Morgunblaðið - 02.08.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 41
DAGBÓK
Samtök norrænna lífeðlisfræðinga haldaárlega ráðstefnu sína dagana 11.–13.ágúst. Ráðstefnan er haldin í HáskólaÍslands að þessu sinni en samtökin
halda ráðstefnuna til skiptis á Norðurlöndunum,
og einnig í öðrum löndum Evrópu. Síðast var
ráðstefna samtakanna haldin hér á landi árið
1982.
Þór Eysteinsson er formaður undirbúnings-
nefndar ráðstefnunnar: „Á fundinum verður
fjallað um hin ýmsu svið fræðigreinarinnar. Líf-
eðlisfræði eru grundvallarfræði í líf- og læknavís-
indum og fjallar um starfsemi vefja, áhrif um-
hverfis og lyfja á vefi og frumur,“ útskýrir Þór.
„Auk fjölda fyrirlestra verða kynningar, umræð-
ur og veggspjöld og verða í heildina um 160 er-
indi á dagskrá ráðstefnunnar.“
Á ráðstefnunni verður nokkur áhersla lögð á
starfsemi hjarta, vöðva og blóðrásar og áhrif
þjálfunar, en eins og fyrr segir verða fyrirlestrar
og kynningar af mjög fjölbreyttum toga: „Má þar
nefna erindi um skynjun fiska, starfsemi tauga-
kerfisins og áhrif kulda og hita í umhverfi á jórt-
urdýr. Sum erindi fara inn á svið erfðafræði og
verður t.d. fjallað um áhrif erfða á starfsemi
vefja, og rannsókna sem unnar hafa verið á því
sviði á erfðabreyttum dýrum,“ segir Þór.
Stærstur hluti þátttakenda á ráðstefnunni
kemur frá Norðurlöndunum en einnig koma til
ráðstefnunnar fræðimenn frá Evrópu og Banda-
ríkjunum: „Norðurlöndin hafa verið mjög sterk í
rannsóknum á sviði lífeðlisfræði allt frá 19. öld og
er ráðstefnunni sérstaklega ætlað að kynna þær
uppgötvanir sem gerðar hafa verið á Norð-
urlöndunum á þessu sviði.“ Þór segir fjölda ís-
lenskra fræðimanna flytja erindi á ráðstefnunni:
„Fyrstan má nefna Guðmund Þorgeirsson, pró-
fessor í hjartalækningum, sem flytur stóran fyr-
irlestur um starfsemi þekjuvefja. Til ráðstefn-
unnar koma margir íslenskir fræðimenn sem alla
jafna starfa erlendis, s.s. Björn Þrándur Björns-
son, prófessor í Gautaborg, og Ragnhildur Kára-
dóttir við University College í Lundúnum.“
Samtök norrænna lífeðlisfræðinga voru stofn-
uð 1925 og eru félag fræðimanna á sviði lífeðl-
isfræði og skyldra vísinda. Samtökin eru aðili að
Evrópusamtökum lífeðlisfræðinga og eru mark-
mið starfsins m.a. að stuðla að aukinni þekkingu
á þessu fræðasviði, efla rannsóknir og samskipti
milli fræðimanna og miðla upplýsingum til náms-
manna og almennings. „Stór hluti starfsemi fé-
lagsins er fundarhöld og ráðstefnur en einnig
gefa samtökin út fagtímaritið Acta Physiologica
og verða ágrip af erindunum sem flutt verða á
ráðstefnunni birt í því riti,“ segir Þór.
Á heimasíðunni www.congress.is/sps2006 má
lesa nánar um dagskrá ráðstefnunnar og skipu-
lag. Enn er hægt að skrá þátttöku en ráðstefnan
er opin fag- og fræðimönnum á sviði lífeðlisfræði.
Vísindi | Samtök norrænna lífeðlisfræðinga halda ráðstefnu í Háskóla Íslands 11.–13. ágúst
Uppgötvanir lífeðlisfræðinnar
Þór Eysteinsson fædd-
ist í Reykjavík 1955.
Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við
Sund 1976, BA prófi í
Sálfræði frá Háskóla Ís-
lands 1981 og dokt-
orsprófi í lífeðlisfræði frá
City University of New
York 1987. Þór starfaði
við rannsóknir í tvö ár vði
University of London en
var árið 1990 skipaður dósent í lífeðlisfræði við
Háskóla Íslands og hefur starfað þar síðan. Þór
er varaforseti Vísindafélags Íslendinga, situr í
Vísindanefnd læknadeildar HÍ, í stjórn Norræna
lífeðlisfræðifélagsins og í fagráði Rannís um
heilbrigðis- og lífvísindi.
