Morgunblaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 21
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Magi og melting
Acidophilus
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Reyðarfjörður | Þrettán útlendingar
og einn Íslendingur sæta kærum
vegna aðgerða sinna á byggingarlóð
álvers Alcoa Fjarðaáls í gærmorgun.
Þar af eru þrettán sem tóku beinan
þátt í aðgerðunum inni á álverslóð-
inni en sá fjórtándi ók mótmælend-
um að svæðinu. Fólkið var handtekið
af lögreglu í gær og flutt til yfir-
heyrslu á lögreglustöðina á Eskifirði.
Fólkið er kært fyrir að hafa farið í
leyfisleysi inn á svæðið og stofnað
sjálfu sér og öðrum í hættu. Í kæru
Alcoa er m.a. fyrirvari um hugsan-
legar skaðabætur vegna vinnustöðv-
unar.
Það var kl. hálfsex í gærmorgun að
13 úr hópi mótmælenda stóriðju- og
virkjanaframkvæmda á Austurlandi
sem hafst hafa við á bænum Kolla-
leiru í Reyðarfirði síðustu daga, fóru
yfir girðingu að álverslóðinni og
dreifðu sér um svæðið á hlaupum.
Þrír klifu upp í tvo háa byggingar-
krana með mótmælaflögg, kaðla, si-
glása og vistir og komu sér fyrir eins
hátt uppi og mögulegt var, í allt að 70
m hæð yfir jörðu. Hluti af hópnum
festi sig ýmist við vinnuvélar eða
klifraði upp á þök hinna ýmsu bygg-
inga. Vinna var stöðvuð á álverslóð-
inni í kjölfar þessa, utan að haldið var
áfram að steypa síló austar á bygg-
ingarsvæðinu. Nokkuð hvasst var
fyrrihluta morgunsins og hafði lög-
regla áhyggjur af öryggi fólksins í
krönunum, ekki síst vegna þess að
ekki virtist sem fólkið hefði bundið
sig til öryggis. Tveir lögreglumenn af
staðnum, sem eru reyndir fjalla- og
björgunarsveitarmenn klifu upp í
vestari kranann með sigbúnað og eft-
ir stuttar viðræður við mótmælanda í
þeim krananum fór hann sjálfviljug-
ur með þeim niður. Miðmorguns var
búið að handtaka 8 manns, alla nema
tvo sem voru í eystri byggingarkran-
anum og þrjá sem léku enn lausum
hala á svæðinu. Hinir handteknu
voru fluttir með rútu að lögreglustöð-
inni á Eskifirði, þar sem þeim var
smalað inn í hliðarskúr við stöðina til
skýrslutöku. Voru nokkrir mótmæl-
enda með hendur reyrðar saman með
plastbenslum.
Í sjö klukkustundir í krananum
Um sama leyti kom slökkvibifreið
með löngum stiga á álverssvæðið og
skömmu síðar fóru tveir sérsveitar-
menn lögreglu í austari kranann, þar
sem kona og karlmaður úr hópi mót-
mælenda höfðu komið sér fyrir. Þau
virtust fram að því hafa haft það
þokkalegt í krananum, hann kastaði
af sér vatni yfir álverslóðina og sást
til konunnar fá sér vatnssopa úr
flösku og færa sig til og frá efst í
krananum. Þegar sérsveitarmenn-
irnir voru komnir upp í efsta lið kran-
ans lét karlmaðurinn mótþróalaust
færa sig í sigbelti og var svo látinn
síga niður þar sem hann var færður
inn í lögreglubifreið. Þetta var um
hálftólfleytið. Stúlkan færði sig hins
vegar undan lögreglunni og fram á
ystu nöf og varð þá nokkurt þóf um
stund. Annar lögreglumannanna fór
á eftir henni og ræddi við hana
drjúga stund. Fór svo að hún klöngr-
aðist til baka að efsta kranaliðnum,
þar sem hún smeygði sér með hjálp
lögreglumannanna í sigbelti og var
látin síga til jarðar. Var hún þá búin
að dvelja í krananum í tæplega sjö
klukkustundir. Um 30 mínútum síðar
var fólkinu ekið í lögreglujeppa út af
álverslóðinni og yfir á lögreglustöð-
ina á Eskifirði til yfirheyrslu.
