Morgunblaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÉTUST Í UMFERÐINNI
Þrír eru látnir og tveir liggja al-
varlega slasaðir á gjörgæsludeild
LSH eftir tvö alvarleg umferðarslys
í gær. Stúlka lést þegar tveir bílar
skullu harkalega saman á Vest-
urlandsvegi skömmu fyrir klukkan
eitt í gærdag. Tveir létust eftir
árekstur sem varð á áttunda tím-
anum á Garðskagavegi skammt utan
við Sandgerði. Það sem af er ári hafa
sextán látist í umferðinni.
Brothætt vopnahlé
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að
vopnahléið í Líbanon væri afar brot-
hætt. Ljóst er að harðar deilur eru
enn í Líbanonsstjórn um afvopnun
vígasveita Hizbollah.
Ferðamaður beið bana
Þýskur ferðamaður lést sam-
stundis þegar allt að átta tonna ís-
blokkir hrundu ofan á hann í einum
af íshellunum sem finna má við jarð-
hitasvæðið í nágrenni Hrafntinnu-
skers, sunnan Landmannalauga, í
gærmorgun. Lögregla beinir þeim
tilmælum til ferðamanna að forðast
íshellana en talsvert hrun hefur ver-
ið úr þeim að undanförnu.
Krefjast afsökunar
Japanar kröfðust þess í gær að
Rússar bæðust afsökunar á skotárás
rússnesks varðskips á japanskan
fiskibát við Kúríleyjar. Einn maður
lét lífið í árásinni.
Stýrivextir hækka enn
Seðlabankinn ákvað í gær að
hækka stýrivexti sína um 0,5% og
standa vextirnir nú í 13,5%. Um er
að ræða minni vaxtahækkun en í síð-
ustu þrjú skipti en hækkunin vakti
engu að síður hörð viðbrögð frá Al-
þýðusambandi Íslands og Sam-
tökum atvinnulífsins.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Bréf 32
Úr verinu 14 Minningar 33/38
Erlent 16/17 Brids 43
Minn staður 18 Skák 43
Suðurnes 19 Myndasögur 44
Höfuðborgin 20 Dagbók 44/47
Akureyri 20 Staður og stund 46
Austurland 21 Leikhús 48
Daglegt líf 24/26 Bíó 50/53
Menning 27, 48/49 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
Umræðan 30/32 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
ÞEIM gekk ferðin vel reiðmönnunum sem áttu
leið yfir Húnavatn, sem neðst er í Vatnsdalsá í
Húnavatnssýslu, með hestastóð sitt nú nýverið.
Á þriðja tug hesta var með í för en prýðilega
gekk að hafa stjórn á þeim, enda veðrið stillt og
gott.
Í dag og á morgun verður nokkuð svipað veð-
ur, fremur hæg vestlæg eða breytileg átt og
víða verður léttskýjað, en búast má við súld við
vesturströndina. Hiti verður á bilinu 10 til 20
stig, hlýjast í innsveitum á Norðaustur- og Aust-
urlandi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sterkir, stórir og stinnir til ferðalags
STOFNAÐUR verður sjóður um fjárfesting-
arverkefni sem taka mun yfir væntanlegt frí-
blað Dagsbrúnar í Danmörku, Nyhedsavisen.
Sjóðnum er jafnframt ætlað að kanna fýsileika
útgáfu fríblaða á öðrum mörkuðum en í Dan-
mörku, en Dagsbrún mun hafa umsjón með
rekstri sjóðsins og fær fyrir það þóknunar-
tekjur. Fram kemur í afkomufréttatilkynningu
Dagsbrúnar að félagið muni leggja sex hund-
ruð milljónir króna í sjóðinn og verða minni-
hlutaeigandi.
Ekki dregið í land
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrún-
ar, segist ekki vilja á þessari stundu gefa upp
mótframlag annarra fjárfesta eða nöfn þeirra,
en í þeirra hópi séu bæði innlendir og erlendir
fagfjárfestar. Þó segir hann að nokkrir af
stærstu hluthöfum Dagsbrúnar muni koma
beint að verkefninu en ekki einungis í gegnum
Dagsbrún.
„Markmiðið er að sjóðurinn hafi, þegar upp
er staðið, yfir nægu fé að ráða til að standa und-
ir rekstri fríblaðsins í þrjú til fimm ár, en það er
sá tími sem við reiknum með að taki fyrir verk-
efnið að skila hagnaði. Að auki er sjóðnum ætl-
að að leggja grunninn að stofnun fríblaða í að
minnsta kosti þremur öðrum löndum og erum
við þegar búin að tryggja okkur um sjötíu pró-
sent þess fjár sem við teljum okkur þurfa til
þessara verkefna allra,“ segir Gunnar Smári.
