Morgunblaðið - 23.08.2006, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
eeee
P.B.B. DV
Snakes on a Plane kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 16 ára
Miami Vice kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 16 ára
Miami Vice LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
The Sentinel kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Ástríkur og Víkingarnir kl. 4 og 6
Silent Hill kl. 10 B.i. 16 ára
Over the Hedge m. ensku.tali kl. 4
Over the Hedge m.ísl.tali kl. 4 og 6
Stick It kl. 8
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
EITRAÐASTI
SPENNUTRYLLIR ÁRSINS
COLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS
Snakes on a Plane kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Miami Vice kl. 8 og 10.20 B.i. 16.ára.
The Sentinel kl. 6 B.i. 14.ára.
Ástríkur og Víkingarnir kl. 6.
LEIKSTJÓRINN M. Night Shya-
malan vakti verðskuldaða athygli
með The Sixth Sense, eina af bestu
draugasögum sem sést hafa á tjald-
inu síðan Kubrick lauk við The Shin-
ing. Síðan ekki söguna meir, næstu
myndir þessa unga kvikmyndagerð-
armanns (Shyamalan var aðeins 28
ára þegar hann lauk við tímamóta-
myndina) fóru versnandi og verk
eins og Signs og The Village eru of-
lofaðar loftbólur.
Hvað sem því líður er Shyamalan
engum líkur og myndirnar hans búa
allar sem ein yfir hugmyndum og úr-
vinnslu sem lyfta manninum á stall
með þeim forvitnilegu og frumlegu
sem geta hugsanlega komið áhorf-
endum á óvart þegar minnst varir.
Lady in the Water er engin und-
antekning og er þéttari og heil-
steyptari en síðustu myndir leik-
stjórans, sem að venju er einnig
höfundur handritsins. Ekki veit ég
hvort Shyamalan byggir söguþráð-
inn á raunverulegu ævintýri, eða
semur hann frá grunni, það skiptir
ekki megin máli. Atburðarásin
minnir einnig óneitanlega á sög-
urnar af hafbúunum hans H.P. Lo-
vecraft.
Cleveland (Giamantti), húsvörður
í fjölbýlishúsi í Phialdelphiu, sér um
að hlutirnir séu í standi og reynir að
sinna þörfum sundurleitra íbúanna
af samviskusemi. Eitthvað und-
arlegt er á seyði í sundlauginni og
eitt kvöldið gómar Cleveland unga
stúlku, Stiory (Howard), kviknakta í
vatninu. Hún er undarleg í háttum
og segist ekki tilheyra venjulegum
jarðarbúum, heldur þeim sem lifa í
djúpinu og sé komin upp á yfirborðið
til að hjálpa firrtu mannkyni.
Cleveland uppgötvar hjá aust-
urlenskum íbúum hússins, að stúlk-
an er sögupersóna úr þekktu æv-
intýri og upp frá því fær Cleveland
fólkið í blokkinni til að haga sér sam-
kvæmt framvindu sögunnar sem er
komin í gang í kringum þessa sér-
kennilegu vatnadís.
Útkoman er sérkennileg rökk-
ursaga fyrir fullorðna, dulúðug,
myrk og Shyamalan setur ævintýrið
sitt upp í forvitnilegu umhverfi sem
getur verið móðir Jörð í hnotskurn.
Lengi vel tengir hann ævintýrið,
persónurnar og umhverfið á hugvit-
samlegan og spennandi hátt, maður
fær á tilfinninguna að hann sé að
nálgast sitt besta. Að auki hefur
hann fengið til liðs við sig Giamatti,
einn af úrvalsleikurum samtímans,
án hans sér maður ekki Lady in the
Water spjara sig svo prýðilega
lengst af. Auk hans eru nokkrir
sterkir skapgerðarleikarar í minni
hlutverkum ( Jeffrey Wright, Bill
Irwin og Jared Harris), sem styrkja
myndina.
En líkt og fyrri daginn missir
Shyamalan móðinn, hann krefst of
mikils af áhorfandanum og lokakafl-
inn er í illseljanlegu ástandi og í
engu samræmi við þau forvitnilegu
loforð sem búið var að hvísla að okk-
ur á leiðinni.
Þrátt fyrir vonda lendingu er
Lady in the Water ásjáleg, öðruvísi
fantasía og aldrei að vita nema Shya-
malan lúri á sterkari heild-
armyndum í framtíðinni – ef einhver
fæst til að fjármagna verkin hans og
hann gefur aðalleikkonunni frí.
Ungfrú Beryce Dallas virðist helst
gædd þeim eiginleikum að vera dótt-
ir Rons Howard. Shyamalan (sem
leikur einn íbúanna) þarf að taka sig
taki og stökkva ekki næst beint út í
djúpu laugina, án þess að hafa hug-
mynd um hvernig hann á að klóra
sig aftur upp á bakkann.
