Morgunblaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 225. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Enginn þjóðar- rembingur Ungir Norðurlandabúar í sumar- vinnu á vegum Nordjobb | 16 FERÐAMENN sem fóru í hvalaskoðun frá Húsavík á laugardaginn urðu vitni að alveg einstæðum atburði á Skjálfandaflóa, skammt undan Húsavík en þar stökk hnúfubakur 200–300 sinnum á 2–3 klukkutímum. Slíkt hafa menn aldrei séð áður. Enda voru ferða- mennirnir um borð í Náttfara frá Norður- Siglingu algerlega dolfallnir yfir loftfim- leikum hnúfubaksins. Og ekki spillti fyrir að allar aðstæður voru hinar bestu á flóanum, nær sléttur sjór, glaðasólskin og hiti. „Þetta er besta hvalaskoðunarferðin frá upphafi á Húsavík, af þeim þúsundum ferða sem farnar hafa verið,“ segir Stefán Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Gentle Giants Whalewatching á Húsavík, en bæði hvala- skoðunarbátar frá Norður-Siglingu og Gentle Giants voru á flóanum þegar hið skemmtilega atvik átti sér stað. Allt stefnir í metsumar hjá hvalaskoð- unarfyrirtækjunum á Húsavík og þannig segir Heimir Harðarson hjá Norður-Siglingu að ætla megi að fyrirtækið muna sigla með hátt í 30 þúsund farþega á þessu ári, sem væntanlega er met á landsvísu. Mikil hvalagengd hefur verið á Skjálf- andaflóa í sumar, þannig hafa menn séð mikið af bæði hnúfubak og steypireyði í fló- anum auk hrefnunnar og raunar voru menn farnir að kannast við hnúfubakinn stökk- glaða en slíka stökkseríu hefur hann þó aldrei tekið áður eða nokkuð í líkingu við hana. Ótrúleg stökksería hnúfubaks Ljósmynd/Heimir Harðarson Allt stefnir í metsumar hjá hvalaskoðunarfyrirtækjum LÍBÖNSK stjórnvöld vöruðu við því í gær að líbanski herinn myndi grípa til aðgerða gegn hverjum þeim sem skyti eldflaugum að Ísr- ael frá Líbanon og litið yrði á slíkt sem landráð. Ummælin eru talin viðvörun til Hizbollah. „Hver sá sem skýtur einni ein- ustu eldflaug og gefur þar með Ísrael réttlætingu [fyrir því að ráðast á Líbanon] verður tekinn föstum tökum,“ sagði Elias Murr, varnarmálaráðherra Líbanons, og bætti við að hann teldi þó að Hizbollah-samtökin myndu standa við sinn hluta vopnahlésins milli þeirra og Ísraela. Þetta sagði hann degi eftir að ísraelsk stjórn- völd sögðust óttast að Hizbollah myndi ekki standa við vopnahléið. Fouad Siniora, forsætisráð- herra Líbanons, sagði er hann fór um úthverfi Beirút, höfuðborgar landsins, í gær, að blóðbaðið og eyðileggingin sem Ísraelar hefðu valdið með árásum sínum jafngilti glæpum gegn mannkyninu. Vilja að Ítalir leiði sveitirnar Ísraelar hafa beðið Ítali um að fara fyrir fjölþjóðaliði sem sinna á friðargæslu í Suður-Líbanon. Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, mun hafa svarað því að Ítalir myndu senda talsvert herlið á staðinn, en ítalskt dagblað hafði í gær eftir Piero Fassino, leiðtoga stærsta flokksins í ríkisstjórninni, að Ítalir væru reiðubúnir að fara fyrir liðinu yrði þess óskað, þótt þeir sæktust ekki eftir því. Hóta að refsa þeim sem rjúfa vopnahléið AP Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, skoðaði eyðilegginguna í úthverfum Beirút í gær. Eftir Bryndísi Sveinsdóttur bryndis@mbl.is Teheran. AFP. | Írönsk stjórnvöld sögðust í gær ekki ætla að hætta