Morgunblaðið - 19.08.2006, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í ÁGÚST
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
7
7
8
S
kánn, syðsti hluti Svíþjóð-
ar, hefur upp á margt að
bjóða og er einna helst
þekktur fyrir veðursæld,
góðan mat, keramik og
fallegar strendur. Margir Svíar eiga
sumarhús á Skáni, ekki síst í Österlen
sem er suðausturhluti Skánar eða
Skåne eins og landsvæðið heitir á
sænsku. Til Österlen flykkjast íbúar
Stokkhólms á sumrin. Österlen er
heimsóknarinnar virði og Íslendingar
eiga hægt um vik, t.d. frá Kaup-
mannahöfn.
Simrishamn er fallegur gamall
síldarbær í Österlen. Sex þúsund
manna bær við Eystrasaltið með
hlöðnum götum, fallegri höfn og sjáv-
arréttaveitingastöðum. Frá Simr-
ishamn er stysta leiðin til dönsku eyj-
unnar Borgundarhólms og þar á milli
er hægt að fara í dagsferðir eða
lengri ferðir, en bátsferðin tekur um
klukkustund.
Einn vinsælasti
áfangastaður Dana
Borgundarhólmur er einn vinsæl-
asti áfangastaður Dana í sumarfríinu
og þeir halda fast í þessa eyju sem
e.t.v. ætti fremur landfræðilega að til-
heyra Svíþjóð. Engir aðrir en danskir
ríkisborgarar mega eiga þar fast-
eignir og það þykir auk þess mjög
fínt.
Simrishamn og nágrenni er vel
þess virði að skoða. Hótelið Kockska
Gården er skemmtilegt hótel í gömlu
verslunarhúsi frá átjándu öld, sem
gert var upp á sjötta áratug síðustu
aldar. Húsgögnin eru þekkt dönsk og
sænsk hönnun og vandað er til inn-
réttinga. Biðja ætti um herbergi sem
vísar ekki út að götu því raunin er að
hlaðnar götur ýkja umferðarhávaða!
Í morgunmatnum fær hráefni stað-
arins sinn sess og hans er hægt að
njóta úti í fallegum garði með litlum
sítrónutrjám í pottum.
Veitingastaðir eru margir góðir í
Simrishamn. Maritim hefur besta
orðsporið en freista ætti þess að
panta borð eða mæta tímanlega því
þar er yfirleitt fullt. Þar er reyndar
gott hótel líka. Veitingastaðurinn Rö-
ken, alveg niðri við höfn, var valinn í
staðinn og þar var mjög góður matur
á sanngjörnu verði.
Komið við í verðlaunabakaríi
Frá Simrishamn til Ystad, sem
liggur í útjaðri Österlen, er afar falleg
leið meðfram ströndinni. Á leiðinni er
hægt að stoppa til að synda í sjónum
við einhverja af ófáum hvítum sand-
ströndum Skánar, fá sér kaffi og með
því í verðlaunabakaríi og skoða dul-
arfullar víkingamenjar á Suður-
Skáni, Ale steinana.
Brantevik er fyrsti viðkomustað-
urinn, lítið fallegt fiskiþorp. Meðfram
strandlengjunni lengra suður eftir er
hægt að velja úr mörgum sund-
stöðum. Sandhammar, endalaus hvít
strönd, verður fyrir valinu. Hungur
er farið að segja til sín um hádegisbil
og því er haldið í verðlaunabakaríið
Olof Viktors bageri í Glemmingebro.
Mikil aðsókn er í bakaríið og kaffi-
húsið sem staðsett er í gömlu býli ná-
lægt þjóðveginum. Stór garður er
bak við kaffihúsið og þar er pláss fyr-
ir alla. Brauðið sem bakað er í stein-
ofnum er vissulega gott og kökurnar
einnig. Bakaríið hlaut m.a. við-
urkenninguna Konditori ársins 2006.
Ystad er næsti viðkomustaður og
þá er ferðinni heitið inn í landið til að
fara hring um Österlen. Skánn hefur
upp á margt fleira að bjóða þótt vikið
sé frá ströndinni. M.a. er hægt að
synda í vötnunum inni í landinu í
staðinn, heimsækja hallir og ker-
amikverkstæði. Tomelilla hljómar
eitthvað kunnuglega og þar næst för-
um við inn á sælkeraleiðina um Skåne
Tranås þar sem heimsækja ætti
Brummers krog. Um er að ræða
skánska sveitakrá undir frönskum
áhrifum og það hljómar ekki illa.
Brösarp verður næst á veginum en
síðan má fara að færa sig aftur út að
ströndinni til að klára hringinn um
Österlen. Kivik er miðstöð eplarækt-
ar á Skáni. Þar er hægt að heimsækja
safagerð, fylgjast með fram-
leiðsluferlinu og smakka ferskasta
eplasafa sem til er. Bærinn er um
þúsund manna gamall fiskibær með
fallegri höfn og ófáum baðströndum í
nágrenninu. Og síðan er haldið áfram
til Simrishamn þar sem hringurinn
hófst.
Sítrónutré og sjávarréttir á Skáni
SVÍÞJÓÐ
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
Ferja á milli Simrishamn og Borgundarhólms
www.bornholmexpress.dk
Hótel Kockska Gården
Storgatan 25, Simrishamn
www.kockskagarden.se
Maritim Krog & Hotell
Hamngatann 31, Simrishamn
www.maritim.nu
Röken
Veitingastaður við smábátahöfnina í Simrishamn
www.roken.se
Olof Viktors bakarí, kaffihús og búð, Glemmingebro
www.olofviktors.se
Brummers krog
Skåne Tranås
www.brummerskrog.se
Kiviks eplasafagerðin, kaffihús og búð, Kivik
www.kiviks.se
Morgunblaðið/Steingerður
Bakgarður hótelsins Kockscka Gården í Simrishamn.
Smábátahöfnin í Simrishamn.
Ein af mörgum hvítum sandströndum á Skáni.