Morgunblaðið - 23.08.2006, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 33
DAGBÓK
Opið hús
FURUGERÐI 21
Falleg og björt 97,8 fm
4ra herbergja íbúð á annarri
hæð á frábærum stað við
Furugerði í Reykjavík.
Góðar suðursvalir með útsýni
yfir Fossvogsdalinn.
Íbúðin er laus strax.
Guðrún Þóra tekur á móti gestum í dag, miðvikudag, milli kl. 17 og 19.
Iðnaðarryksugur
Þegar gerðar eru
hámarkskröfur
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
NT 361 Eco/Te
■ Loftsog: 57 ltr/sek
■ Sogkraftur: 235 mbör
■ 35 lítra
■ Afl: 1380 vött
■ Snúra: 7,5 m
■ ECO síuhreinsibúnaður
■ Með eða án tengils
NT 611 Eco/Te
■ Loftsog: 57 ltr/sek
■ Sogkraftur: 235 mbör
■ 55 lítra
■ Afl: 1380 vött
■ ECO síuhreinsibúnaður
■ Handfang
■ Snúra: 7,5 m
■ Með eða án tengils
Síuhreinsibúnaður
Ýmsir aukahlutir
Glatt verður á hjalla í Mosfellsbæ dag-ana 25. til 27. ágúst en þá verður hald-in bæjarhátíðin Í túninu heima.Daði Þór Einarsson er umsjón-
armaður hátíðarinnar sem nú er haldin í annað
sinn: „Fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök,
áhugahópar og einstaklingar taka þátt í dag-
skránni, kynna starfsemi sína og menningar- og
mannlíf bæjarins,“ segir Daði Þór. „Dagskráin
er fjölbreytt og skemmtileg og allir velkomnir
að taka þátt í hátíðinni með okkur.“
Í íþróttahúsi Mosfellsbæjar verður stór sýning
þar sem kynnt verður framleiðsla fyrirtækja í
Mosfellsbæ: „Sýningarbásar eru um 50 talsins
og stórt svið þar sem verða tónlistaratriði á
klukkutíma fresti. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
bæjarstjóri setur hátíðina í íþróttahúsinu kl.
19.45 á föstudag og strax á eftir munu kórarnir
Voðboðarnir og Reykjalundarkórinn syngja fyrir
hátíðargesti,“ segir Daði af viðburðum hátíð-
arinnar. „Meðal dagskrárliða má nefna bílskúrs-
banda- og söngkeppni í félagsmiðstöð bæjarins,
frumsýningu Leikfélags Mosfellssveitar á Bugsy
Malone á föstudag, brekkusöng og varðeld með
stomphópi og eldblásurum.
Á laugardag býður Golfklúbburinn bæj-
arbúum að spreyta sig í pútti og dagskráin held-
ur áfram í íþróttahöllinni þar sem boðið er upp á
ýmsa hressingu og góðgæti. Skátarnir verða
með ratleik og flóamarkaður Þruma og eldinga
við íþróttahúsið. Einnig verður markaður á veg-
um Varmársamtakanna á Álafossi og hesta-
mannafélagið Hörður verður með reiðsýningu kl.
14.“
Meðal annarra viðburða laugardagsins má
nefna hópflug Flugklúbbs Mosfellsbæjar og list-
flug kl. 15.50, Ólympíuleika Mosfellsbæjar þar
sem starfsmenn fyrirtækja etja kappi í ýmsum
þrautum, og klassíska tónleika í Listasalnum kl.
17. „Síðan bjóðum við til kjúklingaveislu á
túninu við Hlégarð þar sem kjúklingafyrirtæki
bæjarins gefa kjúklingarétti og Björgvin Franz
Gíslason skemmtir,“ segir Daði Þór.
Á laugardagskvöld verður haldinn dansleikur í
Hlégarði þar sem fram koma valinkunnir tónlist-
armenn: „Má þar fyrstan telja Karl Tómasson,
forseta bæjarstjórnar, úr Gildrunni og 66,
Magnús Stefánsson úr Utangarðsmönnum og
Egó og Jóhann Ásmundsson úr Mezzoforte svo
nokkrir séu nefndir.“
Á sunnudag verður, auk sýningarinnar í
Íþróttahöllinni, haldið golfmót á Hlíðarvelli,
Flugmódelklúbbur Mosfellsbæjar verður með
sýningu á íþróttavellinum kl. 11 og leikskólabörn
búa til krítarlistaverk á íþróttahúsplanið: „Dag-
skránni lýkur svo með tónleikum Ólafs Arnalds
ásamt strengjakvartett í Listasalnum í Kjarna,
en hann hlaut styrk frá bænum ásamt öðrum
listamönnum fyrr á árinu.“
Nánar má lesa um dagskrá bæjarhátíðar Mos-
fellsbæjar á slóðinni www.mos.is.