Húsvörðurinn og vatnadísin
Að mati gagnrýnanda stendur Paul Giamatti vel fyrir sínu í myndinni. „Án
hans sér maður ekki Lady in the Water spjara sig svo prýðilega lengst af.“
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjórn og handrit: M. Night Shya-
malan. Aðalleikarar: Paul Giamatti,
Bryce Dallas Howard, Bob Balaban, Jeff-
rey Wright, Freddy Rodriguez. 108 mín.
Bandaríkin 2006.
Konan í vatninu (Lady in the Water)
Sæbjörn Valdimarsson
Það hefur lengi þóttáhyggjuefni hversu lítiðungt fólk sækir íslenskt
leikhús og leikhúsin hafa með
ýmsu móti reynt að bregðast við
því. Það hefur verið gert með
breyttum áherslum í verkefna-
vali, breyttri markaðssetningu og
með auknu samstarfi við aðila ut-
an leikhússins svo fátt eitt sé
nefnt. Núna þegar nýtt leikár er
við það að hefjast er við hæfi að
þreifa örlítið á þessu máli.
Í pistli sem birtist í blaðinu ífebrúar síðastliðnum hrósaði
ég nokkrum leikhópum sem hafa
að undanförnu hresst mikið upp á
leikhúsmenninguna með ferskum
stykkjum og nýstárlegum nálg-
unum. Þessir hópar hafa laðað að
sér yngri leikhúsgesti, á aldr-
inum 20–35, og jafnframt sýnt
það og sannað að það er yfirhöf-
uð mögulegt. Grasrótin hefur
verið ansi dugleg við að finna
leiðir til að ná yngra fólki inn í
leikhúsin og það hefur ekki farið
framhjá stóru leikhúsunum sem
virðast í auknum mæli beina sjón-
um sínum að grasrótinni og taka
af henni mið.
Leikfélagið Vér morðingjar,
sem samanstendur af ungum leik-
urum og leiklistarnemum, kom
með krafti inn á sjónarsviðið með
leikverkið Penetreitor sem sýnt
var í Sjóminjasafninu að Granda-
görðum. Aðsóknin á sýninguna,
sem er jafnframt fyrsta sýning
leikfélagsins, hefur verið með
eindæmum góð og hefur henni
gengið einkar vel að hreyfa við
yngri áhorfendum.
Leikfélag Akureyrar hefur áundanförnum tveimur árum
lagt mikla áherslu á að yngja upp
í sætaröðum sínum með breyttri
stefnu í verkefnavali. Það hefur
tekist mjög vel til og verður hald-
ið áfram sömu stefnu á komandi
leikári.
Nokkrar uppsetningar í Þjóð-
leikhúsinu á síðasta leikári þóttu
sýna sýna töluvert hugrekki að-
standenda. Nýstárleg uppsetning
Baltasars Kormáks á Pétri Gaut
vakti mikla athygli og sömuleiðis
Fagnaður Harold Pinters í leik-
stjórn Stefáns Jónssonar. Virðist
sem næsta leikár beri með sér
svipaðan keim en þar verður
meðal annars settur á svið óhefð-
bundinn söngleikur eftir Hugleik.
Borgarleikhúsið hefur að und-
anförnu notið góðs af samstarfi
við Nemendaleikhús Listaháskóla
Íslands sem hefur sýnt undir
þeirra þaki. Leikhúsið hefur auk
þess verið í samstarfi við og hýst
aðra leikhópa eins og Steypi-
félagið Stút sem sýndi Glæp gegn
diskóinu á síðasta ári sem féll vel
í kramið hjá yngri leikhúsgestum.
Það hefur verið afskaplegaskemmtilegt að fylgjast með
íslensku leikhúsi á undanförnum
árum en það er greinilegt að
leikhúsin reyna í auknum mæli að
hala inn yngri leikhúsgesti. Þetta
hefur leitt af sér fleiri sýningar á
nýjum verkum eftir þekkta sam-
tímahöfunda, innlenda sem og er-
lenda, og jafnframt nýstárlegar
nálganir á eldri verk. Það verður
því afar spennandi að sjá hvað
leikhúsin munu bjóða upp á á
næsta leikári.
Leikhús fyrir alla
’Þessir hópar hafa laðaðað sér yngri leikhúsgesti
[…] og jafnframt sýnt
það og sannað að það er
yfirhöfuð mögulegt.‘
Morgunblaðið/Ómar
Leikritið Glæpur gegn diskóinu féll vel í kramið hjá yngri leikhúsgestum.
thorri@mbl.is
AF LISTUM
Þormóður Dagsson