„Mótmæli okkar gegn hinni ólög-
legu verksmiðjubyggingu eru frið-
samleg í hvívetna og okkar tilgangur
að vekja athygli almennings án
skemmdarverka,“ sagði Sara Zilli frá
Ítalíu í samtali við Morgunblaðið, en
hennar hlutverk var að taka at-
burðina á myndband fyrir mótmæla-
hópinn. „Við vorum fjögur hér við ál-
verslóðina að taka myndir og þá kom
lögreglan og handtók einn úr hópn-
um án nokkurra skýringa.“
Fjórtán mótmælendur kærðir
Fullvíst má telja að fólkið í krön-
unum lagði bæði sig og lögreglu-
mennina sem fóru á eftir þeim í stór-
hættu. Heyrðist á lögreglu á
vettvangi í gærmorgun að menn
væru nokkuð undrandi á að Becthel
eða Alcoa skyldu ekki skipuleggja
aukna gæslu, ekki síst við kranana
háu, þar sem þeir hefðu verið líklegt
mark fyrir mótmælendurna til að
vekja á sér athygli.
Óskar Guðmundsson, lögreglu-
maður á Eskifirði og staðgengill yf-
irlögregluþjóns, sagði eftir að tekist
hafði að ná öllum mótmælendunum
út af byggingarsvæði álversins að að-
gerðir lögreglu hefðu tekist vel og að
yfirheyrslum loknum yrði fólkið
kært. „Þau eiga yfir sér önnur mál
sem eru ekki kláruð en það er ekki
búið að taka ákvörðun um hvað verð-
ur gert,“ sagði Óskar, en líklegt verð-
ur að telja að fólkið verði sett í far-
bann meðan á rannsókn mála
stendur. Sagði Óskar jafnframt að
lögregla hefði alveg eins átt von á að-
gerðum af þessu tagi, eftir að mót-
mælendur ruddust inn á verkfræði-
skrifstofu á Reyðarfirði og meinuðu
starfsmönnum þar útgöngu um tíma.
Um það hvort Bechtel eða Alcoa
hefðu átt að auka öryggisgæslu vit-
andi af hugsanlegum mótmælaað-
gerðum sagði Óskar svæðið gríðar-
stórt og mikið þar af tækjum og
búnaði sem ógjörningur væri að
vakta nema með mjög miklum mann-
skap. „Það er óvinnandi vegur að
fara að vakta þetta allt.“
Ekki fóru allir úr Kollaleiruhópn-
um inn á álverslóðina og voru ein-
hverjir þeirra á vappi á veginum
meðfram álverslóðinni, eða í tjald-
búðunum á Kollaleiru að fylgjast með
framvindu mála í fjölmiðlum. Fólk í
bifreið sem kom aðvífandi tók sig t.d.
til og hellti úr stórri gosflösku yfir
tvo mómælendur sem sátu í vegbrún-
inni, svona rétt til að sýna hug sinn til
aðgerðanna.
Vinna stöðvaðist í hartnær
átta klukkustundir
Vinna hófst að mestu leyti á álver-
slóðinni um hálftvöleytið í gærdag og
hafði þá stöðvast í hartnær átta
klukkustundir. Erna Indriðadóttir,
talsmaður Alcoa Fjarðaáls, segir
tjónið vegna vinnustöðvunarinnar
geta slagað hátt í 70 milljónir króna,
en hún telur að hver töpuð klukku-
stund í vinnu á byggingarlóðinni
nemi á bilinu 8–9 milljónum króna.
„Mótmælendurnir halda því fram
að bygging álversins þar sé ólögleg,
en það er rangt að Hæstiréttur hafi
úrskurðað að svo sé,“ segir Erna.
„Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu að gera þyrfti nýtt umhverf-
ismat vegna framkvæmdanna, en öll
leyfi fyrir þeim eru í gildi svo sem
framkvæmda- og starfsleyfi. Með
hegðun sinni og ólöglegum aðgerðum
hafa þeir stefnt lífi sínu og annarra í
hættu.“
Um 1.400 manns vinna nú að bygg-
ingu Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði.
Mótmælendur telja aðgerðirnar friðsamlegar en Alcoa segir þá hafa valdið hættu
Tjón vegna vinnustöðvunar
talið nema um 70 milljónum
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hættuspil Hér má sjá hvernig Francis Jegar prílar á ystu nöf kranans og lögreglumenn fylgjast með.
Með bundna úlnliði Átta mótmælendur voru fluttir með rútu af álverslóð-
inni á lögreglustöðina á Eskifirði til yfirheyrslu og fimm nokkru síðar.
