Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 21

Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 21 UMRÆÐAN VEL getur verið að einhver undrist að rólegheitakona skuli taka þá áhættu að spyrja slíkrar spurn- ingar. Ástæðan er þríþætt: Ótrúleg skrif sumra, frétta- flutningurinn á Ís- landi og hryllings- sagan, sem ég las í Fréttablaðinu 26. júlí sl. Ég er ekki vön að eyða tíma mínum í lestur hryllingssagna, þó þær séu með ein- dæmum vinsælar um þessar mundir en trúlega lagði ég í lesturinn vegna þess hve sagan var stutt, en hrottalegra hefi ég varla séð, en þannig eiga slíkar sögur sjálfsagt að vera til að standa undir nafni. Höfundurinn býr í gömlu gyðingahverfi í Berlín að eigin sögn, sem hljómar að sjálfsögðu mjög dramatískt og setur sinn svip á söguna. Ef til vill eru þar gamlir gyðingar enn á ferð lúnir með staf eða kannski voru þeir allir hraktir burt og lentu í útrýmingarbúð- unum! Húsin í Berlín standa því væntanlega sum hver tóm og göm- ul að hruni komin. Upptalningin á meintum göllum Ísraelsmanna (gyðinga) er með ólíkindum, mennirnir geta varla verið mennskir af holdi og blóði eins og við hin? En svo kemur rúsína inn í söguna. Núverandi forsætisráð- herra Ísraels var á sínum tíma fræðari höfundar umræddar sögu. Óneitanalega hefði verið skemmti- legra fyrir okkur, sem lásum sög- una að vita hvenær og undir hvaða kringumstæðum þessi frægu sam- töl áttu sér stað, það hefði verið trúverðugra, því samtölin eru varla skáldsaga (!) eða hvað? Frá- sögn Ehud Olmerts –segir höf- undur – fór að „minna á eintal innan úr köldum, dökkum og stundum skelfilegum heimi“. Já, það var og. Blessaður maðurinn, sem þessa stundina fer – að því er virðist – offari í Líbanon hefur að sjálfsögðu talið sig vera að tala við vin sinn, um veruleikaheim þjóðar sinnar um liðnar aldir, ofsóknirnar og hryllinginn í „… köldum, dimmum og skelfilegum heimi …“ Já, sumir halda því fram að Helförin hafi aldrei átt sér stað og aðrir spyrja, hversvegna gyð- ingar? Jú þeir voru öðruvísi, trúarbrögð þeirra voru öðruvísi, sem gerðu þó engum mein. Í sögu mannkyns finnst enginn kynþátt- ur, sem hefur mætt öðrum eins of- sóknum og haldið velli. Sígaunar voru líka öðruvísi og lentu í gas- klefunum. Fötluð börn, svo undur saklaus, en lentu samt á pallbílum í haugum til útrýmingar. Hroða- legur veruleiki. Allir sem kæra sig um, geta vit- að hvernig átökin fyrir botni Mið- jarðarhafs hófust að þessu sinni. Þrem ungum mönnum var rænt og níu drepnir. Hryðjuverka- samtök Hizbollah lýstu því yfir þegar í upphafi morðanna – „að stríð væri hafið og því lyki ekki fyrr en búið væri að útrýma Ísr- aelsríki af jörðunni“. Safiadeen, sendifulltrúi Hizbollah, lét hafa eftir sér, að þeir ætluðu að „víkka út hernaðaraðgerðir sínar í Ísrael þangað til Ísraelar yrðu hvergi óhultir“. Hann sagði einnig: „Þessa stríðs verður minnst sem upphafs endaloka Ísraelsríkis og brátt koma ný Mið-Austurlönd að hætti Hizbollah og íslamstrúar.“ Hizbollah-menn berjast til að útrýma Ísrael, Ísraelar berjast til að bjarga lífi sínu og Ísrael. Hversvegna skyldi vera horft fram hjá því á Íslandi að drápsvopn Hizbollah hafa drepið fjölda sak- lausra manna, kvenna og barna í Ísrael og að auki ekki nefnt að þessa stund- ina dvelja rúmar 2 milljónir Ísraela í loft- varnabyrgjum og mörg hundruð þúsund hafa flúið frá brotnum heimilum sínum. Ísr- aelsmenn eru líka fólk sem þjáist í stríði og vilja ekki stríð en hafa útrýmingaröxina yfir höfði sér hverja stund. Jan Egeland, sem samhæfir hjálparstarf Sameinuðu þjóðanna, segir „huglausa Hiz- bollahmenn fela sig á bak við konur og börn í Líbanon … og stuðla þannig að dauða hundruða saklausra manna, mest kvenna og barna“. Það er einnig vitað að Hizbol- lah sendir drápskeyti sín frá íbúðarblokkum þar sem venjulegt fólk býr og eru með hreyf- anlega eldflaugapalla inní miðjum þorpum og bæjum. Fréttaflutningurinn hér heima af átökunum er hreint ótrúlegur. Dag eftir dag eru sömu fréttirnar endurteknar löngu eftir að búið er að leiðrétta sumar þeirra, sam- anber „40 manns voru drepnir“ í stað 1 manns, eins og forsætisráð- herra Líbanon tilkynnti, eða „60 manns voru drepnir …“ þegar bú- ið er að tilkynna að 29 hafi farist. Fréttin um sjúkrahúsið sem var lagt í eyði, er síendurtekin án þess að nefna á nafn að húsið var ekki sjúkrahús, ekki einn einasti sjúk- lingur var þar, húsið var vígi og aðsetur Hizbollah. Hryðjuverkasamtök, sem gera gott með annarri hendi og drepa með hinni eru hin mesta ógn hvert sem litið er. Okkur finnst öllum skelfilegt það sem er að gerast fyrir botni Miðjarðarhafs, því þótt einum hryðjuverkahópi sé eytt vex annar að bragði og alsaklaust fólk þjáist. Sjálf hefi ég ferðast um öll þessi lönd. Líbanon og fallega höf- uðborgin þeirra á sérstakt sæti í hjarta mér. Ísrael hefi ég heimsótt margoft og á góða vini meðal araba og Ísraela, sem mér þykir vænt um. Ég fór frá Ísrael nú síð- ast, nokkrum klst. áður en átökin hófust. Allt þetta fólk þráir að fá að búa saman í friði, sátt og sam- lyndi. Hryðjuverkasamtök Arafats á sínum tíma sem og Hamas og Hiz- bollah vilja þurrka Ísrael út af landakortinu svo og forseti Írans, það er yfirlýst stefna þeirra, frið- ur er ekki til í þeirra áætlunum og enn í fersku minni þegar forsætis- ráðherra Ísraels á sínum tíma bauðst til að skila Gaza og Vest- urbakkanum, viðurkenna sjálf- stæði Palestínu og að Jerúsalem yrði höfuðborg þeirra. En Arafat þáði ekki boðið og hóf sem fyrr fólskulegar árásir á saklaust fólk á fjölmennum stöðum og myrti heilu fjölskyldurnar þar á meðal sitt eigið fólk. Ástandið í Mið-Austurlöndum er hræðilegt, margþætt og ofurflókið sem verður ekki leyst á einfaldan hátt, en okkur hér heima í frelsinu ber að hugsa til fólksins í Palest- ínu, Ísrael og Líbanon í kærleik og til þeirra sem hafa ógn trúar- bragðaofstækis yfir höfði sér, biðja fyrir þeim og okkur sjálfum að við berum virðingu hvert fyrir öðru. Lifið heil. Er gyðingahatur á Íslandi? Hulda Jensdóttir skrifar um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs Hulda Jensdóttir ’Hryðjuverka-samtök, sem gera gott með annarri hendi og drepa með hinni eru hin mesta ógn hvert sem litið er.‘ Höfundur er fv. yfirljósmóðir og forstöðukona. RÍKISSTJÓRNIN hefur tilkynnt að á næstu þremur árum verði var- ið töluverðu fé til búsetuúrræða og starfsendurhæfingar fyrir geðsjúka. Niðurstöður notendarannsókna/ batarannsókna sýna að tryggja þurfi fjárhag og búsetu geðsjúkra. Niðurstöður sýna líka fram á mik- ilvægi aðgengis að félagslífi með þátttöku í atvinnulífi, menningu og/eða áhugamálum. Byggja þarf upp öflugt tengsl- anet í nærumhverfi og að viðkomandi sé í nánum tengslum við einhvern. Hægt er að koma í veg fyrir óþarfa þjáningar eins og nauðungarvistun eða bráðainnlögn ef skjólstæðingur er í góðum tengslum við fagaðila eða þjónustu- fulltrúa sem hann treystir; einstakling sem er tiltækur þegar hinn geð- sjúki þarf á að halda. Í tengslum við þjónustu við geð- sjúka hefur bærinn Trieste á Ítalíu vakið athygli víða um heim. Þar var sjúkrahúsþjónustan lögð niður. Í Trieste hefur sjálfsvígum fækkað um 30% á 20 árum, kostnaður við bráðaþjónustu minnkað um 65% og engin bið er eftir þjónustu. Giu- seppe Dell’Acqua, ítalskur geðlækn- ir sem tekið hefur þátt í þessum breytingum, ráðleggur öllum þeim sem taka ákvarðanir um geðheil- brigðismál að leggja niður sjúkra- hússtofnanir sem allra fyrst. Hans skoðun er að sjúkrahúsin framleiði sjúklinga og viðhaldi fordómum. Mikilvægasta aðstoð við geðsjúka sé að sníða stuðningsnet í kringum þá og fjölskylduna á heimavelli. Það sem eigi að vera í forgrunni í allri vinnu með geðsjúkum sé fjöl- skyldan, búsetan, atvinnumálin og samfellan í þjónustunni. Sjúkdóms- greiningin á ekki að vera í for- grunni, heldur þarfir hvers og eins. Hans skoðun er sú að innan sjúkra- húsveggjanna geti fagfólk aldrei áttað sig á þörfum hins geðsjúka. Menn verði að vera í umhverfi skjólstæðingsins til að átta sig á ástandinu. Það er mat Dell’Acqua að ekki sé hægt að nýta samhliða hugmyndafræði sjúkrastofnana og aðferðir einstaklingsmiðaðrar þjón- ustu. Hægt sé að reka þessar þjón- ustuleiðir samhliða meðan verið sé að byggja upp samfélagsþjón- ustuna, en til lengri tíma hindri þær hvor aðra. Reynsla hans er sú að mótstaða gegn breytingum komi fyrst og fremst frá starfsfólki sjúkrahúsanna, því miklir hagsmunir séu í húfi, persónulegir, fjárhagslegir og dreif- ing valds og áhrifa. Hans álit er að það sé hrein og bein geðveiki að halda þessum stofn- unum gangandi. Einstaklingsmiðuð þjónusta felur í sér breytingar á vinnu- tilhögun, forræðisvaldi og verðmætamati. Ákvörðunartökur verða gerðar í nær- umhverfi skjólstæð- ingsins með þeim aðilum sem hann umgengst og tengist mest. Fagfólk hefur alist upp og menntað sig sam- kvæmt ákveðinni hugmyndafræði sem notendarannsóknir/batarann- sóknir hafa síðar ögrað. Mikil ná- lægð við skjólstæðinga getur verið óþægileg og strítt gegn því sem heilbrigðisstarfsmönnum hefur ver- ið kennt, m.a. um túlkun faglegra vinnubragða. Einstaklingsnálgun í geðheilbrigðisþjónustu felur í sér að hún sé veitt sem mest í nær- umhverfi, þ.e. inni á heimilinu, í skólunum og á vinnustöðum. Lausnir eru fundnar í samráði við skjólstæðinginn með það að leið- arljósi sem hann álítur og trúir að nýtist til bata. Fagfólk hefur líka átt í erfiðleikum með að vinna þvert á kerfin; vill helst vera á ákveðnum stað þar sem skjólstæðingurinn kemur til þeirra. Í stað þess að skjólstæðingur þurfi að fara á milli staða þar sem fagfólk er hvert með sína hugmyndafræði, þarf fagfólkið að fylgja skjólstæðingnum eftir miðað við þeirra áherslur, til að halda samfellu og heildrænni sýn í aðstoðinni. Nú er það oftast þannig að skjólstæðingum er boðin sér- hæfð meðferðaráætlun sem fagfólk hefur sett saman miðað við með- alþörfina en ekki að meðferð sé sér- sniðin fyrir þarfir einstaklingsins. Hvað hafa geðsjúkir fram að færa varðandi eigin málaflokk? Bylting í bata er ráðstefna sem haldin verður á vegum Hugarafls á Hótel Sögu dagana 24. og 25. ágúst. Aðalfyrirlesari er Judi Chamberlin sem greindist með