Morgunblaðið - 02.08.2006, Page 25

Morgunblaðið - 02.08.2006, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 25 UMRÆÐAN -o rð sku lu stan d a! 569 7200 www.isprent.is Gæðin komin á prent Glæsilegur blaðauki um skóla og námskeið á Íslandi fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 18. ágúst. Meðal efnis er háskólanám, endurmenntun, símenntun, tómstundanámskeið, tölvunám, framhaldsskólanám, tónlistarnám, skólavörur og margt fleira. Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 15. ágúst. Allar upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is „Í skólanum í skólanum er skemmtilegt að vera...“ ilvægt að allir hlutaðeigandi aðilar komi að því máli. Sáttaumleitan (re- storative justice) hefur verið í um- ræðunni og bind ég vonir við að sú aðferð verði notuð í framtíðinni. Það er alveg óskiljanlegt hvernig stjórn- völd geta staðið fyrir því að loka eða takmarka starfsemi barna- og ung- lingageðdeildar yfir sumarið. Hvaða heilvita manni dettur í hug að hægt sé að loka á sjúkdóm yfir sum- armánuðina? Enn liggja ekki fyrir lausnir um hvernig best sé að taka á vanda- málum barna sem eru í sérstakri áhættu. Þau flosna úr skóla, fá jafn- vel ekki vinnu, þau eru erfið og eiga við líkamlega, andlega eða fé- lagslega erfiðleika að stríða. Fáir ef nokkur veit hvernig taka skal á vanda þessara einstaklinga. Því þegar upp er staðið byggist árang- urinn fyrst og fremst á vilja ein- staklingsins til að breyta eigin lífi. Kröfur eru um árangur og sparnað. Einstaklingsmeðferð er dýr og því er hagkvæmast að hópa þeim sam- an sem gerir það að verkum að meiri líkur eru á því að þau sem skár eru stödd leiðist út í meiri vandræði en ella. Aðgerðir í forvarnamálum hafa m.a. beinst að því að benda for- eldrum á að halda útivistartímann og er það vel. Ég vil þó benda á að það er ekki svo langt síðan að fé- lagsmiðstöðvar voru opnar til kl. 23 á kvöldin, mér sem foreldri til mik- illar mæðu. Það er mat mitt að forvarnir eru mikilvægar en frekari rannsókna er þörf á sviðinu. Það skiptir máli hvaða forvörnum er beitt, hvernig, hvar og í hvaða tilgangi. Það þarf að fræða þá sem sinna forvörnum, það þarf að velja verkefni við hæfi, það þarf að kanna árangurinn og það þarf að endurmeta forvarnir reglu- lega. Það mætti fræða foreldra fyrr þannig að þeir geti brugðist við vandanum. Lífsleiknikennsla hér á landi hefur verið að þróast og er óskandi að sem flestir skólar komi til með að nýta þann tíma til kennslu í þeim fræðum sem náms- greinin vísar til. Það bendir margt til þess að fíkniefni séu einum of aðgengileg hér á landi. Við foreldrar þurfum að vera okkur meðvitandi um þá stöðu og vera á varðbergi eins og Njörð- ur, Alma og Auður (sjá grein 1. júní sl. í Morgunblaðinu) benda á. Ég vil trúa því að hægt sé að leysa þennan vanda, en það á örugglega eftir að kosta tíma, fé og fyrirhöfn. Höfundur er félags- og menntunarfræðingur. Sagt var: Jón og Geir erfðu sitthvort húsið og sinnhvorn bílinn. RÉTT VÆRI: Jón og Geir erfðu sitt húsið og sinn bílinn hvor. Gætum tungunnar ÉG RAUK til á dögunum og fjár- festi í nýútkominni bók eftir Pál Ás- geir Ásgeirsson sem heitir því aðlað- andi nafni „Bíll og bakpoki“. Ég hélt að bók með slíkum titli væri einmitt eins og sérsniðin fyrir mig og mína fjölskyldu sem höfum gaman af bíl- túrum, útilegum og gönguferðum. Bókin er reyndar öll hin skemmtileg- asta og vissulega meðmælaverð, vel unnin og skrifuð og segir frá hinum áhugaverðustu göngu- leiðum, en eitt er þó víst: bíllinn í titlinum er ekki minn litli Renault Megane, jafn mikill kostagripur og hann þó er. Það er því ekki al- veg laust við að ég sé pínulítið vonsvikinn og nokkuð vondaufur um að ég komist á næst- unni í þessar ágætu gönguferðir sem þar er lýst. Ekki ætla ég þó að erfa það við bókarhöf- und, heldur við hið al- ræmda íslenska vegakerfi og ein- kennilega tregðu ferðamálafrömuða til að þrýsta á um úrbætur í þeim efn- um. Er það virkilega réttlætanlegt að hálendi Íslands og aðrar óbyggðir séu einkaleikvöllur jeppadellukarla og annarra eigenda stórvirkra vinnu- véla eða leiktækja? Þegar skipulagsmál óbyggða ber á góma heyrast gjarnan raddir sem tala fögrum orðum um öræfakyrrð og hversu gáttaðir erlendir ferðamenn, uppaldir í stórborgagný, eru á víð- áttum Íslands að hægt sé að ganga