Morgunblaðið - 23.08.2006, Síða 32

Morgunblaðið - 23.08.2006, Síða 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HEFURÐU PLÁSS FYRIR EFTIRRÉTT, GRETTIR? ER ÉG BÚINN AÐ EIGNAST LITLA SYSTUR? ÉG ER ORÐINN PABBI! ÉG MEINA, FAÐIR MINN ER ORÐINN PABBI! ÉG ER ORÐINN BRÓÐIR! STÓRI BRÓÐIR ÞÚ LÉST EKKI SVONA ÞEGAR ÉG FÆDDIST „...OG PLÁNETAN MERKÚR ER HRJÓSTRUG OG LÍFLAUS ÞAR SEM HÚN ER NÆST SÓLINNI“ ...OG NÚ MUN KALVIN SEGJA YKKUR FRÁ GOÐSÖGUNUM SEM TENGJAST MERKÚR KOMIÐ ÞIÐ ÖLL SÆL! MIKIÐ ER ÞETTA FRÍÐUR HÓPUR. ÞIÐ ÆTTUÐ AÐ VERA HÆST ÁNÆGÐ MEÐ YKKUR SJÁLF SVO LÍTIÐ SKONDIÐ ÁTTI SÉR STAÐ Á LEIÐINNI Á BÓKA- SAFNIÐ Í MORGUN KENNARI, ÞETTA ER EKKI MÉR AÐ KENNA!!! VEISTU HVAÐ ÉG HELD, HRÓLFUR? NEI, HVAÐ? ÉG HELD AÐ FIÐRILDI HLJÓTI AÐ VERA ALKAHÓLISTAR VÁ, ÞESSI SKÚFFA ER ÖLL FULL AF DRASLI! MAMMA HEFUR EFLAUST REYNT AÐ FELA ALLT BESTA RUSLIÐ FYRIR MÉR! ÉG ER ALGJÖR SNILLINGUR ÞEGAR ÞAÐ KEMUR AÐ ÞVÍ AÐ FINNA RUSL JÁ, ÞÚ ERT ALVEG ROSALE- GA GREINDUR GRÍMUR MINN SLÖKKVIÐ NÚ Á SJÓNVARPINU. ÉG ER MEÐ VERKEFNI HANDA YKKUR NONNI, NÁÐU Í GLERHREINSINN OG TÖSKU. KATA NÁÐU Í DUSTARANN MEGUM VIÐ NÚNA HORFA MEIRA? VERKEFNIÐ VAR EKKI AÐ NÁ Í ÞETTA HVAR ÆTLI ÉG FINNI ÞENNAN SAUÐ? KANNSKI VITA FJÖLMIÐLAR ÞAÐ JÁ!NASHYRNINGURINN ER KOMINN TIL NEW YORK... Dagbók Í dag er miðvikudagur 23. ágúst, 235. dagur ársins 2006 Skólarnir eru aðbyrja þessa dag- ana og Víkverji fagnar því að lögreglan skuli núna vera í nágrenni við skólana að fylgjast með hraða ökutækja. Hann spyr sig líka að því hvort ekki sé öruggt að fólk verði eins og í fyrra við skólana til að fylgja krökkum yfir fjölfarn- ar umferðargötur. Það var alveg frábært framtak og í nágrenni við Víkverja var þetta iðulega fólk sem virt- ist vera um það bil að komast á eft- irlaunaaldur sem var að leiða börnin yfir götu og spjalla við þau. x x x Víkverji hefur verið iðinn við aðkaupa ber fyrir heimilisfólkið, bláber, jarðarber, hindber, kirsuber og svo mætti áfram telja. Hann bíð- ur hinsvegar alltaf spenntur eftir krækiberjunum og um síðustu helgi fór hluti af heimilisfólkinu til berja rétt utan við höfuðborgarsvæðið. Og viti menn þessi líka fínu ber komin og orðin bústin og falleg. Það var boðið upp á berjaskyr. Víkverji er óhress með að geta ekki keypt krækiberin í verslunum almennt. Verslunin Vínberið á Laugavegi hefur boðið upp á þessa vöru en í öðrum verslunum er íslenskum krækiberj- um ekki til að dreifa, eftir því sem Víkverji best veit. Hvað ætli valdi? x x x Unglingur á heimiliVíkverja er ný- kominn heim frá sex vikna dvöl í Bandaríkj- unum. Í samanburði við bandaríska ung- linga eru þeir íslensku forstokkaðir merkjasnobbarar sem lifa og hrærast í litlum klíkum, fékk Víkverji að heyra. Unglingar hér heima keppast við að klæðast merkjavörum með stöðugar áhyggj- ur af því að falla ekki í hópinn. Dæmigerður íslenskur strákur er svo bældur að hann þarf að vera drukkinn til að bera sig eftir stelpu. Hér vantar afslappaðra viðhorf til tilverunnar þar sem staðalímyndir eru ekki í hávegum hafðar heldur fjölbreytileikinn. Já, bragð er að þegar barnið finnur, hugsaði Vík- verji með sér og huggaði sig við það að eiginmaðurinn var svo gott sem bláedrú þegar hann fór á fjörurnar við Víkverja fyrir margt löngu. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is     Kárahnjúkar | Þessi mynd var tekin í gær þar sem fólk var að fara milli bakka Kringilsár í kláfi. Allt þetta svæði mun fara undir vatn þegar hleypt verður vatni á stífluna. Morgunblaðið/ÞÖK Ferðast með kláfi á Kárahnjúkum MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, kný- ið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.