Morgunblaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 2006 17 UMRÆÐAN AF HEIMSÓKN Richard Dawk- ins í Kastljós 25. júní síðastliðinn og kynningunni á The root of all evil? sjónvarpsþáttum hans, hefur sprott- ið lífleg umræða um trú, trúleysi og spurninguna um sameiningu trúar og vísinda. Má segja að grein sr. Gunnars Jóhannessonar, Trú og vís- indi, í Lesbókinni 8. júlí síðastliðinn, hafi komið umræðunni af stað, en nú síðast hafa bæst við skrif dr. Stein- dórs J. Erlingssonar og sr. Kristins Jens Sigurþórssonar og er fengur í þessari umfjöllun. Tilgangur þess- ara skrifa er þó ekki að taka þátt í skoðanaskiptum umræðunnar, held- ur að skoða lauslega orsakir þessa ágreinings, sem að mati greinarhöf- undar liggja í mismunandi hug- takaskilningi manna er stafar af skorti á endanlegum vísindasvörum. Hefur umræðan farið víða og jafn- vel inn á spurningar eins og hvort einhver vísindaleg rök sé að finna fyrir fullyrðingum sumra trúar- bragða að annað líf – sem aldrei lýk- ur – taki við að þessu loknu. Er sagt að Kung-Fu-Tze hafi oft verið spurður um tilvist lífs þessa og að hann hafi þá jafnan svarað; „Reynið að finna út hvernig því lífi sem þið lifið nú er ætlað að vera og þá munið þið mögulega öðlast svar við spurn- ingunni“, en að baki þessa svars er að finna spurningarnar um samein- ingu trúar og vísinda, sem og allar spurningar sem varða alheiminn, til- veru okkar og vitundarlíf. Málið snýst því ekki um einhver „sköp- unarvísindi“ trúarbragðanna eða „vithönnun“ alheimsins, heldur um okkur. Tuttugu og tveggja ára rannsókn- arvinna greinarhöfundar hefur sýnt honum að spurningin um samein- ingu trúar og vísinda er öllu flóknari en menn gera sér almennt ljóst og enn vantar upp á þá grundvall- arþekkingu og skilning vísinda okk- ar í skammtafræðinni, sameinda- líffræðinni, sálarlíffræðinni (phsychobiology) og heilastarfsemi okkar, sem til þarf svo slík samein- ing geti átt sér stað. Skorturinn er fyrst og fremst á svörum við spurn- ingunum um raunveruleikaskynjun áhorfenda og rannsakenda sköp- unarinnar og verður spurningunum um „Guðs-raunveruleikann“ eða „persónulegan Guð“ ekki svarað án þeirra svara. Er athugasemd Paul Davis, prófessors, frá árinu 1983, í takt við þessa afstöðu, en hann sagði; „Það kann að virðast fárán- legt, en það er áliti mitt að vísindin bjóði upp á öruggari leið til Guðs en trúarbrögðin.“ Lokaspurningarnar um manninn og alheiminn eru alfarið skammta- fræðilegs eðlis þar sem grunnurinn að heilastarfsemi okkar verður ein- ungis skilinn í skammtafræði- hugtökum. Hér strandar leitin í skammtafræðiskilning okkar á mis- mun dauðra og lifandi efniskerfa og hafði prófessor Stephen Hawkings 1984 þetta um málið að segja; „Þrátt fyrir að við þekkjum þær grundvall- arjöfnur sem draga saman alla líf- fræðina, hefur okkur ekki tekist að draga saman rannsóknir á mann- legri hegðun í hluta af hagnýtri stærðfræði á þessu sviði.“ Nóbels- eðlisfræðingurinn Steven Weinberg lýsti hvað best þessu lokavandamáli kennivísindanna þegar hann sagði 1992: „Það sem við þörfnumst eru skammtafræðilíkön, með bylgju- virkni, sem lýsa ekki einungis hinum ýmsu kerfum sem verið er að rann- saka, heldur einnig einhverju sem á sama tíma stendur fyrir meðvitaðan áhorfanda.“ Bandaríski sálarlífeðlisfræðipró- fessorinn, Richard M. Restak, bend- ir á eftirfarandi; „Þar sem heili okk- ar er ólíkur nokkurri annarri byggingu í hinum þekkta alheimi, virðist það vera sanngjarnt að skiln- ingur okkar á starfsemi hans – ef við eigum einhvern tímann eftir að öðl- ast slíkan skilning – muni þarfnast leitar sem er verulega frábrugðin þeim leiðum sem við notum til að skilja önnur kerfi.“ Restak, sem og breski tauga- líffræðiprófessorinn Susanne Greenfield barónessa, kalla leit- ina að hinum end- anlega og fullkomna skilningi á starfsemi mannsheilans og vit- undarinnar; „Hin end- anlegu landamæri vís- indanna.“ Athyglisverðust er í öllu þessu at- hugasemd bandaríska líffræðiprófessorsins og fyrrum rektors Harvard háskóla, Gerald D. Fischbach: „Heim- spekileg leit verður að vera studd með tilraunum sem eru nú meðal hinna mest ár- íðandi, ögrandi og örv- andi í öllum vís- indagreinum og sögu vísindanna. Lífsafkom- umöguleikar okkar, og sennilega alls lífs þess- arar reikistjörnu, byggjast á enn full- komnari skilningi á mannshuganum“, en hér hefur bandaríski taugalíffræðiprófess- orinn Paul MacLean lýst þessu með aðeins öðru orðalagi; „Áhugi á mannsheilanum þarfnast engrar annarrar réttlætingar en löngunarinnar í vitneskju um það, hvers vegna við erum hér, hvað við erum að gera hér, og hvert við erum að fara.“ Spurningin um sameiningu trúar og vísinda er margfalt yfirgripsmeiri en það að hægt sé að fjalla um hana með einhverjum einhliða alhæfinga- yfirlýsingum, hvort heldur sem er í andlegum- eða efnisvísindaskilningi, en hug- og efnisvísindaaðferðir mannsins til skilnings á tilverunni eru enn ekki komnar á leiðarenda og þangað komast þessar greinar ein- ungis í samfloti. Þar til að það gerist eru „afþvíbara“ svör krakkanna, bestu frumspekilegu svörin við öll- um spurningum af þessu tagi. Meira á www.mbl.is/greinar Spurningin um sameiningu trúar og vísinda Páll Jóhann Einarsson skrifar um trú og vísindi ’Lokaspurningarnar ummanninn og alheiminn eru alfarið skammta- fræðilegs eðlis þar sem grunnurinn að heila- starfsemi okkar verður einungis skilinn í skammtafræðihug- tökum.‘ Páll Jóhann Einarsson Höfundur er fyrrum flugmaður. pauljohn@centrum.is „Vísindi án trúarbragða eru lömuð, trúar- brögð án vísinda eru blind.“ A. Einstein

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.