dögum saman án þess að rekast á aðra lifandi sálu. Þetta dreg ég ekki í efa, en ég velti þó fyrir mér hvort það sé virkilega nauðsynlegt að taka frá svæði upp á tugi þúsunda ferkíló- metra til að geta boðið upp á slíkt? Skyldi ekki vera hægt að gera þetta einhvern veginn öðruvísi? Í Texasríki Bandaríkjanna, rétt við landamærin að Mexíkó, er þjóðgarð- urinn Stórisveigur, eða „Big Bend National Park“ og dregur hann nafn sitt af miklum sveig sem Miklafljót, Rio Grande, tekur þar á sig á leið sinni til Mexíkóflóans. Þjóðgarðurinn er rúmir 3.200 ferkílómetrar að stærð, eða allnokkru minni en Skaftafellsþjóðgarður eftir stækk- unina 2004 (sem að vísu er að mestu hulinn ís og því ekki að fullu sam- bærilegur). Um 300.000 gestir heim- sækja garðinn á ári hverju. Nú skyldi maður ætla, ef trúa má áróðri hálend- isferðafrömuða, að ferðamennirnir sem sækja þennan stað heim troði hverjum öðrum um tær, að hvarvetna séu mannvirki af hinum ýmsu gerð- um sem stingi í augun og „eyðileggi“ náttúruna, að engan veginn sé hægt að njóta náttúrunnar í friði og ein- semd á svo „smáu“ svæði. En, það er öðru nær eins og þeir sem þangað hafa komið geta vitnað um. Með góðu skipulagi og skilvirku eftirliti er séð til þess að hinar ýmsu gerðir ferðamanna geti notið garðsins hver á sinn hátt. Fyrir nokkrum árum lögðum við hjónin leið okkar í Stórasveig. Þetta var um þakk- argjörðarhátíð þeirra Bandaríkjamanna, ein- hverja mestu ferðahelgi ársins, enda urðum við að panta pláss í garð- inum með löngum fyr- irvara. Þarna er nefnilega ekki farin hin íslenska leið að bóka fyrst og redda svo. Allt er þaulskipulagt og eingöngu er tekið á móti ákveðnum fjölda ferðamanna af hverri sort. Hægt er að panta pláss á almennu tjaldsvæði líkt og við þekkjum frá ís- lenskum ferðamannastöðum, og er það ódýrast. Annar kostur eru sér- stök frátekin svæði þar sem gestir fá úthlutað sínu eigin skýrt afmörkuðu svæði til að tjalda á og þarf að ganga um nokkurn veg til að nálgast þau. Þriðji möguleikinn er að kaupa óbyggðapassa sem færir manni leyfi til að tjalda hvar sem er utan sjónlínu frá merktum gönguleiðum. Við hjón- in nýttum okkur tvo síðastnefndu kostina. Fyrri nótt okkar í garðinum feng- um við úthlutað okkar einkasvæði í suðurhlíðum Chisosfjallanna og átt- um þar einkar ánægjulegan tíma í friði og ró í fallegu umhverfi. Síðari nóttina nýttum við óbyggðapassann okkar. Við gengum allnokkurn spöl að Asnaeyrunum – vel þekktu kenni- leiti í garðinum, tjölduðum síðan í auðninni og gengum til baka daginn eftir. Ég man það greinilega að við sáum hvorki né heyrðum nokkurn einasta kjaft á þessari gönguför okk- ar, þrátt fyrir að vera á þvælingi í kringum eitt þekktasta kennileiti garðsins á háannatíma. Átroðning- urinn var nú ekki meiri en svo. Aðstæður í Stórasveigi minna um margt á hinar margumtöluðu „sér- íslensku aðstæður“, sem eru kannski ekki svo séríslenskar þegar að er gáð. Lífríkið er viðkvæmt, enda er hér nánast um eyðimörk að ræða. Veð- urfarið er óblítt. Miklir hitar gera það að verkum að nánast er ólíft þar yfir sumarmánuðina. Samt sem áður er garðurinn opinn og full þjónusta veitt árið um kring og samanstendur sum- artraffíkin aðallega af ævintýra- ferðamönnum sem vilja láta reyna á þolrifin. Það kostar auðvitað sitt að halda úti góðum þjóðgarði. Rekstur Stóra- sveigs árið 2003 nam liðlega 10 millj- ónum dollara, eða á áttunda hundrað milljóna íslenskra króna. Þar af dekkuðu tekjur garðsins aðeins um 10%. Afgangurinn er að langmestu leyti á fjárlögum frá bandarísku al- ríkisstjórninni. Það er víst ekki leng- ur móðins að éta allt upp eftir Kan- anum, en kannski er þó, í ljósi þeirrar löngu reynslu sem Kaninn hefur í að skipuleggja og reka þjóðgarða, óvit- laust að huga að því sem hann gerir í Stórasveigi og vita hvort ekki megi draga þar einhvern lærdóm af. Öræfakyrrðin í Texas Oddur Þ. Vilhelmsson fjallar um hálendið og ferðamennsku ’Er það virkilega rétt-lætanlegt að hálendi Ís- lands og aðrar óbyggðir séu einkaleikvöllur jeppa- dellukarla og annarra eigenda stórvirkra vinnu- véla eða leiktækja?‘ Oddur Þ. Vilhelmsson Höfundur er dósent við Háskólann á Akureyri og áhugamaður um ferðamál. SANDUR MÖL FYLLINGAREFNI WWW.BJORGUN.IS Sævarhöfða 33, 112 Reykjavík, sími 577 2000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.