Hátíð | Allir velkomnir á fjölbreytta dagskrá á bæjarhátíð Mosfellsbæjar 25. til 27. ágúst
Húllumhæ í Mosfellsbæ
Daði Þór Einarsson
fæddist í Mosfellsbæ
1958. Hann lauk
sveinsprófi í blikksmíði
frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1981 og prófi
frá kennaradeild Tón-
listarskólans í Reykja-
vík 1982. Daði starfaði
í tæp 20 ár sem skóla-
stjóri Tónlistarskólans í
Stykkishólmi, var um
nokkurt skeið tónlistarkennari í Danmörku og
hefur síðustu 2 ár stjórnað Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar. Daði er kvæntur Sigrúnu
Rafnsdóttur.
EM í Varsjá.
Norður
♠ÁK3
♥ÁG5 A/Enginn
♦D865
♣ÁD4
Vestur Austur
♠DG107 ♠94
♥1064 ♥K87
♦72 ♦G10
♣8763 ♣KG10952
Suður
♠8652
♥D932
♦ÁK943
♣–
Það voru deildar meiningar um
það á Bridgebase.com hvor bæri sök-
ina á sagnslysi Ítala í spilinu að ofan,
Alfredo Versace eða Lorenzo Lauria.
Þetta var í leik Íslands og Ítalíu í 17.
umferð Evrópumótsins:
Vestur Norður Austur Suður
Matthías Lauria Magnús Versace
– – 3 lauf Dobl
4 lauf 5 lauf * Pass 5 tíglar
Pass 7 tíglar Allir pass
Magnús Magnússon hóf sagnir
með þriggja laufa hindrun og Ver-
sace lét eftir sér að dobla út á skipt-
inguna, þrátt fyrir rýran punkta-
styrk. Matthías Þorvaldsson
hækkaði mildilega í fjögur lauf,
Lauria krafði með fimm laufum og
keyrði svo í sjö þegar Versace valdi
tígulinn. Alslemman er ekki fyr-
irfram vonlaus – hjartakóngur annar
í vestur dugar – en hér var slík
draumalega ekki til staðar og Ver-
sace fór einn niður.
„Fyrirgefðu makker,“ sagði Lauria
eftir spilið, svo hann var greinilega
sáttur við hið fislétta opnunardobl
Versace og taldi sökina liggja sín
megin. En er honum ekki vorkunn
að búast við ÁK í tígli og hjartakóng,
að minnsta kosti?
Á hinu borðinu passaði austur í
byrjun og Jón Baldursson opnaði á
níu punktana í suður:
Vestur Norður Austur Suður
Fantoni Þorlákur Nunes Jón
– – Pass 1 tígull
Pass 2 tíglar Pass 4 lauf *
Pass 4 tíglar Pass 5 lauf *
Pass 6 tíglar Allir pass
Þorlákur Jónsson krafði í geim
með tveimur tíglum og Jón sýndi
stutt lauf með fjórum laufum (splin-
ter) og svo eyðu með fimm laufum í
kjölfarið, en um leið enga fyrirstöðu
í hálitunum. Þorlákur sá því að
hjartakónginn vantaði og freistaðist
ekki til að reyna við sjö.
En sex tíglar eru alls ekki á borð-
inu. Það verður að fá þrjá slagi á
hjarta og ekki er sjálfgefið að toppa
litinn. Út kom spaðadrottning og Jón
aftrompaði mótherjana og þreifaði
fyrir sér með því að stinga laufin og
svína hjartagosa. Á endanum þurfti
hann að hitta í hjartað og valdi að
svína níunni, sennilega á þeirri for-
sendu að austur opnaði EKKI á
þremur laufum í byrjun. Slemman
fór því niður, en leikinn vann Ísland
19-11.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 Rbd7 4. Rf3
e5 5. Bc4 Be7 6. 0–0 0–0 7. De2 c6 8.
a4 a5 9. Hd1 Dc7 10. Bg5 exd4 11.
Rxd4 Rc5 12. h3 Be6 13. Rxe6 fxe6
14. e5 Rd5 15. Bxe7 Dxe7 16. exd6
Dxd6 17. Hd4 Rxc3 18. bxc3 De7 19.
Had1 Hf6 20. Hd6 Haf8 21. De3 Rxa4
22. Hd7 Dc5 23. H1d4 Kh8 24. Hxb7
Rb6
Staðan kom upp í Proclient Cup
flokknum í skákhátíðinni í Olomouc
sem lauk fyrir skömmu í Tékklandi.
