Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 27

Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 27 MINNINGAR Fyrir fáum árum hættu þau bú- skap og sonur þeirra, Sveinn Hann- es, og kona hans, Eva Marín, tóku við búi. Sveinn er þriðji bóndinn á Hrafnkelsstöðum, sem ber það nafn mann fram af manni. Nú eru ungu hjónin búin að byggja sér íbúðarhús og tekin til við endurbætur á gripa- húsum, svo þau þjóni betur nútíma- kröfum. Sagan endurtekur sig sí og æ. Sjöfn og Svenni eru miklir nátt- úruunnendur og fáir hafa ferðast jafn mikið um landið sitt og þau. Mesta unun höfðu þau þó af öræfa- og óbyggðaferðum. Við hjónin urð- um þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að fylgja þeim í mörgum þessum ferð- um ásamt fleiri vinum okkar. Það má segja að á fögrum degi inni á öræfum hafi hjörtu okkar slegið í takt. Nú er rétt ár síðan við fórum í okkar síðustu ferð. Þá buðu þau okk- ur með í ógleymanlega ferð til Aust- urlands, þau áttu eftir að kanna óbyggðirnar í Loðmundarfirði og kringum Gerpi. Sjöfn fann margan dýrgripinn þar eins og svo oft áður. Hvar sem hún fór var hún ótrúlega fundvís á fallega og sérkennilega steina, enda sér þess stað við bæinn hennar á Hrafnkelsstöðum. Falleg blóm voru henni líka til yndisauka, reynt var að sjá til þess að hún hefði þau ávallt fyrir augunum þetta síð- asta sumar hennar. En nú er komið að leiðarlokum, rétt ár er frá því að Sjöfn kenndi sér þess meins sem nú hefur dregið hana til dauða, erfitt ár, í allri þess- ari þrautagöngu kvartaði hún aldrei. Ekki eitt æðruorð, yfirnáttúrlegur styrkur. Þetta sumar hefur verið öllum erf- itt en engum þó eins og Svenna, sem staðið hefur vaktina í alla þessa mánuði, nærri fram á síðasta dag. Nú er lífsgöngu Sjafnar lokið, myndir og minningar okkar sam- ferðafólksins merla eins og perlur á bandi, það eitt er eftir. En svona er gangur lífsins. Við Kalli biðjum Svenna og fjöl- skyldu allrar guðsblessunar á erfiðri kveðjustund. Þegar æviröðull rennur, Rökkvar fyrir sjónum þér, Hræðstu eigi hel er fortjald, Hinu megin birtan er. Hönd, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir Daga og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson. ) Guðrún Sveinsdóttir, Varmalæk. Í dag verður kær vinkona okkar Sjöfn Hannesdóttir, Hrafnkelsstöð- um, jarðsungin frá Hrunakirkju. Við munum fyrst eftir Sjöfn ungri og fallegri stúlku er hún dvaldist á sumrin hjá frændfólki sínu í Hruna- mannahreppi. Okkar nánustu kynni og vinátta hófst þó ekki fyrr en nokkrum árum seinna er hún var orðin húsfreyja á Hrafnkelsstöðum. Þær eru orðnar fjölmargar ferðirnar sem við höfum farið með þeim hjón- um Sveini og Sjöfn ásamt fleiri ferðafélögum um okkar fagra land. Hálendið hefur jafnan heillað þenn- an hóp. Sjöfn var mikið náttúrubarn og naut þess að reika um í frelsi og stórbrotinni fegurð öræfanna sem við höfum ferðast um á hverju ári síðustu áratugina. Hún tók mjög vel eftir og benti okkur hinum á margt fallegt sem farið hafði framhjá okkur ferða- félögunum. Hún var líka einstaklega fundvís á fallega steina sem voru hennar eftirlæti og hún flutti með sér heim. Eitt af áhugamálum Sjafnar var að renna fyrir silung og hafði hún gaman af. Oft var stöngin með í fjallaferðum og var dorgað þegar tækifæri gafst. Eins átti hún það til að skreppa í Litlu-Laxá fram eftir árum og ná sér í bröndu. Sjöfn var lærð í hágreiðsluiðn. Margir leituðu til hennar og not- færðu sér kunnáttu hennar í þessum efnum sem hún veitti af ánægju og fagmennsku. Sjöfn var góð heim að sækja og rausnarlega var ávallt á borð borið er við komum í kaffi til þeirra hjóna sem var ekki sjaldan. Margar góðar stundir höfum við átt með þeim, rabbað yfir kaffibolla þar sem