Morgunblaðið - 02.08.2006, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hlíðahverfi | Hópur ungmenna við
Vinnuskóla Reykjavíkur sem í vor út-
skrifaðist úr Austurbæjarskóla hefur
í sumar unnið að því að skilgreina
heilbrigt líferni og forvarnir. Afrakst-
ur þeirrar vinnu er sýning sem nú
stendur yfir í þjónustuskála Þjón-
ustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða.
Unglingahópurinn var fenginn til
að rýna í forvarnastefnu Reykjavík-
urborgar og velja það sem þeim þótti
áhugaverðast hverju sinni og líklegt
til að bera árangur í baráttunni gegn
vímuefnanotkun ungs fólks. Sýningin
tók á sig ýmsar myndir og mátti þar
m.a. sjá ljósmyndir, úrklippumyndir,
viðtalsmyndband og listaverk unnið
úr sígarettustubbum.
Blaðamaður náði tali af nokkrum
ungmennum úr hópnum og innti þau
eftir því að hverju þau hefðu komist í
forvarnavinnunni. Voru þau sammála
um að öflugasta forvörnin væri að
hafa eitthvað fyrir stafni, s.s. stunda
íþróttir eða læra á hljóðfæri auk þess
sem hlutverki foreldra mætti ekki
gleyma í baráttunni gegn vímuefna-
vandanum. Að sögn unga fólksins var
verkefnið mjög skemmtilegt og gef-
andi og töldu þau sig hafa lært heil-
mikið af því. Öll sögðust þau hafa sín
áhugamál og vera í góðu sambandi við
foreldra sína og þau voru ekki í
nokkrum vafa um að það mundi
hjálpa þeim að halda sig frá vímugjöf-
um. Þá hafi verkefnið verið mun
skemmtilegra en að tína arfa við Hall-
grímskirkju en þeirri vinnu þurftu
þau að sinna áður en forvarnastarfið
tók við.
Hópur ungs fólks í Vinnuskóla Reykjavíkur vann í sumar að áhugaverðu forvarnaverkefni
Tómstundastarf
minnkar
vímuefnaneyslu Morgunblaðið/Eggert
Hópurinn Hluti hópsins ásamt leiðbeinendum og skólastjóra Vinnuskólans, Guðrúnu Þórsdóttur, lengst til vinstri.
Auglýsingar Þorbjörg bendir sýningargestum á það hvaða auglýsingar
vöktu athygli hópsins. Í bakgrunninum standa þær Rósa og Priyaphon.
Njarðvík | „Sennilega eru það fínu
kjólarnir með tutu-pilsunum sem
standa út í loftið sem vekja áhuga
stelpna á ballett og þannig var
það hjá mér til að byrja með. Svo
þegar ég komst að því hvað þetta
var gaman hætti ég að hugsa um
kjólana og fór meira að horfa á
tígulegar hreyfingar. Á þeim 11
árum sem ég hef verið í ballett
hef ég aldrei dansað í tutu-
ballettkjól,“ sagði Fjóla Oddgeirs-
dóttir í samtali við Morgunblaðið
en þessi unga Njarðvíkurmær er
að fara til Stokkhólms þar sem
hún mun leggja stund á nám í
Konunglega sænska ballettskól-
anum.
Það hefur ekki verið auðhlaupið
fyrir Fjólu Oddgeirsdóttur að
stunda ballettnám. Engin ball-
ettkennsla er í bænum svo aka
verður eftir náminu til höfuðborg-
arsvæðisins. Á síðustu árum hefur
Fjóla sótt tíma 5 til 6 sinnum í
viku í Listdansskóla Íslands og
auk þess að aka brautina fram og
til baka hefur viðvera í skólanum
oft verið löng. Hvorki Fjóla né
fjölskylda hennar hafa miklað
þetta fyrir sér enda segir móðir
Fjólu að fjölskyldan hafi hjálpast
að við þetta. Sjálf hefur Fjóla not-
að tímann í bílnum til þess að
læra enda hefur það oft reynst
eini lausi tíminn yfir daginn.
Það var heldur aldrei efi í huga
Fjólu um að ballett vildi hún læra.
Hún var 4 ára þegar hún talaði
um að hún vildi læra ballett. Þá
var henni leyft að prófa djassball-
ett af því að hann var kenndur hér
og hún fann fljótt að hann átti
ekki við hana. Þá prófaði hún fim-
leika en vildi ekki fara aftur eftir
fyrsta tímann, fannst þetta enda-
laus bið í röðum.
