Morgunblaðið - 02.08.2006, Síða 2
SÓLVEIG Pétursdóttir, forseti Alþingis, hóf í gær
opinbera heimsókn sína til Manitoba-fylkis í Kan-
ada, en með henni í för er Kristinn Björnsson, eig-
inmaður hennar. Átti Sólveig meðal annars fund
með Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba-
fylkis.
„Þetta var mjög ánægjulegur fundur og for-
sætisráðherrann sýndi mikinn áhuga á auknum
samskiptum milli Íslands og Manitoba-fylkis, með-
al annars á sviði menningarmála,“ sagði Sólveig í
samtali við blaðið í gær. „Þá ræddum við um orku-
mál og vetni sérstaklega, en það er samvinnuverk-
efni okkar á milli. Ráðherrann er einmitt vænt-
anlegur til Íslands seinnipartinn í ágúst til að ræða
það mál og fleiri við forsætisráðherra Íslands.“
Sólveig skoðaði aðsetur Lögbergs-Heims-
kringlu, sem er blað sem gefið er út í Manitoba,
heimsótti háskóla fylkisins auk þess að snæða
kvöldverð í boði Atla Ásmundssonar konsúls.
Einnig átti Sólveig fund með starfsbróður sínum,
George Hickes, forseta löggjafarþings Manitoba-
fylkis, auk þess að ræða við hinn vestur-íslenska
Peter Bjornson sem gegnir embætti mennta-
málaráðherra.
Ljósmynd/David Jón Fuller
Sólveig Pétursdóttir heilsar Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, fyrir utan þinghús fylkisins.
Hitti forsætis-
ráðherra
Manitoba-fylkis
2 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÍFEYRIR SKERTUR
Um 20% allra örorkulífeyrisþega
á landinu hafa fengið bréf frá lífeyr-
issjóðum sínum um að örorkulífeyrir
þeirra verði skertur eða felldur nið-
ur. Lífeyrissjóðirnir hafa staðið fyrir
umfangsmikilli tekjuathugun sem
leitt hefur í ljós að margir öryrkjar
hafa hærri heildartekjur en þeir
höfðu áður en þeir urðu fyrir orku-
tapi.
Samningar gildir
Samningar Hveragerðisbæjar og
Eyktar ehf. um byggingu 800–900
íbúða austan Varmár eru gildir sam-
kvæmt úrskurði félagsmálaráðu-
neytisins. Var ekki fallist á þá kröfu
sjálfstæðismanna að samningarnir
brytu gegn rannsóknar- og jafnræð-
isreglu stjórnsýslulaga
Neyðarástand í Beirút
Um 30.000 skelfingu lostnir flótta-
menn forðuðu sér frá hafnarborginni
Týrus og nálægum bæjum í Líbanon
í gær þegar Ísraelsher herti sókn
sína inn í landið til að ganga milli
bols og höfuðs á liðsmönnum Hiz-
bollah-hreyfingarinnar.
Ingibjörg Þórðardóttir, stríðs-
fréttamaður BBC, segir að hundruð
þúsunda flóttamanna séu í Beirút og
neyðarástand ríki í borginni.
Starfsmenn hjálparstofnana hafi
miklar áhyggjur af því að sjúkdómar
kunni að brjótast út vegna mann-
mergðarinnar og skorts á rennandi
vatni.
Bróðir Castros við völd
Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, hefur
falið bróður sínum, Raúl, völdin til
bráðabirgða eftir að hann var lagður
inn á sjúkrahús og skorinn upp
vegna innvortis blæðinga í maga.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Fréttaskýring 8 Bréf 30
Viðskipti 12 Minningar 30/37
Erlent 14/15 Myndasögur 40
Minn staður 16 Víkverji 40
Akureyri 20 Dagbók 40/43
Höfuðborgin 18 Staður og stund 42
Suðurnes 18 Leikhús 45
Landið 19 Bíó 46/49
Daglegt líf 20/21 Ljósvakamiðlar 50
Menning 22 Veður 51
Umræðan 24/29 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
STJÓRN BSRB hefur ákveðið að
stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar
vegna uppsagna sex starfsmanna
við íþróttahús og sundlaugar Snæ-
fellsbæjar. Ögmundur Jónasson,
formaður samtakanna, segir að
uppsagnirnar séu brot á lögum og
kjarasamningum. Ásbjörn Óttars-
son, forseti bæjarstjórnar Snæfells-
bæjar, telur bæjarfélagið vera í full-
um rétti.
