Morgunblaðið - 31.08.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 235. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
PENELOPE CRUZ
SPÁNARFLJÓÐIÐ ÞURFTI AÐ ÆFA
SIG Í UPPVASKI OG FÓÐRA RASSINN >> 42
HELGARTILBOÐ
HVAR ER BEST AÐ KAUPA
MATINN FYRIR HELGINA?
MELÓNUR OG VÍNBER FÍN >> 24
LÍFSBARÁTTA heimiliskattarins er ekki jafn hörð og kattadýra óbyggð-
anna en val hans á veiðilendum byggist á jafn mikilli hugkvæmni. Þessi
hefur t.d. haft gáfur til að venja komur sínar á Sægreifann í Reykjavík.
Morgunblaðið/RAX
Veiðilendur sælkerans
JAN Egeland, sem samhæfir hjálp-
arstarf Sameinuðu þjóðanna, sagði í
gær að þúsundir almennra borgara
væru í hættu í sunnanverðu Líb-
anon vegna ósprunginna klasa-
sprengna, sem Ísraelsher beitti síð-
ustu þrjá daga hernaðarins gegn
Hizbollah, eða þegar vopnahlé var í
sjónmáli.
Í klasasprengjum eru margar
smásprengjur, sem dreifast yfir all-
stórt svæði, og Egeland sagði að allt
að 70% smásprengna Ísraela hefðu
ekki sprungið. Sérfræðingar Sam-
einuðu þjóðanna rannsökuðu nær
85% svæðanna sem urðu fyrir
sprengjuárásum Ísraela og áætla
að þar séu alls um 100.000
ósprungnar smásprengjur á 359
stöðum.
„Það sem mér blöskrar og þykir
algjörlega siðlaust er að 90% klasa-
sprengjuárásanna voru gerð síð-
ustu þrjá daga átakanna og á þeim
tíma vissum við að öryggisráðið
myndi samþykkja ályktun, að átök-
unum myndi ljúka,“ sagði Egeland.
„Á hverjum degi missir fólk útlimi,
særist eða deyr af völdum þessara
vopna.“
Egeland benti á að sprengjurnar
voru framleiddar í Bandaríkjunum
og fleiri löndum. „Ég vona að
Bandaríkjastjórn ræði þetta við Ísr-
aela vegna þess að það er hneyksli
að nú skuli vera 100.000 sprengjur á
svæðum þar sem konur, börn, kaup-
menn og bændur fara um.“
Margir eiga ekki heimkvæmt
Um milljón Líbana flúði heim-
kynni sín vegna árása Ísraelshers
og um 250.000 þeirra geta ekki snú-
ið þangað aftur, annaðhvort vegna
þess að heimili þeirra voru lögð í
rúst eða vegna hættunnar sem staf-
ar af ósprungnum sprengjum.
Um 100.000
ósprungnar
sprengjur
Reuters
Hneykslaður Egeland blöskrar
klasasprengjuárásir Ísraela.
Egeland segir
sprengjuárásir
Ísraela siðlausar
Líbanar kvíða framtíðinni | 16
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
London. AFP. | Mávar eru nú taldir svo mik-
ið vandamál í Bristol á Englandi að borg-
arstjórnin hefur gripið til þess ráðs að
banna að starfsliði borgarinnar sé veitt
kex með teinu.
Borgarstjórnin í Bristol reiknaði út að
hún gæti sparað 25.000 pund, eða 3,3 millj-
ónir króna, á ári með því að sleppa því að
kaupa kex handa starfsmönnunum.
Borgarstjórnin hyggst verja fénu sem
sparast í áform um að stemma stigu við
fjölgun máva með því að dýfa eggjum
fuglanna í olíu þannig að þau klekist ekki
út. Áætlað er að þetta kosti 30.000 pund,
sem svarar fjórum milljónum króna.
Oddvita meirihlutans í borgarstjórn-
inni, Steve Comer, hugkvæmdist það ráð
að banna kex á fundum borgarstarfs-
manna. „Þetta virðist vera munaður sem
við getum verið án,“ sagði hann.
Talið er að um 2.000 mávapör séu í mið-
borg Bristol þar sem þeir lifa aðallega á
skyndibitaafgöngum og öðru sem fleygt er
á göturnar. Áætlað er að mávunum fjölgi
um 17% á ári.
Kexbann til að
sigrast á mávum
Boston. AP. | Magn nikótíns í bandarískum
sígarettum hefur aukist um 10% að með-
altali síðustu sex árin og það veldur því að
fólk er fljótara að ánetjast sígarettum en
áður og á erfiðara með að hætta að reykja.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem heil-
brigðisyfirvöld í Massachusetts hafa gert.
Samkvæmt rannsókninni hefur magn
nikótíns sem berst til lungnanna þegar fólk
reykir aukist, sama hvaða tegund vindlinga
um ræðir.
Í ljós kom einnig að reykingamenn, sem
nota „léttar“ tegundir, fá jafn mikið nikótín
og aðrir, þar sem enginn munur var á nikó-
tíninnihaldi tegunda sem kallast „bragð-
miklar“, „miðlungssterkar“, „léttar“ og
„mjög léttar“.
Magn nikótíns
jókst um 10%
BÆÐI sjávarútvegsráðuneytið og
utanríkisráðuneytið hafa í sam-
vinnu við önnur ríki innan Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd-
arinnar (NEAFC) unnið að því að
koma í veg fyrir að flutningaskipið
Polestar fái að landa karfa veidd-
um af svonefndum sjóræningjum á
Reykjaneshrygg. Komið var í veg
fyrir löndun úr skipinu í Japan og
unnið er að því að hið sama verði
upp á teningnum í Suður-Kóreu
þangað sem talið er að skipið stefni
nú. Óstaðfestar heimildir herma að
hugsanlega verði reynt að umskipa
aflanum á hafi úti í annað skip.
Skipið hefur tekið við afla frá
skuttogurum, sem verið hafa á
karfaveiðum á alþjóðlegu hafsvæði
á Reykjaneshrygg. Þeir eru þarna
að ólöglegum veiðum þar sem
NEAFC fer með fiskveiðistjórnun
á svæðinu.
Landhelgisgæslan hefur að
minnsta kosti í þrígang í sumar
fundið Polestar á þessu hafsvæði.
Viðurkenndu skipverjar í eitt
skipti að það hefði tekið við afla frá
Dolphin frá Georgíu og var þeim
gerð grein fyrir því að þarna væri
um ólöglegt athæfi að ræða.
Grétar Már Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, sagði að skipin hefðu verið á
ólöglegum veiðum utan 200 míln-
anna, annars vegar á Reykjanes-
hrygg og hins vegar í svonefndu
Irmingerhafi þar suður af. Þau séu
á svörtum lista og nú sé búið að
skrá Polestar einnig á slíkan lista,
en það skapi ákveðnar réttarheim-
ildir varðandi aðgerðir gegn þess-
um skipum.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir þetta
framtak stjórnvalda góðra gjalda
vert en það eina sem stöðvi þessar
sjóræningjaveiðar endanlega sé að
Landhelgisgæslan taki fram tog-
víraklippurnar á nýjan leik og
komi þannig í veg fyrir veiðarnar.
Komið í veg fyrir löndun
sjóræningjaafla í Japan
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
LÍÚ vill að… | 6
»Fengu ekki að landa sjó-ræningjaaflanum í Japan
og hið sama er upp á ten-
ingnum í Suður-Kóreu.
»Flest sjóræningjaskipineru skráð í Georgíu en
hafa áður verið skráð víða
annars staðar.
Í HNOTSKURN
♦♦♦
♦♦♦
MAGNI Ásgeirsson,
nýjasta óskabarn
þjóðarinnar, fékk
flest atkvæði þeirra
sex keppenda sem
eftir voru í gær-
kvöldi í þættinum
Rockstar Supernova.
Engan hefði getað
grunað hversu mikil
stemning hefur
skapast í kringum
þáttinn hér á landi
og greinilegt er að íslenskir aðdáendur
hafa staðið dyggilega á bak við Magna.
Voru ótal færslur á Blog.is frá netverj-
um sem víluðu ekki fyrir sér að vaka
langt fram á nótt og sendu inn ógrynni
atkvæða sem á endanum tryggðu Magna
áframhaldandi þátttöku í keppninni um
að verða næsti söngvari hljómsveit-
arinnar Supernova.
Magni með
flest atkvæði
í Rockstar