Morgunblaðið - 02.08.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 45
MENNING
FIMM málarar munu sýna verk sín í Listasafni
Færeyja á sýningu sem ber yfirskriftina „End-
unýjun íslenska málverksins“. Tildrög sýning-
arinnar voru þau að Helgi Fossádal for-
stöðumaður listasafnsins hafði samband við Odd
Nerdrum og bað hann um að sýna hjá sér. Það
vildi Nerdrum gjarnan gera með því skilyrði að
hann fengi að sýna með öðrum listamönnum og
valdi hann fjóra málara í verkefnið; þau Kristínu
Gunnlaugsdóttur, Georg Guðna Hauksson, Stef-
án Boulter og Karólínu Lárusdóttur.
Eins og yfirskriftin gefur til kynna þá er ís-
lenska málverkið og bakgrunnur þess haft til
hliðsjónar á þessari sýningu. Í bæklingi sýning-
arinnar er tiltölulega ung ævi íslenska málverks-
ins lauslega rakin frá síðari hluta nítjándu fram
til dagsins í dag. Þarna er t.d. minnst á það
hvernig brautryðjendur eins og Sigurður Guð-
mundsson, Þórarinn Þorláksson, Ásgrímur Jós-
son og Jóhannes Kjarval stimpluðu sig var-
anlega inn í íslenska listmálarasögu og einnig er
fjallað um þróun málverksins á fyrri hluta tutt-
ugustu aldar. Þá er einnig talað um hvernig
náttúran og landslagsmyndir voru ríkjandi
myndefni í íslensku málverki fram á sjöunda
áratuginn þegar slíkum málverkum fór smám
saman fækkandi. Í bæklingnum segir enn frem-
ur að á níunda áratugnum hafi orðið eins konar
endurvakning í málaralist á landinu og fól hún
meðal annars í sér að landslagsmyndir urðu aft-
ur ríkjandi viðfangsefni. Málararnir fimm sem
sýna verk sín á Listasafni Færeyja eru allir á ein-
hvern hátt hluti af þessari endurvakningu. Á
sama tíma eru listræn sérkenni hvers og eins
ríkjandi í þeirra verkum.
Ólík viðfangsefni
Odd Nerdrum er einhver þekktasti fánaberi
klassíska málverksins sem hann gjarnan prýðir
með dularfullum fígúrur í myrku umhverfi en ís-
lenskt landslag er stór þáttur í hans verkum.
Hann sýnir fjögur verk sem öll eru í stærra lagi,
í kringum tveir metra á hæð.
Helsta viðfangsefni Karólínu Lárusdóttir eru
æskuminningar hennar og hefur áunnið sér það
sérkenni að mála manneskjur þybbnar og risa-
vaxnar á glaðlegan máta.
Gerorg Guðni Hauksson vakti mikla athygli á
einkasýningu sem hann hélt árið 1985 í Reykja-
vík þar sem hann sýndi nýja nálgun á landslag í
málaralist. Síðan þá hefur hann stöðugt þróað
list sína og hefur haldið ófáar sýningar víða um
heim. Kristín Gunnlaugsdóttir hélt sín fyrstu
sýningu á Íslandi árið 1994 sem fór ekki framhjá
mörgum listunnendum. Málverk hennar sýna
gjarnan myndir af fornum heimi eða ef til vill
heimi sem aldrei hefur verið til. Stefán Boulter
er ungur málari sem hefur verið í læri hjá
Nerdrum síðastliðin þrjú ár en áhrif lærimeist-
arans leyna sig ekki í verkum hans.
Sýningin í Listasafni Færeyja opnar á laug-
ardaginn og stendur til 24. september.
Íslensk málverkasýning
í Listasafni Færeyja
Odd Nerdrum er fánaberi klassíska málverksins.
Hann sýnir fjögur verk á Listasafni Færeyja.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Tónlistarhóp-
urinn Sjan
áron heldur
tónleika í
Bláu kirkj-
unni á Seyð-
isfirði í kvöld
kl. 20.30.