geðklofasjúkdóm fyrir nokkrum áratugum en hefur síðan barist fyrir breyttum áherslum í geðheilbrigðisþjónust- unni. Judi hefur verið virk í hags- munabaráttu geðsjúkra í Banda- ríkjunum, gerst fræði- og rannsóknarmaður og byggt upp ný þjónustuúrræði þar sem not- endasýn hefur verið í forgrunni. Opinn borgarafundur verður í lok ráðstefnunnar, milli klukkan 14.30 og 17, hinn 25. ágúst. Ég hvet stjórnvöld, fjölmiðlafólk, notendur, fagfólk og almenning að mæta a.m.k. á opna borgarafundinn til að halda áfram umræðunni um geð- heilbrigðismál. Hvernig sjáum við geðheilbrigðisþjónustuna þróast hér heima næsta áratug og hvernig tengjast búsetuúrræði og starfs- endurhæfing þeirri þróun? Það verður ekki nóg að setja fjármagn í búsetuúrræði og starfsendurhæf- ingu ef sleppa á að ræða hvers kon- ar hugmyndafræði og stjórn- skipulag á að stýra ferðinni. Í mörgum löndum hafa hug- myndafræðilegar áherslur í vinnu með geðsjúkum tekið breytingum. Geðsjúkir sem náð hafa tökum á líf- inu eins og Judi Chamberlin hafa verið í framvarðasveit við að benda á brotalamir í uppbyggingu og stjórnun geðheilbrigðisþjónust- unnar. Forræðið er að færast nær notendunum sjálfum. Fólk með geðræn vandamál þarf svo sann- arlega á aðstoð að halda, en kannski skilvirkari en áður. Geðveikar stofnanir Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar um geðheilbrigðismál ’Sjúkdómsgreiningin áekki að vera í forgrunni, heldur þarfir hvers og eins.‘ Elín Ebba Ásmundsdóttir Höfundur er meðlimur Hugarafls og lektor við HA. VIÐ HÖFUM nú í ein 5–6 ár verið að fara fram á það við Krabbameinsfélag Íslands að konur eldri en 70 ára verði kallaðar sem fyrr í reglulega skoðun. Ekki hefur það tek- ist, en þessar eldri konur eru velkomn- ar, ef þær hafa sjálf- ar frumkvæði að því að panta tíma. En ef maður hefur góðan málstað gefst maður ekki upp, heldur herðir róð- urinn. Tvö ár á milli skoðana er tími sem fljótur er að líða og því nauðsynlegt að gera konum aðvart og minna á að nýja skoðun þurfi. Árlega fá 172 konur brjósta- krabbamein að með- altali á 5 ára tímabili og þar af eru 45 konur 70 ára og eldri eða 26%. Ef við lítum á dán- artíðni vegna krabbameins í brjóstum þá deyja að meðaltali 45 konur úr sjúkdómnum, þar af 11 konur 70 ára og eldri eða 10% svo að eldri konur koma betur út, enda gengur sjúkdómurinn hægar og er auðfundnari hjá þeim. En það er rétt- lætismál að við reyn- um að hlynna að eldri konum og vandséð hvers vegna þær eiga ekki sama rétt og aðr- ar. Það hefur verið bent á að eldri konur séu ekki boðaðar í skoðun í Svíþjóð og Suður- Finnlandi. En mér finnst þetta engin rök. Um sjötugt eiga marg- ar konur 10–20 góð ár eftir. Ég skora á stjórn Leitarstöðvar Krabba- beinsfélags Íslands að endurskoða málið. Einnig vil ég skora á konur að athuga sitt mál. Krabbamein er alltaf alvarlegt mál og það þarf að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir alvar- legt stig sjúkdómsins. Konur pantið tíma hjá Leitarstöðinni, sími þar er 540 1900. Krabbamein er alvörumál! Páll Gíslason skrifar um krabbamein í brjóstum eldri kvenna. ’Það er réttlæt-ismál að við reyn- um að hlynna að eldri konum og vandséð hvers vegna þær eiga ekki sama rétt og aðrar.‘ Páll Gíslason Höfundur er læknir og fv. formaður Félags eldri borgara í Reykjavík.                       Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.