Morgunblaðið - 16.07.2006, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 47
FÆREYSKA tónlistarhátíðin G!
Festival verður haldin í bænum Götu
dagana 20. júlí til 22. júlí (frá
fimmtudegi til laugardags). Er þetta
í fimmta sinn sem hátíðin er haldin
og hefur hún vaxið að burðum ár frá
ári.
Boðið er upp á framsækna tónlist
frá gervöllum Norðurlöndunum auk
þess sem allir þeir færeysku tónlist-
armenn sem hafa einhverja vigt um
þessar mundir troða þar upp. Í þetta
sinnið koma þrír aðilar frá Íslandi
fram, Mugison, Sign og Stillbirth.
Áhugasamir Íslendingar geta keypt
sér pakkaferðir í gegnum færeysku
ferðaskrifstofuna Green Gate In-
coming (www.greengate.fo).
Tugir listamanna koma fram, all-
flestir eru frá Norðurlöndunum en
listamenn frá löndum eins og Banda-
ríkjunum, Bretlandi og Sviss eru
einnig á efnisskránni. Hátíðin hefur í
gegnum tíðina spurst vel út og þykir
með þeim athyglisverðari á Norð-
urlöndunum í dag; gestir hafa rómað
fagmennsku og rósemd eyjaskeggja
og upplifunin þykir að sönnu sérstök.
Aðdráttarafl hátíðarinnar liggur
auk þess í staðsetningunni, en þús-
und manna þorpið Gata (þaðan sem
Þrándur kom) er umlukið fallegum
fjöllum og liggur það við fjöru, þar
sem hátíðin fer að mestu leyti fram.
Uppselt var í fyrra, og seldust alls
sex þúsund miðar. Framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, Jón Tyril, tók við
M.A. Jacobsen-verðlaununum í fyrra
vegna framúrskarandi árangurs á
sviði menningarmála. Þó að Fær-
eyingar séu ekki nema 48.000 talsins
er talsvert um tónlistarhátíðir yfir
sumartímann og er G! hátíðin að öðr-
um ólöstuðum þar fremst í flokki.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Mugison kemur líklegast fram á G! Festival ásamt hljómsveit.
Norræn tónlistarveisla
… og ögn meira
Tónlist | G! Festival haldið í Færeyjum 20. júlí til 22. júlí
Eins og fram kemur í greininni má
nálgast pakkaferðir á
www.greengate.fo en nánari upp-
lýsingar er svo að finna á
www.gfestival.com.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SEYÐFIRSKA hljómsveitin Miri er
umsvifamikil þessa dagana en á
föstudag spilaði hún á tónlistarhá-
tíðinni Blabla í Sortland í Noregi.
Miri er skipuð þeim Árna Geir,
Hjalta Jóni, Ívari Pétri og Óttari
Brjáni en sveitin hefur starfað í
rösk tvö ár og fengið ágætar við-
tökur þar sem hún hefur komið
fram. Sendi hljómsveitin nýverið
frá sér smáskífuna Fallegt þorp.
Eftir Noregsferðina spilar Miri í
heimabæ sínum, Seyðisfirði, á stór-
tónleikum LungA laugardaginn 22.
júlí. Viku síðar koma þeir fram á
hátíðinni „Þakka þér fyrir að ég
kom“ á Borgarfirði eystri en þang-
að hefur meðal annars skoska
hljómsveitin Belle & Sebastian boð-
að komu sína.
Nánari upplýsingar um Miri og
hljóðdæmi má nálgast á www.mys-
pace.com/mirimusic.
Á tónlistarhá-
tíð í Noregi
Liðsmenn Miri gera víðreist.
Sími - 551 9000
-bara lúxus
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10:15
...Myndir þú breyta
heiminum með henni
...eða gera eitthvað
allt annað?
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt
lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...?
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu?
Hvað myndir þú gera ...?
...Myndir þú breyta
heiminum með henni
...eða gera eitthvað allt
annað?
Sýnd kl. 6, 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10:15 B.i. 12 ára
EINA LEIÐIN
TIL AÐ VINNA
ER AÐ MISSA
STJÓRNINA
-bara lúxus
Salma hayekpénelope cruz
kl. 4 ÍSL. TAL
Skrolla og Skelfir
Á SALTKRÁKU
kl. 2 ÍSL. TAL kl. 2 og 4 ÍSL. TAL
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20
The Benchwarmers kl. 3, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click k 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 3 Síðustu sýn.
X-Men 3 kl. 3 Síðustu sýn.
Rauðhetta m. íslensku tali kl. 3 Síðustu sýn.
YFIR 50.000 GESTIR!
FJÖLSKYLDUDAGAR • 400 kr. miðinn*
*Sýningar merktar með rauðu