Morgunblaðið - 02.08.2006, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Havana. AFP. | Fidel Castro, leiðtogi
Kúbu, fól í fyrrakvöld hinum 75 ára
gamla Raúl bróður sínum tímabund-
ið völdin í kjölfar
þess að hann var
lagður inn á spít-
ala og skorinn
upp vegna inn-
vortis blæðinga í
maga. Castro
mun draga sig í
hlé í nokkrar vik-
ur vegna aðgerð-
arinnar, en þetta
er í fyrsta skipti á
47 árum hans á
valdastóli sem
hann neyðist til
að afsala sér
tímabundið völd-
um.
Castro fór ný-
lega í opinbera
heimsókn til Arg-
entínu og rakti
hann veikindin til
streitu vegna mikilla anna upp á síð-
kastið.
Blendin viðbrögð
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagði aðspurður um veik-
indi Castros að ótímabært væri að
spá fyrir um hvaða áhrif þau mundu
hafa. „Ef Castro myndi falla frá eða
láta af embætti vegna veikinda höf-
um við áætlun um að auðvelda Kúb-
verjum að skilja að það er til betra
stjórnkerfi,“ sagði Bush í Miami í
gær. „Enginn veit hvenær hann
hættir á valdastóli. Að minni hyggju
er það undir Guði almáttugum kom-
ið.“
Undirbúningur vegna 80 ára af-
mælis leiðtogans umdeilda 13. ágúst
nk. hafði staðið yfir í nokkurn tíma.
Nú hefur hins vegar verið tilkynnt
að hátíðarhöldunum verði frestað
þangað til 2. desember, þegar ná-
kvæmlega 50 ár verða liðin frá því að
uppreisnarmenn gengu á land í suð-
austurhluta Kúbu og héldu til Sierra
Maestra-fjallgarðsins.
Óljóst er hversu alvarleg veikindi
Castros eru og hafa viðbrögðin við
tíðindunum af aðgerðinni verið
blendin.
Þannig fögnuðu þúsundir Kúb-
verja í Litlu-Havana í Miami á Flór-
ída í Bandaríkjunum tíðindum af
veikindum leiðtogans, sannfærðir
um að nær hálfrar aldar valdaferill
hans væri senn á enda. Á Kúbu var
hins vegar stemningin öllu alvar-
legri, enda hefur meirihluti íbúa eyj-
arinnar aldrei þekkt annan leiðtoga.
Á það hefur hins vegar verið bent
að Castro hefur áður lent í ýmsum
hremmingum og því of snemmt að
afskrifa kommúnistaleiðtogann víð-
fræga.
AP
Kúbumenn í Litlu-Havana á Miami í Flórída fögnuðu er þeir fréttu af veikindum Castros í fyrrakvöld.
Raúl Castro
Fidel Castro
Castro felur bróður sínum
völdin vegna veikinda
Stokkhólmur. AFP. | Fjörutíu og sjö
manns drukknuðu í Svíþjóð í júlí-
mánuði, þegar mikill fjöldi fólks
notaði tækifærið og kældi sig nið-
ur í sundlaugum og vötnum í hlý-
indunum sem verið hafa að und-
anförnu. Nýliðinn júlímánuður
var sá heitasti í Svíþjóð síðan
1994, en það ár drukknuðu 50
manns í júlímánuði.
„Sumarið hefur verið ein-
staklega heitt og það hefur leitt
til þess að fólk syndir mun meira
en það myndi gera að öllu jöfnu,“
sagði Göran Ulsson, talsmaður
samtaka sænskra sundbjörg-
unarvarða. Að hans sögn hafa
Svíar litla þekkingu á vötnum og
hættunum sem felast í þeim,
þrátt fyrir að hafa aðgang að
langri strandlengju og þúsundum
vatna.
„Fólk ber ekki næga virðingu
fyrir vatni. Það er ekki vart um
sig og tekur ekki eftir umhverfi
sínu,“ sagði Ulsson, og bætti því
svo við að sú ákvörðun að fella
niður almenna sundkennslu í
skólum á áttunda áratugnum
kynni að vera orsakavaldur í
þessu samhengi.
