Morgunblaðið - 31.08.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 11
hún mikilvægt að málin væru skýrð
með þessum hætti. „Þarna er greini-
lega verið að bregðast við umræðunni
og auðvitað er það hið besta mál,“
segir Margrét. Aðspurð segir hún
ljóst að héðan í frá verði sótt um dval-
arleyfi af mannúðarástæðum í þeim
tilvikum þegar erlendar konur, sem
eru frá ríkjum utan EES-svæðisins,
skilja við íslenska eiginmenn sína
vegna heimilisofbeldis og óska eftir
því að dvelja áfram hér á landi. Tekur
Margrét fram að þar til 1. maí hafi er-
lendar konur í þessum aðstæðum hins
vegar alltaf fengið sjálfstætt atvinnu-
og dvalarleyfi ef þær sóttu um slíkt
þar sem Útlendingastofnun hafi
ávallt tekið tillit til aðstæðna kvenna
sem beittar höfðu verið ofbeldi, en nú
sé vegna breyttra aðstæðna ljóst að
sækja þurfi um annars konar leyfi.
Líkt og greint hefur verið frá í um-
Í tilefni þeirrar umræðu sem orð-ið hefur í fjölmiðlum undan-farnar vikur um réttarstöðu er-lendra kvenna hér á landi og
hugsanlega brottvísun úr landi vegna
skilnaðar þeirra eða sambúðarslita
sendu dómsmálaráðuneytið og Út-
lendingastofnun í gær frá sér sam-
antekt þar sem finna má lýsingu á
gildandi lögum um þetta efni og
hvernig staðið sé að framkvæmd
þeirra. Þar kemur fram að sam-
kvæmt 2. mgr. 11. gr. laga nr. 96/2002
megi veita útlendingi dvalarleyfi, þótt
skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef
rík mannúðarsjónarmið standa til
þess eða vegna sérstakra tengsla út-
lendingsins við landið.
Í lýsingunni segir m.a.: „Aðstæður
útlendings, sem kemur til landsins á
grundvelli hjúskapar, og leiðir dval-
arleyfi sitt af hjúskapnum, en skilur
við maka sinn vegna heimilisofbeldis,
geta verið með þeim hætti, að stjórn-
völdum beri að skoða hvort veita eigi
dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Hvert mál verður að meta sérstak-
lega. Hér skiptir m.a. máli að skoða
aðstæður viðkomandi í heimalandi og
tengsl við Ísland. Þá er grundvallar-
forsenda að málavextir séu kynntir
Útlendingastofnun. Án upplýsinga
um atriði, sem kunna að skipta veru-
legu máli fyrir útlending, er ekki unnt
að taka tillit til sérstakra aðstæðna
við afgreiðslu máls hans.“
Þegar leitað var viðbragða Mar-
grétar Steinarsdóttur, lögfræðings
Alþjóðahúss, við þessari lýsingu sagði
fjöllun Morgunblaðsins hafa mál
tveggja kvenna, annars vegar hinnar
rússnesku Margaritu og hins vegar
hinnar afrísku Maríu, sem nefnd var
svo í viðtali hér á síðum blaðsins hinn
21. ágúst sl., verið til umfjöllunar í
kerfinu, en þær eru fyrstu konurnar
sem synjað er um sjálfstætt dvalar-
og atvinnuleyfi hérlendis eftir að hafa
skilið við ofbeldisfulla eiginmenn sína.
Segir nauðsynlegar upplýsingar
þurfa að liggja fyrir
Eins og fram kom í viðtali við
Margaritu skildi hún við eiginmann
sinn vegna þess að hann beitti hana
andlegu ofbeldi og þvingunum, en
María yfirgaf eiginmann sinn eftir
ítrekaðar barsmíðar og hefur kært
hann fyrir líkamsárás. Báðum konum
var synjað um sjálfstætt atvinnu- og
dvalarleyfi, og átti María samkvæmt
þeirri ákvörðun að vera farin af landi
brott 15. ágúst sl.
Í samtali við Hildi Dungal, for-
stjóra Útlendingastofnunar, segir
hún að stofnunin muni taka mál þess-
ara kvenna aftur til skoðunar og gera
það í samstarfi við Alþjóðahús. Spurð
hvort konurnar þurfi nú að sækja um
dvalarleyfi að nýju og tiltaka að það
sé á forsendum mannúðar svarar
Hildur því neitandi.