ým- islegt bar á góma, rifjaðar upp ferðir fyrri ára og ákveðin næsta ferð sem oft var farin fyrirvaralaust eftir nokkrar stundir. Það er dýrmætt að eiga í sjóði minninguna um þig, Sjöfn mín, og okkar góðu samverustundir. Við erum þakklát fyrir að þú fékkst að sofna í friði og ró eftir erf- iða síðustu mánuði þar sem þú stóðst þig sem hetja. Við þökkum þér, vina, fyrir öll þau ár sem við höfum verið saman, allar þær gleði- stundir í faðmi fjallanna þar sem við nutum kyrrðar og fegurðar ís- lenskra öræfa, sólaruppkomu við klið fjallalindar og kvöldroði spegl- aðist í logntæru heiðarvatni þegar kvöldhúmið færðist yfir. Og að síð- ustu færum við þér innilegar þakkir fyrir öll friðsælu kvöldin sem við höfum setið saman síðustu áratug- ina, þínar góðu bænir fyrir jörðinni okkar og íbúum hennar. Við vitum að vel var tekið á móti þér á nýjum verustað og biðjum ljós friðar og kærleika að leiða þig á þeim framtíðarvegi sem framundan er hjá þér. Svenna og fjölskyldu hans biðjum við guðs blessunar. Arndís og Skúli, Miðfelli. Að alast upp á margbýli í sveit sameinar kosti sjálfstæðs sveitalífs og sambýlis margra með fjölbreyti- legri flóru fólksins á staðnum. Kyn- slóðir alast upp hlið við hlið og reynsla og þekking flyst áfram frá hinum eldri til hinna yngri. Með nýju fólki og hverri kynslóð koma fram nýjungar og breytingar á starfsháttum sem eru auðvitað hluti eðlilegrar framþróunar. Það reynir á félagsþroska og samvinnuhæfni og oft þarf eflaust að sætta mörg sjón- armið ef takast á að vinna og búa saman í sátt og samlyndi með sam- býlisfólki og ættingjum ævina á enda. Allir verða að leggja sitt af mörkum til að samvera og sameig- inleg verkefni megi heppnast sem best. Hver einstaklingur skiptir máli og setur sinn lit á lífið á staðnum. Þegar sá sem alist hefur upp í svo nánu samfélagi sem margbýli í sveit er, lítur til baka til að rifja upp minn- ingar er oft erfitt að einangra hlut hvers og eins, allir hafa lagt sitt í púkkið til að mynda e.k. menningu á staðnum, þannig hefur hver sveita- bær sína staðarmenningu, sinn blæ. Og eflaust ber hver og einn keim af henni í bland við sitt uppeldi hvert sem hann flögrar um heiminn. Á sama hátt bar unga konan, sem kom til að setjast að á Hrafnkels- stöðum um 1960, með sér sinn stíl og menningu, sem okkur þeim yngri sem þar voru fyrir fannst bæði framandlegur og ferskur. Þetta var Sjöfn, svona líka sæt með fallega brosið og spékoppana, gekk í moha- ir-peysum og með flottar perlufest- ar, keypti dönsku blöðin og reykti – var semsagt svakaleg skvísa og líka falleg eins og dúkkulísa. Og svo var hún menntuð í sínu fagi, alvöru hár- greiðslukona sem fékk viðskiptavini í stofuna sína, og vinkonur og frænk- ur í heimsókn, saman mösuðu þær, glugguðu í dönsku blöðin og púuðu svolítið yfir kaffibollunum. Undirrituð var svo heppin að vera „í vist“ hjá Sjöfn sem unglingur og var, eins og þeim „vinnukonum“ sem komu svo næstu sumur, svo ljúflega treyst fyrir heimilisverkum, bakstri og barnastússi án þess að mörg orð væru um það höfð. Við fengum okk- ar hlutverk og var alltaf treyst fyr- irfram og kannski einmitt þess vegna var reynt að standa sig og verða traustsins verður. Og þrátt fyrir ýmis ævintýri og misvelheppn- aðar æfingar í bakstri og elda- mennsku var húsmóðirin ekkert að amast við því, var sjálf oft að prófa eitthvað spennandi úr dönsku blöð- unum sínum. Stundum þurfti svo sem auðvitað að segja unglings- vinnukonunum til, en svo mildilega var leiðbeint og áreynslulaust að auðvelt var viðkvæmum unglingum að meðtaka það og vilja gera betur næst, án þess að sárna eða finnast vera lítið úr sér gert. Það er einmitt vandi vinnuveitandans að bæta verklag og koma þeim sem sagt er fyrir