„Þetta er ekki aðgerð til að draga í land,
heldur teljum við þvert á móti að verkefnið í
kringum Nyhedsavisen hafi gengið það vel að
rétt sé að líta á aðra markaði og það sé best
gert í gegnum þennan sjóð.“
Gunnar Smári segir ennfremur að líta megi á
þessa aðgerð sem lið í að aðskilja fjárfesting-
arstarfsemi Dagsbrúnar frá rekstrarfélögum.
Sjóður um rekst-
ur Nyhedsavisen
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
Dagsbrún | 2B
ÚRSKURÐARNEFND skipulags-
og byggingarmála byggði niðurstöðu
sína um að fella úr gildi deiliskipulag
á svokölluðum Ellingsenreit á því að
deiliskipulagið hefði ekki verið í sam-
ræmi við ákvæði í aðalskipulagi um
afmörkun deiliskipulagssvæða og um
deiliskipulag blandaðra svæða. Ekki
er rétt að niðurstaðan hafi byggst á
því að nýtingarhlutfall lóðarinnar að
Mýrargötu 26, sem er önnur lóðanna
á reitnum, hafi verið ákveðið of hátt
eins og kom fram í frétt á forsíðu
Morgunblaðsins í gær.
Úrskurðarnefndin bendir í niður-
stöðu sinni á að í ákvæðum greinar-
gerðar Aðalskipulags Reykjavíkur
fyrir 2001-2004 felist bindandi fyrir-
mæli um að smærri svæði fyrir bland-
aða byggð beri að deiliskipuleggja
sem eina heild. Í úrskurðinum segir:
„Því hafi það ekki samrýmst ákvæð-
um aðalskipulags að samþykkja deili-
skipulag fyrir reit sem aðeins nær til
lítils hluta þess svæðis sem skilgreint
var sem blönduð byggð við umrædda
breytingu gildandi aðalskipulags.“ Er
nefndin þar að vísa í þá breytingu á
aðalskipulagi þegar svæðinu sem lóð-
irnar standa á var breytt úr hafnar-
og athafnasvæði í svæði fyrir bland-
aða byggð.
Í úrskurðinum er einnig vikið að
því að lóðinni að Mýrargötu 26 hafi í
skipulaginu verið úthlutað hærra nýt-
ingarhlutfalli en lóðinni að Granda-
garði 2, sem er hin lóðin á reitnum.
Taldi nefndin að Reykjavíkurborg
hefði ekki fært nægjanleg rök fyrir
þessum mismun á nýtingarhlutfalli
lóðanna við gerð deiliskipulagsins.
Í frétt blaðsins í gær var einnig
sagt að úrskurðarnefndin hefði aftur-
kallað byggingarleyfi eiganda lóðar-
innar að Mýrargötu 26 til byggingar
61 íbúðar húss sem hann hugðist
reisa þar. Hið rétta er að nefndin
felldi umrætt leyfi úr gildi enda er aft-
urköllun aðeins möguleg sama stjórn-
sýsluaðila og upphaflega tók ákvörð-
un, í þessu tilfelli
byggingarfulltrúanum í Reykjavík.
Samræmist ekki
aðalskipulagi
ÓVENJUMIKIÐ hefur verið tilkynnt um atvik þar sem
ökumenn hafa ekki greitt fyrir eldsneyti á bens-
ínstöðvum í sumar.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykja-
vík var síðast tilkynnt um slíkt atvik á mánudag en tal-
ið er að erlendur ferðamaður hafi verið þar að verki.
Svo virðist sem slíkum tilfellum sé að fjölga en lög-
regla bendir á að myndavélar séu við allar bens-
ínstöðvar og því auðvelt að hafa uppi á þeim sem stela
sér bensíni.
Einnig vill lögregla minna eigendur bifreiða á að
læsa þeim ávallt og taka með sér verðmæti þegar þær
eru yfirgefnar. Sl. mánudag var tilkynnt samtals um
fjögur innbrot í bíla og var m.a. stolið GSM-síma, far-
tölvu og verkfærum.
Greiða ekki fyrir
eldsneyti á bensínstöðvum
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti í gær-
kvöldi slasaðan sjómann um borð í íslenskan togara á
Halamiðum, 45 mílur norðvestur af Straumnesi á
Hornströndum. Maðurinn hafði skorist illa og var flutt-
ur á Landspítala – háskólasjúkrahús í Fossvogi. Nán-
ari upplýsingar um líðan mannsins lágu ekki fyrir um
miðnætti í gær.
TF-LÍF sótti slasaðan
sjómann um borð í togara