Morgunblaðið - 17.08.2006, Page 44
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
KOMUM Í FELULEIK
GRETTIR
EINN, TVEIR, ÞRÍR,
FJÓRIR, FIMM, SEX,
SJÖ, ÁTTA...
ERTU EKKI AÐ REYNA
AÐ FELA ÞIG?
STELPUR,
GERIÐ ÞAÐ FYRIR
MIG AÐ FARA ÚT
MEÐ ÞESSUM
MANNI
KÆRI PENNAVINUR,
FYRIRGEFÐU AÐ ÉG
SKRIFAÐI ÞÉR EKKI FYRR
ÞVÍ MIÐUR HEF ÉG EITT
ALLT OF MIKLUM TÍMA Í
SJÓNVARPSGLÁP UNDAN-
FARIÐ
ÉG ÆTLA HINSVEGAR AÐ
TAKA MIG Á Í FRAMTÍÐINNI
OG SKRIFA FREKAR BRÉF OG
LESA BÆKUR
EN ÉG VERÐ AÐ HÆTTA
NÚNA, ÞVÍ UPPÁHALDS
ÞÁTTURINN MINN ER AÐ
BYRJA
HVAÐ
ERUM VIÐ AÐ
GERA?
VIÐ
EIGUM AÐ
FRÆÐAST
UM
PLÁNETUNA
MERKÚR!
HVERJU
ERUM VIÐ
BÚIN AÐ
KOMAST
AÐ?
ENGU! ÉG
ÆTLA EKKI AÐ
GERA ÞETTA
VERKEFNI FYRIR
ÞIG!
ÞAÐ ER LÍKA EINS GOTT,
ÞÚ MUNDIR BARA KLÚÐRA
ÞVÍ. DRÍFUM Í ÞESSU
JÁ,
GERUM
ÞAÐ
ÉG SKAL
HAFA
UMSJÓN MEÐ
VERKINU.
FARÐU OG
NÁÐU Í
BÆKUR
HJÁLP!
ER EIN-
HVER TIL Í
AÐ SKIPTA
UM HÓP
VIÐ MIG!
HVAÐ
ER
ÞETTA?
ÞETTA ER BLANDA AF ÝMSUM FRAMANDI
MATARTEGUNDUM, FRAMREITT AÐ HÆTTI
GUNNÞÓRS, MEISTARAKOKKS
EF ÞAÐ ÞARF FLEIRI EN
FIMM ORÐ TIL AÐ ÚTSKÝRA
HVAÐ EITTHVAÐ ER...
...ÞÁ
LANGAR
MIG EKKI
AÐ ÉTA
ÞAÐ
ER ÉG EINI HUN-
DURINN Á SVÆÐINU
SEM HEFUR EKKI
VERIÐ GELDUR?
NEI, ÉG
HEF EKKI
VERIÐ
GELDUR...
...OG ÞAÐ
SAMA GILDUR
1200
HVOLPANA MÍNA
ÉG TALAÐI VIÐ ÞJÁLFARANN
HANS NONNA OG HANN SEGIR
AÐ NONNI NEITI AÐ SPILA
JÁ, MIG
GRUNAÐI AÐ
ÞETTA
MUNDI
GERAST
HEFÐIRÐU
FREKAR
VILJAÐ AÐ
HANN SÆTI
BARA HEIMA?
NEI, EN EF ÞÚ VILT FÁ
HANN TIL AÐ SPILA ÞÁ
VERÐUR ÞÉR AÐ DETTA
EITTHVAÐ BETRA Í HUG EN AÐ
HÓTA HONUM
MÉR
LÍST VEL
Á ÞAÐ!
NONNI, Í HVERT SKIPTI
SEM ÞÚ KEPPIR MEÐ HAF-
NARBOLTALIÐINU ÞÁ KAUPI
ÉG HANDA ÞÉR NÝJAN LEIK
HELDURÐU VIRKILEGA AÐ
ÁSTARÞRÍHYRNINGUR Á MILLI MÍN,
KÓNGULÓARMANNSINS OG PETER MUNDI
VERA GÓÐUR FYRIR MYNDINA
ÉG VONA BARA AÐ ENGINN
KOMIST AÐ ÞVÍ AÐ ÞEIR ERU
EINN OG SAMI MAÐURINN
ÞÁ SKULUM
VIÐ PRÓFA ÞAÐ
OG SJÁ HVAÐ
GERIST
M.J. ÞÚ ERT
FÆDD
KVIKMYNDA-
STJARNA
ÞAÐ VÆRI
BRJÁLAÐ!
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 17. ágúst, 229. dagur ársins 2006
Víkverji tók nýlegaeftir flennistórri
auglýsingu á stræt-
isvagni frá snyrti-
vöruverslun. En það
var ekki varan sjálf
eða vörumerkið sem
vakti athygli hans.
Nei, það var að í aug-
lýsingunni var stafa-
villa, þar stóð „snyriti-
vörur“. Getur komið
fyrir alla, hugsaði Vík-
verji með sér en und-
arlegt hjá fyrirtækinu
að lesa ekki betur yfir
texta sem á að vera
svona áberandi.
Vinur hans hefur nú bent honum á
að vísvitandi stafavillur séu orðnar
ein af aðferðunum sem notaðar séu
til að ná athygli okkar neytenda. Svo
mikill er flaumurinn af afþreyingu,
auglýsingum og öðru áreiti að í ör-
væntingu sinni reyna auglýs-
ingastofurnar nú að erta okkur, jafn-
vel skaprauna þeim sem finnst svona
villur illþolandi. Öll athygli, jafnvel
neikvæð, er víst betri en algert
áhugaleysi.
Einhvern tíma kemur vafalaust að
því að vitnað verður vitlaust í þjóð-
sönginn í auglýsingu til að tryggja
að fólk taki eftir nýrri gerð af tann-
kremi eða bleium. Einhverjir munu
þá bregðast harkalega
við og tala um hneyksli
en markmiðið næst:
umfjöllun í fjölmiðlum
um vöruna og athygli
almennings er fönguð.
x x x
Víkverji dagsins fórnýlega í fjögurra
daga gönguferð með
því ágæta félagi
Augnabliki sem hefur í
nokkur ár boðið upp á
ferðir á hálendið norð-
an Vatnajökuls. Hluta
af svæðinu á sem
kunnugt er að sökkva
undir Hálslón væntanlegrar Kára-
hnjúkavirkjunar sem Víkverja finnst
óbætanlegt tjón eftir að hann hefur
séð með eigin augum svæðið.
Sjálfur var Víkverji nokkuð
smeykur við íslenskt veðurfar og
útilegur almennt áður en hann hélt
af stað en létti þegar hann sá að
yngsti þátttakandinn var aðeins
hálfs annars árs drengur! Auk
landslagsins verður líklega minn-
isstæðast að fararstýrurnar tvær
gengu á milli tjaldanna og vöktu
ferðalangana á hverjum morgni með
einstaklega blíðum söng. Kvæði Jón-
asar, Úr Hulduljóðum, á eftir að
óma lengi í minni eftir þessa ferð.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hafnarfjörður | Þessir iðnaðarmenn í Hafnarfirðinum lágu sko ekki í leti í
hádegismatnum sínum í gær heldur skelltu sér í körfubolta og sýndu þessa
líka flottu takta sem minntu nú mikið á hinn fræga körfuboltamann Michael
Jordan þegar hann var uppá sitt besta.
Morgunblaðið/Ásdís
Snilldartaktar í Firðinum
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut
það og gaf lærisveinunum og sagði: Takið og etið, þetta er líkami
minn. (Matt. 26, 26.)