Norður
♠ÁK98
♥K72
♦ÁDG
♣G63
Vestur Austur
♠6542 ♠D103
♥DG96 ♥8
♦53 ♦K87642
♣ÁD5 ♣974
Suður
♠G7
♥Á10543
♦109
♣K1082
Suður spilar fjögur hjörtu og fær út
spaða.
Trompið liggur í hel, ÁD í laufi á eft-
ir kóngnum og tígulsvíningin gengur
heldur ekki. Samt má taka tíu slagi og
það sannaði bandaríski spilarinn Larry
Mori í tvímenningskeppni á Sum-
arleikunum í Chicago.
Mori spilaði þannig: Hann drap út-
spilið með spaðaás, tók tvo efstu í
hjarta og legan í trompinu kom í ljós.
Mori sneri sér að spaðanum, tók kóng-
inn og trompaði spaða. Nían var nú frí
og Mori nýtti sér það með því að spila
tígli á ás og henda tígli niður í frísp-
aðann. Tíguldrottning kom næst –
kóngur og tromp.
Staðan var nú þessi:
Norður
♠
♥7
♦G
♣G63
Vestur Austur
♠ ♠
♥DG ♥
♦ ♦87
♣ÁD5 ♣974
Suður
♠
♥10
♦
♣K1082
Sagnhafi á út heima og Mori sendi
vestur inn á tromp. Vestur tók hinn
trompslaginn og Mori henti laufi úr
blindum. Vestur reyndi laufás og
drottningu, sem þýddi að suður átti af-
ganginn, en lítið lauf (eða drottning)
dugir ekki heldur, því blindur kemst
inn á gosann þar sem slagur bíður á
tígul. Furðuleg endastaða.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
Rf3 O-O 6. Be2 e5 7. O-O Rc6 8. d5 Re7
9. a4 a5 10. b3 Rd7 11. Ba3 Bh6 12. b4
axb4 13. Bxb4 f5 14. Rd2 Kh8 15. a5
Hf7 16. Rb5 Rf6 17. c5 dxc5 18. Bc3 c6
19. dxc6 bxc6 20. Ra3 fxe4 21. Rac4
Red5 22. Bxe5 Bg7 23. Rd6 He7 24.
R2c4 Be6 25. a6 Rb4 26. Dc1 Rd3 27.
Bxd3 exd3 28. Dc3 Bxc4 29. Dxc4 Dg8
30. Dxc5 d2 31. Had1 Hxa6 32. Hxd2
Rd5 33. Bxg7+ Hxg7 34. h3 De6 35.
Hb1 h6 36. Dc4 Hb6 37. Hxb6 De1+
38. Kh2 Rxb6 39. Df4 Rd5
Staðan kom upp á ofurskákmóti sem
fram fer þessa dagana í Biel í Sviss.
Norska undrabarnið og stórmeistarinn
Magnus Carlsen (2.675) hafði hvítt
gegn rússneska ofurstórmeistaranum
Alexander Morozevich (2.731). 40.
Hxd5! cxd5 41. Df8+ Kh7 42. Re8! og
svartur gafst upp þar sem hvítur hótar
í senn máti með 43. Dxg7 og 43. Rf6 en
42... De5+ væri einfaldlega svarað með
43. f4. Morozevich hefur í tvö ár í röð
unnið hið sterka mót í Biel og að lokn-
um fimm umferðum var hann efstur
með fjóra vinninga en Carlsen var í 3.
sæti með þrjá vinninga. Alls taka sex
stórmeistarar þátt í mótinu og eru
meðalstig þeirra 2.674 stig.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik
Um kjör öryrkja
ÓLAFUR Jón Einarsson varpar
spurningum til ráðherra og alþing-
ismanna í Velvakanda 29. júlí varð-
andi kjör öryrkja. Þessar spurn-
ingar sem hann varpar fram brenna
á mörgum ekki bara öryrkjunum
sjálfum eingöngu heldur líka að-
standendum þeirra vinum, mökum
og öðrum borgunum þessa lands
sem ekki vilja að öryrkjar hafi svona
léleg kjör. Það eru rúmir níu mán-
uðir í alþingiskosningar svo að ráða-
menn ættu að fara að athuga málin
og gera eitthvað raunhæft fyrir ör-
yrkjana.
Þeir ættu líka að hugsa um öll at-
kvæðin. Þetta fólk sem ekki hefur
nóg að borða neyðist alltaf til að leita
á náðir hjálparstofnana. Þegar að
aðrir fara í sumarfrí situr þetta fólk
oftast heima. En allir þurfa tilbreyt-
ingu þótt þeir séu ekki að vinna
þetta veldur því að þetta fólk koðnar
niður og verður enn veikara ef eitt-
hvað er. Ég vil skora á ráðamenn
þjóðarinnar að snúa þessari
óheillaþróun við strax.
Sigrún Á. Reynisdóttir
Samtök gegn fátækt.