47 Svíar drukkn-
uðu í hita-
bylgjunni í júlí
UM FIMMTUNGUR breskra barna
sér sjávarsíðuna í fyrsta skipti á
ævinni í ferðalögum erlendis, ef
marka má
nýja könnun á
tómstundum
barna í Bret-
landi. Þar
kemur einnig
fram að þrjú
prósent barna
hafa aldrei
komið á
strönd, þrátt
fyrir þá vel
þekktu stað-
reynd að Bret-
land sé eyja sem löngum drottnaði
yfir siglingum á heimshöfunum.
Börn í breskum Miðlöndunum
voru líklegust til að hafa aldrei séð
ströndina, eða 10 prósent barna
frá þessu svæði sem tóku þátt í
könnunni, að því er fram kemur í
frétt breska blaðsins Daily Star.
Meiri athygli rannsakenda vakti sú
niðurstaða að um fjórðungur, eða
23 prósent, barna frá þessu svæði
sá strönd í fyrsta sinn í sumarfríi
erlendis.
Könnunin var framkvæmd fyrir
barnasjónvarpsstöðina Toonami,
en í henni kemur jafnframt fram
að átta af hverjum tíu börnum
kjósa hreyfingu og leiki í stað
kyrrsetu þegar þau eru á ferðalög-
um.
Bretar sjá
ströndina fyrst
í útlöndum
Lundúnir. AFP. | Bresk stjórnvöld
opnuðu í gær heimasíðu þar sem
almenningur getur fylgst með því
hvert viðbúnaðarstig gegn hryðju-
verkum í landinu er á hverjum
tíma. Þar kemur fram hversu
mikla hættu sérfræðingar leyni-
þjónustunnar telja vera á hryðju-
verkaárás.
Yfirvöld hafa sagt að hættan
hafi verið „afar mikil“ síðan í
ágúst í fyrra en það er hæsta stig-
ið af fimm. Hins vegar var hættan
sögð „alvarleg“ á síðunni í gær,
sem er næsthæsta stigið og þýðir
að mikil hætta er á árás. Hin stig-
in þrjú eru „talsverð“ hætta
„nokkur“ og „lítil“.
Ákveðið var að opna síðuna,
www.intelligence.gov.uk, eftir að
stjórnarandstaðan krafðist meira
gegnsæis í upplýsingunum sem al-
menningur fær um hættuna af
hryðjuverkum. Hættustigin voru
áður sjö en hefur verið fækkað í
fimm.
Birta viðbúnaðar-
stig á heimasíðu
Tókýó. AFP. | Japanskir feður, sem
yfirleitt vinna afar langan vinnu-
dag, eru argir yfir því hversu lítinn
tíma þeir hafa til að vera með börn-
um sínum en að meðaltali eyða þeir
3,1 klukkustund með börnunum sín-
um á dag, samkvæmt nýrri könnun.
Í rannsókninni sem gerð var í
sex löndum, kom í ljós að suður-
kóreskir feður eyða enn styttri tíma
með börnum sínum eða 2,8 klukku-
stundum. Franskir feður eyða 3,8
stundum með börnum sínum,
sænskir og bandarískir 4,8 og taí-
lenskir 5,9.
Vinnuvikan lengst í
Japan en styst í Svíþjóð
Japönsk ríkisstofnun sem vinnur
að menntun kvenna fékk stofnanir í
löndunum sex til að gera könnunina
fyrir sig, en eitt þúsund manns
tóku þátt í hverju landi. 41,3% jap-
önsku feðranna sögðust hafa
áhyggjur af því hversu litlum tíma
þeir eyddu með börnum sínum en
27,6% aðspurðra sögðu þetta í svip-
aðri könnun sem gerð var árið
1994.
Í Suður-Kóreu sögðust 49% feðra
hafa slíkar áhyggjur, 45% í Svíþjóð,
37% í Bandaríkjunum, 37% í
Frakklandi og 18% í Taílandi.
Japanskir feður vinna mest af
þjóðunum sex eða 48,9 stundir á
viku en sænskir feður eiga stystu
vinnuvikuna, vinna 37,7 stundir að
meðaltali.
AP
Feður í ýmsum löndum telja sig ekki fá nógan tíma með börnum sínum.