að auðga úran, sem er lykilkrafa í al- þjóðlegri tillögu sem ætlað er að binda enda á deiluna um kjarnorkuáætl- un Írana. Frest- ur sem þau hafa til að svara til- lögu Rússa, Kínverja, Frakka, Breta, Þjóðverja og Bandaríkjamanna, um lausn deil- unnar rennur út á morgun. Utanríkisráðuneyti Írans segir að lokaákvörðun um málið muni byggjast á samningaviðræðum. Talsmaður ráðuneytisins, Hamid Reza Asefi, varaði hinsvegar við því að það væri ekki á dagskránni að auðgun úrans yrði hætt. Úran er auðgað til að framleiða eldsneyti fyrir kjarnorkuver en einnig til að búa til kjarnorkusprengjur. Hætta ekki auðgun úrans Hamid Reza Asefi Fasteignir og Íþróttir í dag Fasteignir | Sælureitur á Indriðastöðum  Sitkalúsafaraldur  Öryggishellur Íþróttir | Tiger Woods í sérflokki  Fallbaráttan harðnar  Duffield með 400 leiki  Fyrsti titill Eiðs með Barcelona KÍNVERSKUR karlmaður á fimm- tugsaldri, starfsmaður Impregilo við Kárahnjúka, hlaut slæma áverka þeg- ar ráðist var á hann með fólskulegum hætti í fyrrinótt. Það var herbergis- félagi mannsins sem fann hann um áttaleytið í gærmorgun en talið er að hann hafi legið meðvitundarlaus í her- bergi sínu í töluverðan tíma. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins var aðkoman afskaplega ljót. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn til Egilsstaða og þaðan var flogið með hann til Reykjavíkur. Um tíma var óttast að hann hefði höfuð- kúpubrotnað en svo reyndist þó ekki vera. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, vildi lítið ræða um rannsókn málsins í gær. Rætt hefði verið við nokkra aðila en enginn hefði verið yfirheyrður með réttarstöðu grunaðs manns. Aðspurður sagði hann að lögregla gæti fengið aðstoð frá nokkrum túlk- um til að geta rætt við samlanda mannsins. Að sögn Ómars Valdimars- sonar, upplýsingafulltrúa Impregilo, eru um 500 Kínverjar við störf fyrir fyrirtækið við Kárahnjúka. Fólskuleg árás á kínverskan starfsmann Kinshasa. AFP. | Enginn náði meirihluta at- kvæða í forsetakosningunum í Lýðræð- islega lýðveldinu Kongó en niðurstöður úr þeim voru birtar í gær- kvöldi. Verður því önn- ur umferð kosninganna haldin 29. október. Jos- eph Kabila núverandi forseti fékk flest at- kvæði, eða 44,8% en hefði þurft að fá helm- ing atkvæða til að ná kjöri í embætti forseta í fyrstu umferð. Jean- Pierre Bemba, sem er fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna, fékk rúmlega 20% atkvæða og valið stendur því á milli þeirra tveggja þegar önnur umferð kosninganna fer fram. Antoine Gizenga var þriðji í röðinni með 13% atkvæða. Alls voru frambjóðendurnir 33. Þetta eru fyrstu lýðræðislegu fjölflokka- kosningarnar í hinu stríðshrjáða landi síð- an það fékk sjálfstæði frá Belgíu fyrir tæplega 46 árum. Kjörsókn var 70,5% í kosningunum sem fóru fram 30. júlí en alls voru 25,7 milljónir manna á kjörskrá. Frambjóðendurnir hafa nú þrjá daga til að kæra úrslitin. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, SÞ, sagði þegar niðurstaðan var ljós að kosningarnar mörkuðu þátta- skil í þróun lýðræðis í landinu, og fagnaði því að úrslit væru fengin. Enginn fram- bjóðandi náði kjöri í Kongó Joseph Kabila Jean-Pierre Bemba

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.