Í hópnum
eru þau
Heiða Arn-
ardóttir söng-
kona, Simon
Jemyn gítarleikari, Ananta Roosens
fiðluleikari og Jachim Badenhorst
klarinettuleikari, en þau kynntust
við nám í Hollandi.
Tónleikarnir munu þau svo end-
urtaka á fimmtudagskvöld í Frí-
kirkjunni í Reykjavík kl. 20, og loks í
Ketilshúsinu á Akureyri í kl. 12 á há-
degi á laugardag.
Á efnisskránni eru lög eftir Bird,
Dowland, Argento, Badenhorst og
Jermyn, auk þjóðlaga frá Íslandi og
Írlandi.
Upphaf tón-
leikaferðar í
Bláu kirkjunni
ÓHÆTT er að fullyrða að ljósmyndarinn Páll
Stefánsson sé að gera það gott um þessar
mundir. Hann er nýbúinn að ljúka sínum
þætti í stóru og metnaðarfullu verkefni fyrir
sænska húsgagnarisann IKEA og í gærmorg-
un fékk hann það svo endanlega staðfest að
hann væri meðal tuttugu útvaldra ljósmynd-
ara sem munu á næstu fjórum árum skrásetja
þá 850 staði sem eru á heimsminjaskrá
UNESCO.
Bæði verkefnin eru óumdeilanlegar skraut-
fjaðrir í hatt Páls sem upplýsir af hógværð að
hann hafi ekkert verið að falast eftir þeim.
„Maður verður kannski glaðari fyrir vikið,“
viðurkennir hann enda má álykta að hans fyrri
verk hafi skilað honum á þennan áfangastað.
Reykjavíkurmyndir
Það var í vor sem sænsk auglýsingastofa
setti sig í samband við Pál og spurði hvort
hann hefði áhuga á að leggja sitt af mörkum
til verkefnis sem IKEA stendur fyrir en hefur
þó í rauninni enga beina skírskotun til vöru-
merkisins. Um er að ræða verkefni þar sem
tólf ljósmyndarar víðsvegar að úr heiminum
taka fyrir hver sína borgina en úr á að verða
vegleg bók þar sem hverri borg eru eyrna-
merktar 25 síður. Á meðal þeirra borga sem
gerð verða skil eru ekki ófrægari staðir en t.d.
São Paulo, Tokyo, New York, Mexíkóborg,
Stokkhólmur, Berlín, París, London og
Moskva. Innan um þessar réttnefndu stór-
borgir verður svo heimabær Páls, hún litla
Reykjavík.
„Ég fókusera á fólk,“ segir Páll um nálgun
sína á viðfangsefnið. „Ég vel eitt heimili, eina
fjölskyldu, og mynda hana og Reykjavík að-
eins með. Ég tek fyrir daglegt líf, bara fólkið
að bursta tennurnar og elda fisk. Síðan mynda
ég einhverja díteila af húsinu, hurðarhún og
eitthvað svona skemmtilegt, og svo einhverjar
Reykjavíkurstemningar. Það er svolítið gam-
an að segja frá því að heimilið var ákaflega
huggulegt og mjög lítið um IKEA þar. Ég
held þau eigi kannski í mesta lagi smjörhníf
eða ostahníf. En það skipti víst engu máli.“
Páll telur að IKEA-verkefnið sé til komið í
framhaldi af ljósmyndasýningu sem hann var
með í Kaupmannahöfn fyrir sex árum. „Þar
kom maður og hafði gaman af. Svo þegar farið
var að skoða hugmyndina að baki verkefninu
var ég fyrir tilstuðlan þessa manns spurður að
því hvort ég hefði áhuga. Ég sagði „auðvitað“.
Þá voru þeir með einar átján borgir í mynd-
inni sem ritstjórar bókarinnar skáru svo niður
í tólf.“
Myndar óviðjafnanlega staði
„Síðan var haft samband við mig í síðustu
viku og ég spurður hvort ég hefði áhuga á að
vinna að bókapródjekti fyrir UNESCO,“ held-
ur Páll áfram en „pródjektið“ sem um ræðir
er skrásetning þeirra staða sem eru á heims-
minjaskrá Menningarmálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, UNESCO.