Egilsstaðir | Keppnin um sterkasta
mann Austurlands hefst í dag.
Keppnin er tvískipt; Austurlands-
tröllið og Austfjarðatröllið, og er nú
haldin í 10. sinn.
Keppendur eru Stefán Sölvi Pét-
ursson, Georg Ögmundsson, Jón V.
Williams, Arnar M. Jónsson og
Magnús Ver Magnússon, sem sleit
sinar í fyrra, fór í kjölfarið í stóra að-
gerð og hefur ekki treyst sér í
keppni fyrr en nú. Þá koma tveir er-
lendir keppendur, hinn finnski Juha-
Pekka Aitala og enski Lee Bowers.
Í dag hefst Austurlandströlls-
keppnin kl. 11:30 á Vopnafirði m.a.
með kútakasti, færist til Eskifjarðar
um 16:30 þar sem drumbum verður
lyft og endar í dekkjaveltu við Norð-
fjarðarvöllinn í Neskaupstað kl. 18.
Á föstudag flyst keppnin á Egils-
staði þar sem trukkadráttur verður
á Bónusplaninu kl. 13 og dekkjarétt-
stöðulyfta á Vilhjálmsvelli kl. 20:30.
Austfjarðatröllskeppnin hefst á
morgun á Seyðisfirði með Herkúles-
arhaldi kl. 16 og kl. 17 verður tekist á
við lóðkast yfir rá og fer þetta fram
við Herðubreið. Á laugardag fer
keppnin fram á Fáskrúðsfirði,
Stöðvarfirði og Breiðdalsvík og tak-
ast menn þá á í hellugöngu og steina-
tökum, svo eitthvað sé nefnt.
Tröllsterkir
takast á
ÞEIR úr hópi mótmælenda sem
ekki voru handteknir í gær segjast
ekki hafa áhyggjur af örlögum fé-
laga sinna þrátt fyrir kærur um
ólöglegt athæfi. Fólkið hafi lög-
menn á bak við sig, bæði hérlenda
og erlenda, sem muni gæta rétt-
arstöðu þess.
„Alcoa kærir okkur eflaust en
ég hef ekki áhyggjur af því,“ segir
ungur maður í hópnum sem ekki
vill gefa upp nafn sitt og því síður
láta taka af sér mynd. „Grunn-
forsendan er sú að verksmiðju-
byggingin er ólögleg og komi til
málaferla gegn okkur munum við
nota þau rök, þ.e. að starfsleyfi sé
ekki gilt þar sem Hæstiréttur hafi
úrskurðað að tilskilið umhverf-
ismat væri ekki fyrirliggjandi.“
Hann segir hópinn ekki hafa
tekið sameiginlega ákvörðun um
að vera eða fara, það sé undir
hverjum og einum komið hversu
lengi hann dvelji í landinu.
„Við tökum hlutina frá degi til
dags og höfum ekki skipulagt fleiri
aðgerðir að svo stöddu. Ég var
hins vegar stórhrifin af aðgerð-
unum á álverslóðinni,“ bætir ung
kona úr hópnum við og segir raun-
ar stefnt að því að hópurinn dreifi
upplýsingablöðum, m.a. um meng-
un frá álverinu, í hús á Eskifirði á
næstu dögum, svo sem eins og gert
hefur verið á Reyðarfirði.
Fólk í hópnum sagðist telja að
öryggisgæsla hefði ekki verið hert
sérstaklega hjá Alcoa og Bechtel
vegna þess að fyrirtækin vissu að
aðgerðir mótmælenda væru frið-
samlegar og ekki yrði um
skemmdarverk að ræða. „Við
stofnum fólki ekki í hættu, hvorki
okkur né öðrum. Lögreglan veit
líka að við erum ekki hættuleg, við
sköpum ekki hættu og unnt er að
leysa auðveldlega úr okkar málum.
Við erum að vekja athygli á okkar
málstað á jákvæðan hátt. Almenn-
ingur hefur ekki réttar upplýs-
ingar og ef til vill fær þetta fólk til
að kynna sér málið betur og taka
afstöðu skv. því. Viðbrögðin við
aðgerðum okkar eru býsna blend-
in, en við erum ánægð ef við get-
um vakið almenning og yfirvöld til
umhugsunar.“
Ekki hrædd
við kærur