Morgunblaðið - 02.08.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 17
MINNSTAÐUR
-láttu það eftir þér
Nýbýlavegur 2 . 200 Kópavogur . Ísland . Sími: 570 5340
Fax: 570 5341 . yamaha@yamaha.is . www.yamaha.is
YZ 85 LW TTR 125 Midnight Star 1900Drag Star 1100
Listaverð kr. 439.000
Tilboðsverð kr. 389.000
Listaverð kr. 535.000
Tilboðsverð kr. 465.000
Listaverð kr. 1.990.000
Tilboðsverð kr. 1.849.000
Listaverð kr. 1.359.000
Tilboðsverð kr. 1.259.000
Tilboðsverðin gilda til 10. ágúst eða á meðan birgðir endast!
Nú er tækifærið!
Láttu drauminn rætast
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
Útsala - Útsala
50% AFSLÁTTUR
AKUREYRI
„ÞVÍ fleiri sem nýta munu sér þjón-
ustu menningarhússins, þeim mun
meiri verður arðurinn af fjárfesting-
unni – sá arður felst í auknum lífs-
gæðum íbúanna,“ sagði Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri,
við athöfn síðdegis í gær, en þá var
fyrsta skóflustungan tekin að nýju
menningarhúsi á Akureyri, húsi sem
reist verður í hjarta bæjarins, á upp-
fyllingu norðan Torfunefsbryggju.
Skrifað var undir verksamning við
Ístak, fyrsta skóflustungan tekin
með stæl og þá má segja að verkið sé
formlega hafið.
Þetta verkefni á sér nokkra sögu.
Ríkisstjórn tilkynnti fyrir rúmum 7
árum, í janúar árið 1999, að hún
myndi stuðla að byggingu menning-
arhúsa í öllum fjórðungum landsins
og gat bæjarstjóri þess í ávarpi sínu
að bæjarstjórn Akureyrar hefði þá
þegar sett af stað vinnu við verk-
efnið og kallað eftir samstarfi við
ríkið. Það var hins vegar ekki fyrr en
í febrúar árið 2003 sem samningar
tókust um fjármögnun bygging-
arinnar en í þeim samningi er miðað
við aðrar tölur en nú eru uppi á
borði. Verkið hefur á þeim tíma sem
liðinn er vaxið að umfangi, einkum
að sögn Kristjáns Þórs vegna þess
að bæjarstjórn ákvað að tónlist-
arskóli bæjarfélagsins skyldi vera í
húsinu, og að kennslurými hans yrði
á annarri og þriðju hæð þess. Hag-
kvæmt var talið að samnýta hús-
næðið með annarri starfsemi, t.d.
tónleikahaldi á vegum Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands.
Byggingin er rúmir 7400 fermetr-
ar að stærð og áætlaður kostnaður
um 2,1 milljarður króna, þar af um
450 milljónir vegna tónlistarskólans.
Stefnt er að því að húsið verði tilbúið
til notkunar fyrri hluta ársins 2008.
Menningarhúsið er að formi hringur
og í gegnum hann liðast svonefnt
fljót, sem skiptir húsinu í tvennt. Að-
alsalur verður að austan, fjölnotasal-
ur og upplýsingamiðstöð ferða-
manna að vestan. Í aðalsal
byggingarinnar rúmast um 500
manns í sæti, hann verður nýttur til
tónlistarflutnings, leiklistin mun fá
þar sitt pláss og einnig verða þar
haldnar ráðstefnur. Minni salurinn,
220 manna, verður einkum notaður í
tengslum við starfsemi tónlistarskól-
ans.
Menningarhúsið verður
andans orkuver
„Þessi misseri er mikið rætt um
virkjanir og verklegar stór-
framkvæmdir á Íslandi. Ég lít svo á
að Menningarhúsið á Akureyri verði
andans orkuver, líkt og Amts-
bókasafnið og fleiri menningarstofn-
anir okkar hafa sýnt og sannað.
Þetta eru orkuver sem gera hið
besta úr þeim mannauði sem í sam-
félaginu býr – auka lífsgæðin,
styrkja lýðræðið, efla andann, bæta
frítímann og starfa því í kraftmikl-
um samhljómi við kjörorð bæjarins;
Akureyri, öll lífsins gæði. Það er því
óhjákvæmilegt, ljúft og skylt og
sjálfsagt að Akureyrarbær festi um-
talsverða fjármuni í þeirri byggingu
sem hér á að rísa,“ sagði Kristján
Þór.
Hús eru minnisvarði
um sögu þjóðarinnar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði mik-
ilvægt þegar ákvarðanir væru tekn-
ar um byggingu húsa að vel tækist
til með undirbúning, „húsin sem rísa
eru ákveðinn minnisvarði um sögu
þjóðarinnar.“ Undirbúningur vegna
byggingar menningarhúss á Ak-
ureyri hefði vissulega tekið langan
tíma, en vel hefði verið vandað til
hans. Húsið yrði mikil lyftistöng fyr-
ir allt menningar- og mannlíf í bæn-
um og nágrannabyggðum. „Það
verður líka mikilvægt fyrir menn-
ingarstarfsemi á landinu öllu,“ sagði
menntamálaráðherra, en húsið yrði
eitt fullkomnasta tónleikahús lands-
ins. Nefndi ráðherra að bærinn skip-
aði sér nú í fremstu röð með því að
tengja starfsemi tónlistarskóla bæj-
arins við starfsemi menningarhúss-
ins, það væri afar góð og skyn-
samleg ráðstöfun.
„Það er okkar einlæga trú,“ sagði
Sigurður Hallgrímsson, arkitekt
hússins, „að menningarhús á Ak-
ureyri eigi eftir að styrkja og efla
annars blómlegt tónlistar- og menn-
ingarlíf, sem og bæjarlífið.“
Því fleiri sem nýta menningarhúsið því meiri verður arðurinn
Arðurinn felst í auknum
lífsgæðum íbúanna
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Skrifað undir Við athöfnina var skrifað undir verksamning við ÍSTAK, frá vinstri eru Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, Loftur Árnason, forstjóri ÍSTAKS, og
Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður menningarmálanefndar.
Ég var á undan Látbragðsleikarinn Kristján Ingimarsson færði nafna
sínum Júlíussyni skófluna með miklum tilþrifum. Hann sá sér svo leik á
borði á meðan bæjarstjórinn var að hafa sig til og tók sjálfur fyrstu skóflu-
stunguna að menningarhúsinu á Akureyri.
Á öllum aldri Margir lögðu leið sína niður á uppfyllinguna sunnan Strand-
götu og fylgdust þar með þegar framkvæmdir hófust með táknrænum
hætti við byggingu langþráðs menningarhúss á Akureyri.