Haustið sem Fjóla varð 5 ára
hóf hún síðan nám við Ballettskóla
Guðbjargar Arnardóttur í Hafn-
arfirði. Fjóla ljómaði þegar hún
kom út úr fyrsta tímanum og
sagði að „þetta væri sko ballett og
hér ætlaði hún að vera“.
Fjóla hóf síðan nám við List-
dansskóla Íslands þegar hún var 9
ára og kláraði fyrsta árið í fram-
haldsdeildinni sl. vor.
Fjóla viðurkenndi að sennilega
hefðu það verið fínu kjólarnir sem
hefðu vakið áhugann í upphafi en
hún hefði hins vegar komist fljótt
að raun um að ballettinn ætti vel
við hana. Hún uppljóstraði því að
á 11 ára námstímabili hefði hún
aldrei dansað í fínustu ballettkjól-
unum með pilsin út í loftið. „Ég
hef mátað svoleiðis kjól, en aldrei
dansað í honum opinberlega. Á
sýningum Listdansskólans hefur
hist þannig á að ég hef verið í
dansverkum sem eru ekki með
slíkum kjólum.“
Spennt að hefja
ballettnámið í Stokkhólmi
Það kann að breytast með ball-
ettkjólana því á næstu dögum
heldur Fjóla til Stokkhólms til
náms í Konunglega sænska ball-
ettskólanum, sem er menntaskóli,
sérstaklega ætlaður ballettnemum.
Skólinn hefst um miðjan ágúst og
hefur Fjóla notað sumarið til að
æfa sænskuna. Námið er nokkuð
strangt og dagarnir langir en
Fjóla sagðist ekki vera óvön því.
„Ég er vön löngum dögum og stífu
námi. Ég hef yfirleitt farið strax
eftir skóla í Listdansskólann og
verið þar fram á kvöld. Ferðina
fram og til baka hef ég notað til
að læra, enda oft eini tíminn sem
ég hef. Auðvitað verður skrítið að
fara frá fjölskyldunni og ég er
smávegis stressuð en mest spennt
að fara,“ sagði Fjóla.
Hún mun leigja herbergi hjá
kennara í skólanum þar sem engin
heimavist er fyrir mennta-
skólanema í Stokkhólmi. Þegar
hún var spurð um framtíðina í
hörðum ballettheimi sagðist hún
ekkert vera að hugsa um það
núna. „Auðvitað veit ég ekkert
hvernig þetta endar. Ég ætla að
taka eitt ár í einu. Á þriðja og síð-
asta árinu fara nemendur í inn-
tökupróf hjá balletthópum og/eða
háskólum sem ráða miklu um
framtíðina. Ef þetta gengur ekki
upp ætla ég að mennta mig meira
í náttúrufræði og fara svo í dýra-
lækningar. Það hef ég alltaf hugs-
að mér,“ sagði Fjóla og bætti við
að ballerínur væru sjaldnast leng-
ur að en til 30 ára aldurs.
– Hefurðu getað átt einhver
áhugamál með þessu eða ræktað
vinskap?
„Já, já, það hef ég alveg getað,“
sagði Fjóla. „Ég er mikill lestr-
arhestur, les og les. Ég var líka í
tónlistarskóla í 8 ár að læra á
harmonikku. Ég hætti því bara
um síðustu áramót. Mér finnst
líka mjög gaman að teikna og
myndlistarkennarinn minn í
Njarðvíkurskóla, hann Eric, hefur
verið að hjálpa mér mikið með
það. Svo reyni ég að hitta vini
mína þegar ég get, þó það sé mest
á skólatíma og á sunnudögum. Ég
hef líka notað MSN-ið til að vera í
sambandi við þá og mun halda því
áfram. Ég á líka góða vini í ball-
ettinum sem verða áfram í List-
dansskólanum og ég ætla að halda
áfram að vera í sambandi við þá
krakka,“ sagði Fjóla Oddgeirs-
dóttir sem á vafalaust eftir að
dansa fyrir íslensku þjóðina í fín-
um kjól áður en langt um líður.
Ung Njarðvíkurmær er að hefja nám í Konunglega sænska ballettskólanum í Stokkhólmi
Vissi strax
hvað hún vildi
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ballettinn alltaf heillað Fjóla Oddgeirsdóttir úr Njarðvík heldur senn til náms í Konunglega sænska ballettskól-
ann í Stokkhólmi en hún hefur stundað ballettnám frá fimm ára aldri. Hér er Fjóla heima í stofu.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur