Morgunblaðið - 23.08.2006, Síða 20
„Það eru til hringar sem falla bæði að persónuleika hverrar konu og hönd
hennar," segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir tískuráðgjafi.
Daglegtlíf
EINHLEYPT fólk finnur ekki síður
til streitu en önnum kafnir og barn-
margir foreldrar, ef marka má
rannsóknir sem náðu til hagfræð-
inga, lögfræðinga og verkfræðinga
í Danmörku.
Rannsóknirnar benda til þess að
ekkert sé hæft í því að streita herji
einkum á hámenntað og barnmargt
fólk sem er á sífelldum þeytingi með
börn sín, meðal annars á dagheimili
eða í skóla, að því er fram kemur í
frétt Berlingske Tidende. „Það er
goðsögn að foreldrar í barna-
fjölskyldum finni til meiri streitu en
einhleypt fólk,“ sagði Mette Bres-
lau, ráðgjafi samtaka danskra lög-
fræðinga og hagfræðinga.
Breslau sagði að rannsókn á veg-
um samtakanna hefði leitt í ljós að
tæpur helmingur einhleypra
kvenna og rúmur þriðjungur ein-
hleypra karla hefðu náð góðu jafn-
vægi milli vinnunnar og einkalífsins
en rúmur helmingur fólks sem er
gift eða í sambúð.
Rannsókn á vegum stéttarfélags
danskra verkfræðinga bendir einn-
ig til þess að streitan sé ekki minni
meðal einhleyps fólks en barna-
fólks.
Berlingske Tidende hefur eftir
Einari B. Baldurssyni, vinnusál-
fræðingi við Álaborgarháskóla, að
þessi niðurstaða komi honum ekki á
óvart, meðal annars vegna þess að
einhleypt fólk geti verið einmana og
hneigst til þess að vinna of mikið.
Morgunblaðið/Júlíus
Streita hjá einhleypu fólki getur m.a. stafað af einmanaleik og of mikilli vinnu.
Streitan ekki minni
meðal einhleypra
RANNSÓKN
Konur eignast svo mikið afskartgripum orðið, þarsem úrvalið er bæði orðiðmeira og verðbilið
breiðara en áður. Í dag er hægt að fá
urmul af fallegum, vönduðum og
skemmtilegum hringum á verðbilinu
5–25 þúsund krónur. Þeir eru því ekki
orðnir meiri munaðarvara en peysa
eða skór og oft tilvalið að gefa einn
fallegan við hin æði mörgu tilefni sem
nútímafólk heldur upp á,“ segir Eva
Dögg Sigurgeirsdóttir tískuráðgjafi
og brosir. ,,Hringar hafa oftar en ekki
tilfinningalegt gildi og tengjast gjarn-
an tímamótum eða ánægjulegri lífs-
reynslu fólks, þar sem það innsiglar
traust og trúnað, eða öðrum hátíð-
arhöldum. Konur eru þess vegna oft
tregar til þess að taka baugana niður
og sumar flagga þeim jafnvel sem
flestum í einu. Þá er hins vegar hætt
við að enginn njóti sín í mergðinni,
enda oft frá misjöfnum tímabilum og
ólíkir bæði að gerð og stíl. Það er
miklu farsælla og fallegra að skipta
oftar um hringa og leyfa hverjum og
einum að njóta sín.“
Það er ekki víst að höfundur ís-
lenska málsháttarins Oft hefur hin
frægri kona færri hringa hafi verið
svo tískumeðvitaður. Líklegra er að
hann hafi verið að vísa til þess, að þeir
tímar þar sem ætt og auður skiptu
mestu máli þegar menn völdu sér
konur væru að úreldast, en dýrir
skartgripir gengu oft í ættir. Nútíma-
fræðingar túlka merkingu hans ein-
mitt sem svo að konur sem eru miklar
af sjálfum sér, eins og segir í bókinni
Íslenskir málshættir, þurfi ekki að
berast mikið á í glysi og skartgripum.
Litlifingur og vísifingur
hringfingur nútímans
Það er engin tilviljun að baugfing-
ur heitir þessu lýsandi nafni. Hlut-
verk hans á menningarsvæðum frá
örófi alda og enn í dag er að bera
bauginn mikilvæga en orðið er annað
íslenskt yfir hring. Hringurinn er
ótrúlega fullkomið form, hefur ekkert
upphaf og engan endi. Hann hefur
alla tíð haft táknrænt gildi, jafnt í
trúarbrögðum þar sem hann táknar
oft eilífðina og eins og áður segir í
samskiptum manna.