Sigurvegari flokksins, pólska skák-
konan Monika Krupa (2.251), hafði
hvítt gegn Juan Ramiro (2.323). 25.
Hxg7! Dh5 hvítur hefði unnið drottn-
inguna eftir 25. … Kxg7 26. Hg4+. Í
framhaldinu reynist hvíta sóknin afar
erfið viðureignar. 26. Hdg4 Rxc4 27.
Dg3 De8 28. Hh4 h6 29. Dg5! og
svartur gafst upp enda staðan að
hruni komin eftir 29. … h5 30. Hf4!
Egyptinn Omar Salama var á meðal
keppenda í flokknum en hann er bú-
settur á Íslandi. Hann græddi skák-
stig þó að hann lenti í neðsta sæti en
lokastaðan varð annars þessi:
1. Monika Krupa (2.251) 7½ vinn-
ingur af 11 mögulegum.
2. Robert Tibensky (2.385) 7 v.
3.–4. Rasmus Skytte (2.408) og Ruf-
ino Camarena (2.323) 6½ v.
5. Juan Ramiro (2.323) 6 v.
6.–7. Radek Sluka (2.331) og Jurijs
Mihailovs (2.258) 5½ v.
8.–10. Karel Malinovsky (2.346), Jo-
sef Jurek (2.390), Pavel Stehno (2.297)
4½ v.
11.–12. Nicolas Lubbe (2.272) og
Omar Salama (2.174) 4 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
75 ára afmæli. Í dag, 23. ágúst, erSigríður Kalmansdóttir,
Kirkjuvegi 5, 230 Reykjanesbær, 75
ára.
Bankar og vextir
MÉR finnst mjög furðulegt að um
leið og maður bæði les og heyrir
fréttir af því að nauðsynlegt sé að
hækka vexti aftur og aftur eru birt-
ar tölur um hagnað bankanna.
Hagnaðurinn er ekki í þúsundum
eða milljónum, heldur milljörðum!
Hvers vegna fáum við, ómissandi
viðskiptavinir bankanna, ekki að
njóta góðs af þessum mikla hagn-
aði? Erum við öll sofandi og vöknum
svo upp við það einn daginn að það
sé búið að hafa okkur að fíflum? Við
bara hlýðum og teljum þetta allt
vera rétt.
Ég vona að það verði mikil um-
ræða um þessi mál eða annað, sem
er kannski enn betra, að við berj-
umst á móti þessu og heimtum laun-
in okkar í beinhörðum peningum í
lokuðu umslagi, hættum að lifa um
efni fram og höfum þetta bara eins
og það var einu sinni. Ég skora á
alla að tjá sig um þessi mál og von-
andi eru fjölmiðlar til í að
kryfja þetta til mergjar.
Svanhildur Sif Haraldsdóttir.
Verksvið ráðherra
FYRIR kemur að fréttamenn
stöðva óbreyttan borgara á al-
mannafæri og spyrja hann um álit
hans/hennar á einu og öðru úr
stjórnmálunum og þjóðlífinu al-
mennt. Svörin eru að sjálfsögðu
misjöfn þótt spurt sé um sama
stjórnmálamann eða athafnamann.
En hvernig er hægt að ætlast til að
almenningur viti hvernig þessi eða
hin(n) hefur staðið sig? Þegar sér-
fræðingar eða dómstólar hafa ekki
komist að niðurstöðu um hvort við-
komandi afhafnamaður eða stjórn-
málamaður hefur gerst brotlegur
við lög eða ekki, hvernig er hægt að
ætlast til að einhver Jón eða Gunna
úti í bæ geti dæmt um það? Eða
hvort einhver ráðherra hefur staðið
sig vel í embætti sínu? Hvert er
annars verksvið ráðherra?
Flestir myndu t.d. telja að fjár-
málaráðherra ætti að gæta þess að
við Íslendingar eyddum ekki um
efni fram. Og að menntamálaráð-
herra ætti að vinna að því að
menntamálin væru í góðu lagi og að
allir ættu kost á góðri menntun. En
hvað t.d. um umhverfisráðherra svo
annað dæmi sé tekið af handahófi?
Á t.d. umhverfisráðherra þá ekki að
standa vörð um umhverfið? Að sjá
til þess að umhverfismálin séu í
góðu lagi? Að náttúru og umhverfi
sé ekki spillt? Eða fer umhverf-
isráðuneytið kannski ekki með nátt-
úruvernd? Veist þú það, ágæti les-
andi? Spyr sá sem ekki veit.
Einfaldur Íslendingur.
Páfagaukur í óskilum
GRÆNN og gulur gári fannst í efra
Breiðholti sunnudaginn 13. ágúst.
Upplýsingar í síma 695-0273 eða
694-7373.
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111