Á lista stofnunarinnar eru staðir sem þykja
öðrum stöðum jarðarinnar ómetanlegri sökum
þess vægis sem þeir hafa í meningarlegri og
náttúrulegri arfleifð okkar. Þar á meðal eru
eins ólíkir staðir og Kóralrifið mikla við norð-
austurströnd Ástralíu, Akrópólis í Grikklandi
og Þingvellir, sem bættist í hóp heimsminj-
anna fyrir tveimur árum. Myndirnar verða
gefnar út á fjórum bókum á jafnmörgum árum
þar sem hverjum stað er úthlutað 10–12 blað-
síður.
„Mér er alveg sama hvert ég fer. Allt er
spennandi,“ segir Páll uppveðraður en við-
urkennir þó í framhaldinu að sig langi mikið
til Grænlands, þar sem Grænlandsjökull
skríður ofan í Ilutissat-fjörðinn. „Ég hef kom-
ið áður til Grænlands og finnst staðurinn alltaf
jafnheillandi.“
Á þessum tímapunkti hefur Páll ekki hug-
mynd um hvert verkefnið ber hann. Það er þó
ljóst að þó nokkrir staðir bíða hans. „Það eru
aðeins 20 ljósmyndarar sem eiga að mynda
þessa staði sem eru dreifðir um jarðkringluna.
Um þessar mundir er verið að deila stöðunum
niður. Ég fæ því fljótlega að vita hvert mér er
ætlað að fara. Ég var í rauninni bara að fá að
vita þetta í morgun [í gær] og finnst þetta svo-
lítið gaman.“
Í góðra manna hópi
Aðspurður segist Páll ekki vita fyrir til-
stuðlan hvaða strauma verkefnið rak á fjörur
hans. „Ég hef ekki hugmynd um hvernig þeir
hafa soðið saman þennan lista af tuttugu ljós-
myndurum en það eru alvörunöfn,“ segir hann
stoltur. Hann nefnir þó þrjár mögulegar skýr-
ingar „Ég vinn mikið á alþjóðamarkaði með
Iceland Review sem fer til yfir hundrað landa.
Það er mjög myndaþungt blað sem ég er bú-
inn að vinna við í tuttugu ár. Ég finn fyrir því
að það er fullt af fólki sem sér það.
Hitt er svo annað að „fínustu“ myndavéla-
framleiðendurnir hafa mikið notað myndir eft-
ir mig í prómósjón fyrir hágæðamyndavélar
og hágæðalisnur. Það held ég að vegi jafnvel
þyngra enda ratar það til aðila sem virkilega
spá í þessa hluti. Í síðasta lagi hafa svo bæk-
urnar mínar margar hverjar selst í stórum
upplögum.“
Bók handan hornsins
Ásamt því að vinna við Iceland Review og
Atlanta hefur Páll unnið að útgáfu bókar fyrir
Íslandsmarkað sem verður að veruleika eftir
tvær vikur. „Mál og menning gefur hana út en
hún heitir einfaldlega PS sem stendur bara
fyrir Pál Stefánsson frekar en post scriptum.
Ég hef heldur aldrei litið á hana sem eftir-
skrift enda fæ ég þessi stóru verkefni áður en
hún kemur út.
Bókin skartar landslagsmyndum sem ég hef
verið að taka á undanförnunm árum. Ég er
búinn að gefa út margar svona landslags-
bækur. En það hefur ekki komið út bók eftir
mig á Íslandi í sex ár. Ástæðan er sú að mér
fannst ég hafa verið að gera svolítið sömu
hlutina og eins er fullt af fólki byrjað að
kópera það sem maður hefur verið að gera.
Það má segja að þessi bók sé persónulegri.
Hún er ekki svona panorama. Hún er miklu
hreinni og nær mér.“
Ljósmyndun | Páll Stefánsson er meðal tuttugu ljósmyndara sem mynda heimsminjar UNESCO
„Allt er spennandi“
Morgunblaðið/Einar Falur
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
Páll Stefánsson hefur í nógu að snúast um þessar mundir og er m.a. von á bók með ljósmyndum hans í verslanir eftir hálfan mánuð.