir á plötunni fjalla um
lífið og tilveruna frá ýmsum sjón-
arhornum, en ekki er örgrannt
um að á henni sé að finna ljúfsár-
ar tilfinningar, jafnvel trega.
Pjetur segir umfjöllunarefni plöt-
unnar líðandi stund síðustu þrett-
án ára frá því síðasta plata kom
út og vissulega sé sitthvað á
henni sem menn fjalla kannski
ekki um í dægurlagatextum, „en
ástin er þarna þótt það sé ekki
verið að syngja um hana á glað-
væran hátt, ást á lífinu, ást á öllu
lífinu.
Treginn er til, þetta er blús
enda er það að stofni til mín mús-
ík, það sem ég hef hlustað mikið
á í gegnum tíðina. Samt er ekki
beinlínis blús á Hamingjuvélinni
þótt það séu blúsaðir tónar. Treg-
inn hefur eitt öruggt viðmið-
unarmerki, hann er aðeins dýpri.
Hamingjuvélin er náttúrulega
bara um lífið, lífið er líka vélrænt
og ástin er líka vélræn og rökrétt
ef hún er sönn. Maður uppsker
eins og maður sáir. Það einn af
grundvallarþáttum við þessa
plötu að það er ekkert daðrað við
lífslygina, heldur verðum við að
sætta okkur við sannleikann um
lífið eins og það er – ég varpa
ljósi á skuggahliðar lífsins, fer út
í horn og skoða hvernig lífið er á
kantinum. Ég daðra ekki við ást-
ina ég elska lífið.“
Lífið á
kantinum
Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Pjetur Stef-
ánsson sendi frá sér plötu á dögunum eftir langt
hlé. Árni Matthíasson tók Pjetur tali og komst að
því að hann gefur út aðeins sér til skemmtunar.
Morgunblaðið/Eggert
„Ég hef sagt það áður og segi það enn að ég þarf ekki að meika það nema einu sinni,“ -Pjetur Stefánsson.
arnim@mbl.is
The Benchwarmers kl. 4(400 kr.), 6 og 8 B.i. 10 ára
Bandidas kl. 4 (400 kr.), 6 og 8 B.i. 10 ára
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 10 B.i. 12.ára.
Click kl. 10 B.i. 10 ára
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
ROBIN WILLIAMS
eee
Topp5.is - VJV
ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKA-
FYLLSTA OG SKEMMTI-
LEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS
FRÁ HÖFUNDI
BRING IT ON
www.xy.is
eee
B.J. BLAÐIÐ
eee
S.V. MBL.
eee
V.J.V.Topp5.is
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
Yfir 51.000 gestir!
eee
L.I.B.Topp5.is
3 fullorðnir ættu að geta unnið
hrottana í hverfinu ...eða hvað?
Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20
The Benchwarmers kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Click LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Just My Luck kl. 2 og 4 Síðustu sýn.
RV kl. 2 og 4 Síðustu sýn.
Rauðhetta m. íslensku tali kl. 2 og 4 Síðustu sýn.
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 2 og 4 Síðustu sýn.
400 kr
.400 kr.
400 kr.
400 kr.
400 kr
.
400 kr.
FJÖLSKYLDUDAGAR
í Smárabíó og Regnboganum
400 kr. miðinn*
*Sýningar merktar með rauðu