„Við höfnum því algerlega að
fólki sé sagt upp störfum og veltum
því fyrir okkur hvað vaki fyrir bæj-
aryfirvöldum. Ef þau eru að reyna
að losa sig við einhverja starfs-
menn, þá samrýmist það ekki lög-
um að fara svona að,“ segir Ög-
mundur.
„Ég er búinn að eiga tvo fundi
með bæjarstjóra og hans samstarfs-
fólki þar sem við höfum gert grein
fyrir því að þessar uppsagnir stand-
ist ekki lög og kjarasamninga. Í
kjarasamningnum er skýrt kveðið á
um að hægt sé að ráðast í skipu-
lagsbreytingar af því tagi sem bæj-
aryfirvöld hyggjast hrinda í fram-
kvæmd, án þess að segja starfsfólki
upp. BSRB hefur boðist til að hafa
samstarf við bæjaryfirvöld um þess-
ar breytingar þannig að þær nái
farsællega fram að ganga og við
hörmum að því tilboði skuli ekki
hafa verið tekið,“ segir Ögmundur
og tekur fram að félagið hafi marg-
oft staðið að slíkum samkomulags-
ferlum milli félagsmanna sinna og
sveitarfélaga.
„Málið er hjá lögmönnum okkar
og var bæjaryfirvöldum ritað bréf
og gefinn kostur á andsvörum innan
ákveðins frests sem nú er útrunn-
inn. Það stefnir því allt í að við
munum stefna sveitarfélaginu og
við höfum tilkynnt þeim það,“ segir
Ögmundur en bætir við að hætt
verði við stefnuna ef uppsagnirnar
verði dregnar til baka.
Ekki verið að reka neinn
Ásbjörn Óttarsson, forseti bæj-
arstjórnar, segir að sambærilegar
skipulagsbreytingar hafi áður verið
gerðar „í sambandi við skólana og
leikskólana og þetta hefur ekki ver-
ið vandamál fyrr en núna. Deilan
snýst um það hvort þetta séu skipu-
lagsbreytingar eða eitthvað annað.
Þeir hjá BSRB vilja meina að það
búi eitthvað annað að baki þessu en
breytingar á skipulagi“, segir Ás-
björn.
Ásbjörn segir að sveitarfélagið
muni taka því sem að höndum ber
varðandi aðgerðir BSRB. „Þegar
ákveðið er að stefna sveitarfélaginu
fer það í ákveðinn farveg,“ segir
hann og bætir við að aðstandendur
BSRB verði að gera það upp við sig
hvort ástæða sé til að stefna.
„Það geta allir sótt um vinnu aft-
ur og það er bara verið að segja
þessu fólki upp vegna skipulags-
breytinga. Væntanlega sækir það
um aftur því það eru allar stöður
lausar,“ segir Ásbjörn og samsinnir
því ekki að verið sé að reka fólkið.
Breytingarnar varða kennslufyr-
irkomulag í þremur starfsstöðvum
Snæfellsbæjar en nýverið var hluti
íþróttakennslu grunnskólanna færð-
ur frá íþróttahúsinu í Ólafsvík, þar
sem einnig er sundlaug, til íþrótta-
hússins á Hellissandi.
Formaður BSRB telur uppsagnir sex starfsmanna Snæfellsbæjar brot á lögum
„Veltum fyrir okkur hvað
vaki fyrir bæjaryfirvöldum“
20 HÆLISLEITENDUR hafa
komið hingað til lands það sem af er
árinu og þar af hefur ellefu manns
verið vísað úr landi samkvæmt
ákvörðun Útlendingastofnunar. Mál
níu hælisleitenda eru í vinnslu og til
viðbótar eru mál sjö hælisleitenda
sem komu til landsins í fyrra enn í
vinnslu. Þá er nokkuð um að hæl-
isleitendur láti sig hverfa og komi
ekki meira við sögu Útlendinga-
stofnunar. Í ár hafa þrír útlendingar
fengið dvalarleyfi af mannúðar-
ástæðum, þótt ekki hafi þeir allir
komið til landsins á þessu ári.