Vilja meiri tíma með börnum sínum
Teheran. AFP. | Mahmoud Ahmadine-
jad, forseti Írans, lýsti því yfir í gær
að stjórn sín myndi ekki beygja sig
undir „tungumál
hótana og ofbeld-
is“, eftir að ör-
yggisráð Samein-
uðu þjóðanna
samþykkti á
mánudag ályktun
þar sem Íranar fá
frest til 31. ágúst
til að hætta auðg-
un á úrani, elleg-
ar kunni þeir að
eiga refsiaðgerðir yfir höfði sér.
„Íranar telja það sinn rétt að fá að
þróa kjarnorkutækni í friðsömum
tilgangi,“ sagði Ahmadinejad á úti-
fundi í bænum Bojnurd í norðaust-
urhluta landsins í gær. „Ef einhverj-
ir telja sig geta rætt við okkur á
tungumáli hótana og ofbeldis eru það
slæm mistök. Ef þeir skilja það ekki
núna gera þeir það síðar.“
Gholam-Ali, forseti íranska þings-
ins, gekk lengra í gær og sagði álykt-
un öryggisráðsins afar óæskilegt
skref í deilunni um kjarnorkuáætlun
landsins. „Á meðan öryggisráðið
þorir ekki að fordæma fjöldamorð
[Ísraelshers] í Qana í Suður Líbanon
[...] telur það sér stafa ógn af kjarn-
orkuáætlun Írana og samþykkir
ályktun sem er einskis virði í augum
almennings,“ sagði Gholam-Ali.
Svöruðu ekki tilboði
Ályktun öryggisráðsins var lögð
fram eftir að Íranar svöruðu ekki til-
boði fimm fastafulltrúa öryggisráðs-
ins auk Þýskalands, sem samþykkt
var í Vínarborg í júní, þar sem þeim
var boðin ýmiss konar aðstoð gegn
því að hætta auðgun á úrani.
Ályktunin, sem var númer 1696,
var hófsöm og í henni var ekki kveðið
á um tafarlausa hótun um refsiað-
gerðir á hendur Írönum, eftir að
Kínverjar og Rússar lýstu sig mót-
fallna slíkum aðgerðum.
Mahmoud
Ahmadinejad
Íranar gefa lítið fyrir ályktun öryggisráðsins
Segja frest einskis virði
BANDARÍSKIR vísindamenn
hafa þróað bóluefni sem kemur í
veg fyrir að rottur fitni, en talið
er að það gæti nýst í baráttunni
við offitu hjá mönnum. Bóluefn-
ið lætur líkamann mynda mót-
efni gegn hormóninu ghrelin en
það eykur hungurtilfinningu.
Vísindamenn við Scripps-
rannsóknarmiðstöðina í Kali-
forníu þróuðu þrjú mismunandi
bóluefni sem virka á mismun-
andi hluta ghrelins. Þegar þeim
var sprautað í rottur kom í ljós
að tvö þeirra bundust við virka
hluta ghrelins og hindruðu áhrif
þess. Rotturnar sem fengu bólu-
efnið þyngdust og fitnuðu minna
en rottur í samanburðarhópi
sem fengu sama mat og drykk
og var munurinn rakinn til bólu-
efnisins.
Vísindamennirnir segja þetta
gefa vísbendingu um að bóluefn-
ið hafi áhrif á efnaskipti dýr-
anna. Þeir telja niðurstöðurnar
sýna að með slíkri bólusetningu
kunni að vera hægt að stjórna
þyngdaraukningu og fitusöfnun
hjá spendýrum. Segja þeir
markmiðið vera að þróa bóluefni
sem getur stuðlað að fitutapi hjá
mönnum.
Óttast aukaverkanir
Stephen Bloom, prófessor við
Imperial College í Lundúnum
og sérfræðingur í rannsóknum á
offitu, segir að lyfjafyrirtæki
hafi lengi reynt að finna leiðir til
að minnka virkni ghrelins en að
það hafi ekki tekist hingað til.
Líklegt sé þó að bóluefnið hafi
hættulegar aukaverkanir en að
ef til vill sé hægt að finna leiðir
til að vinna gegn virkni horm-
ónsins á öruggan hátt og því séu
niðurstöðurnar mikilvægar.
Bóluefni
gegn offitu