Morgunblaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
SPARISJÓÐUR Lálands í Danmörku býður við-
skiptavinum sínum nú upp á að leggi þeir fram sex
þúsund danskar krónur, jafnvirði 73 þúsunda ís-
lenskra króna, láni sjóðurinn þeim 300 þúsund
danskar eða 3,6 milljónir íslenskra króna á móti í
2½ ár við 4,75% vöxtum og féð verði síðan notað til
stöðutöku í íslensku krónunni og veðjað á að gengi
krónunnar muni hækka. Sparisjóðurinn lánar
þannig liðlega fimmtugfalda þá upphæð sem við-
skiptavinurinn leggur fram.
Segir áhættuna litla
„Það getur virst sem þetta sé mikið, en tapið
sem viðskiptavinurinn gæti lent í er sex þúsund
krónur af heildarfjárfestingu upp á 306 þúsund
krónur. Þess vegna viljum við gjarna bjóða við-
skiptavinum okkar upp á þennan fjárfestingar-
kost, því hann er þekktur og áhættan er lítil,“ er
haft eftir Preben Skytt, sölustjóra Sparekassen
Lolland, á viðskiptavef Berlingske Tidende.
Þar upplýsir hann einnig að það kosti 29.600
danskar eða um 355 þúsund íslenskar krónur eftir
skatt að fá umrædda upphæð lánaða í 2½ ár hjá
sparisjóðnum. Hins vegar geti viðskiptavinurinn
hagnast vel ef gengi íslensku krónunnar hækkar.
Hann tekur fram að auðvitað standi mönnum líka
til boða að fjárfesta á sama hátt fyrir eigið fé og án
þess að taka lán. Skytt segir að allt velti þetta au-
vitað á tiltrú manna á að íslenska krónan muni
styrkjast á næstu misserum.
„Með þeim aðgerðum sem íslensk stjórnvöld
hafa hrint af stað höfum við trú á því að íslenska
krónan eigi eftir að styrkjast,“ segir Skytt.
Lánar út á styrkingu
íslensku krónunnar
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði tíunda daginn í röð,
eða um 1,7% og er nú komin í 5.847
stig. Verslað var með hlutabréf fyrir
rúma 6,2 milljarða króna, þar af fyrir
um 1,7 milljarða með bréf Lands-
bankans en gengi bréfanna hækkaði
um 2,6%. Gengi bréfa Alfesca hækk-
aði um 5,4%, Össurar um 4,7% og
Dagsbrúnar um 4%. Gengi bréfa Ice-
landic Group lækkaði mest eða um
1,9%.
Gengi íslensku krónunnar stóð í
stað en velta á millibankamarkaði
nam um 14 milljörðum króna í dag.
Dalurinn kostar nú 70,20 krónur,
evra 89,88 kr. og pundið 132,50
krónur.
Tíu daga hækkun
● HAGNAÐUR Sparisjóðs Bolung-
arvíkur á fyrstu sex mánuðum ársins
nam 61 milljón króna en var 67 millj-
ónir á sama tímabili í fyrra. Arðsemi
eigin fjár var 13,1% en var 14,9% fyr-
ir sama tímabil 2005.
Í tilkynningu frá sparisjóðnum
kemur fram að vaxtatekjur námu á
tímabilinu 289 milljónum, en það er
56% hækkun frá sama tímabili árið
áður. Vaxtagjöld hækkuðu um 93% á
tímabilinu og námu 220 milljónum.
Hreinar vaxtatekjur námu því 69
milljónum en þær voru 71 milljón á
sama tímabili árið áður. Aðrar rekstr-
artekjur voru 99 milljónir en voru
118 milljónir á sama tímabili árið áð-
ur. Önnur rekstrargjöld námu alls 76
milljónum og lækkuðu um 8% frá
sama tímabili árið áður.