Hildur Dungal, forstjóri Útlend-
ingastofnunar, segir flesta hælisleit-
endur á þessu ári vera frá Rúmeníu
og að það séu karlar á aldrinum 25–
35 ára sem skipi stærstan hóp hæl-
isleitenda. Í fyrra leituðu 87 manns
frá 20 mismunandi löndum hælis hér
á landi og 80 þeirra fengu úrlausn
sinna mála. Miðað við þær tölfræði-
legu upplýsingar sem liggja fyrir má
segja að hælisleitendum hafi fækkað
hlutfallslega milli ára en hafa verður
í huga að árið er ekki nema hálfnað
og því óljóst fyrr en í árslok hver og
hvort breyting verður að þessu leyti.
Hildur Dungal segir mörg mál frá
því í fyrra hafa verið flókin og krafist
tímafrekrar efnismeðferðar. Sex
málum frá fyrra ári er enn ólokið en
mjög er mismunandi hve langan
tíma tekur að ljúka máli hvers hæl-
isleitanda, allt frá nokkrum dögum
upp í meira en 12 mánuði. Meðalaf-
greiðslutími er 2–3 mánuðir að sögn
Hildar.
„Í fyrra vorum við aðeins úr takti
við það sem var að gerast annars
staðar í kringum okkur því þá fjölg-
aði hælisleitendum hér um 15% en
fækkaði talsvert í Evrópu,“ segir
hún. Telur Hildur líklegt að sú þróun
sem átt hefur sér stað í Evrópu sé að
skila sér til Íslands á þessu ári, þ.e.
fækkun hælisleitenda.
Önnur breyting í útlendingamál-
um er sú að á þessu ári hafa hæl-
isleitendur í minnkandi mæli komið
með Seyðisfjarðarferjunni Nor-
rænu, og heldur komið flugleiðina til
landsins.
Hælisleitendum
fækkað milli ára
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
LITLAR breytingar hafa orðið á fylgi
stjórnmálaflokkanna frá því í síðasta
mánuði samkvæmt Þjóðarpúlsi Gall-
ups. Sjálfstæðisflokkurinn mælist
stærstur með tæplega 43% fylgi sem
er það sama og í síðasta mánuði og
fylgi Samfylkingarinnar helst einnig
óbreytt, tæp 25%. Þá nýtur Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð tæplega
20% fylgis og Framsóknarflokkurinn
tæplega 10% og bæta báðir flokkarnir
við sig prósentustigi. Frjálslyndir
mælast með tæplega 4% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina
mælist nú 54%. Nær einn af hverjum
fimm tók ekki afstöðu eða neitaði að
gefa hana upp og tæplega 6% sögðust
myndu skila auðu eða ekki kjósa ef
kosningar færu fram í dag.
Tryggð kjósenda við stjórnmála-
flokkana var einnig könnuð og var
hún mest hjá kjósendum Sjálfstæð-
isflokks þar sem 91% þeirra sem kusu
flokkinn í síðustu alþingiskosningum
myndi kjósa hann aftur nú. Næst-
mest tryggð er hjá kjósendum Vinstri
grænna eða um 87%. Tryggð kjós-
enda Samfylkingarinnar minnkar í
fjórða skiptið í röð, en sjö af hverjum
tíu kjósendum hennar halda þó enn
tryggð við flokkinn. Aðeins 57% kjós-
enda Frjálslynda flokksins myndu
kjósa hann ef kosið yrði nú.
Um helmingur hafði gert upp
hug sinn mánuði fyrir kjördag
Þá kannaði Gallup einnig hvenær
Reykvíkingar hefðu gert upp hug
sinn fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar og kom þá í ljós að rúmlega
helmingur, eða 53%, hafði ákveðið sig
meira en mánuði fyrir kjördag. Eldra
fólk og kjósendur Sjálfstæðisflokks
eru í mun ríkari mæli búnir að gera
upp hug sinn snemma en ungir kjós-
endur annarra flokka. Síðustu vikuna
fyrir kjördag voru til dæmis aðeins
9% elsta hópsins enn óákveðin en
helmingur yngsta hópsins.
Niðurstöðurnar um fylgi og tryggð
við flokkana eru úr símakönnun sem
gerð var 29. júní til 30. júlí. Svarhlut-
fall var rúmlega 61% en úrtaksstærð
var 2.880 manns. Niðurstöður um
hvenær fólk gerði upp hug sinn eru úr
könnun sem gerð var meðal 617 18–75
ára Reykvíkinga dagana 14. júní til 4.
júlí og var svarhlutfall 62%.
Litlar breytingar
á fylgi flokkanna