verkum til aukins þroska, þannig stækkar þiggjandi góðra ráða af verkum sínum þrátt fyrir allt. Í minningunni um Sjöfn situr eftir þessi tilfinning um ljúfa nærveru, tillitssemi, glaðlegt fas og bros sem vakti einmitt vilja til að gleðja á móti. Svona getur hæfilegt afskipta- leysi stjórnað betur og haft meiri áhrif en afskiptasemi, sem veldur oftast leiða og vanmáttarkennd hjá þeim yngri og óreyndari. Það er ein- mitt oft vandinn þegar ný kynslóð tekur við af hinni eldri að finna hinn gullna meðalveg þess að segja hæfi- lega til, þ.e. eins og þarf, og kunna að sleppa tökunum þegar nýir taka við í vinnu eða öðru yfirráðasvæði og að sjá þannig til þess að þeir fái ráð- rúm til að fóta sig á eigin forsendum. Samskipti góð og samkennd ungu kvennanna sem ólu upp börnin sín á Hrafnkelsstaða-torfunni hélst til leiðarloka, aldrei hallaði orði á milli þeirra og þegar heilsan gaf sig hjá mömmu minni brást ekki að Sjöfn kom reglulega í heimsókn, vökvaði blómin og gerði ýmis viðvik eftir þörfum. Fallega brosið hennar Sjafnar var á sínum stað allt til enda og minnir okkur á orð skáldsins: Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. (Einar Ben.) Að leiðarlokum þakka ég sam- veruna og þinn hlut í góðum og græskulausum minningum æsku- og unglingsáranna. Hrafnhildur Þorgeirsdóttir. Enn og aftur erum við minnt á það að maðurinn með ljáinn ber að dyrum hjá okkur öllum, að lokum. Í þetta sinn hefur hann barið að dyr- um hjá henni Sjöfn, nágranna okkar og vini til áratuga. Það er margs að minnast og margt sem hægt væri að rifja upp en við viljum að ferðalok- um kveðja hana með 23. Davíðs- sálmi: Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. Elsku Svenni, Helga, Kolla, Hannes, Magnús og fjölskyldur, megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Haraldur, Jóhanna, Helgi, Ingólfur og fjölskyldur þeirra. Elskuleg eiginkona mín og systir, HALLDÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hraunbæ 103, Reykjavík, hefur verið jarðsungin í kyrrþey. Þökkum auð- sýnda samúð. Fyrir hönd aðstandenda. Guðmundur Jóhannsson, Sesselja Guðmundsdóttir. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, RANNVEIG KARÓLÍNA BJARNADÓTTIR VANDESKOG frá Húsavík, lést á heimili sínu í Bergen miðvikudaginn 16. ágúst. Útför hennar fer fram fimmtudaginn 24. ágúst. Knut Johan Vandeskog, börn, tengdabörn og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA EGILSDÓTTIR, Faxabraut 13, áður Vesturbraut 5, Reykjanesbæ, andaðist laugardaginn 19. ágúst. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 14.00. Egill Jónsson, Alma Sverrisdóttir, Emil Páll Jónsson, barnabörn og langömmubörn. Hjartans þakklæti sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför INGIMARS ÁMUNDASONAR frá Kambi í Flóa. Brynjólfur Ámundason, Erla Eyþórsdóttir, Guðrún Ámundardóttir, Þuríður Ingólfsdóttir, systkinabörn, fjölskyldur þeirra og aðrir aðstandendur. KÁRI EIRÍKSSON félagsráðgjafi, Svarthömrum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 19. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstu- daginn 25. ágúst kl. 11.00. Karólína Eiríksdóttir, Hafsteinn Már Eiríksson. Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN RÚNAR KRISTJÁNSSON múrari, Lómasölum, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu- daginn 18. ágúst, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 25. ágúst kl. 13.00. Bára Þórarinsdóttir, Guðrún Helga Karlsdóttir, Kristján Jónsson, Guðný Helga Kristjánsdóttir, Vignir Sveinbjörnsson, Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir, Magnús Jón Björgvinsson, Sveinbjörg Kristjánsdóttir, Sturla Bergsson, Kristjana Rúna Kristjánsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.