Minni hagnaður Spari-
sjóðs Bolungarvíkur
● GREINING Landsbankans mælir
með undirvogun á bréf FL Group.
Í Vegvísi Landsbankans segir að
afkoma FL Group ráðist nú fyrst og
fremst af gengi hlutabréfa og gengi
gjaldmiðla. Annar ársfjórðungur hafi
verið erfiður á hlutabréfamarkaði en
veiking íslensku krónunnar hafi veg-
ið á móti.
„Útlit er fyrir erfiðan þriðja ársfjórð-
ung ef heldur sem horfir. Við metum
virði FL Group um 120ma.kr. sem
gefur verðmatsgengið 15,2 og vænt
verð eftir 12 mánuði 17,0. Við mæl-
um með að fjárfestar selji bréf sín í
FL Group og undirvogi í vel dreifðu
eignasafni,“ segir í Vegvísi Lands-
bankans.
Sveiflukenndur
rekstur FL Group
BAUGUR GROUP á, ásamt öðrum
fjárfestum, í viðræðum við House of
Fraser með það í huga að leggja
fram yfirtökutilboð í allt hlutafé fyr-
irtækisins. FL
Group er á meðal
þessar fjárfesta
undir forystu
Baugs.
Þetta staðfesti
Baugur Group í fréttatilkynningu í
gær sem að hluta til bera að skoða
sem viðbrögð við miklum vangavelt-
um og skrifum í erlendum fjölmiðl-
um að undanförnu.
Í tilkynningunni segir að viðræður
séu „langt komnar“ en stefnt sé að
því að bjóða 148 pens fyrir hvern hlut
í House of Fraser en það myndi þýða
að kaupverðið væri í kringum 46
milljarða íslenskra króna miðað við
gengi pundsins nú. Þó er áréttað að
engin trygging sé fyrir því að yfir-
tökutilboð verði lagt fram.
Í tilkynningu Baugs Group segir
að dótturfélag þess, BG Holding ehf.,
leiði hóp fjárfesta sem stefni að hugs-
anlegri yfirtöku á House of Fraser.
Þetta séu Don McCarthy, FL Group,
West Cost Capital, Kevin Stanford,
Uberior Invest, dótturfélag Bank of
Scotland og Stefan Cassar.
Í tilkynningu FL Group til Kaup-
hallarinnar hefur félagið einnig fyrir
sitt leyti staðfest að það sé þátttak-
andi í hópi fjárfestanna, undir for-
ystu Baugs Group, en ekki kemur
fram hversu stór hlutur FL Group
kynni að verða ef af yfirtöku yrði.
FL Group með í yfirtöku-
tilboði í House of Fraser
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
ÚTLÁN innlánsstofnana námu sam-
tals tæpum 2.860 milljörðum króna í
lok júlí og höfðu þá dregist saman um
24 milljarða í mánuðinum, samkvæmt
nýjum tölum frá Seðlabanka Íslands.
Í Morgunkorni Greiningar Glitnis
segir að rekja megi minnkun útlána
innlánsstofna í júlí til 6% samdráttar í
erlendum útlánum. Helsta skýringin
þar á sé 5% hækkun á gengi krón-
unnar á tímabilinu. Innlend útlán hafi
hins vegar aukist um tæpa 23 millj-
arða í júlí. Sú aukning eigi sér fyrst og
fremst rætur í lánum til fyrirtækja í
þjónustugeira, en hjá öðrum fyrir-
tækjum hafi ýmist orðið samdráttur
eða óveruleg aukning.
Þá kemur fram í Morgunkorninu
að skuldir heimilanna við innláns-
stofnanir hafi numið alls tæpum 660
milljörðum króna í lok júlí, sem er um
60% aukning frá júlí í fyrra. Þar af
voru um 490 milljarðar verðtryggð
lán. Gengisbundin lán námu tæplega
57 milljörðum og stóðu þau í stað milli
mánaða. Hins vegar lækkuðu yfir-
dráttarlán heimilanna nokkuð í júlí og
stóðu í tæplega 68 milljörðum í lok
mánaðarins.