Gljúfrin þrjú í Kína
NÚ er næsta ferðaskrifstofa komin
á stjá með ferðalýsingalygi, til þess
að lokka ferðamenn á fölskum for-
sendum. 25. mars sl. benti ég á, í
pistli til Velvakanda, að ferðaskrif-
stofan Heimsferðir væri að sölufæra
siglingu um Gljúfrin þrjú í Jantze-
fljótinu í Kína, þrátt fyrir að þessi
gljúfur tilheyrðu liðinni tíð, en þar er
nú 640 km langt uppistöðulón
stærstu virkjunar Kína.
Þessi ferðaskrifstofa, sem nú aug-
lýsir ferð um þessi gljúfur, sem ekki
eru til, er Úrval/Útsýn. Þetta er
ótrúlega ósvífið athæfi ferðaskrif-
stofa sem með hreinum lygum reyna
að selja ókunnugum ferðalöngum
ferð um svæði sem ekki er lengur til.
Þessar auglýsingar eru sambæri-
legar við það að íslenskar ferðaskrif-
stofur færu að auglýsa siglingar á
Jöklu, eða gönguferðir upp með
henni, ofan stíflugarðs, eftir að Háls-
lón væri orðið fullt. Hvað segja
Neytendasamtökin um slíkt?
Margrét Jónsdóttir
Melteigi 4
Akranesi.
Slysahætta vegna strætó
EFTIR að leiðakerfi stætó var
breytt stoppar leið 4 í Suðurhólum
þar sem ekki er gangbraut og geng-
ur fólk afturfyrir vagninn og yfir
götuna. Bílarnir keyra þar oft á mik-
ilum hraða á móti strætó. Það er
bara spurning hvenar verður slys
þarna og sérstaklega á börnum. Það
er hægt að láta vagninn keyra að
Hólagarði eins og 112 gerði. Það
munar ekki nema mínútu á tíma og
auk þess þægilegra fyrir fólk sem
býr í Hólahverfi. Nú spyr ég er ekki
til sæmilega greint fólk í þessari
borg sem getur stjórnað þessum
strætisvagnasamgöngum?
Farþegi í strætó.
Uppbyggjandi grunnskólar
HVERNIG væri að taka upp
kennslu í grunnskólum um áfengi og
vímuefni? Hvaða skaða og afleið-
ingar þetta getur valdið o.s.frv. það
er orðið allt of mikið af ungu fólki
sem er orðið langleitt af þessum
óþverra. Flestir ef ekki allir sem
byrja á þessu hafa enga hugmynd
um það hvað þau eru virkilega að
setja ofan í sig og hvaða afleiðingar
þetta hefur í för með sér. Ég bara
spyr: væri ekki svona heilbrigðara
að fjalla um þessi mál við krakkana
áður en þau byrji á þessu? hverju
höfum við að tapa? Við verðum að
hugsa út frá því sjónarhorni að við
gætum verið að bjarga okkar eigin
börnum.
Gunnar 270786.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
SUNNUDAGINN 6. ágúst verður
haldin hin árlega messa í Ábæj-
arkirkju, Austurdal í Skagafirði.
Sóknarpresturinn Séra Ólafur Hall-
grímsson Þjónar fyrir altari og pre-
dikar. Einsöng syngur Íris Bald-
vinsdóttir og Sveinn Sigur-
björnsson spilar á trompet.
Organisti er Anna María Guð-
mundsdóttir.
Löng hefð er orðin fyrir þessari
árlegu messu í Ábæjarkirkju og
hefur hún verið mjög fjölmenn síð-
ari árin, í fyrra voru um 250 manns.
Að lokinni messu er kirkjugestum
boðið í kaffi heim að Merkigili og er
það í boði systkina Helga heitins
Jónssonar sem var síðasti ábúandi á
Merkigili en hann lést í ársbyrjun
árið 1997. Í þessa messu kemur fólk
víða að af landinu. Kirkjugestum er
bent á að reikna með um tveimur
tímum frá Varmahlíð inn dalinn að
kirkjunni.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Árleg messa í Ábæjarkirkju
ÁRNI Björn Guðjónsson opnar
málverkasýningu í Eden í Hvera-
gerði 1. ágúst. Sýningin stendur til
14. ágúst og er opin daglega kl.
8.30–22.
Árni var með málverkasýningu í
bænum Yecla á Spáni í apríl og
maí í vor, einnig hefur hann sýnt
víða hér á landi.
Árni málar mest landslags-
myndir í olíu. Á sýningunni eru
myndir af því svæði sem fer undir
vatn er Núpsvirkjun verður byggð
í Þjórsárdal. Myndirnar sýna
landslagið núna og svo eftir að allt
er komið í kaf. www.arni-
bjorn.com
Árni Björn sýnir í Eden
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistilkynning-
um og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100
eða sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.