Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 36

Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 10/9 kl. 14 Sun 17/9 kl. 14 Sun 24/9 kl. 14 Lau 30/9 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Lau 2/9 kl. 20 Sun 3/9 kl. 20 UPPS. Fim 7/9 kl. 20 Sun 10/9 kl. 20 FOOTLOOSE Fim 24/8 kl. 20 Fös 25/8 kl. 20 UPPS. Fim 31/8 kl. 20 Lau 9/9 kl. 20 EYFI STÓRTÓNLEIKAR Fös 1/9 kl. 20 Fös 1/9 kl. 22 HÖRÐUR TORFA-AFMÆLISTÓNLEIKAR Fös 8/9 kl. 19:30 Fös 8/9 kl. 22:00 SAN Francisco-ballettinn er vænt- anlegur hingað til lands ásamt hin- um íslenska listræna stjórnanda sínum, Helga Tómassyni, á Listahátíð í Reykjavík næsta vor. Mun hópurinn flytja íslenskum gest- um sýningu sem Helgi hefur sett saman sér- staklega fyrir Íslendinga og byggist alfarið á ballettum sem hann hefur sam- ið fyrir flokk- inn. Er hér um að ræða fimm af þekktustu og glæsilegustu verkum Helga, m.a. Concerto Grosso, 7 for eight og The Fifth Season, allt verk sem voru á dagskrá sem fékk Olivier-verðlaunin á Ed- inborgarhátíðinni árið 2005 og sýna afburða hæfni dansara hóps- ins. Sýningin ber einfaldlega nafn- ið HELGI og verða sjö sýningar haldnar á hátíðinni í Borgarleik- húsinu, sú fyrsta að líkindum 16. maí. Eftir það heldur flokkurinn í sýningarferð til Ítalíu. „Ég fór og hitti Helga þegar flokkurinn sýndi í Lincoln Center í New York í sumar,“ segir Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið, en samkomulag náðist þeirra í millum í ferðinni um Íslandsheimsóknina, sem hefur þó verið í undirbúningi í tvö ár. „Það er ákaflega gaman að fylgjast með flokknum, vexti hans og hve Helgi stendur ofboðslega hátt sem list- rænn stjórnandi. Auðvitað vill hann halda góðum tengslum við okkur hér heima og við líka við hann, en koma flokksins hingað til lands er engu að síður mikið púslu- spil. En þetta er mjög spennandi verkefni.“ Nútímaverk með klassísku yfirbragði Þótt ballettar Helga sem sýndir verða hérlendis séu nýir eru þeir dansaðir á táskóm og við sígilda tónlist, sumir við lifandi flutning, sem gefur þeim fágun og sýnir glögglega tæknilega getu dans- aranna. Að mati Þórunnar henta slík verk ekki síður vel inn í Borg- arleikhúsið en gömlu, klassísku ballettverkin sem mörgum hverj- um fylgja stórar, gamaldags leik- myndir. „Dansverkin hans Helga hafa klassískt yfirbragð en um leið vissan nútíma í sér. Það hentar ekki síður vel á þessum stað að áherslan er lögð á dansarana sjálfa og að þeir fái að njóta sín til fulln- ustu.“ Balletthópurinn samanstendur af sextíu dönsurum frá yfir 20 þjóð- löndum, en hvert sumar ferðast Helgi um og skoðar dansara hjá fremstu ballettflokkum heims. „Eftir að allt opnaðist austur getur hann valið úr ennþá fleiri döns- urum, og í raun eru fæstir dans- ararnir í flokknum bandarískir. Þeir koma frá öllum heims- hornum,“ útskýrir Þórunn. Samstarf við Borgarleikhúsið Koma San Francisco-ballettsins til Íslands er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Borg- arleikhússins og segir Þórunn að ef til þess samstarfs hefði ekki komið, hefði verið útilokað að fá flokkinn hingað til lands. Ýmis flókin tækni- leg atriði þurfi að leysa til að af sýningunni geti orðið. „Þessi flokk- ur dansar auðvitað venjulega í miklu stærri húsum og við mynd- um sennilega aldrei fá hann hingað ef ekki væri Íslendingur sem stjórnaði honum. Hússtærðin okk- ar er á bannlista,“ segir hún. Tæknistjóri Borgarleikhússins var með Þórunni í för í New York og segir hún það hafa verið veiga- mikinn þátt í að af samkomulaginu gæti orðið. „Hann fylgdist með baksviðs í Lincoln Center og gat þannig skipulagt hvernig væri hægt að taka sýninguna hingað heim, án þess að gera málamiðl- anir.