Morgunblaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 15 ERLENT *Forsendur miðast við 60 m2 af Borgarhellum án hellulagnar og jafnar mánaðarlegar greiðslur á VISA eða Mastercard í 36 mánuði. MEST áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Bretta og pokatrygging endurgreiðist við skil. 8% umsýslugjald þegar skilað er opnuðum hellubrettum. Þegar fjárfesta á í garðinum er ómetanlegt að sérfróðir fagaðilar séu með í ráðum. Við hjá MEST fylgjum viðskiptavinum okkar alla leið og veitum þeim alhliða þjónustu. Hjá MEST getur þú fengið aðstoð landslagshönnuða við að skipuleggja garðinn þinn. Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar í síma 4 400 550 eða á www.mest.is. Hellur & steinar fyrir fegurra umhverfi Vertu á hellu í sumar fyrir 4.092 krónur á mánuði* Malarhöf›a 10, Reykjavík Bæjarflöt 4, Reykjavík Hringhellu 2, Hafnarfir›i Hrísm‡ri 8, Selfossi Leiruvogi 8, Rey›arfir›i Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000 Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500 www.terranova.is Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Terra Nova býður nú síðustu sætin í ágúst á ótrúlegum kjörum. Gríptu tækifærið og skelltu þér til þessa vinsæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmögu- leika, fjölbreytta veitingastaði og fjör- ugt næturlíf. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Kr. 39.990 Netverð á mann. m.v. 2 fullorðna í hótelherbergi í viku. Súpersólartilboð 31. ágúst. Súpersól til Búlgaríu 31. ágúst frá kr. 39.990 Síðustu sætin - SPENNANDI VALKOSTUR STJÓRNVÖLD á Ítalíu hafa boð- ist til þess að fara fyrir stækkuðu friðargæsluliði Sameinuðu þjóð- anna í Líbanon en sett það skilyrði að Ísraelar virði vopnahléið og hætti árásum á liðsmenn Hizbol- lah. Massimo D’Alema, utanríkisráð- herra Ítalíu, skýrði frá þessu í við- tali við dagblaðið La Repubblica í gær. „Það er rétt að krefjast þess að Hizbollah afvopnist en við get- um ekki sent hermenn okkar til Líbanons ef Ísraelsher heldur áfram árásunum,“ sagði ráð- herrann. Hann staðfesti enn fremur að stjórnin í Róm kynni að senda allt að 3.000 hermenn til Líbanons, eða um þriðjung þess herliðs sem von- ast er til að Evrópuríki leggi af mörkum. D’Alema hvatti til þess að utan- ríkisráðherrar ESB-landanna kæmu saman sem fyrst til að ræða þátttöku evrópskra hersveita í friðargæslunni. Prodi vill að umboð gæsluliðanna sé skýrt Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnti í fyrrakvöld að Ítalir væru tilbúnir að fara fyrir friðargæsluliðinu í Líbanon. Tilboð Ítala virðist þó vera bundið því skilyrði að samkomulag náist í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna um nýja ályktun, að sögn fréttastofunnar AFP. Hún hafði eftir Prodi að í nýju ályktuninni þyrfti að felast „ákveðið og skýrt um- boð“ svo að ljóst væri hvert hlutverk gæslu- liðanna væri. Frakkar gagnrýndir Í síðustu ályktun öryggisráðsins er heimilað að sent verði 15.000 manna fjölþjóð- legt friðargæslulið til Líbanons. Evrópuríki hafa verið treg til að bjóða hermenn í þetta verkefni af ótta við að þeir kunni að dragast inn í átök verði þeim skipað að afvopna liðsmenn Hiz- bollah. Búist hafði verið við að Frakkar færu fyrir friðargæsluliðinu en þeir buðu aðeins 200 hermenn eftir að hafa látið í ljósi áhyggjur af því að friðargæsluliðið fengi ekki nógu skýrt umboð. Frönsk stjórnvöld gegndu mik- ilvægu hlutverki í því að knýja fram vopnahlé í Líbanon og litið var á síðustu ályktun öryggisráðs- ins sem sigur fyrir frönsku utan- ríkisþjónustuna. Frakkar notfærðu sér náið samband sitt við Líbanon, sem var frönsk hjálenda eftir fyrri heimsstyrjöldina og til loka síðari heimsstyrj- aldar. Tregða Frakka til að senda fleiri her- menn til Líbanons hefur sætt gagnrýni margra dagblaða í Evrópu og í Banda- ríkjunum. „Eftir að hafa