Útlán til heimilanna jukust um 2,3
milljarða í júlí að því er fram kemur í
Morgunkorni Glitnis. Þar segir að
greinilegt sé að bankarnir sýni nú
meira aðhald í útlánum sínum, auk
þess sem hækkandi vextir dragi
væntanlega úr spurn eftir innlendu
lánsfé.
Útlán inn-
lánsstofn-
ana dragast
saman
● STJÓRNARFORMAÐUR sænska
lággjaldaflugfélagsins Fly Me mun
láta af störfum á hluthafafundi sem-
haldinn verður í lok mánaðarins, en
boðað var til fundarins vegna hluta-
fjáraukningar.
Nýr stjórnarformaður í félaginu,
þar sem Fons eignarhaldsfélag í
eigu þeirra Pálma Haraldssonar og
Jóhannesar Kristinssonar hefur tögl
og hagldir, verður Norðmaðurinn
Finn Thaulow.
Hann hefur, að því er kemur fram í
frétt sænska viðskiptablaðsins Da-
gens Industri (DI), 30 ára reynslu í
flugrekstri hjá SAS og gegndi hann
meðal annars stöðu framkvæmda-
stjóra hjá félaginu. Þessa reynslu
hans á að nýta til þess að koma Fly
Me á réttan kjöl en félagið er nú á
miklu umbreytingaskeiði og er mark-
miðið að láta að sér kveðja á al-
þjóðamarkaði með bæði innri og ytri
vexti að sögn DI.
Nýr maður í
brúna hjá Fly Me
ATLANTIC Petroleum var rekið
með tæplega 6,4 milljóna danskra
króna tapi eftir skatta á fyrri helm-
ingi ársins en á sama tímabili i
fyrra var tapið um 580 þúsund
danskar krónur.
Tekið skal fram að félagið hafði
engar tekjur á tímabilinu en rann-
sóknarverkefni þess á sviði olíu-
leitar ganga eftir áætlun, þar á
meðal á svokölluðu Chestnut-svæði
en fram kemur í tilkynningu félags-
ins að gert sé ráð fyrir að olíu-
vinnsla þar geti á síðari hluta næsta
árs.
Heildareignir félagsins í lok júní
námu rúmum 265 milljónum
danskra króna, þar af nam hlutafé
tæpum 210 milljónum danskra
króna á móti 108 milljónum í fyrra.
Hlutafé félagsins var aukið um
121,4 milljónir danskra í hlutafjár-
útboði í júní en markmiðið með því
var að afla fjár til þróunarvinnu og
aukinna umsvifa.
Í tilkynningu Atlantic Petroleum
félagsins kemur fram að stefnt sé
að skráningu félagsins í Kauphöll-
inni í Kaupmannahöfn auk skrán-
ingarinnar hér í því markmiði að
stækka hlutahafahópinn á bak við
félagið.
Tap Atlantic Petr-
oleum 77 milljónir
!
"# $%
&'
$
() # $
'* $ + *
,
,
&
-.&
-/
0/1 23 &43$
5
&#
6 *
7
*
894
:;## #/ 2 !2
< !2
03=# 02*
!"
#$
7>?@
0A2
2 2
; # 3
; 2 2
1 1
1
1
1 1
1
1
1
B CD
B CD
B CD
B
CD
B CD
B CD
B CD
B CD
B CD
B CD
B 1CD
1
B CD
1
B CD
B CD
1
B 1 CD
1
1
1
1
B CD
6 * 2
*#
: $2 A *# E
( 0
1
1
1
1
1
< 2 A )%
:6 F # &4!*
2
1
1
1
8 *G
0H-
C
C
&:0?
"I
C
C
>>
J,I 0K/
C
C
J,I (!
8
C
C
7>?I "L M
C
C