“ Þá segir Þórunn að beint flug Icelandair til San Francisco hafi einnig haft sín áhrif á að auðvelda ferðaáætlunina. San Francisco-ballettflokkinn þarf vart að kynna fyrir Íslend- ingum, en hann kom m.a. hingað til lands á Listahátíð í Reykjavík árið 2000. Nýverið er lokið miklum há- tíðahöldum vegna 20 ára starfs- afmælis Helga sem stjórnanda flokksins, en árangur hans með flokkinn er talinn alveg einstakur. Flokkurinn er elsti ballettflokkur Bandaríkjanna og talinn af mörg- um fremsti klassíski ballettflokkur heims. Var hann til að mynda val- inn af Dance Europe „Company of the Year“ árið 2006. Frá því að hópurinn var hér árið 2000 hefur vegur hans vaxið mjög og síðan þá hefur flokkurinn farið á hverju ári í sýningarferðir í stærstu og glæsi- legustu leikhús heims og ætíð fyllt áhorfendasali og hlotið fádæma lof. Óhætt er að fullyrða að hópurinn stendur nú á hápunkti frægðar sinnar og ferðin til Íslands markar að vissu leyti upphafið á 75 ára af- mæli dansflokksins, sem verður minnst með margvíslegum hætti. Helgi hefur aukinheldur nýverið tekið við heiðursdoktorsnafnbót við Julliard-listaháskólann í New York-borg, auk fjölda annarra við- urkenninga sem hann hefur hlotið. Dans | Helgi Tómasson væntanlegur með San Francisco-ballettinn á Listahátíð í Reykjavík í vor Fimm verk undir heitinu HELGI Ljósmynd/Erik Tomasson San Francisco-ballettinn er elsti ballettflokkur Bandaríkjanna og talinn af mörgum fremsti klassíski ballettflokkur heims. Helgi Tómasson Þórunn Sigurðardóttir Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is www.sfballet.org www.listahatid.is GOETHE-stofnunin á Íslandi hefur ákveðið að styrkja Hávallaútgáfuna um 2.500 evrur í tengslum við þýð- ingar og útgáfu á næsta ári á ýmsum smásögum eftir þýska Nóbelshöf- undinn Thomas Mann. „Hávallaút- gáfan var stofnuð árið 2002 til að koma út bók eftir hann afa minn, Árna Kristjánsson, og í framhaldi af því ákváðum við að halda áfram út- gáfu. Við einbeitum okkar helst að því að gefa út klassísk verk eftir er- lenda höfunda,“ segir Þórarinn Kristjánsson hjá Hávallaútgáfunni. Hið þekkta verk Dauðinn í Fen- eyjum eftir Mann hefur þegar verið gefið út hjá útgáfunni. Þorbjörg Bjarnar Friðriksdóttir þýddi verkið en formáli er ritaður af Kristjáni Árnasyni, föður Þórarins, en hann þýddi bókina Felix Krull: játningar glæframanns eftir Mann, sem kom út á íslensku snemma á níunda ára- tugnum. „Okkur langaði í framhaldi af útgáfunni á Dauðinn í Feneyjum, sem gekk vel, að halda áfram að gefa út verk eftir Thomas Mann. Mér datt í hug að það væri skemmtilegt að gefa út smásögur eftir hann, en hann var einnig mjög frægur fyrir þær. Þetta er safn sem kannski gef- ur ákveðna mynd af höfundinum. Þær eru misfrægar, margar mjög þekktar, eins og til dæmis Der kleine Herr Friedemann sem var nú alltaf lesin í menntaskólanum í gamla daga,“ segir Þórarinn. Aðrar smásögur sem gefnar verða út af þessu tilefni eru m.a. Gladius Dei, Undordnung und frühes Leid, Herr und Hund og Der Wille zum Glück. „Sögurnar spanna eiginlega allan feril Mann. Reyndar skrifaði hann meirihluta þeirra á fyrri hluta ferils- ins en einhverjar eru líka frá seinni árunum. Ég hef aldrei séð nákvæm- lega þetta safn gefið út erlendis en þau hafa mörg hver verið mjög svip- uð. Við völdum sérstaklega í þessa bók. Hugmyndin að þessu kviknaði þannig að Þorbjörg var tilbúin með einhverjar þýðingar sem hún hafði unnið fyrir útvarpið. Þær höfðu aldr- ei verið gefnar út í bók og mig lang- aði að gefa þær út, en það vantaði eitthvað upp á. Þannig að ég ætla að þýða eitthvað og svo ætlar hann pabbi einnig að þýða.“ Hávallaútgáf- an fékk fyrr á árinu styrk frá Þýð- ingarsjóði í tengslum við verkefnið og segir Þórarinn að sá styrkur og styrkurinn frá Goethe-stofnuninni nú skipti miklu. „Þessir tveir styrkir gera þessa útgáfu mögulega. Þetta selst nú ekki mikið því að þetta er lítill markaður. Við áætlum að gefa þetta út á næsta ári og ætlum að reyna að sinna þessu í vetur.“ Bókmenntir | Hávallaútgáfan hlýtur styrki til að gefa út sögur eftir Thomas Mann Spanna allan ferilinn Morgunblaðið/Ásdís „Okkur langaði í framhaldi af útgáfunni á Dauðinn í Feneyjum, sem gekk vel, að halda áfram að gefa út verk eftir Thomas Mann,“ segir Þórarinn. Eftir Jón Gunnar Ólafsson jongunnar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.