krafist þess ár- um saman að komið verði fram við þá sem stórveldi hegða Frakkar sér núna eins og þeir telji það ekki í verkahring sínum að aðstoða við að greiða úr vandanum í Líb- anon,“ sagði The New York Times. Nokkrir stjórnmálamenn og álitsgjafar á Ítalíu hafa látið í ljósi áhyggjur af því að Ítalir fái ekki nægan stuðning frá öðrum Evr- ópuþjóðum taki þeir að sér að stjórna friðargæsluliðinu. Dagblað- ið Corriere della Sera benti á að önnur Evrópulönd hafa enn sem komið er aðeins lofað 1.300 her- mönnum: Spánverjar 700, Búlgar- ar 300, Frakkar 200 og Norðmenn 100. La Repubblica sagði að áhrifa- miklir menn í stjórn Prodis hefðu efasemdir um tilboð Ítala. „Við getum ekki farið til Líbanons án Frakka,“ hafði blaðið eftir Pier- luigi Castagnetti, varaforseta neðri deildar ítalska þingsins. Ítalir bjóðast til að fara fyrir friðargæsluliðinu Romano Prodi Setja það skilyrði að Ísraelar hætti árásum á Líbanon Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is FULLTRÚAR stuðningsmanna Joseph Kabila og Jean-Pierre Bemba, tveggja helstu forseta- frambjóðendanna í Lýðveldinu Kongó [áður Zaire], skrifuðu í gærkvöldi undir samning um að draga hermenn sína út úr kjarna höfuðstaðarins, Kinshasa, en þar hafði verið barist þrjá daga í röð. Um þúsund friðargæsluhermenn frá Evrópusambandinu eru nú þegar í landinu og aðstoða þar um 17.500 manna herlið Sameinuðu þjóðanna, MONUC, sem gæta á friðar í kringum forsetakosning- arnar. Nokkrir hermenn munu hafa fallið í átökunum síðustu daga. „Enginn hefur stjórn á ástandinu í miðborginni,“ sagði talsmaður MONUC, Jean-Tobie Okala, síð- degis í gær. 50 manna hópur her- manna frá Frakklandi, Portúgal og Spáni kom til Kinshasa aðfaranótt þriðjudags í þyrlum og búist var við að 250 þýskir, sænskir, fransk- ir og portúgalskir hermenn kæmu í gær frá Gabon í Vestur-Afríku. Kabila var langefstur í forseta- kjörinu en náði ekki meirihluta. Verður því kosið á milli hans og Bemba, sem var annar, 29. októ- ber. Fulltrúar SÞ sögðu á mánu- dag að bardagarnir hefðu brotist út þegar öryggissveitir Kabila reyndu að afvopna sveitir hliðholl- ar Bemba við heimili hans. Hvað eftir annað hafa brotist út átök á milli stuðningsmanna mann- anna tveggja frá því úrslit fyrri umferðar forsetakosninganna í landinu voru kynnt fyrir nokkrum dögum. Sérstakur fulltrúi Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, William Lacy Swing, segir unnið að því að binda enda á átökin. Friðargæsluliðar SÞ fluttu 14 sendiherra erlendra ríkja á brott frá glæsivillu Bemba við Kongófljót aðfaranótt þriðjudags. Þeir voru gestir hans en höfðu leit- að skjóls í kjallara hússins þegar stuðningsmenn Kabila úr hernum gerðu árás á húsið, meðal annars með þungavopnum. Enginn er- lendu fulltrúanna mun hafa særst en meðal þeirra voru sendiherrar Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk- lands, Rússlands og Kína. „Það hafa staðið skotbardagar á aðalgötu Kinshasa í morgun,“ sagði Swing í gær. „Við erum að reyna að miðla málum og telja báða aðila á að virða vopnahlé, þannig að þeir geti farið að ræðast við.“ Talið er að allt að þrjár milljónir manna hafi látið lífið af völdum margra ára borgarastríðs í Lýð- veldinu Kongó, mannfallið var einkum af völdum hungurs og sjúkdóma. Stríðið stóð fram yfir aldamótin og höfðu sum grann- ríkin afskipti af því, meðal annars til að komast yfir gull og fleiri verðmæt efni sem unnin eru úr námum í Kongó. Alls búa liðlega 50 milljónir manna í landinu, það er á stærð við alla Vestur-Evrópu. Reuters Óbreyttir borgarar í Kinshasa, höfuðborg Lýðveldisins Kongó, ganga fram hjá hermönnum frá Uruguay, liðsmönnum í friðargæsluliði SÞ, í gær. Reynt að stilla til friðar í Kinshasa Vopnaðir liðsmenn Kabila og Bemba lofa að yfirgefa miðborgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.