„Ef við teljum að það verði rétt að
gera eitthvað frekar, þ.e. veita þeim
annars konar leyfi, t.d. dvalarleyfi af
mannúðarástæðum, þá munum við
gera það á grundvelli þeirrar um-
sóknar sem fyrir var. Það er ekkert
öðruvísi eyðublað fyrir dvalarleyfi af
mannúðarástæðum,“ segir Hildur og
tekur fram að nauðsynlegar upplýs-
ingar um aðstæður kvennanna þurfi
að liggja fyrir en þær hafi hins vegar
fyrst komið fram á síðustu dögum og
vikum.
Samkvæmt upplýsingum frá Maríu
fylgdi dvalarleyfisumsókn hennar til
Útlendingarstofnunar, sem hún af-
henti starfsmanni stofnunarinnar í
júní sl., bréf þar sem hún lýsti heim-
ilisaðstæðum sínum, upplýsti um lík-
amsárásina og þá ákvörðun sína að
kæra eiginmann sinn vegna hennar
og benti í því sambandi á Þórdísi
Bjarnadóttur, lögmann Neyðarmót-
tökunnar, um nánari upplýsingar.
Fyrir liggja bæði læknaskýrsla og
ljósmyndir af áverkum þeim sem
María varð fyrir. Aðspurð segist
Hildur ekki hafa séð þetta bréf og að
það hafi ekki fylgt með umsókn Maríu
þegar hún var afgreidd á sínum tíma.
Spurð hvort hún kunni einhverja
skýringu á því segist hún ekki geta
útilokað að bréfið hafi misfarist.
Spurð hvort til greina hefði komið
að veita Maríu dvalarleyfi af mann-
úðaraðstæðum hefði fyrrnefnt bréf
hennar legið til hliðsjónar við af-
greiðslu umsóknar hennar segir Hild-
ur það ekki útilokað, hefðu menn met-
ið það svo að þessi gögn réttlættu
veitingu dvalarleyfis á forsendum
mannúðar. Segir hún að stofnunin
muni nú fara í það að leita eftir þess-
um upplýsingum og sannreyna að-
stæður Maríu.
Aðspurð segir Hildur að ekki verði
farið í brottvísunarferli á hendur
Maríu á meðan mál hennar er til
skoðunar hjá stofnuninni. Spurð
hversu langan tíma reikna megi með
að það taki Útlendingastofnun að
skoða mál kvennanna tveggja aftur
segir Hildur ekki ólíklegt að það geti
tekið tvær til þrjár vikur.
Hildur Dungal Margrét Steinarsdóttir
Fréttaskýring | Málefni kvenna af erlendum uppruna sem skilja við íslenskan maka sinn vegna heimilisofbeldis hafa verið áberandi í um-
ræðunni að undanförnu. Dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun sendu í gær frá sér lýsingu á lögum um þetta efni og hvernig staðið sé
að framkvæmd þeirra. Lögfræðingur Alþjóðahúss segir ljóst að þótt umræddar konur hafi hingað til ávallt getað fengið sjálfstætt dvalar-
og atvinnuleyfi undir fyrrgreindum kringumstæðum þá sé ljóst að framvegis verði að sækja um dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is »Aðstæður útlendings, sem kemur til landsins ágrundvelli hjúskapar, og leiðir dvalarleyfi sitt af hjú-
skapnum en skilur við maka sinn vegna heimilisofbeldis,
geta verið með þeim hætti að stjórnvöldum beri að skoða
hvort veita eigi dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
»Fram til 1. maí sl. fengu allar konur frá ríkjum utanEES, sem skildu vegna heimilisofbeldis, sjálfstætt
dvalar- og atvinnuleyfi hér á landi sæktust þær eftir því.
»Nú eru til skoðunar í kerfinu mál tveggja erlendrakvenna, sem eru fyrstar kvenna til að vera synjað um
sjálfstætt dvalar- og atvinnuleyfi.
»Ljóst virðist vera að hér eftir þarf að sækja um dval-arleyfi af mannúðarástæðum fyrir hönd erlendra
kvenna sem yfirgefa ofbeldisfulla eiginmenn sína og
kjósa að vera áfram hér á landi.
Í HNOTSKURN
Útlendingastofnun tekur mál
kvennanna aftur til skoðunar
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 4433.
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
Flott föt fyrir konur
á öllum aldri
Sama gamla
góða verðið
Kringlunni · sími 568 4900
www.kello.isÍ
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
EL
3
39
59
0
8/
20
06
Mikið úrval af
fallegum yfirhöfnum:
Úlpur, ullarjakkar
og rúskinnsjakkar
Skoðið úrvalið á www.laxdal.is • Laugavegi 63 • s: 551 4422
TAIFUN Haustlínan komin
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122