Íslenskan er ekki eina tungumálið
þar sem fingurinn er nefndur eftir
hringnum því sama á við um fjölda
annarra evrópskra mála eins og
sænsku, frönsku og ítölsku. Víða var
og er trúin á verndandi áhrif og hugs-
anlegan lækningamátt hringa mikil
en sú hjátrú jafnframt við lýði að
mátturinn gæti horfið er orðið sjálft
væri nefnt á nafn í því samhengi. Í
tungumálum á þessum svæðum, eins
og rússnesku og japönsku, er baug-
fingurinn því nefndur nafnlausi fing-
urinn. Í þýsku og latínu er kjarni
málsins hins vegar skýr en þar er
fingurinn einfaldlega nefndur lækn-
isfingur.
Eva Dögg segir að í dag sé baug-
fingurinn ekki sá eini sem leyfilegt sé
að bera hringa á. ,,Það er orðið mjög
vinsælt að bera hring á litlafingri en
ef bornir eru tveir hringar á sömu
hendi er fallegast að bera hringana á
baugfingri og vísifingri. Konur er
sjaldan með hring á þumalfingrinum
en oft eru það þær sem vilja skera sig
úr sem bera hann þar. Það er í því
samhengi skemmtilegt að nefna að
Sharon Stone, í hlutverki Catherine
Trammel, var með einn slíkan á
þumlinum hannaðan af Íslendingnum
Hendrikku Waage í einu atriðanna í
Basic Instinct 2.“
Máttur sjónhverfinga
og stílæfinga
Konur eiga að sjálfsögðu að hafa
það hugfast að draga fram fegurð
handa sinna þegar kemur að vali á
hringum. ,,Sumar konur telja sig ekki
vera með hendur til að bera hringa en
það er að sjálfsögðu hringavitleysa,“
segir Eva Dögg ákveðin. ,,Það er ekk-
ert til sem heitir „hin fullkomna
hönd“, frekar en hinn „fullkomni lík-
ami“. Það eru til hringar sem falla
bæði að persónuleika hverrar konu
og hendi hennar. Málið snýst fyrst og
fremst um stærðarhlutföll og þar er
hægt að beita ýmsum sjónhverfing-
arbrellum. Stór hringur gerir hönd til
dæmis minni og pínulítill hringur á
stórri hendi stækkar höndina. Fingur
virðast almennt styttri þegar á þeim
eru bornir ferkantaðir hringar en
breiðari hringar og ávalari virðast
hins vegar lengja þá. Það er nánast
allt í tísku núna og því geta konur
ráðið svo miklu um sinn persónulega
stíl. Stórir hringar hafa reyndar verið
mjög áberandi og verða í vetur. Út-
færslurnar eru margar mjög
skemmtilegar og hugmyndaflugið
með ólíkindum. Ég held að það hafi
sjaldan verið jafnmikil gróska í gerð
hringa og nú. Það virðist allt vera
leyfilegt.“ Þá er bara að leika af fingr-
um fram og taka einn hring …
SKARTGRIPIR | Hver er þinn baugsstíll?
Fléttuhringar og mynsturbaugar eru vinsælir
og auðvelt að finna sér lögun, stærð og lit.
Gróska í gerð
táknrænasta
skartgripsins
Morgunblaðið/Eggert
„Það eru til hringar sem falla bæði að persónuleika hverrar konu og hendi hennar,“ segir Eva Dögg tískuráðgjafi.
Með ferkantaðan hring í sterkum lit virkar
höndin styttri og kubbslegri en hún er.
Hringur með stórum steini sem lengir fing-
urna og gefur hendinni fallegt yfirbragð.
Þessi óvenjulegi hringur er svalur við hvers-
dagslegan fatnað eins og gallabuxur.
Hringur hefur yfirleitt djúpa og persónulega
merkingu fyrir þann sem hann ber, tákn fyrir
tímamót á lífsleiðinni eða lífsreynslu. Margir eru
því fastheldnir á hringa sína og taka þá sjaldan niður.
Evu Dögg Sigurgeirsdóttur tískuráðgjafa tókst þó að
sannfæra Unni H. Jóhannsdóttur um að það væri í
góðu lagi að skipta um hringa eins og föt og gaf auk
þess nokkur fyrirtaksráð um hvernig fólk ætti
að velja hringa eftir fingur- og handarstærð.
ágúst