Morgunblaðið - 17.08.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 17.08.2006, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sveiflur á vatnsborðiÞingvallavatns hafalengi verið í um- ræðunni og hvaða áhrif þær kunni að hafa á vatna- svið og lífríki þess. Sigurð- ur G. Tómasson, útvarps- maður, hefur fylgst með Þingvallavatni frá blautu barnsbeini en hann segir að Landsvirkjun hafi, í gegnum Sogsstöðvar, vald- ið því að vatnsborðið hafi sveiflast úr öllum takti við það sem lífríki vatnsins hafi lagað sig að. Afleiðing- arnar séu þær að stórkost- legum skaða hafi verið valdið á líf- ríki vatnsins og með þessu sé stofnunin að brjóta lög um vernd- un Þingvallavatns og vatnasviðs þess. Hann hyggist því leggja fram formlega kæru til Umhverfisstofn- unar. „Þeir eru að brjóta lögin og það er ekki verjandi. Þessi staður og þetta vatn er á heimsminjaskrá UNESCO og það er útilokað að sætta sig við að Landsvirkjun noti þetta til þess að spara einhverja aura í rafmagnssölu,“ segir Sigurð- ur en hann telur einu hugsanlegu skýringuna á umræddum sveiflum vera þá að Landsvirkjun noti Þing- vallavatn til þess að jafna út sveifl- ur í raforkukerfinu og nýti virkj- anirnar í Sogi eins og toppstöð. Reynum að halda vatnsborðinu stöðugu Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að Þingvallavatn sé ekki notað til miðlunar og þær sveiflur sem nú verða á vatnshæð Þingvallavatns séu minni en þær náttúrulegu sveiflur sem voru áður til staðar. Hann tekur fyrir að breytingar á vatnsborðinu séu til komnar af völdum Landsvirkjunar sem ein- ungis reyni að dempa þær. „Það eru lokur í Þingvallavatni sem hafa ekki verið notaðar í raf- magnsframleiðslu frá árinu 1984 en þeim er stýrt í samráði við Þing- vallanefnd og fleiri hagsmunaaðila til þess að halda vatnsborðinu stöð- ugu.“ Aðspurður segir Þorsteinn að sveiflur á rennsli í Soginu ráðist af viðleitni Landsvirkjunar til þess að halda vatnsborði Þingvallavatns stöðugu en séu ekki til komnar vegna breytinga í rafmagnsfram- leiðslu. „Þessar stöðvar hafa lítið vægi í álagsstjórnun í raforkukerfinu nú til dags en virkjanirnar við Sogið eru samanlagt um 90 MW og eru um 5–7% af afli raforkukerfisins.“ Að sögn Þorsteins eru í gildi starfsreglur innan Landsvirkjunar sem mæla fyrir um að sveiflur á vatnsborði Þingvallavatns verði ekki meiri en tíu sentímetrar til eða frá en sveiflurnar séu almennt um fimm sentimetrar. Út í hött að nota Þingvalla- vatn sem miðlunarlón „Það er mjög óheppilegt ef það eru sveiflur í yfirborðinu og það er skýr stefna okkar í Þingvallanefnd að þær verði sem allra minnstar,“ segir Össur Skarphéðinsson al- þingismaður og fulltrúi í Þingvalla- nefnd. Hann telur augljóst að Landsvirkjun noti vatnið sem miðl- unarlón og bendir á að virkjun sé í fullum gangi. „Ef bændur og búalið við vatnið verða varir við sveiflur umfram það sem heimilt er er það alvarlegt mál og ekki heimilt.“ Að sögn Össurar kunna sveiflur á vatnsborðinu að hafa mjög óæskileg áhrif á kuðungableikju sem lifi nær eingöngu á vatnakuð- ungum. „Vatnakuðungar halda sig ofar- lega á undirlagi í vatninu þannig að þegar það eru sveiflur í vatninu verða mikil afföll af þeim kuðung- um sem lenda ofan vatns. Þá dreg- ur úr fæði fyrir bleikjuna en tíðar sveiflur geta leitt til þess að það sneiðist mjög um lífsskilyrði henn- ar.“ Össur segir það út í hött að stærsta og merkilegasta vatn landsins sé notað sem miðlunarlón en engum manni myndi koma það til hugar að setja upp slíka virkjun í dag. „Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að stefna að því að endur- heimta Þingvallavatn í uppruna- legri mynd og afleggja Steingríms- stöð.“ Ekki hefur tekist að halda vatnsborðinu stöðugu Jóhann Jóhannsson, bóndi að Mjóanesi í Þingvallasveit, segir að ávallt séu sveiflur í Þingvallavatni og það töluvert miklar. Þannig hafi komið fyrir að vatnsborðið hafi lækkað um tíu sentimetra á einum sólarhring þrátt fyrir rigningu þann daginn. „Það hafa verið þó nokkrar sveiflur í sumar en maður hélt að þeir [Landsvirkjun] væru að reyna að halda þessu nokkuð stöðugu. Það virðist bara ekki takast hjá þeim. Þetta er miðlunarlón og þeir haga þessu eins og þeim sýnist eft- ir því hvað þeir þurfa að nota,“ seg- ir Jóhann en hann telur þær sveifl- ur sem hafa orðið í sumar ekki meiri en undanfarin ár. „Þetta hefur oft á tíðum verið svona og var enn meira áður fyrr. Þeim virðist ekki takast að halda því stöðugu og það verður aldrei á meðan þetta er miðlunarlón.“ Fréttaskýring | Vatnsborð Þingvallavatns „Þeir eru að brjóta lögin“ Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir Þingvallavatn ekki notað til miðlunar Frá Þingvallavatni. Verndun vatnasviðs Þing- vallavatns bundin í lögum  Í lögum um verndun Þing- vallavatns kemur fram að vernda skuli lífríki vatnsins og gæta þess að raska ekki búsvæðum og hrygningarstöðvum bleikjuaf- brigða og urriðastofna sem nú lifa í vatninu. Í reglugerð sem byggist á lögunum kemur fram að markmið hennar sé að tryggja að tegundum, búsvæðum, vist- gerðum og líffræðilegri fjöl- breytni Þingvallavatns verði ekki spillt og að lífríki þess fái eftir því sem kostur er að þróast eftir eigin lögmálum. Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is EININGAR í fimm sætaröðum, um 60 sæti, í hólfum B og H í eldri hlutanum á vesturstúku Laugardalsvallar losnuðu meðan á landsleik Íslands og Spánar stóð á þriðjudag. Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að það væri óljóst hvað hefði valdið þessu en hugsanlega hefði gleymst að herða bolta sem héldu sætunum. KSÍ mun bjóða þeim sem lentu í því að sætið losnaði undan þeim á landsleikinn gegn Dönum 6. september en þeir sem ekki hafa áhuga á leiknum geta fengið end- urgreitt. Einn viðmælandi Morgunblaðsins sem keypti sér miða á landsleikinn í verslun Skífunnar varð hvumsa þegar afgreiðslumaðurinn krafðist þess að hann gæfi upp kennitölu sína. Spurður um skýringar sagði af- greiðslumaðurinn að þetta væri gert að kröfu KSÍ. Geir Þorsteinsson sagði að þetta hlyti að vera misskilningur hjá viðkomandi afgreiðslumanni, hvorki KSÍ, vallaryf- irvöld eða midi.is hefðu gefið slík fyrirmæli. Morgunblaðið/Einar Falur Áhorfendur á Laugardalsvelli á leik Íslendinga og Spánverja í fyrrakvöld voru vel með á nótunum. Um 60 sæti losnuðu á landsleiknum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.